Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss kemur og fer í
dag. Cape Egmont og
Mikael koma í dag.
Dettifosss, Örfirisey
og Arnarfell fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Remoy, Akamalik,
Ikksmiut og Starlette
koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 10 boccia, kl.
13 myndlist. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð. Sími
535 2760.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, al-
menn handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–16.45 hár-
greiðslustofan opin, kl.
9–14 aðstoð við böðun,
kl. 14–15 söngstund,
púttvöllurinn opinn.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9 aðstoð við
böðun og opin handa-
vinnustofa, kl. 14.30
syngur Steinnun
Skjenstad við undirleik
Jóns Stefánssonar.
Kaffiveitingar.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Vinnustof-
an opin miðviku-,
fimmtu- og föstudag
með leiðbeinanda til
15. júní. Púttvöllurinn
opinn. Böðun mánu- og
fimmtudaga. Fótaað-
gerðastofa á mið-
vikudögum, aðra daga
eftir samkomulagi.
Hárgreiðsla alla daga
kl. 9–12.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 10 hársnyrting, kl.
13 föndur og handa-
vinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Sameiginleg
dagsferð félagsstarfs
aldraðra og félags eldri
borgara, mæting kl.
9.30 í Garðabergi.
Sameiginleg kvenna-
leikfimi í Smáranum kl.
11, karlaleikfimi kl. 13.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
videókrókur, kl. 14 op-
ið hús á vegum Menn-
ingarmálanefndar.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 10.30
helgistund umsjón sr.
Guðmundur Karl
Ágústsson frá hádegi
vinnustofur og spilasal-
ur opinn.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna,
kl. 21 línudans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin alla virka daga frá
kl. 9–17. Handa-
vinnustofan er opin frá
kl. 13–16. Alltaf heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinnaog búta-
saumur , perlusaumur,
kortagerð og hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10 boccia, kl. 11
, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
10 boccia, kl. 13–16
hannyrðir,kl.13.30–16
félagsvist. Fótaaðgerð-
ir, hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 sam-
verustund.
Leir, lokað í leir í júní
og júlí.
Vesturgata. Kl. 9–
10.30 setustofa, dag-
blöð og kaffi, kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14 að-
stoð v/böðun, kl. 9.15–
15.30 hannyrðir,
kl. 9–10 boccia, kl.
9.30–11.30 skraut-
skrift, kl.13–14 leik-
fimi.
Vitatorg. Kl. 8.45–
11.45 smiðjan, kl. 9–16
hárgreiðsla, kl. 9.30–10
morgunstund,
kl. 9.30–16 handmennt,
kl. 10–16 fótaaðgerðir,
kl. 13–16 bridge.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11.
Opið kl. 9–14. Kl. 9.15
leikfimi, kl. 10–12
verslunin.
Brúðubílinn
Brúðubílinn, verður í
dag 10. júní kl. 10 við
Fróðengi og á morgun
11. júní kl. 10 við Mal-
arás og kl. 14 við Njáls-
götu.
Minningarkort
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í s.
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu
fást hjá Sjálfsbjörg fé-
lagi fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu, Há-
túni 12, sími: 551 7868.
Í dag er fimmtudagur 10. júní,
162. dagur ársins 2004, dýri-
dagur. Orð dagsins: Hafið frið við
alla menn að því leyti sem það er
unnt og á yðar valdi.
(Rm.. 12, 19.)
Í Staksteinum í gær varvikið að umfjöllun
Morgunblaðsins veturinn
2003 um skattamál Jóns
Ólafssonar. Hinn 14. febr-
úar það ár birti blaðið yf-
irlýsingu frá Jóni Ólafs-
syni, þar sem hann sagði
m.a.:
„Með því að afhenda
Morgunblaðinu öll gögn
svo blaðamenn þar geti
unnið úr
þeim
fréttir
vonast ég
til að
sögusögn-
um um
stórfelld
skattsvik
mín linni
og ég fái
notið þeirra mannrétt-
inda á Íslandi að vera sak-
laus þar til sekt mín hefur
verið sönnuð með þeim
hætti, sem lög kveða á
um.“
Jón Ólafsson afhenti
Morgunblaðinu öll gögn
um málið eins og fram
kom í yfirlýsingu hans og
blaðið hafði þar með yf-
irsýn yfir öll efnisatriði
skýrslunnar. Hins vegar
var ofmælt í Staksteinum
í gær, að þau hefðu verið
birt í heild enda tæpast
hægt í dagblaði. En frá-
sögn af efni þeirra birtist
á tíu blaðsíðum í Morg-
unblaðinu umræddan
dag.
