Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga BIFHJÓLASAMTÖK lýðveldisins, Sniglarnir munu í kvöld, fimmtu- dagskvöld, halda minningarvöku í Kúagerði við Reykjanesbraut vegna þeirra sem látist hafa í bif- hjólaslysum. Pétur Ásgeirsson, talsmaður Sniglanna, segir að tvö banaslys með stuttu millibili að undanförnu hafi verið kornið sem fyllti mælinn og bifhjólamenn séu sárir yfir skilningsleysi yfirvalda á málefnum þeirra. Fundur Sniglanna var hald- inn í gærkvöld í Laugardalshöll með þátttöku fulltrúa rannsóknar- nefndar umferðarslysa, trygginga- félaga og sjúkrahúsprests. Vilja fara í öflugar forvarnir „Við þráum að hafa eitthvað um þessi mál að segja. Við höfum í vet- ur sent öllum ráðuneytum og tryggingafélögum beiðnir um styrk til að fara í öflugasta forvarnar- starf sem við höfum nokkurn tíma staðið fyrir,“ segir hann. „Öll ráðu- neyti, að frátöldu umhverfisráðu- neytinu sem veitti okkur 200 þús- und króna styrk, synjuðu beiðni okkar. Við erum einungis áhuga- fólk og höfum ekki aðgang að digr- um sjóðum þótt við þurfum að borga dýrar tryggingar á þessi far- artæki. Við erum því sár yfir skiln- ingsleysi yfirvalda og trygginga- félaga sem hafa ekki viljað fjármagna forvarnarstarfið. Ár eft- ir ár, að frátöldu 2003, sitjum við uppi með alvarlega slys og bana- slys og slysin sem hafa orðið að undanförnu eru kornið sem fyllti mælinn.“ Morgunblaðið/Sverrir „Erum sár yfir skiln- ingsleysi yfirvalda“  24 hafa/4 KAUP Saxhóls og BYGG á hlut Baugs Group og Fengs í Flugleiðum í síðasta mánuði voru of stór til að kaupendurnir yrðu að hreinsa upp sölutilboð smárra hluthafa í félaginu. Saxhóll og BYGG keyptu 27% hlut Baugs og Fengs í Flugleiðum á genginu 9 en lokaverð Flugleiða á markaði var 7,6. Þá lágu fyrir í Kauphöllinni ósnert tilboð, hæst á genginu 8,6. Kemur fram í svari kauphallarinnar að samkvæmt reglum NOREX (norræna kaup- hallasamstarfsins) hefðu viðskiptin verið of stór til að reglur NOREX næðu yfir þau. Ekki skylt að kaupa bréf smárra hluthafa  Flugleiðaviðskipti/1B FORRÁÐAMENN Eimskipafélags Íslands hafa gert samninga um smíði tveggja mjög fullkominna frysti- skipa og er kaupverð þeirra samtals um tveir milljarðar íslenskra króna. Þessi skip verða fyrstu nýsmíðar fé- lagsins síðan árið 1996, er Brúarfoss var afhentur, og því verða nú tíu ár milli nýsmíða Eimskips. Brúarfoss var smíðaður í Póllandi og hafði burðargetu 1.012 gámaein- ingar eða um 12.000 tonn. Brúarfoss var seldur þýsku fyrirtæki árið 2000 og er nú í siglingum milli Frakklands og Kúbu. Til samanburðar eru stærstu skip íslenska kaupskipaflotans nú Goða- foss og Dettifoss, sem hafa burðar- getu 1.540 gámaeiningar eða 17.100 tonn. Þessi skip eru nú á langtíma- leigu hjá Eimskipafélaginu. Nýju skipin verða smíðuð í Noregi og afhent í september 2005 og júní 2006. Stefnt er að því að þau verði í áætlunarsiglingum milli Noregs, Bretlands og Hollands. Skipin verða um 80 metra löng og 16 metra breið. Eimskipafélagið lætur smíða tvö frystiskip Fyrsta nýsmíðin í áratug  Eimskip/C1 BÖRN og fullorðnir á Suður- landi nýttu veðurblíðuna í gær til „útiverka“ og nutu sól- arinnar, eins og dæmin sanna. Þessi ungmenni á Hvolsvelli brugðu sér með uppblásna sundlaug á þvottaplanið í bæn- um til að skola af henni skítinn svo fylla mætti hana að nýju, með vatni úr garðslöngunni heima. Sundlauginni var ekið á þvottastöð, þar var hún þrifin og að því búnu skellt upp á þakið á fjölskyldubifreiðinni og ekið sem leið lá heim. Það kom í hlut móður tveggja stúlkna í hópnum að aka með sundlaug- ina á þakinu. Ungmennin uppátækjasömu eru Hjörvar, Hlíf, Hrafnhildur og Karítas. Með sundlaug á þvottaplanið Morgunblaðið/RAX EIGENDUR Smáralindar hafa uppi áform um að reisa 10–12 hæða skrifstofubyggingu, svokallaðan Norðurturn, sem yrði 10–12 þús- und fermetrar að flatarmáli og tengdist báðum hæðum sjálfrar verslunarmiðstöðvarinnar með tengibyggingu við NV-inngang Smáralindar. Norðurturninn myndi rísa þar sem bílastæði eru nú og er ætlunin