Morgunblaðið - 05.06.2004, Page 56
SMS tónar og tákn
FÓLK Í FRÉTTUM
56 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HIN árvissa Stuttmyndahátíð Grand
rokks brestur á í dag, og er hún liður í
hinni fjölbreyttu Menningarhátíð
staðarins sem nú stendur yfir. Dag-
skráin verður með svipuðu sniði og
áður, sýndar verða sex nýjar stutt-
myndir sem valinkunnir kvikmynda-
gerðarmenn hafa unnið sérstaklega
fyrir hátíðina og í kjölfarið verður til-
kynnt um sigurvegara „Grandarans“,
verðlaunastyttu hátíðarinnar. Stutt-
myndahátíðin byrjaði sem grasrót-
arframtak þeirra Ingvars Stef-
ánssonar, Karls Hjaltested, eiganda
veitingahússins Grand Rokk, og fleiri
góðra manna, og hefur vaxið mjög
fiskur um hrygg á síðustu þremur ár-
um. Að sögn Ingvars er hátíðin með
þeim stærstu sinnar tegundar í Evr-
ópu, og verðlaunaféð það veglegasta,
500 þúsund fyrir 1. sætið og 150 þús-
und fyrir 2. og 3. sætið. Næsta ár
stendur til að færa út kvíarnar, opna
hátíðina fyrir erlendu samstarfi og
stækka umgjörðina.
Þeir Örn Marinó Arnarson og Þor-
kell Sigurður Harðarson eru meðal
þátttakenda í hátíðinni og mun stutt-
mynd þeirra Vín hússins keppa um
verðlaunin. Þeir félagar reka saman
framleiðslufyrirtækið Markell en
stuttmynd þeirra Fullt hús, vann 1.
verðlaun á hátíðinni í fyrra. „Vín húss-
ins er sjálfstætt framhald af fyrri
myndinni, og er hún gerð samkvæmt
þeim lauslegu viðmiðunarreglum sem
keppnin setur þátttakendum. Í fyrra
var það að hluti myndarinnar þurfti
að eiga sér stað inni á Grand Rokk, en
nú nægir að uppfylla skilyrðið utan-
húss,“ segir Örn Marinó og vill lítið
gefa upp um efni sögunnar. „Það má
þó segja að hún fjalli um „daginn eft-
ir“ eða timburmenn tilverunnar,“
bætir Þorkell við.
Þeir félagar láta mjög vel af stutt-
myndahátíðinni, segja hana í senn
grasrótarkennda og faglega. „Þetta
framtak hefur gefið mörgum kvik-
myndagerðarmönnum, sem eru að
byrja sinn feril eða hafa unnið í fag-
inu, tækifæri til að spreyta sig með
stuttmyndaformið. Það er alls ekki
lögð nógu mikil rækt við stuttmynd-
ina, það vantar tilfinnanlega vettvang
til að sýna stuttmyndir og stuðningur
á borð við þann sem hátíðin veitir við
framleiðsluna og með verðlaunafénu
er mjög hvetjandi,“ bendir Örn Mar-
inó á.
Fræbblar og hitabylgjur
Fyrirtækið Markell var stofnað ár-
ið 2001 og virðist áhugi á pönki og
hálfgerðum og algjörum pönkurum
samofinn sögu fyrirtækisins. „Upp-
haflega ætluðum við að stofna pönk-
hljómsveit, en á fyrstu æfingunni
leiddumst við út í að velta fyrir okkur
hugmynd að kvikmynd. Síðan hefur
eitt verkefnið leitt af öðru,“ segir Þor-
kell. Pönkuð viðhorf til lífsins, s.s. að
ráðast í hlutina hvort sem kunnátta er
fyrir hendi eður ei, virðist vera nokk-
urs konar gegnumgangandi umfjöll-
unarefni þeirra félaga. „Stundum er
þetta hálfgert sjálfseyðingaferli hjá
fólki, í öðrum tilvikum ganga hlutirnir
upp einmitt vegna þessa viðhorfs.“
Um þessar mundir er Markell að
vinna að heimildarmynd um pönk-
stefnuna og Fræbblana, og velta þar
m.a. fyrir sér hvernig pönkviðhorfum
hefur reitt af frá því að Rokk í
Reykjavík var og hét. Goðsagna-
kennda hljómsveitin Ham var einmitt
viðfangsefni áþekkrar nálgunar í
heimildarmyndinni Ham – Lifandi
dauðir sem þeir félagar unnu að. En
eftir Fræbblamyndina er stefnan sett
á leikna mynd í fullri lengd, en vinnu-
titill hennar er Siracusa, Siracusa.
