Morgunblaðið - 10.06.2004, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 63
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6. Íslenskt tal.Sýnd kl.10.30 . B.i. 16 ára.
Kvikmyndir.com
Hvað gerist þegar tveir andstæðingar
gifta sig fyrir slysni? Það verður allt
vitlaust!
Skemmtilegasta
og rómantískasta grínmynd ársins.
Frá leikstjóra Johnny English
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
25.000
manns
á 12 dögum!!!
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www .regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 16.
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
Sýningar hefjast á Stutt og
heimildarmyndahátíðin
Short & Docs kl. 10.
Sjá nánari dagskrá í
miðasölu Regnbogans.
Miðasala opnar kl 17.10
Frábær rómantísk
gamanmynd sem kemur
þér skemmtilega á óvart.
25.000
manns
á 12 dögum!!!
Svakaleg stórmynd um
náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu
mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni
í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur
aldrei áður sést á hvíta tjaldinu!
Missið ekki af þessari.
Kvikmyndir.com
ARI Í ÖGRI: Halli og Kalli föstudag
og laugardag.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Hljóm-
sveitin Þúsöld laugardag kl. 23 til 03.
Caprí-tríó sunnudag kl. 20 til 23.30.
BAR 11: Sein fimmtudag kl. 22. DJ
Doddi föstudag kl. 22. DJ Lazer laug-
ardag. Movie night – Dark Crystal /
Nightbreed sunnudag kl. 21.
CAFÉ AMSTERDAM: Dúettinn
Grautur fimmtudag kl. 23 til 01. DJ.
Steini föstudag. Buff laugardag.
CATALINA, Hamraborg 11,
Kópavogi: Hermann Ingi Her-
mannsson föstudag og laugardag.
Guðmundur Rúnar miðvikudag kl. 23
til 03.
CELTIC CROSS: Spilafíklarnir
föstudag og laugardag.
DÁTINN, Akureyri: Dj Lilja
fimmtudag kl. 22 til 01. Dj Leibbi
föstudag kl. til 04.
PALACE, Hafnarstræti: Dj-
Extream föstudag kl. 17 til 05.30. Dj-
Deveus laugardag kl. 17 til 05.30.
Hljómsveitin 27 með tónleika þriðju-
dag kl. 21 einnig koma fram: Kimono,
Future Future og The lights on the
highway.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Stúkan
opin föstudag til 03. Ráðlagður dag-
skammtur og opinn mic laugardag til
03.
FELIX: Dj. Andri föstudag. Dokt-
orinn laugardag. Dj. Andri miðviku-
dag.
FÉLAGSHEIMILIÐ, Vík Mýrdal:
Sniglabandið laugardag.
GAUKUR Á STÖNG: The Hefners
föstudag. Í svörtum förum laugardag.
GLAUMBAR: Búðarbandið og Dj
Víkingur fimmtudag kl. 21. Dj Þór
Bæring föstudag og laugardag.
GRANDROKK: Nilfisk, Coral,
Benny Crespo’s gang fimmtudag kl.
22. Vinyl, Hoffman Victory or death
föstudag kl. 22. Han Solo, Babtist,
Norton laugardag kl. 22. Indigo, Vik-
ing Giant, Bob Justman, Siggi Ár-
mann og Karl Henry sunnudag kl. 21.
Ljósmyndarinn Svavar Jónatansson
og myndhöggvarinn Hörður B. Thors
sýna verk sín. Hljómsveitin 27 með
tónleika miðvikudag kl. 22 einnig
koma fram: Changer og Urkraft.
GRÆNI HATTURINN, Akureyri:
Eyjólfur Kristjánsson með tónleika
fimmtudag kl. 21.
HAFNARBORG: Tríó Björns Thor-
oddsen og Ragnar Bjarnason mið-
vikudag kl. 21.
HÓTEL BÚÐIR, Snæfellsnesi:
Andrea Gylfa og Eddi Lár með tón-
leika fimmtudag, föstudag, laugardag
og sunnudag, sem verða teknir upp
og gefnir út á væntanlegum diski.
Þetta verða tvískiptir tónleikar alla
dagana, þar sem fyrri hluti er fyrir
matargesti og hefjast um kl. 19, síðari
hlutinn hefst síðan kl. 22.
HÓTEL VALASKJÁLF, Egilsstöð-
um: Brimkló laugardag. Á móti sól
miðvikudag.
HREÐAVATNSSKÁLI: Stuðmenn
laugardag.
HVERFISBARINN: Bítlarnir
fimmtudag. Dj. Benni föstudag. Dj.
Andri laugardag. Dj. Kiddi Bigfoot
miðvikudag.
HVÍTA HÚSIÐ, Selfossi: Á móti sól
spilar á dansleik laugardag kl. 23
einnig veður söngkeppni, Hölt hóra
og Á móti sól spila.
HÖLLIN, Vestmannaeyjum: Love
Gúrú föstudag. Krakka ball verður á
undan sem hefst kl. 20.
JÓMFRÚIN, Lækjargötu: Tríóið
Guitar Islancio laugardag kl. 16 til 18.
KAFFI LIST: Kvartett Ragnheiðar
Gröndal laugardag kl. 23 til 01:30.
KAFFI MJÓDD: Tros föstudag.
Solla laugardag.
KLÚBBURINN VIÐ GULL-
INBRÚ: Hljómar laugardag. Manna-
korn miðvikudag.
KRINGLUKRÁIN: Geirmundur
Valtýsson og hljómsveit föstudag og
laugardag.
KRISTJÁN X., Hellu: Gilitrutt
föstudag og laugardag.
