Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 48
UMRÆÐAN 48 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMFERÐAR- STOFA skráir öll um- ferðarslys sem lög- regla gerir skýrslur um. Þær upplýsingar sem þannig verða til eru nýttar meðal ann- ars til að ákveða á hvað beri að leggja áherslu í umferðaröryggisstarf- inu. Reynt er að læra af reynslunni og bæði Vegagerðin og sveit- arfélög nýta þessar upplýsingar til að ákveða framkvæmdir. Mörg banaslys hafa orðið í júní, júlí og ágúst á undanförnum tveimur árum. Árið 2002 létust 14 þessa þrjá mánuði og á síðasta ári voru þeir 10. Samtals eru það 24. Þrettán létust eftir útafakstur, sjö í árekstrum, einn lést þegar bíll hans lenti á staur og í þremur til- fellum urðu gangandi vegfarendur fyrir bíl. Þrír létust í slysum sem urðu í þéttbýli, en 21 í dreifbýli. Hvað má læra af þessum staðreyndum? Því er til að svara að það er greinilega mun meiri hætta á banaslys- um á þjóðvegum lands- ins og að flest þeirra verða við útafakstur eða árekstur við annað ökutæki. En hverjar skyldu orsakirnar vera? Það er að öllum líkindum fyrst og fremst of mikill hraði miðað við aðstæður. Við skoðun á upplýsingum um ökuhraða á þjóðvegum, kemur í ljós að hann er langt yfir leyfðum mörkum sem segir okkur líka að hann er langt yfir hættumörkum. Hámarkshraðareglur byggjast oft- ast á hönnunarhraða vegar, en er stundum jafnvel hærri en hann. Þeg- ar bíll er kominn á yfir 100 km hraða má oft lítið út af bera eigi ekki að fara illa. Annar stór orsakavaldur þess að slys verða mjög alvarleg er hversu margir hirða ekki um að spenna bílbelti. Það á jafnt við um ökumenn og farþega bíla og það er ekki síður hættulegt að sitja laus í aftursæti en framsæti. Laus maður sem er 75 kg að þyngd verður 3–4 tonn á þyngd ef hann kastast fram við árekstur á 70 km hraða. Þannig getur hann skaðað sjálfan sig og einnig ökumann og farþega í fram- sæti. Þegar umferð er mikil á þjóð- vegum landsins er ekki verjandi að ökumenn séu í framúrakstri, nema þeir séu vissir um að geta það með fullu öryggi. Til að minnka hættu á framúrakstri eru þeir ökumenn sem kjósa að aka hægar heldur en um- ferðarstraumurinn hvattir til að víkja þegar kostur er og hleypa bíl- um fram úr. Það er nefnilega ekki bara hættulegt að aka of hratt, held- ur má segja að þeir sem aki á hraða sem er lengst frá meðalhraðanum skapi mesta hættu. Þá gildir einu hvort þeir aka hratt eða hægt. Allir eru sammála um mikilvægi þess að koma í veg fyrir hörmungar umferðarslysanna. Það er hins vegar erfitt að fá fólk til að breyta háttum sínum í umferðinni. Það er erfitt að fá það til að átta sig á hvaða afleið- ingar augnabliks einbeitingarleysi getur haft. Það er nauðsynlegt að ná eyrum alls almennings. Hann er afl- ið sem skapar örugga umferð og fyrst viljann vantar ekki, hvernig væri þá að sanna að hægt er að koma í veg fyrir þá fjölmörgu persónulegu harmleiki sem banaslys og önnur al- varleg slys hafa í för með sér. Vilji er fyrir hendi en athafnir vantar Sigurður Helgason skrifar um umferðarmál ’Allir eru sammála ummikilvægi þess að koma í veg fyrir hörmungar umferðarslysanna.‘ Sigurður Helgason Höfundur er verkefnastjóri hjá Umferðarstofu. ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Kranamaður óskast á bílkrana. Reynsla æskileg. Upplýsingar í síma 898 5369. ⓦ í Hraunbæ, Vesturberg. Einnig í afleysingar í Kvíslar. Ekki yngri en 18 ára. Upplýsingar í síma 569 1376 R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Skrifstofuhúsnæði til leigu Í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, er u.