Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 49
FRAMHALDSSKÓLINN
Á LAUGUM
-fyrir norðan-
Innritun í Framhaldsskólann á Laugum
lýkur hinn 11. júní
Innritað er á:
félagsfræðibraut
náttúrufræðibraut
íþróttabraut
almenna námsbraut
Umsóknir um skólavist og heimavist
skulu sendar til Framhaldsskólans á Laugum
650 Laugar.
Allar nánari upplýsingar veittar
í símum 4646304, 4646306 og 464311
Topp-
lausnin
Tryggvabraut 5 • Sími 462 2700Bíldshöfða 14 • Sími 587 6644
Hapro farangurskassi er snjöll lausn til að koma
öllum farangrinum í bílinn. Margar gerðir og stærðir
fyrir alla bíla. Verð frá 27.500 kr.
Í KJÖLFAR ákvörðunar herra
Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta
Íslands, að synja fjölmiðlalögunum
staðfestingar, hafa vaknað marg-
víslegar spurningar
um næstu skref og
skyldi engan undra.
Vafi hefur leikið á valdi
forsetans þar sem
stjórnarskráin er
hreint ekki nógu ná-
kvæm hvað það varðar
og í raun hefur það mál
ekki verið til lykta leitt
að lögum. Frekar en að
kljást um slíkt var tek-
in pólitísk ákvörðun
um að taka synjunar-
yfirlýsingu forsetans
gilda og bera hana
undir þjóðaratkvæði. Það er enda
vafalaust sú leið, sem minnstum
núningi mun valda.
Frá stofnun lýðveldis á Íslandi
hefur embætti forseta Íslands verið í
mótun. Forsetarnir hafa haft mis-
munandi stíl og áherslur, en þróunin
hefur verið á eina lund til þessa: að
forsetaembættið sé óháð og hafið yf-
ir flokkapólitík, flokkadrætti, dæg-
urþras og átök. Áherslan hefur verið
lögð á það, sem sameinar okkur Ís-
lendinga: íslenska þjóðmenningu,
uppgræðslu lands og lýðs. Forseta-
embættið hefur verið tákn samein-
ingar en ekki sundrungar. Þannig
hefur það líka notið virðingar allra
landsmanna, hvar í flokki, sem þeir
standa, og ekki er annað að sjá en að
nákvæmlega þannig vilji fólkið í
landinu hafa það.
Engum blandast hugur um að
með ákvörðun sinni hefur herra
Ólafur Ragnar gerbreytt eðli for-
setaembættisins og aukið völd þess
til muna. Og hið merkilega er að það
er gert með einni yfirlýsingu á
Bessastöðum. Með því að grípa fram
fyrir hendur á lýðræðislega kjörnu
Alþingi, sem tekið hefur ákvarðanir
sínar með lögmætum hætti, hefur
herra Ólafur Ragnar um leið fórnað
öllu starfi fyrirrennara sinna til þess
að hefja embættið yfir pólitísk deilu-
mál líðandi stundar. Í þessu viðfangi
er einnig rétt að minnast þess að for-
seti hét því í vor að taka virkari þátt
í umræðu um þjóð-
félagsmál næði hann
endurkjöri hinn 26.
júní og mun því að lík-
indum færast heldur í
aukana. Forseti Ís-
lands situr ekki lengur
á friðarstóli heldur er
hann orðinn beinn þátt-
takandi í orrahríð
stjórnmálabarátt-
unnar.
Það er miður, því það
er meira framboð en
eftirspurn eftir stjórn-
málamönnum á Íslandi.
Á hinn bóginn er verulegur hörgull á
mönnum, sem sameinað geta þjóðina
alla og eru hafnir yfir hið pólitíska
argaþras. Og aldrei sem nú.
Hvernig skal kosið?
En hvernig ber að haga þjóð-
aratkvæðagreiðslunni svo hún sé
gild? Það er grafalvarlegur hlutur að
trufla löggjafarvald Alþingis og það
er eins gott að þar að baki sé trygg-
ur þjóðarvilji, sem ekki verði efast
um.
