Morgunblaðið - 10.06.2004, Side 59

Morgunblaðið - 10.06.2004, Side 59
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 59  HAFSTEINN Ingason handknatt- leiksmaður, sem leikið hefur með Fram allan sinn feril, er genginn til liðs við ÍR. Hafsteinn er vinstrihand- arskytta, 23 ára, og er honum ætlað að taka við hlutverki Einars Hólm- geirssonar en hann hefur sem kunn- ugt er gert samning við þýska 1. deildar liðið Grosswallstadt.  ÍSLENSKA drengjalandsliðið í knattspyrnu tekur þátt í Norður- landamótinu sem haldið verður í Vaasa í Finnlandi 3.–8. ágúst í sumar. Íslensku strákarnir leika þar í riðli með Finnum, Norðmönnum og Skot- um, sem eru gestalið á mótinu.  ÁMUNDI Sigmundsson, sem lék í eina tíð með Víkingi og Val, lék síð- asta hálftímann með liði Árborgar gegn Deiglunni í gærkvöld. Ámundi, sem er 42 ára, meiddist eftir stund- arfjórðung en lauk leiknum þar sem búið var að nota alla varamennina.  RUDI Völler, landsliðsþjálfari Þýskalands í knattspyrnu, segir að möguleikar Þýskalands á að sigra í Evrópukeppninni séu ekki miklir. „Það eru nokkrar þjóðir sem eiga ágætis möguleika á að sigra í Evr- ópukeppninni en við erum ekki ein af þeim,“ sagði Völler.  JOHN Terry, varnarmaður enska landsliðsins í knattspyrnu, er í kapp- hlaupi við tímann um að fá sig góðan af meiðslum en Englendingar mæta Evrópumeisturum Frakka í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í Portúgal á sunnudag. Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur gefið Terry frest til morguns til að fá sig góðan en að öðrum kosti mun hann tefla fram annað hvort Ledley King eða Jamie Carragher við hlið Sol Campbells í hjarta varnarinnar.  CELTIC er sagt hafa mikinn áhuga á að nýta sér krafta hollenska sókn- armannins Jimmy Floyd Hassel- bainks en Jimmy er einn margra leik- manna Chelsea sem nýráðinn knattspyrnustjóri liðsins, Jose Mour- inho, hyggst losa sig við í sumar.  SERGEI Rebrov, úkraínski sóknar- maðurinn sem Tottenham keypti frá Dynamo Kiev fyrir fjórum árum á 11 milljónir punda, hyggst láta á að það reyna hvort hann fái tækifæri með Tottenham á nýjan leik undir stjórn nýráðins knattspyrnustjóra, Jacques Santini. Rebrov hefur verið í láni hjá Fenerbache í Tyrklandi síðan í jan- úar í fyrra en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Tottenham.  STUTTGART er á höttunum eftir brasilíska framherjanum Giovane Elber sem leikur með franska liðinu Lyon. Elber, sem er 31 árs, lék með Stuttgart á árunum 1994–1997 og skoraði 41 mark í 87 leikjum fyrir fé- lagið en gekk þá til liðs við Bayern München. Elber hefur lýst því yfir að hann vilji snúa aftur í þýsku 1. deild- ina og er Matthias Sammer, nýráðinn þjálfari Stuttgart, mikill aðdáandi Brasilíumannsins snjalla. FÓLK TVEIR ungir leikmenn frá Stoke á Englandi eru komnir til Víkings og vonar Sigurður Jónsson, þjálfari fé- lagsins, að hann geti notað þá í bik- arleiknum um helgina en þá fara Víkingar til Hornafjarðar og mæta Sindra. Leikmennirnir sem um ræðir eru báðir 17 ára gamlir og verða átján í ágúst. Richard Keogh er varn- armaður en Jermaine Palmer fram- herji og hafa þeir leikið með ung- lingaliði Stoke. „Þetta