að byggja bílastæða- pall á NV-horni lóðar Smáralindar. Hafa eigendur Smáralindar kynnt skipulagsyfirvöldum í Kópa- vogi þessar hugmyndir með óform- legum hætti. Kostnaður vegna framkvæmdarinnar, ef af yrði, gæti numið 1 til 2 milljörðum króna. Að sögn Pálma Kristinssonar, framkvæmdastjóra Smáralindar, er stefnt að því að taka ákvörðun um bygginguna þegar gengið hefur verið frá breytingum á skipulagi lóðarinnar og langtímasamningar liggja fyrir við stærstu leigjendur hússins. Pálmi segir fyrirhugaðan bílastæðapall, sem reistur yrði, verða svipaðan og þann sem er við austurenda Smáralindar, og að á honum verði um 300 bílastæði. Þá segir hann að á tveimur neðstu hæð- um í Norðurturninum verði verslun, þjónusta og læknastarfsemi. Spurður um næstu skref segir Pálmi að hugmyndin fari nú í gegn- um hefðbundið kynningarferli en að öðru leyti stýrist hugsanleg fram- kvæmd af þeim leigutaka eða leigu- tökum sem þarna kæmu , sér í lagi þeim stærsta sem yrði kjölfestuaðili. „Hann stillir af tímann og aðra mikilvæga þætti í þessu enda yrði um langtímasamninga að ræða, til 15–25 ára,“ segir Pálmi. Fasteignafélag Íslands hf., sem er móðurfélag Smáralindar ehf., á að auki stórar byggingarlóðir sunnan Smáralindar. „Þar er gert ráð fyrir að rísi tugir þúsunda fer- metra af verslunar- og skrifstofu- húsnæði auk framhaldsskóla, læknastarfsemi o. fl. sem tengjast munu verslunarmiðstöðinni. Þetta er stærsta óbyggða atvinnuhúsa- svæði innan byggðar á höfuðborg- arsvæðinu,“ segir Pálmi. Áforma 10–12 hæða turn við Smáralind ARNAR Klemensson, 34 ára, og Alexander Harðarson, 18 ára – báðir lamaðir frá fæð- ingu – áforma að fara yfir Hellisheiði í sum- ar á hjólastólum og safna með því áheitum til styrktar Barnaspítala Hringsins. Ferðin verður farin 17. júlí nk. Lagt verð- ur af stað frá Hveragerði, upp Kambana og yfir Hellisheiði áleiðis að Barnaspítala Hringsins við Hringbraut. „Við vorum báðir mikið á spítalanum á okkar unglingsárum og mig langaði að styrkja þetta málefni. Ég plataði hann eig- inlega með mér í þetta,“ segir Arnar Klem- ensson, margfaldur Íslandsmeistari í bekk- pressu í flokki fatlaðra, sem tvisvar áður hefur lagt á heiði í hjólastól til að safna áheitum, en hann fór tvisvar yfir Fjarð- arheiði til styrktar Íþróttafélagi fatlaðra á Seyðisfirði, síðast árið 2000. Ferðalagið tók fimm og hálfa klukkustund sem er svipaður tími og þeir áætla í ferðina yfir Hellisheiði. „Ekkert mál“ Arnar og Alexander æfa saman í bekkpressu í Hátúni fjórum sinnum í viku. Auk þess að undir- búa sig með lyftingum fyrir átökin í sumar fer Arnar tvisvar í viku á hjólastólnum milli vinnu og heimilis, frá Stórhöfða niður í Fossvog. Þegar tími gefst æfa þeir sig einnig í Fossvogsdalnum og í Nauthólsvíkinni. En hvernig leggst ferðin í þá? „Þetta leggst bara mjög vel í mig. Þetta verð- ur ekkert mál og enginn einn kafli erfiðari en annar,“ segir Arnar, þótt vísast muni brattinn í Kömbunum reynast þeim drjúgur. Með í för verða meðlimir úr Sniglunum og lögregla. Yfir Hellisheiði í hjólastólum Tveir menn sem hafa verið lamaðir frá fæðingu hyggjast safna áheitum fyrir Barnaspítala Hringsins Morgunblaðið/Þorkell Arnar og Alexander æfa stíft um þessar mundir til að búa sig undir ferðina yfir Hellisheiði sem áætluð er 17. júlí. ♦♦♦ FRJÓTÍMI hófst snemma í ár líkt og síðastliðið ár, samkvæmt upplýs- ingum frá Náttúrufræðistofnun Ís- lands. Vel hafi vorað bæði syðra og nyrðra, og seljan hafi verið byrjuð að blómgast þegar í apríl. Í Reykjavík voru víðifrjó í lofti þegar mælingar hófust 15. apríl. Asparfrjó mældust fyrst hinn 22. apríl og urðu flest 2. maí. Birkifrjó hafa mælst samfellt frá 14. maí. Heildarfjöldi birkifrjóa orðinn með því mesta sem mælst hefur, þrátt fyrir að vorið í ár sé ekki jafngott og vorið í fyrra. Á Akureyri mældist lítið af asp- arfrjói í ár, rétt undir meðallagi. Grasfrjó eru nú farin að mælast fyrir norðan. Birkifrjó með því mesta í Reykjavík ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.