Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 25 Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali F A S T E I G N A S A L A SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK SÍMI 533 1616 FAX 533 1617 LAUGARNESVEGUR 2JA HERB. MEÐ ÚTSÝNI - LAUS STRAX 67 fm einkar rúmgóð 2ja her- bergja íbúð á efstu hæð í 3ja hæða blokk. Gott útsýni og að- eins 4 íbúðir í þessu stigahúsi. Komið inn í hol, frá holi er opið í góða stofu með vestursvölum. Gott herbergi með góðu skápa- rými. Eldhús með borðkrók. Baðherbergi með baðkari og tengi fyrir þvottavél. LAUS STRAX. V. 10,4 m. 4076 Vestmannaeyjar | Eftir nokkra lægð hefur sjómannadagurinn verið að vinna sér sess á ný sem ein af stóru helgum ársins í Vest- mannaeyjum. Stendur dagskrá frá föstudegi til sunnudagskvölds. Fylgdust margir með leikjum og keppni við Friðarhöfn, góð aðsókn var að kvöldskemmtun og dansleik í Höllinni um kvöldið. Landakirkja var full í sjómannamessu og margir hlýddu á Snorra Óskarsson minn- ast hrapaðra og drukknaðra. Eins var vel mætt á Stakkagerðistún þar sem sjómenn voru heiðraðir. Þá má nefna sýningarnar Maður og öngull í Safnahúsinu og Tyrkjaránið í Dalabúinu sem voru góð viðbót við aðra dagskrá helgarinnar. Dagskráin hófst á föstudeginum þar sem sjómenn reyndu fyrir sér í golfi og fótbolta. Sextán tóku þátt í golfmótinu og var keppt eftir Texas Scramble-kerfi þar sem fóru saman vanur og óvanur. Óttar Gunn- laugsson og Sævar Gunnlaugsson höfðu sigur og sigurlaununum, sem voru í vökvaformi, urðu þeir að deila með öðrum keppendum. Í knattspyrnunni hafði áhöfnin á Hugin áhöfnina á Þórunni Sveins- dóttur naumlega. Um kvöldið stóð Árni Johnsen fyrir söngdagskrá í Akóges en þetta framtak hans hefur náð að skapa sér hefð á þessum degi. Ekki viðraði sem skyldi til útihá- tíðarhalda á laugardeginum en fólk lét það ekki á sig fá og var þokka- leg mæting við Friðarhöfn þar keppt var í kappróðri, koddaslag, spretthlaupi á karalokum og kara- róðri. Fyrir yngri kynslóðina var boðið upp á ferðir með sæþotum og handknattleiksdeild kvenna ÍBV var með fiskmarkað á planinu vest- an við Ísstöðina. Fjórar kvennasveitir mættu til leiks þar sem Ísfélagið hafði sigur á Godthaab í Nöf í keppni um Stöðv- arbikarinn. Hressóstelpurnar höfðu svo betur í keppni við Sláttugengið. Í keppni áhafna voru Bergur og Vestmanney hnífjöfn en Biggi á Vestmannaey sagðist láta bikarinn eftir enda væru sínir menn búnir að vinna það oft. Félagabikarinn vann Skipstjóra- og stýrimanna- félagið Verðandi en andstæðing- urinn var Sjómannafélagið Jötunn. Um kvöldið var svo skemmtun í Höllinni þar sem fram komu m.a. Dans á rósum Tóti, Íris, Sarah og Sævar Helgi, Árni Johnsen með fjöldasöng og Dans á rósum sá um stuðið á dansleiknum. Eins og áður kom fram var hvert sæti skipað í sjómannamessunni. Að henni lokinni lögðu Guðlaugur Friðþórsson og María Tegader blómsveig á minnisvarðann um hrapaða og drukknaða. Það kom fram hjá Snorra Óskarssyni, þar sem hrapaðra og drukknaðra var minnst, að frá síðasta sjómannadegi hefði enginn sjómaður farist. Hlöðver Haraldsson Sjómanna- félaginu Jötni, Sigþór Sigurðsson Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðandi og Haukur Kristjánsson Vélstjórafélaginu voru heiðraðir af stéttarfélögum sínum á sjó- mannadaginn. Tveir eru á lífi úr áhöfn Glaðs VE og fengu þeir minningarskildi að tilefni þess að 50 ár eru frá því báturinn fórst austan við Elliðaey, Flemming Poulsen tók við skildi Kartons Joensens en Petur Muller var sjálf- ur mættur en Karton átti ekki heimangengt. Kristján Hilmarsson fékk við- urkenningu fyrir að bjarga manni úr höfninni í Grindavík. Áhöfn Þórs fékk viðurkenningu fyrir björgun áhafnar Svanborgar sem sökk aust- an við Bjarnarey fyrir skömmu. Guðjón Pálsson á björgunarbátnum Þór og Pétur Steingrímsson lög- reglumaður fengu viðurkenningar fyrir að bjarga tveimur mönnum af Snorra Sturlusyni úr sjónum í vor. Þá kom Hugrún Magnúsdóttir, formaður Eykyndils, færandi hendi og afhenti Björgunarfélaginu myndarlega peningaupphæð. Að lokum heiðraði sjómanna- dagsráð Vestmannaeyja Árna Johnsen fyrir vel unnin störf í þágu sjómannastéttarinnar. Þeir (f.v.) Hlöðver Haraldsson, Sjómannafélaginu Jötni, Sigþór Sigurðsson, Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðandi, og Haukur Kristjánsson, Vélstjórafélaginu, voru heiðraðir af stéttarfélögum sínum á sjómannadaginn. Árni Johnsen flutti hátíðarræðu og var einnig heiðraður af sjómannadagsráði fyrir vel unnin störf. Góð stemmning á sjó- mannadeginum í Eyjum Morgunblaðið/Sigurgeir Slysavarnadeildin afhenti Björgunarfélaginu veglegan styrk. Adólf Þórs- son tekur við styrknum frá Hugrúnu Magnúsdóttur, formanni Eykyndils. Seyðisfjörður | Á föstudag verður opnuð í Tækniminja- safni Austurlands á Seyðisfirði sýningin Innreið nútímans. Svífur þar andi og tækni heimastjórnartímans yfir vötn- um. Rannveig Rist, stjórnar- formaður Símans, opnar sýn- inguna kl. 10:30 og eftir hádegi eða kl. 13:30 hefst málþingið Símamálið og heimastjórnin í félagsheimilinu Herðubreið. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flytur er- indi á málþinginu auk Brynj- ólfs Bjarnasonar, forstjóra Símans og Guðjóns Friðriks- sonar sagnfræðings. Forseti Íslands flytur erindi Innreið nútímans AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.