Morgunblaðið - 10.06.2004, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 39
okkar. Við munum minnast góð-
vilja þíns svo lengi sem við lifum
og minningin um þig mun ávallt
færa bros á andlit okkar. Sigga
Stína vildi líka segja þér að þann
stutta tíma sem hún þekkti þig
þótti henni mjög vænt um þig og
hún vonar að Guð geymi þig. Elsku
amma, þinn missir er mikill en við
munum styrkja þig með væntum-
þykju okkar.
Krakkarnir þínir,
Örn, Erna og Hjálmar.
Elsku Ingi. Mig langar í örfáum
orðum að þakka þér tryggð þína
við mig þegar ég var barn og ung-
lingur og alla tíð, þakka fyrir allar
góðu stundirnar og ógleymanlegar
minningar. Þú varst alltaf glað-
lyndur og einstakt góðmenni. Þú
lést mig alla tíð finna hvað þú hafð-
ir mikinn áhuga á mér og minni
fjölskyldu og þótti mér vænt um
það. Af mörgu er að taka af minn-
ingunum, og ætla ég að rifja hér
upp eina sem mér þótti einstaklega
vænt um. Það var þegar þú leyfðir
mér að lesa ástarbréfið sem Erna
sendi þér þegar þið voruð í tilhuga-
lífinu. Þú varst svo ánægður og
montinn með það og svo óskaplega
ástfanginn. Þið voruð einstaklega
samrýnd hjón og bestu vinir. Mig
langar að enda þetta með því að
segja þér hvað mömmu þótti
óskaplega vænt um þig, Ingi minn,
ég er ekki svo viss um að hún hafi
sagt það við þig sjálf, en ég veit að
bæði hún og Bubba systir þín taka
vel á móti þér og vernda þig.
Elsku frændi, ég mun alltaf
sakna þín.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð.
Lifðu sæll á ljóssins friðarströnd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóh. frá Brautarholti.)
Elsku Erna, missir þinn er mest-
ur. Ég votta þér, Guðrúnu Ernu,
Ólafi Inga og fjölskyldum innilega
samúð mína.
Guðrún Blöndal.
þá síðan. Eins fannst Lindu gaman að
koma til þín að leika við babúsku-kerl-
ingarnar. Hélt hún mikið upp á þær.
Líka voru pönnukökunar þínar alltaf
bestar. Á síðast ári komum við allar í
heimsókn með nýjasta fjölskyldu-
stoltið, hana Anítu Rán. Það var mjög
gaman, þú varst svo glöð að sjá hana
og gafst henni bangsa og kisu sem þú
hafðir prjónað. Eins fannst Markúsi
alltaf gott að koma til þín og alltaf
varð að halda upp á afmælin í Jöldu-
grófinni svo að þú kæmist í þau.
Jæja, elsku amma, lang- og langa-
langamma, nú ætlum við að kveðja
þig.
Megir þú hvíla í friði. Við elskum
þig.
Kveðja.
Kristín, Markús, Linda og
Aníta litla.
Þú hefur loks fengið þá hvíld sem
þú hafðir beðið eftir síðustu vikur og
ert nú á betri stað með afa Valda. Ég
á eftir að koma til með að sakna þín,
sakna þess að fá greitt í konfektmol-
um fyrir að stilla útvarpið fyrir þig,
sakna þess að hafa þig ekki hjá okkur
um jól og áramót. Ég veit þú kemur
til með að taka á móti mér seinna meir
með opnum örmum. Þangað til þá
segi ég bless.
Kjartan Hansson.
✝ Jóhanna EddaSumarliðadóttir
fæddist í Reykjavík
8. nóvember 1936.
Hún lést á Landspít-
ala – háskólasjúkra-
húsi í Fossvogi 23.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Kristjana Elísabet
Ólafsdóttir, f. í Þor-
geirshlíð í Miðdölum
2. júní 1901, d. 6. apr-
íl 1990, og Sumarliði
Kristmann Ólason, f.
í Munaðarnesi í Ár-
nesi á Ströndum 14.
nóvember 1900, d. 28. júní 1974.
Systkini Jóhönnu Eddu eru Óli
Rafn, f. 15. ágúst
1935, Hrafnhildur, f.
26. apríl 1939, og
Þóra, f. 3. júní 1941.
Jóhanna Edda ólst
upp hjá foreldrum
sínum í Reykjavík og
bjó þar þangað til
hún flutti að Ási í
Hveragerði árið
1968 þar sem hún
var búsett síðan.
Hún lauk gagn-
fræðaprófi 1952 frá
Lindargötuskóla í
Reykjavík.
Útför Jóhönnu
Eddu fór fram í kyrrþey 2. júní
síðastliðinn.
Hún Edda frænka mín er dáin
eftir stutta og snarpa veikinda-
hrinu. Það var engu líkara en að
hún þyrfti allt í einu að flýta sér
þessi ósköp héðan. Dæmigert fyrir
hana sem átti það einmitt til að
vilja flýta sér með það sem hún
þurfti að gera og ég heyri fyrir mér
dillandi hláturinn stundum þegar
henni sjálfri fannst hún fara offari.
Ég vildi óska að hún hefði ekki
þurft að fara alveg svona fljótt því
ég hefði svo gjarnan vilja heyra
hana segja mér fleiri sögur og
hlæja meira með henni. Edda hafði
óvenju þróað skopskyn og ekki
hvað síst gagnvart sjálfri sér, þrátt
fyrir þær þungu sjúkdómsbyrðar
sem hún þurfti að bera frá ung-
lingsaldri.
