Morgunblaðið - 10.06.2004, Síða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
OPIÐ HÚS - Langamýri 26, 210 Gbæ
Fasteignakaup kynnir 3ja herbergja íbúð á fyrstu
hæð með sérinngangi á besta stað í Garðabæ.
Lýsing eignar: Gengið er inn í hol með ljósum
flísum á gólfi. Svefnherbergi er með eikarparketi
á gólfi og ljósum fataskápum. Barnaherbergi er
með parketi á gólfi. Baðherbergi er með flísum á
gólfi, baðkari, sturtuklefa og ljósri baðinnrétt-
ingu. Eldhús er með ljósri innréttingu og búr inn-
af eldhúsi, flísar eru á gólfi. Stofa og borðstofa
eru með gegnheilu eikarparketi á gólfum og út-
gengi út á sérverönd, leyfi er fyrir sólskála. Húsið
var málað og þak standsett fyrir ári síðan að
sögn eiganda. Hér er stutt í alla þjónustu s.s.
skóla, sundlaug, íþróttir, verslanir og heilsu-
gæslu, því hefur verið mikil eftirspurn eftir eign-
um á þessu svæði.
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sölufulltrúi:
Guðmundur Valtýsson
gsm 865 3022,
tölvup.: gudmundur@fasteignakaup.is
Ármúla 15 • sími 515 0500
fax 515 0509 • www.fasteignakaup.is
fasteignakaup@fasteignakaup.is
Heimilisfang: Langamýri 26, Garðabæ
Stærð eignar: 97,1 fm
Staðsetning í húsi: 1. hæð
Bílskúr: 22,9 fm
Byggingarár: 1987
Brunabótamat: 13,1 millj.
Afhending eignar: Fljótlega
Verð: 17,9 millj.
Guðmundur Valtýsson frá
Fasteignakaupum tekur á móti
gestum milli kl. 18 og 19 í dag.
Reykjavík | Breyta á fyrirkomulagi borgarstjórn-
arfunda og setja á fót forsætisnefnd, m.a. til að
skipuleggja starf borgarstjórnar, samkvæmt tillög-
um sem lagðar voru fyrir borgarstjórn sl. fimmtu-
dag til fyrri umræðu. Verður fundarformið líkara
því sem þekkist á Alþingi. Voru oddvitar allra
stjórnmálaflokka ánægðir með tillögurnar og lýstu
yfir stuðningi við breytingarnar.
Gangi þetta eftir víxlast fundardagar borgarráðs
og borgarstjórnar og verða borgarstjórnarfundir á
þriðjudögum en fundir borgarráðs á fimmtudög-
um.
Flókið fyrirkomulag
Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar,
kynnti þessar tillögur og sagði markmiðið fyrst og
fremst að gera umræðu í borgarstjórn markvissari.
Borgarfulltrúar og forsætisnefnd ákvæðu hvaða
mál færu á dagskrá borgarstjórnarfunda undir sér-
stökum lið og umræða um þau yrði kláruð áður en
farið yrði í næsta mál á dagskrá. Áfram yrði borg-
arfulltrúum heimilt að fjalla um önnur mál, sem
kæmu fram í fundargerðum ráða og nefnda borg-
arinnar, en tími til þess styttur. „Þetta á líka að
gera umræðuna gagnvart þeim sem á hlusta, hvort
sem það er á áhorfendapöllum eða í beinni útsend-
ingu, miklu áheyrilegri,“ sagði Árni Þór.
Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi eru allir lið-
ir fundargerða nefnda og ráða, t.d. fundargerð
borgarráðs, til umræðu undir sérstökum dagskrár-
lið. Fundargerðir eru oft langar og fjallar hver og
einn borgarfulltrúi um þann lið fundargerðar sem
honum finnst eiga erindi inná fund borgarstjórnar.
Getur þá nokkur tími liðið á milli þess sem borg-
arfulltrúar fjalla um sama lið í fundargerð. Í milli-
tíðinni fjalla e.t.v. allt aðrir borgarfulltrúar um önn-
ur atriði. Þetta gerir fyrirkomulagið flókið og fólki
erfiðara fyrir að fylgjast með umræðu um eitt til-
tekið mál.
Sátt í öllum flokkum
Vilhjálmur Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, sagði að skynsamlega hefði verið að
þessu staðið og breytingin væri til hins betra.
Næstum ógerningur sé fyrir þá sem hlusta á um-
ræður í borgarstjórn að fylgjast með tilteknum
málum samkvæmt núverandi fyrirkomulagi. Ólaf-
ur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, fagnaði
þessum breytingum og sagðist þakklátur frum-
kvæði forseta borgarstjórnar í málinu. Þetta auki
vonandi áhuga almennings á að fylgjast með fund-
um borgarstjórnar.
Hin nýja forsætisnefnd skal hafa yfirumsjón með
starfi borgarstjórnar og alþjóðasamstarfi. Hún á að
fjalla um fjárhags- og starfsáætlun og um tillögur
að breytingum á samþykktum um stjórn Reykja-
víkurborgar, fundarsköpum borgarstjórnar og
samþykktum fyrir einstakar nefndir. Þá á forsæt-
isnefnd að setja reglur um kjör og starfsaðstöðu
kjörinna fulltrúa.