Sigurður Líndal fyrrumprófessor við laga-
deild Háskóla Íslands
skrifaði stutta grein í
Morgunblaðið í gær, þar
sem hann svaraði at-
huga-
semdum í
sinn garð
hér í Stak-
steinum í
fyrradag.
Þar var
því haldið
fram, að
Sigurður
Líndal
væri að breytast úr lög-
fræðilegum álitsgjafa í
pólitískan álitsgjafa.
Í grein sinni í gær segirSigurður:
„Nú hlýtur Alþingi
sjálft sem stofnun – jafnt
stjórnarlið sem stjórn-
arandstaða – að ákveða
hvernig það hagar störf-
um, þar á meðal hvort
það fær nauðsynlegt tóm
til að afla upplýsinga og
ræða mál. Ef sá meiri-
hluti sem styður stjórn
hverju sinni virðir ekki
þennan rétt þrátt fyrir
rökstudd mótmæli stjórn-
arandstöðu og viðvaranir
sérfróðra manna veikir
það stöðu Alþingis sem
stofnunar gagnvart fram-
kvæmdavaldinu og þá um
leið stöðu þess innan
stjórnskipunarinnar.
Álitaefni þar að lútandi
falla undir stjórnskip-
unarrétt sem er ein grein
lögfræðinnar.“
Nú er staðan þessi: Al-
þingi ræddi fjölmiðla-
frumvarp ríkisstjórn-
arinnar svo rækilega, að
sennilega er einungis eitt
dæmi á síðari tímum um
að mál hafi verið meira
rætt á þingi. Athuga-
semdir prófessorsins eiga
því ekkert skylt við lög-
fræði.
STAKSTEINAR
„… vonast til að sögu-
sögnum linni …“
Jón Ólafsson
Sigurður Líndal
prófessor
Víkverji skrifar...
Eigi alls fyrir löngu heimsóttiVíkverji Vatnsdal í Austur-
Húnavatnssýslu og fannst mik-
ið til hans koma. Reyndar
gerði Víkverji sig beran að
þeirri vitleysu í pistli sínum
fyrir hálfum mánuði að telja
Vatnsdalinn til Vestur-
Húnavatnssýslu og biðst hér
með afsökunar á því. En í um-
ræddri ferð einsetti Víkverji
sér að heimsækja næst Vatns-
nesið í Vestur-Húnavatnssýslu
og lét verða af því um hvíta-
sunnuna. Veður var ein-
staklega gott þessa helgi á
Norðurlandi.
Fyrsti áfangastaðurinn var
Hindisvík þar sem séra Sigurður
Norland bjó á sínum tíma og frið-
aði selalátur á jörð sinni. Ein-
staklega gaman var að heimsækja
þennan stað og heilsa upp á for-
vitna selina. Svo einstakt var veðr-
ið þennan dag, sjálfan hvítasunnu-
dag, að það var erfitt að slíta sig
upp frá sjávarsíðunni. Það er
makalaust hvað maður getur horft
lengi út á sjó og gleymt stað og
stund.
Það er rétt að geta þess að veg-
urinn fyrir Vatnsnesið er hreint
ágætur að mati Víkverja.
Næst lá leiðin út að Hvítserk en
þangað hafði Víkverji hlakkað gríð-
arlega til að komast. Það kom hon-
um mjög á óvart hversu nálægt
kletturinn er landi og hitt var ekki
síður athyglisvert að búið er að
styrkja klettinn með því að steypa
upp í neðsta hluta hans. Sitt sýnist
sjálfsagt hverjum um slík inngrip.
Þarna er ágætis útsýnispallur og
svo má skrönglast ofan í fjöru ef
vill.
x x x
Næsti staður var Borgarvirkisem blasir reyndar við frá
Hringveginum en þeim sem
ekki þekkja til, eins og Vík-
verja, dytti vart í hug hvað
þarna er um að ræða. Talið er
að Borgarvirki hafi verið hlaðið
meðan á Heiðarvígum stóð eins
og segir frá í samnefndri Ís-
lendingasögu. Gríðarlega gott
útsýni er af Borgarvirki til
allra átta og eins og veðrið var
nú gott þennan dag, var ekki
amalegt að virða það fyrir sér.
Það væri gaman að fara
þenna hring á fjallahjóli og
taka jafnvel tvo daga í það
ferðalag og tjalda á leiðinni
eða gista hjá ferðaþjónustubónda.
x x x
Næst lá leiðin í Skagafjörð oghann var ekki síður fallegur í
góða veðrinu um hvítasunnuna.
