Morgunblaðið - 10.06.2004, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ELLAE
Í ÁLÖGUM
Sýnd kl. 6.
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni
mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í
hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést
á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.Sýnd kl. 8 og 10.
Hvað gerist þegar tveir andstæðingar
gifta sig fyrir slysni? Það verður allt
vitlaust! Skemmtilegasta og
rómantískasta grínmynd ársins.
PIERCE BROSNAN JULIANNE MOORE
Frá leikstjóra Johnny English
25.000
manns
á 12 dögum!!!
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00
ELLA
Í ÁLÖGUM
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 8 og10.
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og10.15.Sýnd kl.4, 5.20,6.40, 8,9.20 og10.40
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Frá meistara spennunnar
Luc Besson kemur Taxi 3.
DVFrábær rómantísk
gamanmynd sem kemur
þér skemmtilega á óvart.
kl. 5.50, 8.30 og 11.10.
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni
mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á
jörðinni í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei
áður sést á hvíta tjaldinu!
Missið ekki af þessari.
Ó.H.T Rás2
SV MBL
Kvikmyndir.com
SKONROKK
25.000
manns
á 12 dögum!!!
BRESKA leikkonan Alex Kingston
mun ekki fara með hlutverk dr.
Elizabeth Corday í komandi þátta-
röð um Bráðavaktina. Ástæðan, hún
þykir of gömul. Hin 41 árs Kingston
var að sögn ósátt þegar kom í ljós að
framleiðendur þáttanna sívinsælu
vildu ekki endurnýja samning við
hana sökum aldurs. „Samkvæmt
framleiðendunum er ég hluti af
gamla liðinu sem ekki þykir lengur
spennandi áhorfs. Mér skilst að
leggja eigi meiri áherslu á ungdóm-
inn í komandi þáttaröðum.“
…FJÓRÐUNGUR kvartettsins
ABBA, Agnetha Fältskog, er nú
undir strangri öryggisgæslu eftir að
hafa fengið
morðhótun bréf-
leiðis sem ástæða
þótti til að taka
alvarlega. Um-
boðsmaður Fält-
skog, Staffan
Linde, segir
hana fá fjöldann
allan af bréfum
daglega en að umrætt bréf hafi gefið
tilefni til hertrar öryggisgæslu.
Sænska lögreglan hefur nú sent ör-
yggisverði sem vakta heimili Fält-
skog, en hún býr á eyju rétt við
Stokkhólm
Hin 53 ára Fältskog hefur að mestu
haldið sig utan sviðsljóssins síðan
ABBA lagði upp laupana fyrir um
tveimur áratugum.
…FREGNIR hafa nú spurst út að
tvíeykið Fox Mulder og Dana Scully
séu væntanleg á hvíta tjaldið á ný.
Þau David
Duchovny og
Gillian Ander-
son fóru með
hlutverk geim-
verugúrúanna og
FBI-starfsmann-
anna í sjónvarps-
þáttunum X-
Files og árið
1998 var gerð kvikmynd um sífellda
baráttu þeirra við óútskýranlega at-
burði og furðuverur. Duchovny
hlakkar að sögn til að takast á við
hlutverk Mulders á nýjan leik og
segist bjartsýnn á að áhorfendur
muni taka vel á móti þeim.
…STRANDVÖRÐURINN David
Hasselhoff var handtekinn í Kali-
forníu undanfarna helgi, grunaður
um ölvun við
akstur. Hassel-
hoff fór í áfeng-
ismeðferð í ann-
að sinn árið 2002
eftir að hafa
fundist meðvit-
undarlaus með
áfengiseitrun á
hótelherbergi í
Kaliforníu. Nú virðist svo sem hann
hafi hallað sér að bokkunni á nýjan
leik.
FÓLK Ífréttum
SSSÓL hefur verið starfandi lengi
og er með margt í bígerð og má þar
nefna að breiðskífa er væntanleg frá
sveitinni í sumarlok. Á þeim tíma
sem hljómsveitin hefur starfað hafa
mannabreytingar verið nokkrar.
„Nýi maðurinn í hljómsveitinni er
reyndar búinn að vera í eitt og hálft
ár. Hann heitir Stefán Már Magn-
ússon og er gítarleikari. Hann tók
við af Eyjólfi sem var búinn að vera
með frá byrjun. Hrafn Thoroddsen
úr Ensími er búinn að vera hljóm-
borðsleikari í SSSól síðan 1996. Haf-
þór Guðmundsson upptökustjóri
sem hefur verið að taka upp Í svört-
um fötum og fleira er búinn að vera
trommari í sveitinni síðan 1992. Jak-
ob Smári Ragnarsson bassaleikari
og ég erum síðan þeir einu sem hafa
verið í hljómsveitinni frá byrjun,“
segir forsprakkinn Helgi Björnsson
en sveitin var stofnuð árið 1987.
„Við erum búnir að vera að spila
svolítið að undanförnu og verðum að
spila næstu helgar,“ segir Helgi en
aftur á móti verður rólegt hjá sveit-
inni í júlí enda taka menn sér sum-
arfrí.
