Morgunblaðið - 10.06.2004, Qupperneq 2
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablað EM í knatt-
spyrnu 2004, og einnig fylgir auglýs-
ingablaðið „Vesturland“.
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HELMINGUR OF FEITUR
Samkvæmt nýrri rannsókn á veg-
um Landspítala – háskólasjúkra-
húss er yfir helmingur höfuðborg-
arbúa of feitur. Sömuleiðis kemur
fram, að fjórði hver karlmaður og
fimmta hver kona stunda enga
reglulega líkamsþjálfun, þrátt fyrir
eindregnar vísbendingar um jákvæð
áhrif hreyfingar á heilsufar.
Ósammála um NATO
Samskipti Bandaríkjamanna og
Frakka þóttu stirðna á ný í gær er
Jacques Chirac Frakklandsforseti
lýsti því yfir að hann teldi að Atl-
antshafsbandalagið (NATO) ætti
ekki að beita sér í Írak. George W.
Bush, forseti Bandaríkjanna, hafði
fyrr um daginn sagst sjá fyrir sér
að NATO léti til sín taka í Írak.
Ruv.is án lagaheimildar
Umboðsmaður Alþingis hefur
komist að þeirri niðurstöðu, að Rík-
isútvarpið hafi ekki sýnt fram á að
gerð og birting efnis á heimasíðunni
www.ruv.is eigi sér fullnægjandi
lagaheimild. Sömuleiðis skorti Rík-
isútvarpið lagastoð til sölu auglýs-
inga á heimasíðunni.
Skrifstofuturn í Smáranum
Eigendur Smáralindar hafa
kynnt skipulagsyfirvöldum í Kópa-
vogi hugmyndir sínar um byggingu
10–12 hæða skrifstofubyggingar.
Ætla má að kostnaður við fram-
kvæmdina gæti numið 1–2 millj-
örðum króna.
Reykingar eina ánægjan?
John Reid, heilbrigðisráðherra
Bretlands, olli uppnámi í gær er
hann sagði að reykingar væru eitt
af fáum ánægjuefnum fátæks fólks.
Sagði hann m.a. að hættan af reyk-
ingum væri „orðin að þráhyggju
meðal menntaðs millistéttarfólks.“
Ýmis konar baráttusamtök gegn
reykingum fordæmdu orð hans þeg-
ar í stað.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 38
Erlent 12/14 Minningar 38/43
Höfuðborgin 18 Umræðan 44/47
Akureyri 20 Bréf 52
Suðurnes 22 Dagbók 55/56
Austurland 24 Kirkjustarf 55
Landið 25 Fólk 60/65
Listir 26/30 Bíó 63/65
Daglegt líf 29 Ljósvakamiðlar 6
Forystugrein 34 Veður 67
* * *
MEIRA en níu af hverjum tíu grunn-
skólakennurum eru hlynntir boðun
verkfalls í haust, hafi samningar ekki
tekist fyrir 20. september nk. Taln-
ingu úr leynilegri atkvæðagreiðslu
lauk á þriðjudag en alls voru 4.798 fé-
lagsmenn í Félagi grunnskólakenn-
ara og Skólastjórafélagi Íslands á
kjörskrá. Atkvæði greiddu 4.425 sem
gerir 92,2% kjörsókn.
Atkvæðin féllu þannig að já við
verkfallsboðun sögðu 3.992, eða
90,2% greiddra atkvæða, nei sögðu
333, eða 7,5% og auðir seðlar og ógild-
ir voru 100, eða 2,3%.
Finnbogi Sigurðsson, formaður
Félags grunnskólakennara, segist
vera ánægður með þessa niðurstöðu.
„Þetta sýnir að allt tal um að for-
ysta félagsins sé ekki að ganga í takt
við kennara er greinilega úr lausu
lofti gripið. Þetta eru skýr og sterk
skilaboð og sýna að menn eru tilbúnir
í baráttu. Allt tal um ánægju kennara
með núgildandi samning er sömuleið-
is eitthvað sem á sér ekki stoð í raun-
veruleikanum,“ segir Finnbogi.
