Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 30
LISTIR 30 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ                                                           !         "         "      #      $       !     !                 % &    "    $     !   "  $   '                               ! " #  $    %  (            )*+ ,-.-  !       +/--  ,/-- 0     "!      /   1 &'( % #  (  #  ) *+& ,  - , ./0+1&         $         !    ,/-- 2 3/-- 4    .5 --- 2  - , ./0+1&          $        !    3/-- 2 */.- 4    ) --- 2 ./0+1&     .             '    66  !    */.- 2 5-/-- 4    5 --- 2           0(789:; 2 <=%>:7 2 ?@8(7A74 2 @0B987 2 %;874:;                             Í TENGSLUM við Borgfirð- ingahátíð, sem stendur yfir nú um helgina, verður efnt til Sagnahátíð- ar til heiðurs skáldinu og sagna- manninum Agli Skallagrímssyni. Hátíðin hefur hlotið heitið „Sagna- hátíð Egils“ og verður haldin í fyrsta sinn. Haldin verða tvö sagnakvöld í héraðinu og munu kunnir sagna- menn frá Orkneyjum (Tom Muir), Hjaltlandseyjum (Lawrence Tull- och) og Skotlandi (Heather Yule og Bob Pegg), auk heimamanna og Ís- lendinga úr öðrum héruðum eða landsfjórðungum, stíga á stokk og segja sögur. Á föstudagskvöld hefst dagskráin kl. 20.30 á Búðarkletti í Borgarnesi. Sagnamenn láta vaða á súðum á sagnalofti á Búðarkletti. Einnig verður opin mælendaskrá fyrir heimamenn. Stjórnandi er Páll S. Brynjarsson. Á laugardagskvöld hefst dag- skráin kl. 20.30 í Lyngbrekku. Auk sagnanna mun Steindór Andersen kveða að fornum sið við undirleik Moniku Abendroth hörpuleikara. Hluti hátíðarinnar fer fram á ensku. Stjórnandi er Gísli Ein- arsson útilegumaður. Undanfari Sagnahátíðar Sumarið 2001 lauk formlega Evr- ópu- og nýsköpunarverkefninu „Endurreisn sagnalistar“ (Storytell- ing Renaissance) sem hafði verið í gangi á Vesturlandi um hríð. Þetta var samstarfsverkefni Íslands, Þýskalands, Skotlands og Grikk- lands undir stjórn Rögnvaldar Guð- mundssonar ferðamálafræðings. Í tengslum við verkefnið voru haldin sagnakvöld og námskeið um söfnun sagna. Eftir það hefur um 600 sögum af Vesturlandi verið safnað úr rituðum heimildum og sagnahópar verið stofnaðir víða. Storytelling-verkefnið þótti vel heppnað og voru í framhaldi af því haldin sagnanámskeið, sagna- mannaþing og sagnakvöld í Reyk- holti sumarið 2002. Sagnamenn sameinast á hátíð í Borgarfirði Bob Pegg, sagnamaður frá Skotlandi, er gestur hátíðarinnar. SÆNSKA félagið á Íslandi sýnir lofsvert frumkvæði í því að flytja inn barnaleiksýningu fyrir sænsku- mælandi ungviði á Íslandi, og aðra svo sem líka, þó efni verksins sé að þessu sinni nátengt tungumálinu, nefnilega bókstöfunum og þeirri hættu sem þeim stafar af óprúttn- um nafnlausum misindismönnum. Hans „Hasse“ Alfredson er gríð- arlega afkastamikill og fjölhæfur listamaður, en sýningin er sam- kvæmt leikskrá byggð á bók eftir hann þar sem glæpadrottning hyggst þurrka út stafrófið og ná þannig allsherjarvaldi í heiminum, þó að ekki sé alls kostar ljóst hvernig eitt leiðir af öðru í því sambandi. Sem betur fer eru skyn- söm stelpa og snjall uppfinninga- maður með á nótunum og tekst að hindra misindismennina, um það fjallar sagan. Ekki er ljóst hvort það er hug- mynd höfundar eða leikgerðarfólks að ramma söguna inn í einhvers konar vísindaskáldsöguheim, þar sem áhorfendur ganga inn í stórt tjald, „minnisvél“, þar sem sagan er sögð í endurliti. Allavega var þessi rammi