eru geðþekkir piltar og vonandi getum við notað þá um helgina. Það hefur eitthvað dregist að ganga frá félagskiptunum, en við vonum að það verði orðið klárt fyrir leikinn á Höfn. Leikmennirnir kosta okkur ekkert enda höfum við ekki efni á að kaupa dýra leikmenn eins og mörg önnur lið,“ sagði Sig- urður í gær. Annar leikmaður, mun þekktari hér á landi, hefur æft með Vík- ingum undanfarna viku, en það er Mihajlo Biberdzic, sem lék fyrir nokkrum árum með Skagamönnum og KR í efstu deild. Biberdzic kom til Stjörnunnar í vor en staldraði stutt við í Garðabænum. Hann mun æfa af kappi þessa dagana til að koma sér í góða æfingu og verður fróðlegt að sjá hvort hann verður í framlínu Víkinga er fram líða stundir í sumar. Víkingur fær tvo unga leikmenn frá Stoke Ísland fellur um níu sæti ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu karla fellur um níu sæti frá síð- asta mánuði, á nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnu- sambandsins, FIFA, sem var birtur í gærmorgun. Íslenska lands- liðið er í 65. sæti ásamt Kongó, Kína og Chile. Brasilía er sem fyrr í efsta sæti á styrkleikalistanum, Frakkland í öðru, Spánn í þriðja, Mexíkó í fjórða, Argentína, Holland og Tyrk- land í fimmta til sjöunda, Þýskaland í áttunda, Bandaríkin í níunda, Ítalía í tíunda, Tékkland í ellefta, Kamerún í tólfta og Englend- ingar skipa þrettánda sætið á listanum. Danir eru efstir Norðurlandaþjóðanna í 15. sæti, Svíar eru í 18. sæti, Norðmenn í 36. sæti, Finnar í 42. - 43. sæti og Færeyingar í 134. sæti. ÞORVALDUR Makan Sig- björnsson, leikmaður Fram í knattspyrnu, er enn á sjúkra- húsi en fær væntanlega að fara heim í dag. Þorvaldur hné niður á leið til búnings- klefa Fram mánudagskvöldið þegar honum var skipt útaf eftir klukkustundar leik við Fylki. Þorvaldur var í hálf- gerðu móki alveg fram yfir hádegi í gær og þegar hann kom til sjálfs sín í gær mundi hann ekki hvað gerst hafði daginn áður. Taugalæknar hafa rannsakað hann síðan á mánudaginn en ekki hefur verið gefið út hvað amar að honum. Talað hefur verið um að þetta sé heiftarlegt mígreni en menn efast þó um að svo sé, einkennin séu ekki þess eðlis. Þorvaldur er enn á sjúkrahúsi KR-ingar hófu leikinn með ógnar-krafti og þeir linntu ekki látum fyrr en boltinn lá í neti Skagamanna. Arnar Jón Sigur- geirsson var felldur innan teigs og Arnari Gunnlaugssyni urðu ekki á nein mistök í vítaspyrnunni sem dæmd var. Þórður Þórðarson, markvörður Skaga- manna, gerði heiðarlega tilraun til að verja en án árangurs. Markið kveikti enn frekari neista í leikmönnum KR og þeir gáfu Skagamönnum engan frið til að byggja upp spil. Kjartan Henry Finnbogason, hinn stórefni- lega framherji KR-inga, gerði Skaga- vörninni lífið leitt og markið, sem gamli Skagamaðurinn Arnar Gunn- laugsson skoraði, sló Akurnesinga nokkuð út af laginu. Það tók sinn tíma fyrir bikarmeistarana að ná áttum en minnstu munaði að Færeyingurinn Julian Johnson jafnaði á 25. mínútu en skalli hans eftir hornspyrnu lenti ofan á markslánni. Mínútu síðar þvældust Kristinn Hafliðason og Arn- ar Gunnlaugsson fyrir hvor öðrum en báðir fengu samt góð færi. Fyrst skaut Kristinn í