Morgunblaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 58
ÍÞRÓTTIR
58 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikar kvenna:
Sauðárkr.: Hvöt/Tindast. – Þór/KA/KS...20
3. deild karla:
Skallagrímsvöllur: Skallagrímur– Númi .20
Húsavíkurv.: Boltaf. Húsav. – Neisti H. ..20
Blönduósvöllur: Hvöt – Reynir Á .............20
Vopnafjarðarvöllur: Einherji – Huginn ...20
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Vormót ÍR fer fram í 62. sinn á Laugardals-
velli í kvöld. Það hefst kl. 20 og stendur yfir
í tvær stundir. Meðal keppnisgreina er Kal-
dalshlaupið, minningarhlaup um Jón Kal-
dal langhlaupara. Einnig ætla ÍR-ingar að
heiðra minningu Jóels Sigurðssonar með
sérstakri keppni með keppni í spjótkasti
karla og kvenna. Keppt verður í 17 öðrum
greinum.
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild
KR - ÍA ...................................................... 1:0
Arnar Gunnlaugsson vítaspyrna 4.
Staðan:
Fylkir 5 3 2 0 7:2 11
Keflavík 5 3 1 1 7:5 10
ÍA 5 2 2 1 5:3 8
FH 5 2 2 1 5:4 8
KR 5 2 1 2 6:7 7
ÍBV 5 1 3 1 6:6 6
Grindavík 5 1 3 1 5:6 6
Fram 5 1 2 2 7:7 5
KA 5 1 1 3 4:6 4
Víkingur R. 5 0 1 4 2:8 1
Þessir hafa skorað:
Grétar Ólafur Hjartarson, Grindavík.........4
Arnar Gunnlaugsson, KR............................3
Atli Sveinn Þórarinsson, KA.......................3
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ..............3
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fylki ...................2
Andri Fannar Ottósson, Fram....................2
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Fram......2
Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV ...................2
Björgólfur Takefusa, Fylki .........................2
Ríkharður Daðason, Fram ..........................2
Sævar Þór Gíslason, Fylki...........................2
Ármann Smári Björnsson, FH ...................1
Alen Marcina, ÍA..........................................1
Hreinn Hringsson, KA ................................1
Stefán Þór Þórðarson, ÍA............................1
Egill Atlason, Víkingi...................................1
Jónas Sævarsson, Keflavík .........................1
Ólafur Ingi Stígsson, Fylki..........................1
Ágúst Þór Gylfason, KR..............................1
Guðmundur Sævarsson, FH .......................1
Haraldur Ingólfsson, ÍA..............................1
Kristinn Hafliðason, KR..............................1
Haraldur Guðmundsson, Keflavík..............1
Atli Viðar Björnsson, FH ............................1
Fróði Benjaminsen, Fram ..........................1
Tommy Nielsen, FH ....................................1
Scott Ramsay, Keflavík ...............................1
Sinica Kekic, Grindavík ...............................1
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, FH ..................1
Hörður Sveinsson, Keflavík ........................1
Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík ..............1
Arnar Jón Sigurgeirsson, KR.....................1
Vilhjálmur R. Vilhjálmsson, Víkingi ..........1
Gunnlaugur Jónsson, ÍA..............................1
Einar Þór Daníelsson, ÍBV .........................1
Stefán Gíslason, Keflavík ............................1
Efsta deild kvenna,
Landsbankadeild
FH - Valur..................................................0:8
Nína Ósk (9., 87.), Margrét L. Hrafnkels-
dóttir (62., 84.), Kristín Ýr Bjarnadóttir (5.,
44.), Laufey Ólafsdóttir (23.), Dóra Stef-
ánsdóttir (30.).