„Þetta verður vegamynd um fólk sem
flýr hitabylgju og ferðast frá Ítalíu til
Íslands,“ segja Örn Marinó og Þorkell
sem búast því við að leggja land undir
fót á næstunni.
En fyrst er að sjá hvernig þeim fé-
lögum og öðrum þátttakendum Stutt-
myndahátíðarinnar reiðir af á Grand
rokk í kvöld. „Við erum spenntir, enda
voru myndirnar í fyrra allar mjög
skemmtilegar. Megi sá besti vinna.“
Stuttmyndahátíð Grand rokks vex fiskur um hrygg
Ein stór pönkæfing
Morgunblaðið/Eggert
„Stuttmyndahátíð Grand rokks er bæði grasrótarkennd og fagleg,“ segja
kvikmyndagerðarmennirnir Þorkell og Örn Marinó.
Stuttmyndahátíð Grand rokks
hefst kl. 17 í dag.
heida@mbl.is
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes
5. sýn su 6/6 kl 20 - blá kort
Su 13/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í VOR
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Í kvöld kl 20,
Lau 12/6 kl 20,
Lau 19/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í VOR
DANSLEIKHÚS 10/06/2004 SAMKEPPNI
9 verk eftir 14 höfunda
Fi 10/6 kl 20 - Kr. 2.500
Áhorfendaverðlaun - diskótek
BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson
Su 6/6 kl 20, Su 13/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Þri 8/6 kl 20 - AUKASÝNING
Mi 9/6 kl 20, - UPPSELT
Fi 10/6 kl 20, - UPPSELT
Fö 11/6 kl 20 - UPPSELT
Lau 12/6 kl 15
Lau 12/6 kl 20 - UPPSELT
SÍÐUSTU SÝNINGAR
TANZ THEATER HEUTE - LJÓSMYNDASÝNING
í samvinnu við Goethe Zentrum - Í FORSAL
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
á Kringlukránni í kvöld
Leikhúsgestir munið spennandi matseðil, s. 568 0878
Rokksveit Rúnars Júlíussonar
Fim. 24. júní FRUMSÝNING kl. 19.30 - UPPSELT
Fös. 25. júní Sýning nr. 2 kl. 19.30 - UPPSELT
Mið. 30. júní Sýning nr. 3 kl. 19.39
Fim. 1. júlí Sýning nr. 4 kl. 10.30
Fös. 2. júlí Sýning nr. 5 kl. 19.30
Sun. 4. júlí Sýning nr. 6 kl. 17.00
Lau. 10. júlí Sýning nr. 7 kl. 16.30
Lau 10. júlí Sýning nr. 8 kl. 19.30
Tíu tilnefningar
Sýning ársins
Leikstjóri ársins: Baltasar Kormákur
Leikmynd ársins: Gretar Reynisson
Búningar ársins:
Helga I. Stefánsdóttir
Lýsing ársins:
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Leikskáld ársins: Hallgrímur
Helgason /Baltasar Kormákur
Leikkona ársins í aðalhlutverki:
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Leikkona ársins í aukahlutverki:
Brynhildur Guðjónsdóttir
/Edda Arnljótsdóttir
Leikari ársins í aukahlutverki:
Þröstur Leó Gunnarsson
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA
Sýningar í kvöld og fim. 10/6
Síðustu sýningar í vor!
til Grímunnar - Íslensku
leiklistarverðlaunanna!