Næsti fundur hjá ríkissáttasemj-
ara milli kennara og samninganefnd-
ar Launanefndar sveitarfélaganna er
boðaður 14. júní næstkomandi.
Spurður hvaða áhrif úrslit atkvæða-
greiðslunnar hafa á viðræðurnar seg-
ir Finnbogi ómögulegt að spá um það.
Tíminn verði að leiða í ljós hvort tak-
ist að ná saman fyrir 20. september.
Rúm 90% kennara hlynnt verkfallsboðun
Sterk boð um að menn
séu tilbúnir í baráttu
HJÓLREIÐAMENNIRNIR Bernd
Giegrich og Mathias Kristek frá
Þýskalandi voru staddir miðja vegu
milli Hvolsvallar og Víkur á leið
austur um miðjan dag í gær. Þeir
komu hingað til lands á laugardag
og áforma að hjóla hringinn í
kringum landið á 19 dögum.
Þetta er fyrsta för þeirra hingað
til lands en saman hafa þeir hjólað
vítt og breitt um Evrópu; Írland,
Skotland, Finnland, Svíþjóð og með
fram Dóná, milli Ungverjalands og
Rúmeníu. Bernd og Giegrich kváð-
ust hafa verið heppnir með veður
fram að þessu en sögðust hafa
heyrt hraksögur af veðrinu á Ís-
landi og væru því við öllu búnir.
Morgunblaðið/RAX
Umhverfis Ísland á 19 dögum
SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn stendur
fyrir sumarskákmóti sem hófst í gær
og ber það heitið Sumarskákmót Ís-
taks, en Ístak hf. hefur styrkt starf
Hróksins frá síðastliðnu hausti. Annar
bakhjarl skákmótsins er Guðmundur
Arason og fyrirtæki hans.
Meðal skákmanna á mótinu eru
tveir stórmeistarar, þeir Heikki West-
erinen frá Finnlandi og Tékkinn Jan
Votava, sem er margfaldur Íslands-
meistari með Hróknum. Þeir unnu
báðir sínar fyrstu skákir í gærkvöld.
Westerinen tefldi gegn Faruk Tairi og
Votava gegn Róbert Harðarsyni.
Lenka Ptácnikova keppir einnig á
mótinu, en hún varð á dögunum ís-
lenskur ríkisborgari og þar með fyrsti
stórmeistari kvenna í skák sem Ísland
eignast, að sögn forsvarsmanna
Hróksins. Keppendur eru alls tíu, og
teflir hver skákmaður níu skákir. Með
því að ná 6½ vinningi fæst áfangi að al-
þjóðlegum meistaratitli. Hægt er að
fylgjast með skákunum á slóðinni
www.hrokurinn.is.
Morgunblaðið/Ómar
Helgi Hjörvar leikur fyrsta leiknum í skák Lenku Ptácnikovu og Braga
Þorfinnssonar á skákmóti sem haldið er í höfuðstöðvum Hróksins.
Keppa um áfanga að
alþjóða meistaratitli
SÆVAR Jónsson verslunarmað-
ur, sem þekktastur er fyrir rekst-
ur skartgripaverslunarinnar
Leonard, telur nafn sitt hafa verið
misnotað af hálfu Baugsmanna að
því er Ríkisútvarpið greindi frá í
kvöldfréttum í gær. Hafi nafn
hans og kennitala komið nálægt
viðskiptum innan Baugs árum
saman án hans vitundar.
Fram kemur í fréttinni að rann-
sókn skattayfirvalda á fyrirtækj-
um í eigu Baugsmanna beinist
meðal annars að fyrirtækinu
Fjárfari og sé Sævar Jónsson
skráður varamaður í tveggja
manna stjórn félagsins nú, sex ár-
um eftir að hann taldi sig hafa ver-
ið farinn úr stjórn þess.