þ.b. 60 fm skrifstofuhúsnæði til leigu. Aðgangur að kaffistofu og fundarherbergi. Upplýsingar í síma 568 7811 frá kl. 9:00–13:00 virka daga. Atvinnuhúsnæði til leigu Kvosin/skrifstofuhúsnæði 100 fm² gott skrifstofuhúsnæði Tvö skrifstofuherbergi með aðgangi að eldhúsi og snyrtingu. Garðabær 900 fm² lager-, þjónustu/lagerhúsnæði. Næg bílastæði og gámaaðstaða. Kópavogur 230 fm² verslunar/þjónustuhúsnæði á 1. hæð á sérlóð. Malbikuð bílastæði og stór lóð. Upplýsingar gefur Karl í síma 892 0160. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Aðalfundur Skipamíðastöðvar Njarðvíkur verður haldinn í matsal félagsins mánudaginn 24. júní kl. 16.30. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf í samræmi við 13. gr. samþykkta félagsins. 2. Önnur mál löglega upp borin. Stjórnin. HÚSNÆÐI Í BOÐI Verð 58.750 á m² Til sölu eða leigu mjög gott verslunar-, lager- og skrifstofuhúsnæði. 400 fm gólfflötur á 2 hæðum. Góð staðsetning. Verð 23,5 millj. Möguleiki að skipta húsnæði í tvennt. Upplýsingar í síma 898 8577 milli kl. 18 og 22. TILBOÐ / ÚTBOÐ Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningar í jaðri höfuð- borgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði. Fasteignafélag Hafnarfjarðar býður 161 m² færanlegt hús við Hvaleyrarskóla til sölu. Kaupandi tekur við húsinu á lóðinni og skal hafa fjarlægt það fyrir 28. júní 2004. Útboðsgögn eru til afhendingar í Þjónustuveri Hafnar- fjarðar, Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði. Gögn má einnig nálgast á heimasíðu Strendings ehf., www.strendingur.is. Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 15. júní kl. 11:00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska, á skrifstofu Fasteignafélags Hafnarfjarðar, Strandgötu 11, 3. hæð. Fasteignafélag Hafnarfjarðar. Útboð, sala á færanlegu húsi við Hvaleyrarskóla Í kvöld kl. 20.00 Lofgjörðar- samkoma. Inger Dahl stjórnar. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir talar. Allir velkomnir. Fimmtudagur 10. júní Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Predikun Erling Magnússon. Mikill söngur og vitnisburðir. Allir eru hjartanlega velkomnir. Föstudagur 11. júní Opinn AA-fundur kl. 20:00. Þriðjudagur 15. júní Ungsam í Þríbúðum, Hverfis- götu 42, kl. 19:00. Uppbyggilegt starf fyrir ungt fólk í bata. www.samhjalp.is Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Dragháls 14, 0202, Reykjavík, þingl. eig. Oliver Edvardsson og Sigrún Björk Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Sparisjóður vélstjóra og Toll- stjóraembættið, mánudaginn 14. júní 2004 kl. 10:30. Vagnhöfði 17, 0102, Reykjavík, þingl. eig. J.V.J. ehf., gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Tollstjóraembættið, mánudaginn 14. júní 2004 kl. 11:30. Vagnhöfði 17, 0201, Reykjavík, þingl. eig. Víking ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 14. júní 2004 kl. 10:30. Þingholtsstræti 35, 0101 og 0201, Reykjavík, þingl. eig. Herdís Bene- diktsdóttir og Guðmundur Guðjónsson, gerðarbeiðendur Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú og Tollstjóraembættið, mánudaginn 14. júní 2004 kl. 14:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 9. júní 2004. UPPBOÐ mbl.is ATVINNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.