dálítið fyrirferðarmik- ill miðað við mikilvægi og í raun allsendis óþarfur, þó að umgjörðin og leikmunir allir væru afar vand- aðir og á köflum giska sniðugir – raunar það besta við sýninguna. Lýsingin í tjaldinu var á hinn bóg- inn alveg afleit og undir hælinn lagt hvort andlit leikaranna sáust, sem er miður þegar verið er að segja sögu. Og þó að mikið væri greinilega lagt í sýninguna verður því miður að segjast að hún náði ekki að heilla þennan áhorfanda. Til þess var efnið of langsótt án þess að vera sérlega sniðugt, og það sem verra var, leikhópurinn of daufur til að halda athygli og einbeitingu í gegnum sýninguna. Sýningin byggist á sterkri stílfærslu í hreyf- ingum og útliti sem mestanpart var örugg en þar fyrir utan vantaði innlifun, orku og fókus í ætlun og nærveru persónanna. Of oft komu viðbrögð of snemma, of oft var kæruleysi í tengslum hópsins við áhorfendur. Sérstaklega var glæpakvendið markað þessu, sem kom mjög niður á spennustigi sýn- ingarinnar. Mest var gaman að stelpunni, en heilt yfir vantaði sár- lega leikgleði, tilfinningu fyrir þörf fyrir að miðla þessari sögu. Það er stór krafa, en því miður alger lág- markskrafa. Allt stafrófið er svo læst LEIKLIST Profil-leikhúsið frá Umeå Höfundur: Kristina Kalén og Maria West- in eftir sögu Hans Alfredson. Leikstjóri: Maria Westin, útlit: Ulla Karlsson, tón- list: Henrik Andrsson, leikendur: Sofia Westlund, Daniel Rudestedt, Jan Karls- son og Benedicte Stendal Hansen. VARFÖR ÄR DET SÅ ONT OM Q? Þorgeir Tryggvason TVEIR norðlenskir karlakórar eru nú að ljúka söngferðum erlendis. Karlakórinn Heimir í Skagafirði er á ferðalagi um Skotland og Karla- kór Eyjafjarðar í Danmörku. Heimismenn hófu ferð sína um síðustu helgi með tónleikum á Há- landahátíðinni í Inverness, sem er árleg listahátíð í skosku hálöndun- um. Sungið var fyrir fullu húsi í gömlu Hákirkjunni á laugardag og rann allur ágóði af tónleikunum til styrktar langveikum börnum í Inverness. Nokkurs konar auka- tónleikar fóru svo fram daginn eft- ir við messu í kirkju í smáþorpi í hálöndunum, þar sem sr. Svein- björn Bjarnason hefur þjónað til margra ára. Var Sveinbjörn einn fararstjóra í ferð Heimis um Skot- land. Skagfirskir söngmenn hófu síðan upp raust sína á hádegistón- leikum í St. Giles dómkirkjunni í Edinborg. Fengu Skotar að heyra úrval þeirra laga sem Heimismenn höfðu á vetrardagskrá sinni. Með í för voru makar kórmanna, alls nærri 70 manns, en stjórnandi Heimis er Stefán R. Gíslason og undirleikari Thomas Higgerson. Svipaður fjöldi var í ferð Karla- kórs Eyjafjarðar til Danmerkur, sem lýkur í dag. Fyrst var sungið í Scandinavian Center í Árósum, síð- an í Hörsens og loks í Kaupmanna- höfn á mánudags- og þriðjudags- kvöld. Seinni tónleikarnir þar í borg voru á vegum Færeyinga- félagsins í Kaupmannahöfn. Stjórnandi kórsins er Petra Björk Pálsdóttir og undirleikur í höndum hljómsveitar sem Daníel Þorsteins- son píanóleikari stýrir. Meðal einsöngvara í ferðinni voru Haraldur Hauksson, Snorri Snorrason og Stefán Birgisson. Var góður rómur gerður að söng þessara norðlensku karlakóra, sem luku um leið sínu blómlega vetr- arstarfi. Norðlenskir karlakórar í söngferðum erlendis Kling & Bang-gallerí Sýning Davids Askevold, „Two Hanks“, hefur verið framlengd til 13. júní. Opið fmmtudaga til sunnu- daga kl. 14–18 eða eftir sam- komulagi. Sýning framlengd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.