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra hreyfði þeirri hug-
mynd að rétt væri að kveða á um að
¾ atkvæðisbærra manna skuli taka
þátt í atkvæðagreiðslunni, til þess að
lögunum verði hnekkt. Sumir stjórn-
arandstöðuþingmenn hafa mótmælt
þessu harðlega og sagt að með því
gæti fjórðungur kjósenda tryggt
lögunum framgang með því að sitja
heima. Að mínu viti er sú hætta nán-
ast hverfandi, en eins og sjá má á
meðfylgjandi töflu hefur það aðeins
einu sinni gerst í almennum kosn-
ingum á Íslandi að kosningaþátttaka
hafi verið minni en 75% (þegar frú
Vigdís Finnbogadóttir fékk mátt-
laust mótframboð á miðjum forseta-
ferli sínum). En það má líka spyrja
sem svo hvort ástæða sé til þess að
hunsa réttkjörinn meirihluta Al-
þingis ef meira en fjórðungur kjós-
enda sýnir málinu ekki áhuga. Teldi
meirihluti þjóðarinnar á sig hallað
gæti hann rétt hlut sinn í næstu
þingkosningum. Svo má ekki gleyma
hinu að mál, sem eiga erindi til þjóð-
arinnar með þessum hætti, eiga að
vera þess eðlis að þau gangi þvert á
hinar hefðbundu pólitísku línur: að
þau höfði til réttlætiskenndar
manna fremur en flokkspólitískra
sjónarmiða.
En þó að rök stjórnarandstæðing-
anna kunni að vera léttvæg, er þessi
hugmynd um 75% kjörsókn engan
veginn viðunandi. Sem fyrr segir má
það ekki gerast fyrr en í lengstu lög
að vilji meirihluta Alþingis sé brot-
inn á bak aftur, en 75%-reglan býður
heim hættunni á að 37,6% borgara
landsins geti hnekkt lögmætri meiri-
hlutasamþykkt löggjafans. Það má
ekki gerast.
En einhvern þröskuld þarf að hafa
þannig að þjóðin eigi ekki á hættu að
lenda í herkví sérhagsmunahópa eða
einbeittra minnihlutahópa vegna
andvaraleysis þorra kjósenda. Þetta
er enn mikilvægara en ella í ljósi
fyrrgreindrar yfirlýsingar forsetans
um að hann hyggist taka aukinn þátt
í opinberri umræðu á komandi kjör-
tímabili og hinnar nýju pólitísku
víddar embættisins. Þá má ekki líta
framhjá því fordæmi, sem herra
Ólafur Ragnar hefur gefið eft-
irmönnum sínum, og verður með
tímanum vafalaust túlkað víðara en
þrengra.
Aðeins meirihluti ógildi lög
Hinn eðlilegi þröskuldur hlýtur að
vera vilji meirihluta borgara lands-
ins. Við kjósum til þings svo að þar
megi fjalla um landsins gagn og
nauðsynjar án þess að stundarhags-
munir ráði. Þetta fyrirkomulag er af
sömu rót runnið og réttarríkið, dóm-
ar skulu vera að lögum en ekki skoð-
anakönnunum. Því jafnkært og okk-
ur er lýðræðið verðum við að forðast
múgræðið. Verði þinginu það á að
samþykkja lög sem meirihluti þjóð-
arinnar telur engan veginn samrým-
ast samfélagssáttmálanum á hann
vitaskuld að geta hrundið þeim.
Helst í þingkosningum, en ef í nauð-
irnar rekur með þjóðaratkvæða-
greiðslu.
En þá verður niðurstaðan líka að
vera óyggjandi. Það má ekki fara
milli mála að það er öruggur meiri-
hluti þjóðarinnar, sem hefur lög-
mæta samþykkt Alþingis að engu.
Það verður aðeins gert með þeim
hætti að meirihluti atkvæðisbærra
manna ónýti lögin. Að óháð kjörsókn
þurfi helmingur manna á kjörskrá
og einum betur að ógilda þau.
Íslenska lýðræðið er eldra en lýð-
veldið og réttarríkið enn eldra. Það
er enda leitun að þjóð, sem býr að
viðlíka frelsi, réttaröryggi, jöfnuði
og velmegun. En það er mikil jafn-
vægislist að láta þetta allt haldast í
hendur og þegar menn telja þörf á
afbrigðum frá hefðbundnum leik-
reglum lýðræðisins, sem reynst hafa
okkur svo fjarska vel, þarf að sýna
ýtrustu aðgæslu. Þá ríður á að menn
horfi fram á veginn og búi svo um
hnútana að minnihluti geti ekki tekið
völdin af fulltrúum meirihlutans á
Alþingi.
Látum ekki minnihluta þjóðar ráða
Andrés Magnússon skrifar um
þjóðaratkvæðagreiðslu ’Það má ekki fara millimála að það er öruggur
meirihluti þjóðarinnar,
sem hefur lögmæta
samþykkt Alþingis að
engu.‘
Andrés Magnússon
Höfundur er blaðamaður.
RAFLAGNA
ÞJÓNUSTA
RAFSÓL
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Sími:
553 5600
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
2
6
6
.0
0
2
lögg i l tu r ra fverk tak i
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010