Staðan:
Valur 3 3 0 0 14:1 9
ÍBV 3 2 1 0 17:2 7
Breiðablik 3 2 0 1 6:10 6
Þór/KA/KS 3 1 1 1 4:4 4
KR 3 1 1 1 4:5 4
Stjarnan 3 0 2 1 3:5 2
Fjölnir 3 0 1 2 2:5 1
FH 3 0 0 3 0:18 0
3. deild karla A
Árborg - Deiglan .......................................3:1
Staðan:
Árborg 3 2 1 0 7:3 7
Númi 2 2 0 0 20:1 6
Grótta 3 2 0 1 10:5 6
Deiglan 4 2 0 2 6:6 6
Skallagr. 2 1 1 0 4:3 4
Afríka 3 0 0 3 1:8 0
Freyr 3 0 0 3 0:22 0
3. deild karla C
Magni - GKS ..............................................4:0
Staðan:
Magni 3 3 0 0 8:2 9
GKS 4 2 0 2 6:9 6
Hvöt 3 1 1 1 6:4 4
Neisti H. 3 1 1 1 6:4 4
Reynir Á 2 1 0 1 4:4 3
Snörtur 3 1 0 2 6:9 3
Boltafélag Húsavíkur
2 0 0 2 4:8 0x
1. deild kvenna C
Fjarðabyggð - Höttur ...............................3:4
Staðan:
Sindri 2 1 1 0 9:3 4
Höttur 2 1 0 1 4:9 3
Fjarðabyggð 2 0 1 1 6:7 1
Noregur
Rosenborg - Bodö/Glimt.......................... 3:0
KR 1:0 ÍA
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla,
5. umferð
KR-völlur
Miðvikudaginn 9. júní 2004
Aðstæður:
Sól og blíða og aðstæður hin-
ar bestu. Völlurinn nokkuð
ósléttur og laus í sér.
Áhorfendur: 2505
Dómari: Garðar Örn Hinriks-
son, Þróttur R., 4
Aðstoðardómarar:
Pjetur Sigurðsson, Gunnar
Gylfason .
Skot á mark: 9(5) - 9(4)
Hornspyrnur: 1 - 8
Rangstöður: 5 - 3
Leikskipulag: 4-4-2
Kristján Finnbogason M
Jökull I. Elísabetarson
Gunnar Einarsson M
Kristján Örn Sigurðsson M
Bjarni Þorsteinsson
Arnar Jón Sigurgeirsson M
Kristinn Hafliðason MM
Ágúst Gylfason
Sigmundur Kristjánsson M
Kjartan Henry Finnbogason M
(Sigurður Ragnar Eyjólfsson 72.)
Arnar B. Gunnlaugsson
(Kristinn Magnússon 67.)
Þórður Þórðarson
Hjálmur Dór Hjálmsson M
Reynir Leósson
Gunnlaugur Jónsson M
Andri Lindberg Karvelsson M
Julian Johnsson
(Garðar Gunnlaugsson 57.)
Pálmi Haraldsson M
Kári Steinn Reynisson
(Ellert Jón Björnsson 77.)
Haraldur Ingólfsson M
Stefán Þ. Þórðarson
(Hjörtur J. Hjartarson 83.)
Grétar Rafn Steinsson
1:0 (4.) Arnar Gunnlaugsson tók aukaspyrnu úti við hliðarlínu. Hann sendi
knöttinn á Arnar Jón Sigurgeirsson sem staðsettur var inni í vítateig
Skagamanna. Andri Karvelsson braut á Arnari Jóni og úr vítaspyrnunni
sem dæmd var skoraði Arnar Gunnlaugsson.
Gul spjöld: Hjálmur Dór Hjálmsson, ÍA (30.) fyrir brot Kristinn Hafliðason, KR (67.) fyrir
brot Sigmundur Kristjánsson, KR (68.) fyrir brot Reynir Leósson, ÍA (69.)
fyrir mótmæli Stefán Þ. Þórðarson, ÍA (83.) fyrir mótmæli Jökull I. El-
ísabetarson, KR (88.) fyrir brot Rauð spjöld: Engin
Strax á 5. mínútu var tónninn gef-inn þegar Kristín Ýr Bjarna-
dóttir skallaði boltann í net FH og
aðeins fjórum mínút-
um síðar bætti Nína
Ósk Kristinsdóttir
við öðru marki.
Heldur slævði það
bitið í sókn Valsstúlkna sem um tíma
voru líklega frekar með hugann við
hvernig ætti að fagna marki en
skora. Á 22. mínútu bráði af þeim
þegar Rakel Logadóttir braust fram
hjá vörn FH, átti svo gott skot sem
varið var í horn en hornspyrnuna tók
hún sjálf og Laufey Ólafsdóttir skor-
aði af stuttu færi. Ekkert var slegið
af og skot Rakelar af 25 metra færi
small í stönginni áður en Dóra Stef-
ánsdóttir kom Val í 4:0. Enn small
boltinn í tréverkinu, nú eftir þrumu-
skot Laufeyjar og síðan skallaði
Nína Ósk boltann í slá. Eftir tvö færi
til viðbótar skoraði Kristín Ýr 5.
mark Vals þegar hún slapp inn fyrir
vörn FH.