Í fréttinni segir: „Sævar stað-
festi við fréttastofu Útvarps að
hann hafi verið yfirheyrður af
hálfu skattayfirvalda um tengsl
sín við fyrirtækið Fjárfar. Hann
telji að nafn hans hafi verið mis-
notað. Hann sé nú að kanna rétt-
arstöðu sína.
Sævar og Sigfús Sigfússon í
Heklu stofnuðu Fjárfar. Tilgang-
urinn var að stofna fyrirtækið, að
sögn Sævars, til að kaupa versl-
anir 10-11 í gegnum Íslands-
banka. Hætt var við kaupin og
ekkert hlutafé greitt inn í félagið.
Nú, sex árum síðar, hafa skatta-
yfirvöld sent erindi til hans um
skattamál í tengslum við starf-
semi Fjárfars sem nú er innan
Baugsveldisins og kveðst hann þá
hafa komist að því að hann var
skráður áfram sem varastjórnar-
maður í fyrirtækinu þótt fullyrt
hafi verið við hann að hann væri
ekki lengur þar á blaði. Jóhannes
Jónsson er skráður stjórnarmað-
ur. Án þess að vita af því segir
Sævar Jónsson nafn sitt hafa ver-
ið lagt við kaup á hlut í fyrirtækj-
um á vegum Baugs um sex ára
skeið.“
Fram kom einnig að Einar Þór
Sverrisson, lögmaður á vegum
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, for-
stjóra Baugs, hafi haldið því fram
að nafn Sævars hafi ekki verið
misnotað. Þá kom fram að Helgi
Jóhannesson væri hættur sem
verjandi Jóns Ásgeirs.
Segir nafn sitt
hafa verið mis-
notað af Baugi
ÖRNINN selur nú rafknúin hlaupa-
hjól en lögum hefur verið breytt sem
gerir það að verkum að þau þarf ekki
að skrásetja. Að sögn Inga Rafns
Bragasonar, verslunarstjóra Arnar-
ins, mega hlaupahjólin einungis fara
upp í 15 km hraða á klukkustund og
þeim má ekki aka á akbrautum.
„Nú eru hlaupahjólin flokkuð sem
reiðhjól og eru ekki lengur skráning-
arskyld eins og var.“ Ingi Rafn segir
að hjólin sem Örninn selur séu ætluð
fyrir 10 ára og eldri en að þau þoli
ekki meira en 60 kg. „Það eru til
hlaupahjól sem þola meiri þyngd og
ég kem til með að vera með þau síð-
ar.“
Tollgæslan í Keflavík hefur gert
tugi rafknúinna hlaupahjóla upptæka
en að sögn Jóhanns. R. Benediktsson-
ar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli,
voru þau öll geymd. „Það var alltaf
ákveðin óvissa um þessi hjól svo við
fórum um þetta mildum höndum. Við
fengum vísbendingar um að hjólin
yrðu leyfð og þess vegna geymdum
við þau öll og sektuðum fólk ekki,“
segir Jóhann og bætir við að hlutað-
eigandi aðilar geti nú nálgast hjólin
sín hjá Tollgæslunni í Keflavík.
Rafknúin
hlaupahjól
leyfileg
GJALDSKRÁ Orkuveitu Reykja-
víkur fyrir heitt vatn og raforku
hækkar um 2,6% frá næstu mánaða-
mótum. Þetta var ákveðið á stjórn-
arfundi fyrirtækisins nýverið.
Sjálfstæðismenn í stjórn Orku-
veitunnar sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna og létu bóka að síðustu
tvö ár hafi verið ár mikillar verð-
hækkunar hjá fyrirtækinu.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar OR, lét bóka að breyting á
orkugjöldum nú sé í samræmi við
hækkun byggingarvísitölu, eins og
gert sé ráð fyrir í lögum.
Gjaldskrá
OR hækkar
um 2,6%
♦♦♦