Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 61
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 61 Já Nei Já Nei Já Nei Já Nei eiginkvennanna og vill fá að vera í friði með sonum sínum tveim … ANNA NICOLE Smith segist sann- færð um að hún hafi átt í kynferð- islegu sambandi við draug. Hún lýsti þessari yf- irnáttúrulegu reynslu í viðtali við FHM- tímaritið á dög- unum. Smith segist hafa vaknað þó- nokkrum sinnum upp í þeirri trú að hún væri að hafa mök við unn- usta sinn en þegar betur var að gáð var hann hvergi sjáanlegur. Hún segist hafa verið dauðhrædd í fyrstu en svo gert sér grein fyrir að draugsi hafi ekki ætlað sér neitt illt … VICTORIA Beckham er sögð hafa leigt sér lúxusvillu í Portúgal til að dveljast í á meðan Evr- ópumótið í knattspyrnu fer fram þar í landi. Sker hún sig þar með úr hópi allra hinna eig- inkvenna liðs- manna enska landsliðsins sem hyggjast búa saman rétt fyrir utan Lissabon. Victoria segist einfaldega ekki geta hugsað sér að vera mið- punktur athyglinnar í félagsskap LEIKKONAN Scarlett Jo- hansson segist eiga þá ósk heit- asta að fá að kyssa mann á sínum aldri í næstu kvikmynd sinni. Scarlett, sem er 19 ára, hefur nær eingöngu leikið á móti karlmönnum sem eru nógu gamlir til að vera feður hennar, t.d. Bill Murray, Billy Bob Thornton og Colin Firth … VINKONA fyrrverandi umboðs- manns rokkstjörnunnar Courtney Love hefur ákært hana fyrir að ráðast á sig með með flösku og vasaljósi úr járni, samkvæmt upp- lýsingum yfirvalda. Love er ákærð fyrir að hafa ráðist á konuna með hættulegu vopni, en atvikið mun hafa átt sér stað 25. apríl síðast- liðinn á heimili Jim Barber, fyrrverandi um- boðsmanns Love. Handtökuskipun var gefin út í gær. Love er ekki í varðhaldi og ekki ljóst hvort hún hefur frétt af handtökuskipuninni. Hún hefur verið ákærð í þremur öðrum mál- um og þar af spruttu tvær ákærur vegna atburða sem gerðust með nokkurra klukkustunda millibili í október í fyrra. Núverandi um- boðsmaður Love, Michael Rosen- stein, hefur ekki gefið frá sér yf- irlýsingu vegna málsins. Yfirvöld segja að eftir að Love reyndi að brjótast inn í íbúð fyrr- verandi kærasta síns í október í fyrra, hafi fundist kókaín og önnur efni í blóði hennar. Hún lýsti sig seka fyrir hæstarétti í Los Angel- es um að hafa verið undir áhrifum eiturlyfja og samþykkti að fara í lyfjameðferð. Love á einnig yfir höfði sér kærur fyrir hæstarétti í Beverly Hills, en hún er sökuð um að hafa með ólögmætum hætti orðið sér úti um lyfseðilsskyld verkjalyf. Hún hefur lýst sig saklausa í því máli, en næst verður réttað í því 17. júní. Í maí var hún dregin fyrir dóm í New York vegna ákæra um árás og vítaverða hegðun, en þá var hún sögð hafa slegið aðdáanda með hljóðnema í næturklúbbi í mars … FÓLK Ífréttum The Fire Eaters eftir David Almond. 249 síður innb. Hodder gefur út 2003. MEÐ BESTU unglingabókahöf- undum Breta um þessar mundir er David Almond. Bækur hans hafa oft myrkan undirtón og jafnvel yfirnátt- úrlegan. Sjá til að mynda Kit’s Wild- erness sem segir frá börnum er leika dauðaleikinn og verðlaunabókina Skellig, fyrstu bók Almonds, þar sem piltur og stúlka rekast á upp- þornaða veru, hugsanlega engil. Í nýrri bók Almonds, The Fire Eaters, er allt í skugga yfirvofandi kjarn- orkustríðs, enda gerist bókin á dög- um Kúbudeilunnar þegar almenn- ingur á Vesturlöndum og víðar bjó sig undir heimsendi. Almond skrifar gjarnan um það hvernig erfiðleikar móta fólk og í helstu verkum hans felast erfið- leikarnir oft í sjúk- dómum aðstand- enda; elliglöp og síðan vitglöp afans Kit’s Wilderness, hjartasjúkdómur litlu systur í Skellig og svo er það óút- skýrður og dular- fullur sjúkdómur pabbans í The Fire Eaters. Hann notar og oft sérkenni- legar persónur eða uppákomur til að miða sögunni áfram og í The Fire Eaters gegnir uppgjafahermaðurinn geggjaði, McNulty, því hlutverki, en hann er eldgleypir og skaðar að auki sjálfan sig, rekur teina í gegnum kinnar og hendur fyrir peninga. Bobby Burns býr í smábæ í norð- urhluta Englands, Keely Bay, þar sem gamli tíminn er smám saman að víkja fyrir hinum nýja. Menntafólk er tekið að setjast að í þorpinu innan um þá sem lifa á snapi og snatti, ómenntað fólk og óupplýst. Bobby Burns er eiginlega mitt á milli, hann á félaga sem eru fátækir og ómennt- aðir, en vingast einnig við nýja strák- inn í skólanum sem er af listafólki. Í skólanum er hann einnig á mörkum gamals tíma og nýs. Þar tíðkast enn að berja börnin og þá berja þau sem mest, en ólíkt fyrri kynslóðum eru Bobby og félagar ekki sáttir við þá meðferð, beygja sig ekki undir ag- ann. Kjarnorkuváin er þó yfir öllu, það er erfitt fyrir íbúa Keely Bay að búa sig undir framtíðina þegar heimsendir virðist á næsta leiti, nokkuð sem virðist speglast í æðis- glampanum í augum McNultys sem sífellt hrópar: Borgið! Borgið! Eins og Almonds er von og vísa er The Fire Eaters afskaplega vel skrifuð og Bobby Burns lifandi per- sóna. Almond tekst einkar vel að gægjast inn í kollinn á Bobby og sýna hvernig staðreyndir eiga það til að renna saman við ímyndun í barns- huganum, og ekki síst hvernig börn upplifa stríðsótta og sjúkdóma, dul- arfull óttaleg fyrirbrigði sem þau ekki skilja og ráða illa við. Kemur ekki á óvart að þessi bók hafi verið margverðlaunuð sem besta barna- bók Bretlands á síðasta ári. Árni Matthíasson Forvitnilegar bækur Í skugga kjarn- orkuógnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.