Valsstúlkur spiluðu meira en
skutu minna eftir hlé, allt þar til
Margrét L. Hrafnkelsdóttir kom inn
á á 62. mínútu og skoraði með fyrstu
snertingu, síðan aftur á 84. mínútu
en Nína Ósk innsiglaði 8:0 sigur Vals
á 87. mínútu.
„Ég get ekki mikið um þennan leik
sagt,“ sagði Elín Svavarsdóttir úr
FH, sem barðist allt hvað hún gat
gegn góðri vörn Vals. „Við ætluðum
að berjast og reyna að ná stigi en það
gekk engan veginn og við þurfum að
hugsa okkar gang. Við höfum fengið
erfiða leiki í byrjun móts en við þurf-
um að ná stigi á móti liðunum í efri
hlutanum til að vera inni í mótinu.
Það gekk samt ekki í dag.“ FH-liðið
átti ágæta spretti á miðjunni og
reyndi, en mætti ofjarli sínum. Liðið
sýndi að það getur náð í stig en hefur
ekki tekist það gegn ÍBV, Breiða-
bliki og Val.
„Við lögðum upp með að spila vel
allan leikinn og pota inn einhverjum
mörkum og það tókst að gera nokkur
í dag,“ sagði Íris Andrésdóttir, fyr-
irliði Vals, eftir leikinn. „Það er oft
erfitt að halda einbeitingu og fyrr
eða síðar kemur að því að við ætlum
að skora sem flest mörk í hverri sókn
en þá verður allt erfiðara. Við erum
samt sátt við úrslitin í dag því við
héldum hreinu og skorum nokkur
mörk.“ Þrátt fyrir yfirburði spilaði
Valsliðið af öryggi.
Einstefna í
Valssigri í
Kaplakrika
EINSTEFNA var að marki FH í gærkvöld þegar Valsstúlkur komu í
heimsókn í Kaplakrika, rúmlega þrjátíu skot gegn engu FH-stúlkna.
Þrátt fyrir að Hafnfirðingum tækist stundum að spila ágætlega á
miðjunni höfðu þeir ekki roð við sterkri vörn Vals – frekar en leikn-
um sóknarmönnum enda fór svo að Valur vann 8:0. Sigurinn skýtur
Val á topp deildarinnar eftir sigur í öllum þremur leikjum sínum en
sem fyrr er FH á botni deildarinnar, eina liðið án stiga.
Stefán
Stefánsson
skrifar
BREIÐABLIK sendir ekki lið til leiks á Íslandsmóti karla í handknatt-
leik á næsta tímabili og þar með verða liðin 14 í stað 15 á síðustu leiktíð.
Búið er að draga í riðlana tvo, norður- og suðurriðil, og er riðlaskipt-
ingin þessi:
Norðurriðill: Haukar, KA, Fram, HK, FH, Þór og Afturelding.
Suðurriðill: Valur, ÍR, Grótta/KR, Stjarnan, ÍBV, Víkingur og Sel-
foss.
Keppnisfyrirkomulagið á næstu leiktíð verður svipað því og var í vet-
ur að því undanskildu að liðin sem sem leika saman í riðlunum, norður
og suður, og vinna sér réttinn til að leika í úrvalsdeildinni taka með sér
stig og markatölu en mætast ekki aftur. Þetta þýðir að hvert lið í úr-
valsdeildinni leikur sex leikjum færra heldur en á síðasta tímabili.
Fjögur efstu liðin í hvorum riðli komast áfram og leika í úrvalsdeild-
inni en hin átta liðin leika í 1. deild. Sex efstu sætin í úrvalsdeildinni
gefa sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn ásamt liðinu
sem verður efst í 1. deildinni en liðið sem lendir í næstneðsta sæti úr-
valsdeildarinnar og í öðru sæti í 1. deild leika aukaleiki um áttunda og
síðasta sætið í úrslitakeppninni.
Breiðablik ekki með
lið á næsta vetri
TBR vann tvo fyrstu leiki sína á Evrópu-
móti félagsliða í badminton sem hófst í
Haarlem í Hollandi í gær.
TBR sigraði SC Merano frá Ítalíu 7:0 í
fyrsta leik sínum og 6:1 gegn EGOspor frá
Tyrklandi.
Næsti leikur liðsins er í dag við lið frá
Rússlandi og segir Árni Þór Hallgrímsson,
fararstjóri liðsins, að búast megi við mjög
erfiðum leik. Rússneska liðið sé mjög
sterkt og hafi í sínum röðum fjóra lands-
liðsmenn. Íslensku keppendurnir eru mjög
ánægðir með úrslitin hingað til en mótið
er gríðarlega sterkt og því megi íslenska
liðið vel við una. „Það má því segja að
þetta séu engir aukvisar sem við erum að
keppa við og í raun erum við að spila við
marga atvinnumenn,“ sagði Árni.