varnarmann ÍA og Arnar náði frákastinu en skaut hátt yfir. Kristinn Hafliðason var mjög áberandi í liði KR-inga og hann var ekki langt frá því að skora annað mark fyrir sína menn en skot hans úr vítateignum fór yfir Skagamarkið eft- ir vel útfærða sókn. Akurnesingar sóttu mjög í sig veðrið á síðasta stund- arfjórðungi fyrri hálfleiks og í þrí- gang gerðu þeir harða atlögu að KR- markinu en Kristján Finnbogason var vandanum vaxinn í marki Íslands- meistaranna, auk þess sem Gunnar Einarsson bjargaði á ævintýranlega hátt þegar Kári Steinn var kominn í upplagt færi. Fyrri hálfleikurinn var líflegur og bauð upp á fín tilþrif í blíðunni á KR- vellinum en síðari hálfleikurinn var frekar tilþrifalítill þar sem baráttan var allsráðandi. KR-ingar sigu hægt og bítandi aftar á völlinn og Willum Þór Þórsson, þjálfari KR-inga, styrkti varnarleik sinn enn betur þegar hann kippti Arnari Gunnlaugssyni út af um miðjan seinni hálfleik og setti í stað- inn varnartengiliðinn Kristin Jón Magnússon. Nokkuð djörf ákvörðun hjá Willum enda hafa lið oftar en ekki farið flatt á að ætla að halda fengnum hlut. Skagamenn réðu að mestu ferð- inni síðustu 25 mínútur leiksins en þeim tókst ekki að finna glufur á sterkum varnarmúr KR-inga og síð- ari hálfleikurinn spilaðst án þess að nokkuð markvert gerðist uppi við mörkin. Mesti munurinn á liði KR í gær og í leikjunum á undan var sá að leikmenn Vesturbæjarliðsins börðust eins og ljón allan tímann og það sást frá fyrstu mínútu að þeir ætluðu að selja sig dýrt og þoka sér upp stigatöfluna. Liðsheildin var öflug en fremstur á meðal jafningja var Kristinn Hafliða- son. Hann var prímus mótor á miðj- unni og vann virkilega vel fram og til baka. Kjartan Henry sýndi góða takta meðan hans naut við og mið- verðirnir Gunnar Einarsson og Krist- ján Örn Sigurðsson stigu vart feil- spor. Sem sagt allt annað KR-lið og með sama áframhaldi á það eftir að skríða hægt og bítandi upp töfluna. Skagamenn hefðu svo sem alveg getað tekið með sér stig frá KR-vell- inum í fyrsta sinn frá árinu 1994 en einhvern ferskleika skorti í liðið að þessu sinni og sérstaklega var fram- spilið bitlaust. Miðjumenn ÍA lentu undir gegn kollegum sínum hjá KR og Stefán Þórðarson var oftar en ekki einn að berjast gegn þremur til fjór- um varnarmönnum KR í fremstu víg- línu. Gunnlaugur Jónsson og Harald- ur Ingólfsson voru einna bestir í liði Akurnesinga sem urðu að játa sig sigraða í fyrsta sinn á leiktíðinni. Morgunblaðið/Þorkell yrir KR og hér fylgjast Andri Karvelsson, Reynir Leósson og Julian Johnsson með honum skjóta að markinu. Fastir liðir hjá KR og ÍA í Vesturbænum EKKI tókst Skagamönnum að kveða niður KR-grýluna á KR- vellinum í gærkvöld þegar Íslandsmeistararnir tóku á móti bikar- meisturunum í lokaleik 5. umferðar Íslandsmótsins. Líkt og á síð- ustu leiktíð skoraði Skagamaðurinn Arnar Gunnlaugsson eina mark leiksins fyrir KR-inga sem hafa nú fagnað sigri gegn Akurnesingum í fimm leikjum í röð á Íslandsmótinu og það sem meira er, KR hefur lagt ÍA að velli í tíu leikjum í röð á heimavelli sínum í Vesturbænum. Guðmundur Hilmarsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.