Morgunblaðið - 10.06.2004, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 35
sól-
við
öll-
í
að
ossa-
f til-
u út í
f
nn
na á
fol-
ð
uðu
-
f-
fol-
ví að
g-
m.
sína
hald-
r.
r-
og
olti
Þor-
þetta
um.
Migið í vindinn. Í skjóli móður er gott að vera.
Morgunblaðið/RAXFolöldin hvikuðu hvergi frá hryssunum.
ÞEIR skoðanabræður Jón Stein-
ar Gunnlaugsson og Björn Bjarna-
son sendu mér hvor
sína kveðjuna í Mbl.
8. júní varðandi um-
mæli mín um þjóð-
aratkvæðagreiðslu
o.fl. Kveðja Björns er
fremur kurteisleg, og
ég bið hann forláts, að
ég skuli spyrða þá fé-
laga saman í þessari
stuttu svargrein. Eitt-
hvað virðist þeim hafa
sviðið undan ummæl-
um mínum, og er þá
kannski tilganginum
náð!
Jóni Steinari er hér vinsamlega
bent á, að hann ruglar saman
tveimur atriðum í ummælum mín-
um. Ég ber nefnilega virðingu fyrir
skoðunum annarra og vil þá líka
mega láta í ljós skoð-
anir mínar, hvort sem
þær eru „réttar“ eða
„rangar“, gamlar eða
nýjar, og hvort sem
þær varða lögfræði
eða önnur mál. Ég ber
mikla virðingu fyrir
skoðunum Þórs Vil-
hjálmssonar, sem ég
er oft sammála, en að
vísu innilega ósam-
mála í þessu tilfelli.
En ég tel hins vegar
sorglegt, að Þór skuli í
þessu máli hafa skor-
að á ríkisstjórnina að virða að vett-
ugi þjóðaratkvæðagreiðslu, sem
langflestir fræðimenn telja, að
stjórnarskráin mæli fyrir um.
Meira að segja tvíeykið, Davíð og
Halldór, hefur nú í reynd fallist á
viðtekna lagatúlkun í þessu efni.
Skoðanafrelsi mitt og tjáning-
arfrelsi er varið samkvæmt 73. gr.
stjórnarskrárinnar, jafnt um lög-
fræðileg efni sem önnur mál. Ég vil
gjarna gerast þátttakandi í baráttu
fyrir auknu tjáningarfrelsi, gegn
vaxandi foringjaræði, gegn skoð-
anakúgun og gegn ritskoðun hvers
konar. Í því felst barátta gegn lög-
um og frumvörpum, sem eru til
þess fallin að hefta frelsi fjölmiðla,
draga úr fjölbreytni fjölmiðlunar
og auka skoðanakúgun. Má í því
efni nefna fjölmiðlalögin marg-
umtöluðu og frumvarp til breyt-
inga á lögum um réttindi og skyld-
ur starfsmanna ríkisins, sem
frestað var afgreiðslu á nú í vor,
þar sem forstöðumönnum rík-
isstofnana er gert kleift að losa sig
við starfsmenn án rökstuðnings –
jafnvel vegna skoðana þeirra.
Tjáningarfrelsi prófessors
Jónatan Þórmundsson
’Ég vil gjarna gerastþátttakandi í baráttu
fyrir auknu tjáningar-
frelsi, gegn vaxandi
foringjaræði, gegn
skoðanakúgun og gegn
ritskoðun hvers konar.‘
Eftir Jónatan Þórmundsson
Höfundur er prófessor við
lagadeild Háskóla Íslands.
skiptastofnunarinnar um verndaraðgerðir.
Hefur Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
m.a. rætt þetta mál við utanríkisráðherra Ír-
lands og Hollands en Hollendingar munu taka
við formennsku í sambandinu af Írum þann 1.
júlí nk. Enn fremur hafa íslensk stjórnvöld átt
fundi með embættismönnum framkvæmda-
stjórnar ESB þar sem sjónarmiðum Íslands
hefur verið komið á framfæri. Segir við-
skiptaskrifstofan ljóst, að innan Evrópusam-
bandsins njóti slíkar verndaraðgerðir nokkurs
fylgis vegna mikils samdráttar sem orðið hafi
í fiskeldi í Skotlandi og á Írlandi.
Haft er eftir Grétari Má Sigurðssyni, skrif-
stofustjóra viðskiptaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins, í Stiklum, að íslensk stjórnvöld
muni halda áfram að leitast við að vinna gegn
því að hugsanlegar verndaraðgerðir valdi ís-
lensku fiskeldi búsifjum. Almennt hafi ráðu-
neytið orðið vart við skilning á sérstöðu Ís-
lands.
dislax