Tveir stórsigr-
ar hjá TBR
HJÖRTUR Már Reynisson,
sundkappi úr KR, bætti í gær
ársgamalt Íslandsmet Arnar
Arnarsonar í 50 metra flug-
sundi á Mare Nostrum-sund-
mótinu í Barcelona. Hjörtur
lenti í sjöunda sæti á 25,01
sekúndu og bætti þar með met
Arnar sem var 25,02 sek-
úndur. Þetta er fjórða Íslands-
met Hjartar á undanförnum
mánuði en um síðustu helgi
bætti hann Íslandsmetið í 100
metra flugsundi í Frakklandi
og þann 17. maí síðastliðinn
sló hann Íslandsmetið í 200
metra flugsundi í Madríd á
Spáni og tryggði sér keppn-
isrétt á Ólympíuleikunum.
Hann syndir í 100 metra flug-
sundi í Barcelona í dag.
Fjögur Ís-
landsmet á
24 dögum
„VIÐ ræddum það dálítið fyrir leik
að tölfræði síðustu ára hefur ekkert
vægi þegar komið er í leik. Við feng-
um óskabyrjun og
náðum sem betur fer
að halda hreinu,
þannig að við fengum
öll þrjú stigin,“ sagði
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, eft-
ir leik.
Willum skipti Arnari Gunnlaugs-
syni út af úr framlínunni um miðjan
síðari hálfleik og setti varnartengilið
inn í staðinn. „Arnar þurfti að fara út-
af, var tæpur í læri fyrir leikinn. Við
höfðum misst dálítið tökin á mið-
svæðinu og Skagamenn voru farnir
að svindla dálítið og komnir með
aukamenn fram. Þeir eru með kraft-
mikla menn og þó þurftu Ágúst og
Kristinn, sem höfðu barist og leikið
vel, aðstoð og við þekkjum leikkerfið
4-3-3 ágætlega, þannig að þetta var
taktísk breyting til að mæta þeirra
skiptingum.
Það var annað yfirbragð á leik okk-
ar núna miðað við fyrri leiki. Við
komum vængbrotnir til leiks í vor,
það er staðreyndin og höfum unnið
vel á æfingum síðan. Það má eigin-
lega segja að við tökum eina æfingu
fyrir í einu, horfum ekki mikið lengra
fram á veginn vegna meiðsla manna.
Núna voru menn einbeittir og sam-
stiga og börðust í 90 mínútur og það
getum við.“
– Mér fannst vanta meira spil út
frá bakvörðunum, sérstaklega í síðari
hálfleiknum. Hvers vegna var það?
„Það má skrifa á minn reikning.
Þeir náðu vel inn í
leikinn í fyrri hálf-
leik og náðu að
halda boltanum
vel. Við ákváðum í
hálfleik að ef þeir
myndu, eins og
þeir gera oft,
sækja fram með
fjölda manna og
reyna að pressa
þetta alla leið inn
með fyrirgjöfum
og föstum leikatriðum, þá ætluðum
við að taka því, halda miðjunni og
taka ágjöfinni. Við erum bara að
harka fyrir stigum, það er ekkert
öðruvísi,“ sagði Willum.
Menn ekki nógu einbeittir
„Það er þannig að komi menn ekki
nógu einbeittir til leiks þá gengur
þetta svona. Við gáfum þeim mark í
byrjun og þeir náðu að halda því. Við
fengum fín færi en einbeitingin var
ekki nægileg hjá okkur til að klára
þau,“ sagði Ólafur Þórðarson, þjálf-
ari ÍA, eftir leikinn.
„Ég er ekki sáttur við dómarann
að þessu sinni. Maður veltir því fyrir
sér hvort skrifin í dag hafi svona
áhrif. Ruddatækling þar sem ekkert
kemur til greina annað en rautt
spjald, en þeir fá bara gult. Víta-
spyrna sem við áttum að fá er færð út
fyrir teig og gerð að aukaspyrnu og
svo framvegis. Þannig að maður spyr
sig hvað sé um að vera,“ sagði Ólafur
og sagði nokkuð ljóst að einhver KR-
álög væru á Skagamönnum.
Tökum eina æf-
ingu fyrir í einu
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
Kristinn Hafliðason átti góðan leik fy
Willum Þór
Þórsson
þjálfari KR.