Aðspurður segir Árni Þór að embættismenn
borgarinnar hafi hingað til lagt fram tillögur um
kjör og starfsaðstöðu borgarfulltrúa fyrir borgar-
stjóra til samþykktar. Þau kjör séu í ákveðnu hlut-
falli við þingfararkaup alþingismanna og breytast í
samræmi við það.
Breytingar á fundarformi borgarstjórnar hljóta stuðning allra flokka
Fundirnir verða áheyrilegri
Miðborgin | Skólavörðustígur hefur
verið gerður að svokallaðri blóma-
götu, og færðu fulltrúar Reykjavík-
urborgar íbúum og fyrirtækjum við
götuna blóm og mold í potta af því
tilefni á þriðjudag.
Tilefnið til þessa blómaátaks er
smekkleg endurgerð neðri hluta
götunnar og er ætlunin að stuðla að
blómlegri ásýnd Skólavörðustígsins,
að því er fram kemur í tilkynningu
frá borginni. Þórólfur Árnason
borgarstjóri kom ásamt fleirum fær-
andi hendi, auk þess sem starfsmenn
garðyrkjudeildar gáfu góð ráð og
leiðbeindu um meðferð blómanna.
Skólavörðustígur tekur
á sig blómlegri mynd
um að loka einhverjum gatnaköfl-
um fyrir annarri umferð en stræt-
isvögnum, segir Ásgeir.
Of snemmt að
ræða breytingar
Skipulagsmál á Hlemmi voru
rædd í Skipulags- og byggingar-
nefnd í gær, og var málinu frestað
á fundinum og verður því rætt aft-
ur á fundi nefndarinnar á föstu-
dag. Á fundinum í gær voru drög
að skipulagi á Hlemmi kynnt
fulltrúum, en of snemmt er að
segja hvaða breytingar verða lagð-
ar til, segir Helga Bragadóttir,
skipulagsfulltrúi Reykjavíkur-
borgar.
Höfuðborgarsvæðið | Gildistöku
nýs leiðakerfis Strætó bs. verður
frestað, en fyrirhugað var að taka
kerfið í gagnið í ágúst. Nú er rætt
um að hefja akstur eftir nýju kerfi
í október, en ekki er komin end-
anleg dagsetning.
Ásgeir Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs., segir að ástæður
þessarar frestunar séu nauðsyn-
legar breytingar á umferðarmál-
um við Hlemm, en þær breytingar
þurfa að fara í deiliskipulag sem
ekki var reiknað með í upphafi.
Gera þarf viðamiklar breytingar
á öllu umferðarskipulagi við
Hlemm vegna breytinga á leiða-
kerfinu, og eru hugmyndir uppi
Gildistöku leiðakerfis
Strætó frestað
Miðborgin | Hugmyndir eru uppi hjá
Strætó bs. að félagið fái stoppistöð
fyrir strætisvagna í Lækjargötunni
fyrir framan útitaflið, en þar er nú
stæði fyrir leigubíla BSR. Leigubíl-
stjórar eru ekki sáttir við hugmynd-
irnar.
Ásgeir Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs., segir að þessi hug-
mynd hafi vissulega komið upp, en
hún hafi ekki verið rædd frekar enn
sem komið er, hvorki við borgaryf-
irvöld eða BSR, og því ekkert ákveð-
ið í þessum efnum.
„Við eigum góða viðskiptavini í
miðbænum og þetta skiptir miklu
máli,“ segir Guðmundur Börkur
Thorarensen, framkvæmdastjóri
BSR. Hann segir BSR hafa haft
þetta stæði til afnota í um 80 ár, og
segir hann engan áhuga innan fyr-
irtækisins á því að færa það.
Guðmundur segist vonast til þess
að þetta mál leysist friðsamlega með
því að aðrar lausnir finnist á vand-
ræðum Strætó. Hann segir stæðið í
Lækjargötunni vinsælasta leigubíla-
stæðið, það sé á við fjögur til fimm
önnur stæði í heildina séð.
„Það er mikil gangandi vinna
þarna, þetta er besta stæðið að því
leytinu til, og svo er líka staðsetn-
ingin góð gagnvart okkar viðskipta-
vinum sem eru staddir á miðbæjar-
svæðinu þegar við sendum þeim
bíla,“ segir Guðmundur.
Morgunblaðið/Eggert
Breytt kerfi: Hugmyndir eru um að Strætó fái stæði BSR í Lækjargötu þegar nýtt leiðakerfi kemst í notkun.
Vilja fá leigubílastæði
undir strætisvagna
Nauthólsvík | Bláfáninn svonefndi
var á dögunum dreginn að húni í
Nauthólsvík en fáninn er alþjóðlegt
merki sem hefur þann tilgang að
stuðla að verndun umhverfis, hafna
og baðstranda. Bláfánann hljóta
þeir sem leggja sig fram um að
auka gæði og þjónustu á viðkom-
andi stöðum og stuðla að verndun
umhverfis.
Árni Þór Sigurðsson, forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur, veitti
fánanum viðtöku frá Ólöfu Guðnýju
Valdimarsdóttur, formanni Land-
verndar. Bláfáninn blaktir á fjórum
stöðum í ár, í smábátahöfnunum í
Stykkishólmi og Borgarfirði eystra,
Bláa lóninu og Nauthólsvík.
Bláfánatímabilið stendur til 15.
október nk.
Morgunblaðið/Svavar
Árni Þór Sigurðsson, forseti
borgarstjórnar, og Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir, formaður Land-
verndar, draga bláfánann að húni.
Bláfáninn
blaktir við hún