Morgunblaðið - 10.06.2004, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Grettir
Smáfólk
EF ÞÚ ERT
ÞOLINMÓÐUR...
...OG BÍÐUR
NÓGU LENGI
ÞÁ GERIST
EKKERT
MIG DREYMDI EKKERT Í NÓTT.
LOFTNETIÐ VAR BILAÐ!
ÞETTA
ER?
DAGATAL...
ÉG KEYPTI ÞAÐ
SVO ÞÚ VITIR
HVENÆR JÓLIN
ERU OG AÐRIR
DAGAR...
ÞAÐ ERU TÖLUR Á ÞVÍ!
ÉG GET EKKI SKILIÐ
EITTHVAÐ SEM ER MEÐ
TÖLUM Á ÞVÍ ÖLLU!!
AF HVERJU VILTU
GEFA MÉR
EITTHVAÐ SEM ER
SVONA FLÓKIÐ?!
AF HVERJU GETUR
FÓLK EKKI GEFIÐ MÉR
EINFALDA HLUTI? AF
HVERJU ÞARF ALLT AÐ
VERA SVONA FLÓKIÐ?!
Risaeðlugrín
© DARGAUD
ÉG NÁÐI EINUM Í
VIÐBÓT!
ÞAÐ VANTAR BARA EINN.
BÍÐIÐ HÉRNA
EIGUM VIÐ AÐ SEGJA HONUM AÐ SLEPPA
FORDRYKKNUM OG PANTA FREKAR ROMM
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Ármann
verður með kynningu á starfsemi
sinni laugardaginn 12. júní nk.
Kynningin fer fram í Laugardals-
höll og nágrenni, aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir. Verða
hinar fjölmörgu íþróttagreinar sem
Ármann stendur fyrir kynntar auk
annars sem til skemmtunar verður
gert. Má þar meðal annars nefna
kynningu Hróksins á skáklistinni.
Slökkvilið og hjálparsveitir verða á
staðnum og Latibær verður okkur
til ánægjuauka. Kynning á heil-
næmri fæðu og fæðubótarefnum
ættu að koma íþróttafólki í góðar
þarfir. Megintilgangurinn er þó að
kynna heilsu- og forvarnagildi
íþróttaiðkunar. Varðar það líkam-
legt atgervi og andlegt, en ekki síst
félagslega hæfni. Námsárangur
íþróttamanna er jafnan betri en
þeirra em vanrækja líkama sinn.
Ármann hefur síðustu ár gert til-
raun með svokallaða krílahópa í
fimleikum. Þá koma 4–6 ára börn
með foreldrum sínum. Foreldrarnir
horfa á og börnin æfa sig og sýna
listir sínar. Hafa þessar samveru-
stundir verið einkar ánægjulegar
og gefandi fyrir börnin og foreldr-
ana. Nýstofnuð almenningsíþrótta-
deild Ármanns hefur einmitt þetta
markmið, að tengja saman íþrótta-
iðkun barnanna við þjálfun hinna
fullorðnu, foreldranna. Forvarna-
gildi samverustunda þesara er
ómetanlegt.
JÓN GUNNAR HANNESSON,
læknir og stjórnarmaður
í Ármanni.
Ármannsdagur –
heilsuefling
Frá Jóni Gunnari Hannessyni:
SENN líður að þjóðhátíðardeginum
okkar 17. júní. Þá þarf að hyggja að
mörgu. Það þarf að hafa allt í lagi
og hafa allt til alls og helst að láta
ekkert vanta. Þar sem þúsundir
manna koma saman í miðri höfuð-
borginni er mjög æskilegt að hafa
næga salernisaðstöðu. En því miður
er hún ekki fyrir hendi í 101
Reykjavík okkar. Verður því að
grípa til þess ráðs að setja upp svo-
kallaða útikamra en þeir eru gjarn-
an notaðir á fjölmennum útisam-
komum upp í sveit. En þá vaknar
sú spurning hvar á að staðsetja
kamrana í miðborg Reykjavíkur.
Það er auðvitað mikið smekksatriði.
Meðfylgjandi er mynd frá því í
fyrra. Hún er af 10 kömrum sem
settir voru á grasflötina fyrir fram-
an Staðarstað að Sóleyjargötu 1 þar
sem skrifstofa forseta Íslands er til
húsa og voru kamrarnir 10 settir
við fánastöng þar sem lýðveldisfán-
inn blakti við hún. Mér finnst þetta
ekki vera smekklegt og vera alls-
endis óviðeigandi. Ég vil gera það
að tillögu minni að kamrarnir verði
ekki settir þarna aftur frekar en á
Austurvöll fyrir framan Alþingis-
húsið eða fyrir framan Þjóðmenn-
ingarhúsið eða Stjórnarráðið eða
ámóta staði.
Skömmu eftir að ég hafði tekið
þessa mynd átti ég leið þarna um.
Veitti ég því þá athygli að útlend-
ingar voru að kanna þessa bygg-
ingu við fánastöngina með lýðveld-
isfánanum blaktandi og tóku svo
myndir af öllu saman eins og ég.
ÞÓRIR S. HERSVEINSSON,
Klapparstíg 1a,
Reykjavík.
Ósmekkleg stað-
setning útikamra
Frá Þóri S. Hersveinssyni: