Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 1
Hvað er í matinn? Ingibjörg Bragadóttir tínir í körf- una í Melabúðinni | Neytendur Viðskipti | Marel í Ástralíu  Æskileg verðbólga?  Hvað ræður olíu- verðinu? | Útherji  Innherji Svipmynd Úr verinu | Fréttir  Landið og miðin  Ýsustofninn tvöfalt stærri en 2000  Bryggjuspjall Viðskipti og Úr verinu í dag kortum og upplýsingum um leiða- kerfi strætisvagna og lesta. Far- síminn getur því í krafti talkerf- isins leitt fólk um borgina, vísað því leið á næstu biðstöð og sagt því hvenær það á að fara út. Staðsetningarkerfið er svo ná- kvæmt, að ekki munar nema ör- fáum metrum. FINNSKIR vísindamenn segjast hafa þróað talkerfi fyrir farsíma, sem hjálpað getur blindu eða sjón- döpru fólki að komast leiðar sinn- ar um borg og bý. Leiðsagnarkerfið notar GPS- staðsetningarkerfið, sem tengt er símanum um Netið. Þannig fá not- endur aðgang að gagnvirkum Einnig er hægt að hlusta á fréttir og veðurspár af Netinu í símanum. Þetta kerfi kemur að sjálfsögðu ekki í staðinn fyrir blindrahunda og -stafi en ætti að geta hjálpað blindu fólki mikið. Nú er verið að prófa það í samvinnu við blindra- félagið í Finnlandi. Leiðsögusími fyrir blinda til að komast um borg og bý Helsinki. AFP. FJÓRÐI hver karlmaður og fimmta hver kona stunda enga reglulega líkamsþjálfun, þrátt fyrir sterkar fræðilegar vísbend- ingar um margvísleg jákvæð áhrif hreyf- ingar á heilsufar. Þetta er meðal nið- urstaðna rannsóknar sem framkvæmd var á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2001– 2003 af læknum og öðrum sérfræðingum á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Einnig kemur fram að meira en helmingur full- orðinna íbúa höfuðborgarsvæðisins er of þungur eða feitur. „Fleiri Íslendingar lifa kyrrsetulífi en flestar grannþjóðir okkar og setja þarf fram raunhæf markmið til að auka almenna ástundun þjálfunar meðal þjóðarinnar,“ segir enn fremur í nið- urstöðum skýrsl- unnar, sem er birt í nýjasta tölublaði Lækna- blaðsins. Um fimmt- ungur kvenna og fjórðungur karla á höfuðborg- arsvæðinu sagð- ist ekki stunda neina líkamlega þjálfun. Hjá þeim sem stund- uðu þjálfun var sund, ganga eða leikfimi algengasta þjálfunaraðferðin. Helmingur kvenna á aldrinum 30–45 ára taldist of feitur, og 68,2% karla á aldrinum 50–65 ára, en þar var hæsta hlutfall þeirra sem töldust í of miklum holdum. Að sögn Sigríðar Láru Guðmunds- dóttur, íþróttafræðings og eins aðstand- enda rannsóknarinnar, var áhugavert að rannsaka hvort umræða um að Íslend- ingar væru margir of feitir ætti sér stoð í raunveruleikanum. „Niðurstöðurnar stað- festa að Íslendingar hreyfa sig ekki nóg og eru of feitir, en ástæða þess er ekki ljós. Við höfum leitt að því líkur að vinnutími, veðurfar og mataræði hérlendis sé orsaka- valdurinn,“ sagði Sigríður Lára í samtali við Morgunblaðið. Sigríður segir margt gott verið að gera um allt land til að auka hreyfingu lands- manna og stuðla að heilbrigðari lífs- háttum. „Þar má nefna átakið Ísland á iði og starf Manneldisráðs. Það nægir hins vegar ekki til. Gera mætti átak á sviði hreyfingar sýnilegra í samfélaginu,“ bætir hún við. „Það vantar sýnilega stofnun sem stuðlar að rannsóknum og fræðslu á hreyf- ingu sem hluta af lífsstíl.“ Ný rannsókn á holdafari og líkamsrækt höfuðborgarbúa Meira en helmingur of feitur HESTAR og folöld nutu í gær veðurblíðunnar í túnfætinum við bæinn Raufarfell við Kalda- klifsá, skammt frá Skógum, en þar var glamp- andi sólskin líkt og víðast hvar á landinu. Þegar að var gáð mátti sjá á kreiki innan um hestana fjögur tveggja og þriggja vikna folöld sem hvikuðu hvergi frá mæðrum sín- um. Að sögn Þorvaldar Þorgrímssonar, bónda á Raufarfelli, voru tvær hryssur til viðbótar komnar að því að kasta en ekki er að vænta fleiri folalda á þessu sumri. Um 50 hross eru á bænum. Í túnfætinum á Raufarfelli Morgunblaðið/RAX  Hestar og folöld bregða á leik/34–35 SAMSKIPTI Bandaríkjamanna og Frakka þóttu stirðna á ný í gær er Jacques Chirac, forseti Frakklands, lýsti því yfir að hann teldi að Atlantshafsbandalagið (NATO) ætti ekki að beita sér í Írak. George W. Bush Bandaríkjaforseti hafði fyrr um daginn sagst sjá fyrir sér að NATO léti til sín taka í Írak eftir að hernámi lyki þar formlega um næstu mánaðamót. „Ég tel ekki að það sé hlutverk NATO að skipta sér af málum í Írak,“ sagði Chirac og bætti við að hann hefði sterkar skoðanir á þessu máli. Orð hans þóttu í gærkvöld hafa spillt samskiptum ríkjanna aðeins degi eftir að þau komu sér saman um nýja ályktun um málefni Íraks í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Samskiptin hafa verið stirð undan- farna mánuði þar sem Frakkar studdu ekki innrásina í Írak. Bush tjáði sig um hlutverk NATO í Írak eftir að hafa átt fund með Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, í tengslum við árlega ráð- stefnu leiðtoga átta helstu iðnríkja heims, sem lýkur í dag vestra. „Við teljum að NATO eigi að koma að málum. Við munum vinna með bandamönnum okkar í NATO að því að viðhalda því hlutverki sem þeir gegna í Írak og vonandi auka það,“ sagði Bush. NATO gegnir sem slíkt engu formlegu hlutverki í Írak en 15 aðildarríkjanna 26 hafa sent liðsafla til landsins. Bandarískir embættismenn sögðu stjórnvöld vilja að NATO kæmi sem bandalag að þjálfun hins nýja hers Íraka auk þess sem aðild- arríki sem hefðu liðsafla þar lýstu sig reiðubúin til að viðhalda honum. Talsmaður NATO sagði í gær ógerlegt að segja til um hvert hlut- verk bandalagsins gæti orðið í Írak. Fyrst þyrfti að koma fram beiðni í þá veru frá stjórnvöldum í Írak en um mánaðamótin lýkur hernámi þar samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og bráða- birgðastjórn heimamanna tekur við völdum. Chirac og Bush ósam- mála um NATO og Írak Sea-eyju í Georgíu, Brussel. AP. AFP. Jacques Chirac og George Bush heilsast á G-8-fundinum í gær. Reuters STOFNAÐ 1913 157. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.