Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 49
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 49 FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM -fyrir norðan- Innritun í Framhaldsskólann á Laugum lýkur hinn 11. júní Innritað er á: félagsfræðibraut náttúrufræðibraut íþróttabraut almenna námsbraut Umsóknir um skólavist og heimavist skulu sendar til Framhaldsskólans á Laugum 650 Laugar. Allar nánari upplýsingar veittar í símum 4646304, 4646306 og 464311 Topp- lausnin Tryggvabraut 5 • Sími 462 2700Bíldshöfða 14 • Sími 587 6644 Hapro farangurskassi er snjöll lausn til að koma öllum farangrinum í bílinn. Margar gerðir og stærðir fyrir alla bíla. Verð frá 27.500 kr. Í KJÖLFAR ákvörðunar herra Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, að synja fjölmiðlalögunum staðfestingar, hafa vaknað marg- víslegar spurningar um næstu skref og skyldi engan undra. Vafi hefur leikið á valdi forsetans þar sem stjórnarskráin er hreint ekki nógu ná- kvæm hvað það varðar og í raun hefur það mál ekki verið til lykta leitt að lögum. Frekar en að kljást um slíkt var tek- in pólitísk ákvörðun um að taka synjunar- yfirlýsingu forsetans gilda og bera hana undir þjóðaratkvæði. Það er enda vafalaust sú leið, sem minnstum núningi mun valda. Frá stofnun lýðveldis á Íslandi hefur embætti forseta Íslands verið í mótun. Forsetarnir hafa haft mis- munandi stíl og áherslur, en þróunin hefur verið á eina lund til þessa: að forsetaembættið sé óháð og hafið yf- ir flokkapólitík, flokkadrætti, dæg- urþras og átök. Áherslan hefur verið lögð á það, sem sameinar okkur Ís- lendinga: íslenska þjóðmenningu, uppgræðslu lands og lýðs. Forseta- embættið hefur verið tákn samein- ingar en ekki sundrungar. Þannig hefur það líka notið virðingar allra landsmanna, hvar í flokki, sem þeir standa, og ekki er annað að sjá en að nákvæmlega þannig vilji fólkið í landinu hafa það. Engum blandast hugur um að með ákvörðun sinni hefur herra Ólafur Ragnar gerbreytt eðli for- setaembættisins og aukið völd þess til muna. Og hið merkilega er að það er gert með einni yfirlýsingu á Bessastöðum. Með því að grípa fram fyrir hendur á lýðræðislega kjörnu Alþingi, sem tekið hefur ákvarðanir sínar með lögmætum hætti, hefur herra Ólafur Ragnar um leið fórnað öllu starfi fyrirrennara sinna til þess að hefja embættið yfir pólitísk deilu- mál líðandi stundar. Í þessu viðfangi er einnig rétt að minnast þess að for- seti hét því í vor að taka virkari þátt í umræðu um þjóð- félagsmál næði hann endurkjöri hinn 26. júní og mun því að lík- indum færast heldur í aukana. Forseti Ís- lands situr ekki lengur á friðarstóli heldur er hann orðinn beinn þátt- takandi í orrahríð stjórnmálabarátt- unnar. Það er miður, því það er meira framboð en eftirspurn eftir stjórn- málamönnum á Íslandi. Á hinn bóginn er verulegur hörgull á mönnum, sem sameinað geta þjóðina alla og eru hafnir yfir hið pólitíska argaþras. Og aldrei sem nú. Hvernig skal kosið? En hvernig ber að haga þjóð- aratkvæðagreiðslunni svo hún sé gild? Það er grafalvarlegur hlutur að trufla löggjafarvald Alþingis og það er eins gott að þar að baki sé trygg- ur þjóðarvilji, sem ekki verði efast um. Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra hreyfði þeirri hug- mynd að rétt væri að kveða á um að ¾ atkvæðisbærra manna skuli taka þátt í atkvæðagreiðslunni, til þess að lögunum verði hnekkt. Sumir stjórn- arandstöðuþingmenn hafa mótmælt þessu harðlega og sagt að með því gæti fjórðungur kjósenda tryggt lögunum framgang með því að sitja heima. Að mínu viti er sú hætta nán- ast hverfandi, en eins og sjá má á meðfylgjandi töflu hefur það aðeins einu sinni gerst í almennum kosn- ingum á Íslandi að kosningaþátttaka hafi verið minni en 75% (þegar frú Vigdís Finnbogadóttir fékk mátt- laust mótframboð á miðjum forseta- ferli sínum). En það má líka spyrja sem svo hvort ástæða sé til þess að hunsa réttkjörinn meirihluta Al- þingis ef meira en fjórðungur kjós- enda sýnir málinu ekki áhuga. Teldi meirihluti þjóðarinnar á sig hallað gæti hann rétt hlut sinn í næstu þingkosningum. Svo má ekki gleyma hinu að mál, sem eiga erindi til þjóð- arinnar með þessum hætti, eiga að vera þess eðlis að þau gangi þvert á hinar hefðbundu pólitísku línur: að þau höfði til réttlætiskenndar manna fremur en flokkspólitískra sjónarmiða. En þó að rök stjórnarandstæðing- anna kunni að vera léttvæg, er þessi hugmynd um 75% kjörsókn engan veginn viðunandi. Sem fyrr segir má það ekki gerast fyrr en í lengstu lög að vilji meirihluta Alþingis sé brot- inn á bak aftur, en 75%-reglan býður heim hættunni á að 37,6% borgara landsins geti hnekkt lögmætri meiri- hlutasamþykkt löggjafans. Það má ekki gerast. En einhvern þröskuld þarf að hafa þannig að þjóðin eigi ekki á hættu að lenda í herkví sérhagsmunahópa eða einbeittra minnihlutahópa vegna andvaraleysis þorra kjósenda. Þetta er enn mikilvægara en ella í ljósi fyrrgreindrar yfirlýsingar forsetans um að hann hyggist taka aukinn þátt í opinberri umræðu á komandi kjör- tímabili og hinnar nýju pólitísku víddar embættisins. Þá má ekki líta framhjá því fordæmi, sem herra Ólafur Ragnar hefur gefið eft- irmönnum sínum, og verður með tímanum vafalaust túlkað víðara en þrengra. Aðeins meirihluti ógildi lög Hinn eðlilegi þröskuldur hlýtur að vera vilji meirihluta borgara lands- ins. Við kjósum til þings svo að þar megi fjalla um landsins gagn og nauðsynjar án þess að stundarhags- munir ráði. Þetta fyrirkomulag er af sömu rót runnið og réttarríkið, dóm- ar skulu vera að lögum en ekki skoð- anakönnunum. Því jafnkært og okk- ur er lýðræðið verðum við að forðast múgræðið. Verði þinginu það á að samþykkja lög sem meirihluti þjóð- arinnar telur engan veginn samrým- ast samfélagssáttmálanum á hann vitaskuld að geta hrundið þeim. Helst í þingkosningum, en ef í nauð- irnar rekur með þjóðaratkvæða- greiðslu. En þá verður niðurstaðan líka að vera óyggjandi. Það má ekki fara milli mála að það er öruggur meiri- hluti þjóðarinnar, sem hefur lög- mæta samþykkt Alþingis að engu. Það verður aðeins gert með þeim hætti að meirihluti atkvæðisbærra manna ónýti lögin. Að óháð kjörsókn þurfi helmingur manna á kjörskrá og einum betur að ógilda þau. Íslenska lýðræðið er eldra en lýð- veldið og réttarríkið enn eldra. Það er enda leitun að þjóð, sem býr að viðlíka frelsi, réttaröryggi, jöfnuði og velmegun. En það er mikil jafn- vægislist að láta þetta allt haldast í hendur og þegar menn telja þörf á afbrigðum frá hefðbundnum leik- reglum lýðræðisins, sem reynst hafa okkur svo fjarska vel, þarf að sýna ýtrustu aðgæslu. Þá ríður á að menn horfi fram á veginn og búi svo um hnútana að minnihluti geti ekki tekið völdin af fulltrúum meirihlutans á Alþingi. Látum ekki minnihluta þjóðar ráða Andrés Magnússon skrifar um þjóðaratkvæðagreiðslu ’Það má ekki fara millimála að það er öruggur meirihluti þjóðarinnar, sem hefur lögmæta samþykkt Alþingis að engu.‘ Andrés Magnússon Höfundur er blaðamaður. RAFLAGNA ÞJÓNUSTA RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 lögg i l tu r ra fverk tak i Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.