Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 43 Elsku amma Lillý. Það er svo erfitt að hugsa til þess að þú sért farin og komir aldrei aftur, þú sem hefur alltaf verið til staðar. En ég hugga mig við allar yndislegu stundirnar okkar saman. Ég gleymi aldrei hversu gott það var að vakna á morgnana, vitandi það að þú varst alltaf vöknuð og komin fram í eldhús til að taka til morgunkaffið. Þú útbjóst handa mér sólkjarnabrauð með Búra og marmelaði og það til- heyrði síðan alltaf því að koma í heim- sókn til þín í Grundarlandið. Síðasta árið þitt amma mín, var ég farin að sakna þess mikið að heyra ekki flautið þitt, sem var svo létt og skemmtilegt. Þú flautaðir alltaf þegar þú varst í góðu skapi, en það var eiginlega alltaf. Það er svo ótrúlegt hvað þú varst næm varðandi alla hluti. Þú vissir allt- af hvernig mér leið, þú last mig eins og opna bók. Við krakkarnir skemmtum okkur alltaf vel í allskonar leikjum hjá þér í Grundarlandinu og ég man hvað það var spennandi að mæla hæðina á okk- ur og miða við hæðina þína, því ekki varst þú há í loftinu og þá virtumst við vera stærri við hliðina á þér. Alltaf man hún Arna litla, tveggja ára gömul dóttir mín, það sem þú varst vön að segja við hana: „Úddlí- gúddlígúddlí mín…“ Henni fannst það svo skemmtilegt. Á fundinum með prestinum eftir andlát þitt, þegar nánasta fjölskyldan var saman komin í Grundarlandinu, tók Arna litla eftir því að stóran part af fjölskyldunni BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR THORODDSEN ✝ Björg Magnús-dóttir Thorodd- sen fæddist í Reykja- vík 26. maí 1912. Hún lést á Hjúkrun- arheimilinu Sóltúni 27. maí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 3. júní. vantaði. „Hvar er amma Lillý?“ spurði hún þá. Það er svolítið erfitt að útskýra fyrir henni, en ég sagði henni að þú værir uppi hjá Guði og hún veit að þú passar okkur, amma mín. Og ég veit það líka. Mér þykir svo vænt um þig, elsku amma mín. Ég mun alltaf sakna þín. Nú veit ég að þú ert komin til afa Jón- asar og Sigga litla, þú ert hamingjusöm og þér líður vel. Ég verð dug- leg að segja Örnu sögur af þér og sýna henni myndir, svo hún muni allt- af eftir þér og það mun ég líka gera. Þín ávallt elskandi, María. Fátt verður minnisstæðara á lífs- leiðinni en kringumstæður fyrstu kynna manns við lífsförunaut sinn. Svo var einmitt háttað haustið 1992 er ég sótti eiginkonu mína á fyrsta stefnumót okkar á heimili Bjargar heitinnar. Þar bjó þá á þeim tíma Björg, tilvonandi eiginkona mín, dótt- urdóttir hennar og alnafna. Ég knúði dyra, eilítið óstyrkur, eins og vera bar. Til dyra kom vel klædd eldri dama, lágvaxin, en virðuleg, með grátt og vellagt hár. Hún tók mér strax ljúfmannlega með hlýlegu brosi og bauð mér að ganga inn. Tókum við tal saman, og fór þegar í stað vel á með okkur, og elskulegt viðmót henn- ar slökkti strax allan óstyrk. Þannig fléttaðist Björg Magnús- dóttir Thoroddsen óvænt inn í líf mitt með ógleymanlegum hætti. Enda þótt tilgangur heimsóknarinnar í Grund- arland 15 hafi verið að hitta eiginkonu mína, sem síðar átti eftir að verða, varð Björg eldri fljótt samofin þess- um fyrstu kynnum. Svo hefur haldist síðan. Okkur Björgu heitinni varð strax vel til vina. Stundum var í fyrstu jafnvel haft á orði, að vart mætti milli sjá hvorri Björginni ég laðaðist meira að, þeirri eldri eða yngri. Enda hefur mér orðið æ ljósara síðan, að þær hafa átt fjölmarga kosti sameiginlega, sem ég bæði virði og dái. Björg var kona ríkulegra mann- kosta. Margir voru þeir bersýnilega meðfæddir; aðrir höfðu áunnist á langri og merkri ævi. Fædd á öðrum áratug síðustu aldar taldist hún til kynslóðar sem, því miður, er óðum að kveðja. Mannkostum þessarar kyn- slóðar hafði ég raunar sjálfur kynnst hjá eigin ömmu og afa, sem voru löngu gengin á vit feðra sinna. Mér þótti því afar vænt um að fá að tengj- ast Björgu svo sterkum fjölskyldu- böndum sem raun varð á, því hjá henni fann ég svo margt aftur, sem ömmur mínar og afar höfðu gefið mér í veganesti. Björg var sómakona í hvívetna. Hún var gædd góðum gáfum, skarp- skyggni og næmri eðlisávísun. Hún átti ríkulegan persónustyrk, en skynjaði jafnframt mannlegt eðli einkar vel. Gestir á heimili hennar voru aufúsugestir. Heimili hennar var einmitt eitt mesta stolt hennar, enda einstaklega fallegt og smekklegt. „Fagur gripur er æ til yndis“ gat ver- ið meðal helstu einkunnarorða henn- ar, og hafði hún safnað ýmsum dýr- gripum og komið haganlega fyrir á heimili sínu og Jónasar heitins, eig- inmanns