Eyjarnar á Skagafirðinum voru
baðaðar í miðnætursólinni að
kvöldi hvítasunnudags og Þórð-
arhöfði var virðulegur á að líta.
Ugla leitaði að músum við Áshild-
arholtsvatn og álftir tvær kvökuðu
úti á vatninu. Norðurlandið er fal-
legt, það hefur Víkverji löngum vit-
að. Enn er samt Mælifellshnjúkur
óklifinn af Víkverja. Hvernig væri
að freista uppgöngu í sumar?
Morgunblaðið/Eggert
Útsýnisskífa við Borgarvirki.
LÁRÉTT
1 allhvassan vind, 8 fal-
leg, 9 róleg, 10 elska, 11
sorp, 13 peningar, 15
tími, 18 slagi, 21 eld-
stæði, 22 nirfill, 23 þjálf-
un, 24 skrýtlur.
LÓÐRÉTT
2 glefsa af grasi, 3 flat-
armálseiningin, 4 þekkja,
5 talar illa um, 6 krafts, 7
guð, 12 gyðja, 14 dvelj-
ast, 15 bráðum, 16 alda,
17 ílátið, 18 borða, 19
húsdýra, 20 kvennafn.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 þerna, 4 klasi, 7 rómað, 8 ósómi, 9 afl, 11 aðan,
13 ýsan, 14 áfall, 15 garð, 17 anga, 20 æki, 22 ætlar, 23
lyfta, 24 akarn, 25 trana.
Lóðrétt: 1 þerna, 2 remma, 3 agða, 4 kjól, 5 atóms, 6 ið-
inn, 10 flakk, 12 náð, 13 ýla, 15 glæta, 16 rolla, 18 nefna,
19 apana, 20 æran, 21 illt.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Fiatvarahlutir
FÖSTUDAGINN 27.
febrúar var Fiatumboðið
á Íslandi innsiglað og
gjaldþrota. Eftir það hef-
ur engin Fiatþjónusta
verið til staðar á landinu
svo ég viti til. Ef einhver
veit um einhvern sem er
með varahlutaþjónustu
fyrir Fiat væri vel þegið
að fá að vita af því.
Fiateigandi.
Ættarmót
AFKOMENDUR Ingi-
bjargar Jónsdóttur frá
Dölum í Fáskrúðsfirði og
Árna Jónssonar frá Eiði í
Fáskrúðsfirði, þið sem
ekki hafið fengið bréf. Við
ætlum við að hittast
helgina 3. og 4. júlí á Iðu-
felli austan við Selfoss,
rétt hjá Skálholti. Nánari
upplýsingar hjá Gullu í
síma 426 8123 eða Ástu í
síma 456 8199. Vinsamleg-
ast hafið samband sem
allra fyrst.
Fjaran á Hellnum
er óskipt sameign
ÞAÐ hefur ætíð verið
ljóst að fjaran á Hellnum
er óskipt sameign Hellna-
manna. Eigi þarf um það
að deila.
Björn Indriðason,
samsveitungur.
Ritstjóri
Morgunblaðsins
NÚ ER mikið ráðist á rit-
stjóra Morgunblaðsins frá
eigendum allra annarra
frjálsra miðla. Eru ekki
upphaflega öll þessi svo-
kölluðu mótmæli til komin
út af tjáningarfrelsi?
Gildir það ekki fyrir
hann?
Það er svo langt gengið
að það þorir enginn að tjá
sig nema þeir sem eru
sammála hinum miðlun-
um. Ég óska þess að
Styrmir haldi áfram á
sömu braut því ég er al-
veg sammála honum.
Þetta er ekkert nema
kúgun.
Það var svo langt geng-
ið að það komu tilmæli
um það að hann yrði sett-
ur á eftirlaun. Frekar
vildi ég nú sjá ritstjóra
Fréttablaðsins og DV vik-
ið frá störfum. Nú vona
ég að fólk þori að láta
heyra í sér sem er ekki
sammála þessum einka-
miðlum.
Marta Ólafsdóttir.
Tapað/fundið
Bíllyklar töpuðust
BÍLLYKLAR týndust á
Smáratorgi við Rúm-
fatalagerinn fyrir ein-
hverjum vikum síðan.
Þetta er lykill á gulu
merkispjaldi sem á stend-
ur Suzuki.
Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma
669 9192.
Úr
tapaðist
ÚR AF tegundinni Gucci
týndist á bílastæði Há-
skólabíós, eða í bíóinu
sjálfu, þann 22. maí s.l.
Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma
821 9900.
Dýrahald
Kettlingar
fást gefins
GÆFIR og kassavanir
kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma
699 7374.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is