Morgunblaðið - 10.06.2004, Qupperneq 33
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 33
Það er notalegt að koma í Mela-búðina, hér fæ ég allt sem migvantar, góða vöru og þjón-
ustan er framúrskarandi,“ segir Ingi-
björg Bragadóttir þegar við byrjum
að tína í körfurnar okkar í Melabúð-
inni.
Hún stingur sódavatni í körfuna
þegar við göngum framhjá gosinu,
segir að fjölskyldan sé eiginlega hætt
að drekka gos.
Innkaupin hjá Ingibjörgu eru árs-
tíðabundin. Nú er sumar og þá er létt-
ara yfir körfunni, sérstaklega þegar
helgi er framundan því þá er oft grill-
að.
„Þá kaupum við öðruvísi inn því
leiðin liggur gjarnan upp í Borgarnes
þar sem við erum með okkar annað
heimili á sumrin. Ég fer þá stundum
léttari leiðir í matreiðslunni, kaupi t.d.
tilbúna naan-brauðsblöndu frá
Sharwoods sem bara þarf að bæta í
vatni, svo er hnoðað og sett á grillið.“
Ingibjörg kaupir oft brauð frá bak-
aríinu í Grímsbæ sem fæst í Melabúð-
inni og ávaxtabrauðið er í uppáhaldi.
„Svo er fjölskyldan mjög hrifin af
frosnu Mr. Bagel-beyglunum.“
Sjávarfang á grillið
En hvað kaupir hún svo á grillið?
„Það er nú allur gangur á því en oft
verða þó nautalundir og lambalæri
fyrir valinu. Þá úrbeina þeir lærið fyr-
ir mann eða taka sinar af nautalund-
um. Þjónustulund meistaranna við
kjötborðið er alveg til fyrirmyndar.“
En hvernig meðhöndlar hún kjötið
á grillið?
„Ég nota gjarnan hefðbundna grill-
sósu frá CajP og pipra vel en annars
hef ég líka látið lambalærið liggja í
Ab-mjólk og sterku karríi (hot curry
paste).“
Ingibjörg segir að oft freistist hún
til að kaupa humar, risarækju eða
hörpuskel á grillið. „Þá blanda ég
saman sesamolíu, ostrusósu og sætri
indónesískri sojasósu í jöfnum hlut-
föllum og bæti svo í sesamfræjum. Í
þessu liggur fiskurinn í klukkustund
og svo er hann þræddur á pinna og
settur á grillið.“
Grænmetisborðið blasir nú við okk-
ur og Ingibjörg upplýsir að lífrænt
ræktuð epli lendi oft í körfunni. „Þeir
standa sig mjög vel í grænmetisdeild-
inni, eru með úrval kryddjurta og
leggja sig fram um að bjóða líka fram-
andi tegundir svo maður fær eiginlega
allt sem þarf. „Spínatið fer vel í okkur
og ég steiki það gjarnan á pönnu og
pipra. Eins finnst mér Portóbelló-
sveppirnir góðir á grillið og við erum
fyrir spergilkál, ekki síst holl-
ustunnar vegna. Síðan kaupi
ég gjarnan litlar gulrætur og
hita þær í smá smjöri og
hlynsírópi. Íslensku konfekt-
tómatarnir eru lostæti og ís-
lensku jarðarberin og yfirleitt
er allt íslenskt grænmeti
gott.“
Risottó vinsælt
En hvað um kaffi? spyr ég
þegar við göngum framhjá
kaffihorninu. „Ég kaupi ekki
alltaf sama kaffið því heima
helli ég upp á en í Borgarnesi
erum við með kaffivél. Morg-
undöggin frá Kaffitári er vin-
sæl þegar leiðin liggur út úr
bænum.
Ég þarf að kaupa hrísgrjón í ris-
otto,“ segir hún þegar við höldum
áfram göngu okkar um búðina og set-
ur Carnaroli-grjón í körfuna. „Við er-
um oft með risottó og notum þá sama
grunninn en setjum á víxl út í sjáv-
arrétti, grænmeti eða bara sveppi.“
Mjólkurvörurnar blasa nú við og
Ingibjörg staldrar við þar. „Mikið vildi
ég að þeir hjá Mjólkursamsölunni
færu að framleiða meira af hollri
mjólkurvöru. Nýlega kom ein tegund í
viðbót af engjaþykkni á markað og sú
er full af sykri og fitu. Það vantar holl-
ar mjólkurafurðir. Við kaupum oft
skyr með melónum og ástaraldinum
sem er ekki með viðbættum sykri og
svo drekkum við fjörmjólk.
Egg kaupi ég hins vegar ekki
hérna. Þau þurfa að vera í kæli og ég
vil helst kaupa egg sem koma úr hæn-
um sem ganga lausar. Því kaupi ég
mín egg annars staðar.“
Í lokin fær ananas að fljóta í körf-
una, niðursoðnir tómatar frá Ora sem
hún hælir fyrir gæði, hráskinka, núðl-
ur og herbamare-krydd.
En finnst henni eitthvað vanta í ís-
lenskar matvöruverslanir?
„Það er hægt að finna flest sem þarf
til matargerðar hér á landi en það er
helst að gæðin mættu vera meiri, t.d. í
innfluttu grænmeti. Hvítlaukur er
gott dæmi. Hann er ekki alls nógu
góður og þegar ég er á ferð í útlöndum
kaupi ég hvítlauk til að taka heim. Svo
eru íslensku kartöflurnar ekki lengur
boðlegar í júní og kaupmenn þurfa að
vera duglegri við að leita út fyrir land-
steinana að nýjum kartöflum.“
HVAÐ ER Í MATINN?|Ingibjörg Bragadóttir
„Ég fer í Melabúðina því úrvalið er ótrúlega
fjölbreytt í ekki stærra rými og algjörir
meistarar sem vinna við kjötborðið.“
Melabúðin, Hagamel 39
Reykjavík. Sími: 551 0224
Þjónusta: Vanti viðskiptavini
hugmyndir liggja frammi mat-
reiðslubækur til að glugga í.
Ingibjörg Bragadóttir: Frábær þjónusta og
fjölbreytt úrval.
Friðrik Guðmundsson, kaup-
maður í Melabúðinni: Hvernig
líst þér á þetta lambalæri?
gudbjorg@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Spínat og
nautalundir
Úrval: Starfsfólkið leggur
sig fram við að fylla á
þéttsetnar hillurnar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
49
39
0
6/
20
04
www.urvalutsyn.is
Trygg›u flér bestu k
jörin
og bóka›u strax á n
etinu!
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur, fer›ir til
og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Barnaafsláttur 11.000 kr.
Ver›i› er netver›. Bóka flarf og grei›a sta›festingargjald,
e›a fullgrei›a fer› á netinu. Ef bóka› er símlei›is e›a á
skrifstofu, grei›ist bókunar- og fljónustugjald, sem er
2.000 kr. á mann.
59.900 kr.*
5 viðbótaríbúðir á tilbo›sver›i
Andrúmsloftið á Krít er einstakt - það vita allir sem þangað
hafa komið. Skelltu þér í eina eða tvær vikur á þægilega
íbúðahótelið Golden Bay. Allar íbúðir eru loftkældar og gengið
er úr sundlaugargarðinum beint út í volgan sjóinn við
silkimjúka sandströnd.
á mann m.v. tvo í íbúð í 7 nætur.
49.900 kr.*
á mann m.v. 4 í íbúð í 7 nætur.
Sumartilbo› 21. júní, 28. júní og 5. júlí
Aukavika skv. verðlista.