Ekta Sólarplata
„Við erum búnir að vera að vinna
efni og taka upp og ætlum að vera
með stóra tónleika undir lok ágúst
eða í byrjun september. Við erum
aðeins að byrja að hita upp fyrir
það,“ segir hann en nýja efnið er eitt-
hvað byrjað að heyrast á tónleikum.
„Við verðum með eitt lag á Svona er
sumarið,“ segir hann en safnplatan
sú kemur út í byrjun júlí.
„Þetta er bara meiriháttar
skemmtilegt,“ segir Helgi um
stemmninguna í sveitinni. „Við tók-
um aftur upp gamlan sið. Þegar
bandið byrjaði sína stafsemi gerðum
við mikið af því að semja allir saman.
Settumst niður og djömmuðum og
fengum hugmyndir útfrá því. Þegar
við byrjuðum að vinna þetta nýja
efni fórum við svolítið útfrá þessum
gamla grunni í stað þess að menn
kæmu með ný lög og kynntu þau.“
Hann segir að næsta plata verði
ekta Sólarplata. „Það er rosa
stemmning í þessu efni og þetta er
fjölbreytt. Lagið sem kemur á Svona
er sumarið er frekar gamaldags
rokkari, síðan erum við innan um
með rólegt efni. Þetta er eins og Sól-
in hefur verið í gegnum tíðina, við
höfum farið víða.“
Samkeppni á Rás 2
Hann segir að þó verði ekkert
rapplag á plötunni. „Við erum reynd-
ar ekki með neitt rapplag þrátt fyrir
að við höfum verið með þeim fyrstu
til að gefa út rapplag,“ fullyrðir
Helgi og á þar við lagið „Toppurinn
að vera í teinóttu“. „Við ætlum ásamt
Rás 2 að vera með samkeppni um
hver gerir skemmtilegustu útgáf-
una, endurhljóðblöndunina af þessu
lagi. Við erum að undirbúa þetta
núna og keppnin verður kynnt á
næstu vikum,“ segir Helgi en kepp-
endur geta nálgast gamlar upptökur
af laginu á netinu. „Þeir geta notað
gamla grunninn og bætt svo ein-
hverju við.“
SSSól með margt í bígerð
Morgunblaðið/Jim Smart
SSSól er að hita upp fyrir nýja plötu sem kemur út í lok sumars og verður
m.a. með lag á safnplötunni Svona er sumarið.
ingarun@mbl.is
Ný plata og samkeppni
SSSól leikur fyrir dansi á
skemmtistaðnum Players-
Sportbar í Kópavogi annað
kvöld, föstudag.
LEIKFÉLAGIÐ „Hégómi og eftirsókn eftir vindi í
seglin“ stendur í sumar fyrir dragkabarettsýningum
á Jóni forseta á laugardagskvöldum.
„Sýningarnar hafa hingað til gengið vonum framar
og nú höfum við ákveðið að vera með ný atriði á
hverju laugardagskvöldi,“ segir einn félagsmanna,
Andrés Jakob Guðjónsson.
„Það þýðir auðvitað mikla vinnu, því við þurfum
bæði að semja og þýða texta og gera nýja búninga í
hverri viku. Síðasta laugardag brá Skjöldur sér í
gervi Eddu Björgvins í nýju atriði, þegar hún bakar
fyrir jólin úr sérríi. Þetta var rosalega fyndið og sló
alveg í gegn.“
Hann segir að almennt hafi mjög góður rómur ver-
ið gerður að dragsýningunum, sem hann segir mest
sóttar af samkynhneigðum karlmönnum.
„Þetta er alveg að gera sig. Það eru allir að tala um
þetta núna og vilja helst ekki missa af sýningu. Við er-
um komin með slóð á gayice.is, sem hefur líka fengið
mjög marga útlendinga á sýninguna,“ segir Andrés.
Þetta vantaði
Sýningin er þannig upp byggð, að mikil nálægð er
milli áhorfenda og leikenda og segir Andrés það hafa
mælst vel fyrir. „Margir hafa talað um að svona vant-
aði í miðbæinn og þess vegna ætlum við að hafa sýn-
ingar út sumarið.“
Að sögn Andrésar er megintilgangurinn með sýn-
ingum leikfélagsins að virkja samfélag homma, þar
sem félagslíf þeirra hafi verið rólegt í langan tíma.
„Félagslífið hefur alltaf verið mjög öflugt, en það hef-
ur legið svolítið niðri um tíma. En leikfélagið hefur
bjargað því. Undanfarið hafa vaknað mjög margar
hugmyndir, til dæmis stefnum við á að verða með at-
riði á Gay-Pride og 17. júní, sem við vonumst til að ná
að undirbúa,“ segir Andrés Jakob að lokum.
Dragkabarett vekur lukku
Hégómi og eftirsókn eftir vindi í seglin
Skjöldur fór á
kostum í gervi
Eddu Björgvins-
dóttur á laug-
ardaginn var.
Morgunblaðið/Golli
Góður rómur
var gerður að
fyrsta drag-
kabarettkvöld-
inu enda var
það hið fjör-
ugasta.
Dragkabarettinn verður öll laugardagskvöld í sumar á Jóni forseta í Aðalstræti.