Þannig háttaði til að æskuheimili
hennar á Skúlagötunni varð mitt
annað heimili í nokkur ár þar sem
ég stelpuhnokkinn var pössuð og
kjössuð og umvafin af fjölskyldunni
allri með þeirri umhyggju og elsku
sem ég bý alla tíð að. Það var mikið
að gera á stóru heimili og lífsbar-
áttan hörð á meðan ég gat hoppað í
parís og boðið upp á blómum
skreyttar drullumallskökur. Það
var oft og mikið hlegið á þessu
heimili, en yfir því hvíldi einnig
skuggi þeirra veikinda sem hófu að
herja á Eddu löngu fyrir tvítugsald-
urinn. Hún hafði þá lokið gagn-
fræðaprófi, ung og falleg stúlka
sem eflaust átti sína drauma og
vonir um tækifæri í lífinu. Þess í
stað mátti hún kljást við geðsjúk-
dóm sinn svo að lífsorka hennar og
-verkefni urðu háð þeirri baráttu.
Á milli þess sem Edda þurfti að
dvelja á sjúkrastofnunum bjó hún í
föðurhúsum þar sem móðir hennar
Kristjana, sú einstaka góða kona,
var hennar stoð og stytta. Seinna
flutti Edda að Dvalarheimilinu Ási í
Hveragerði þar sem hún bjó allar
götur síðan og undi hag sínum vel
við gott atlæti. Um það leyti sem
Edda flutti austur fyrir fjall flutti
ég sjálf austur yfir Atlantshaf
þannig að tengslin við hana minnk-
uðu og heimsóknir urðu alltof fáar
um árabil. En aldrei brást að um
hver jól kom kveðja og glaðningur
frá Eddu og eftir að dóttir mín
fæddist urðu prjónaflíkurnar frá
Eddu frænku miklar uppáhalds-
flíkur. Gjafmildi var henni í blóð
borin.
Fyrir ári hagaði forsjónin því
þannig til að ég hóf störf í Ási og
um leið fékk ég tækifæri til að
kynnast Eddu á nýjan hátt í dags-
ins önn. Þarna ljómuðu af henni
allir hennar góðu eiginleikar, ynd-
islega létt lund, dásamlegt skop-
skyn, frásagnargleði, æðruleysi og
gjafmildi. Sögur hennar og hlátur
hafa auðgað líf mitt.
Ég kveð Eddu frænku mína með
söknuði og þakklæti. Megi hún
hvíla í Guðs faðmi.
Hulda B. Hákonardóttir.
JÓHANNA EDDA
SUMARLIÐADÓTTIR
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
Englasteinar
Legsteinar
SNÆFRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
Ránargötu 18,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mið-
vikudaginn 2. júní.
Útförin hefur farið fram.
Fyrir hönd ættingja,
Ingi Ragnar Sigurbjörnsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRA MARTA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
lést föstudaginn 4. júní.
Útför hennar fer fram frá Seltjarnarneskirkju 14. júní kl. 15:00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi.
Kristín Guðmundsdóttir Thaagaard,
Brynjólfur Ingi Guðmundsson, Guðný Björg Hallgrímsdóttir,
Vala Steinunn Guðmundsdóttir, Jón Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín og besti vinur,
INGIBJÖRG ÓSK BJARNADÓTTIR,
Gónhóli 34,
Ytri-Njarðvík,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 11. júní kl. 13.30.
Guðjón Höskuldsson.
Mágur minn og frændi okkar,
SIGURÞÓR ÁRNASON
frá Hrólfsstaðahelli,
Freyvangi 9,
Hellu,
verður jarðsunginn frá Skarðskirkju laugar-
daginn 12. júní kl. 11.00 f.h.
Halldóra Ólafsdóttir,
Jóna Bríet Guðjónsdóttir, Árni Guðjónsson,
Jóhanna Hannesdóttir, Erna Hannesdóttir,
Árni Hannesson, Sigríður Hannesdóttir.
Okkar ástkæri,
GUÐMUNDUR KARL GÍSLASON,
lést af slysförum mánudaginn 7. júní.
Kolbrún Karlsdóttir, Gísli Ragnarsson,
Friðbjörg Matthíasdóttir, Guðmundur V. Magnússon,
María Matthíasdóttir,
Björgvin Gíslason, Marlo Menti,
Theódór Ragnar Gíslason.
Elskulegi bróðir okkar og mágur,
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
frá Skerðingsstöðum,
Reykhólasveit,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Barma-
hlíð þriðjudaginn 8. júní.
Fyrir hönd aðstandenda,
Finnur Kristjánsson, Guðný Sæbjörg Jónsdóttir,
Halldóra Kristjánsdóttir,
Ingigerður Anna Kristjánsdóttir,
Ingibjörg Kristjánsdóttir.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
VILBERG SKARPHÉÐINSSON,
Jötunsölum 2,
Kópavogi,
lést á Landspítala, háskólasjúkrahúsi í Foss-
vogi, að kvöldi þriðjudagsins 8. júní.
Guðbjörg Jónsdóttir,
Sigrún Vilbergsdóttir, Guðni Stefánsson,
Erna Vilbergsdóttir, Sverrir Sæmundsson,
Valgerður Vilbergsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.