LAUGAVEGUR 22: Lifandi tónlist:
fimmtudag 21–22 opið jamm, 22–
23 Gústi and the Moon Shine Band,
23– Rúnar. Honky Tonk (Andri X)
föstudag. Matti laugardag.
LEIKHÚSKJALLARINN: Þor-
steinn Guðmundsson með uppistand
föstudag kl. 22 í bland við nokkra
stutta vídeó-sketsa en þar koma fram
nokkrir af vinsælustu grínistum
landsins. Árni Sveinsson og Gísli
Galdur þeyta skífum.
LUNDINN, Vestmannaeyjum:
Dans á rósum föstudag og laugardag.
NASA VIÐ AUSTURVÖLL: Meg-
as og Súkkat með tónleika fimmtudag
kl. 21. Tónleikar með Starsailor föstu-
dag. Eftir miðnætti ball með hljóm-
sveitinni Buff. Skímó laugardag kl.
23.
NAUTHÓLL, Nauthólsvík: Andrés
Þór og Jón Páll Bjarnarson föstudag
kl. 21 til 23.
PLAYERSPORT BAR, Kópavogi:
SSSÓL föstudag. Spútnik laugardag.
PRIKIÐ: Búðabandið föstudag kl.
20.30 til 23.30.
SJALLINN, Akureyri: Jet Black
Joe laugardag kl. 01 til 04. DJ Páll
Óskar og stúlknabandið Nylon mið-
vikudag.
TM, Vestmannaeyjum: Í svörtum
förum laugardag kl. 14.30.
VALASKJÁLF EGILSSTÖÐUM:
Brimkló laugardag.
VÉLSMIÐJAN AKUREYRI: Úlf-
arnir miðvikudag.
VIÐEY: Hreimur, Magni og Nylon
á afmælishátíð FM957 laugardag kl.
18.
FráAtilÖ
Nylon: Emilía, Alma, Steinunn og Klara.
FYRSTA plata hljómsveitarinnar The Flavors kemur út
á morgun og síðar sama kvöld verða útgáfutónleikar í
Loftkastalanum. Sveitin varð til fyrir um einu og hálfu
ári fyrir tilstilli söngvarans, gítarleikarans og aðal-
lagasmiðs, Sigurjóns Brinks. Go your own way, fyrsta
plata sveitarinnar, er búin að vera lengi í smíðum en
sveitin sem í kringum hana er hefur tekið nokkrum
stakkaskiptum síðustu mánuði. Í dag er hún hins vegar
skipuð þeim Sigurjóni (söngur og kassagítar), Pálma
Sigurhjartarsyni (píanó), Jóni Bjarna Jónssyni (bassi),
Benedikt Brynleifssyni (trommur og slagverk) og
Matthíasi Stefánssyni (gítar og fiðla).
Tveir þeir síðastnefndu eru nýir meðlimir. Benedikt
hefur lamið húðir með 200.000 naglbítum ásamt því að
vera mikilvirkur leiguspilari og Matthías hefur sömuleið-
is verið áberandi undanfarin misseri í leiguspilamennsk-
unni.
Þess má geta að tvö lög með Flavors komu út á safn-
disknum Sándtékk síðastliðið haust og naut annað
þeirra, „Here“, talsverðrar hylli.
„Þetta er búið að vera langt og strangt ferli,“ segir
Sigurjón eða Sjonni eins og hann er oftast kallaður. „En
loksins erum við ánægðir. T.d. tókum við stóran hluta
plötunnar upp aftur en á einu og hálfu ári breytast hlut-
irnir nokkuð.Við þurftum líka að passa að platan yrði
ekki ofunnin, halda í hráleika og tónleikaanda laganna.“
Engin nýbylgja
Sigurjón segist hafa byrjað að garfa einn í Flavors á
sínum tíma, hafi verið byrjaður að setja lögin niður með
því að spila sjálfur á allt. Hann var áður í gruggsveitinni
In Bloom, sem gaf út prýðilega plötu árið 1996, sam-
nefnda sveitinni. Sigurjón var reyndar trommuleikari í
þeirri sveit en segist hafa byrjað á sínum tíma sem gít-
arleikari, og var meira að segja gítarleikari og forsöngv-
ari í hljómsveit sem starfaði á undan In Bloom. Það má
því segja að hann sé kominn hringinn.
„Jón Bjarni kom svo inn í þetta með mér og svo bætt-
ist alltaf við,“ segir hann. „Við byrjuðum svo að taka upp
í Grjótnámunni. Svo keyptum við okkur hljóðver, gamla
Hljóðrita í Hafnarfirði, og rekum þar IMP-hljóðver í
dag. Við erum búnir að græja það upp og það er auðvitað
frábært að eiga athvarf þar.“
Þeir félagar lýsa tónlistinni sem melódísku, kántrí-
skotnu popprokki.
„Þetta er engin nýbylgja,“ segir Sjonni ákveðinn.
„Þetta er bara melódískt popprokk eins og það kemur af
kúnni.“
Flavors ætla að fylgja plötunni eitthvað eftir, með
spiliríi í borginni og svo úti á landi. Og þeir eru þegar
farnir að hlakka til næsta verkefnis.
„Þetta er nefnilega góður hópur og allt saman topp-
spilarar sem eru með mér,“ segir Sjonni. „Það er líka
frábært að hafa þetta hljóðver. Maður er kannski stadd-
ur þarna inni og ef maður fær hugmynd þá er bara að
grípa gítarinn og ýta á „rec“. Það gerist ekki betra.“
The Flavors gefa út Go your own way
Leiðin langa
The Flavors: Melódískt, kántrískotið popprokk.
Útgáfutónleikar Flavors hefjast klukkan 20.00 í
Loftkastalanum, annað kvöld.
www.theflavors.com
arnart@mbl.is