síns. Það er tómlegt yfir fal- legu stofunum hennar og kontórnum í Grundarlandinu, en handbragð henn- ar, stíll og smekkvísi lifir þó enn góðu lífi á heimilum barna hennar; Maríu tengdamömmu, Soffíu og Magnúsar, ásamt mínu eigin heimili. Björg var heimskona. Hún hafði yndi af ferðalögum. Hvarvetna var henni sjálfri tekið sem hefðarkona væri á ferð, enda fas hennar allt og fáguð framkoma með slíku yfirbragði og fyrirhafnarlaus, að eftir var tekið. Kepptust enda allir við að greiða götu þessarar snotru konu, enda hún sjálf ávallt hjálpsöm og rausnarleg í garð annarra. Við Björg höfðum yndi af að skrafa saman um landsins gagn og nauðsynj- ar. Ég minnist samverustunda með henni með þakklæti og virðingu og alls þess, sem ég naut og lærði af hennar dyggu vináttu og ómældu al- úð. Hafðu bestu þakkir fyrir allt og allt. Guð fylgi þér á vit Jónasar og annarra feðra okkar. Sigurður Örn Hektorsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, GUNNLAUGUR VIÐAR GUÐMUNDSSON, Þórunnarstræti 134, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðju- daginn 8. júní. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudag- inn 18. júní kl. 13.30. Anna Soffía Gunnlaugsdóttir, Friðrik Guðjón Guðnason, Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir, Gestur Geirsson, Gunnlaugur Geir Gestsson, Steinunn Guðmundsdóttir, Björn Baldursson, Margrét Guðmundsdóttir, Kristinn Hólm, Guðrún Guðmundsdóttir, Hannes Haraldsson. Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐBJÖRG KARLSDÓTTIR, Búðardal, Skarðsströnd, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Silfurtúni, Búðardal, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstu- daginn 11. júní kl. 13.30. Svavar Magnússon, Sigríður Þórðardóttir, Anna Magnúsdóttir, Kristinn Þorkelsson, Jón Magnússon, Edda Agnarsdóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir, Eyjólfur Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN M. JÓNSSON bifvélavirki, Barðaströnd 8, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 11. júní kl. 13.30. Hólmfríður Benediktsdóttir, Magnús Benedikt Guðjónsson, Ólöf Jóna Jónsdóttir, Ása Hrönn Magnúsdóttir. Eiginmaður minn, faðir, fóstri, tengdafaðir og afi, HALLDÓR GUÐMUNDSSON fyrrv. framkvæmdastjóri, Njarðvík, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 11. júní kl. 14.00. Steinunn Gunnarsdóttir, Oddný Halldórsdóttir, Valdimar Birgisson, Dórothea Herdís Jóhannsdóttir, Snæbjörn Reynisson, barnabörn og aðrir vandamenn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG SVAVA HELGADÓTTIR frá Hlíðarenda í Fljótshlíð, sem lést mánudaginn 31. maí, verður jarð- sungin frá Hlíðarendakirkju laugardaginn 12. júní kl. 14. Dóra Ingvarsdóttir, Ólafur Oddgeirsson, Helgi Ingvarsson, Bára Sólmundsdóttir, Bragi Hannibalsson, barnabörn og barnabarnabörn. Einn helsti frum- kvöðull brúðuleikhúss á Íslandi er allur. Brúðuleikhús er til- tölulega ung listgrein á Íslandi þótt hún eigi sér aldagamla sögu í Evrópu. Jón E Guð- mundsson var svo sannarlega frum- kvöðull og brautryðjandi í brúðu- leikhússtarfi hér á landi. Hann fékk snemma áhuga á brúðuleik og stofnaði fyrsta brúðuleikhúsið, Hið íslenska brúðuleikhús um miðja síð- ustu öld. Í áratugi hélt hann uppi sýningum á ýmsum verkum, bæði innlendum og erlendum, og var JÓN E. GUÐMUNDSSON ✝ Jón Eyþór Guð-mundsson fædd- ist á Patreksfirði 5. janúar 1915. Hann lést 28. maí síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Fossvogs- kirkju 7. júní. landsþekktur sem frá- bær brúðuleikhúsmað- ur. Hann var líka vel þekktur meðal erlends brúðuleikhússfólks fyrir list sína og starf. Þegar UNIMA á Ís- landi (Union de la marionette) var stofn- að 1976 varð Jón fyrsti formaður félagsins og gegndi því starfi um árabil. Jón var mikill lista- maður, málaði bæði med olíu og vatnslit og skar út í tré. Hinar fjölmörgu leikbrúður hans eru mik- il listasmíð og eiga sér engan líka hér á landi, þar fékk rík formtilfinn- ing Jóns vel að njóta sín. Í þeim fel- ast mikil menningarverðmæti og þær eru hluti íslenskra leikminja sem ég vona svo sannarlega að fái að koma fyrir augu almennings í framtíðinni. Við brúðuleikhúsfólk á Íslandi kveðjum Jón með þökk fyrir skemmtilega og lærdómsríka sam- fylgd á liðnum árum. Með honum er genginn sérstæður og litríkur lista- maður og persónuleiki sem við aldr- ei gleymum. UNIMA á Íslandi Margrét Kolka Haraldsdóttir formaður. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín- ur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.