Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BÝÐUR AÐSTOÐ
Jaap De Hoop Scheffer, fram-
kvæmdastjóri NATO, segist
reiðubúinn að veita íslenskum
stjórnvöldum liðsinni sitt í við-
ræðum þeirra við Bandaríkjamenn
um varnir landsins
Aflareglu breytt
Ofmat á þorskstofni hefur leitt til
þess að afli hefur að jafnaði verið
27,5% af veiðistofni en ekki 25% eins
og stefnt var að með núverandi afla-
reglu. Er því lagt til að aflareglu
verði breytt.
Tíunda hrefnan veidd
Njörður KÓ hefur veitt tíundu
hrefnuna það sem af er þessu sumri.
Gert var að hrefnunni í Sandgerði í
gær. Að sögn Hafrannsóknastofn-
unarinnar ganga veiðar samkvæmt
áætlun.
Stjórnarskrá ESB samþykkt
Leiðtogar ESB-ríkjanna 25 sam-
þykktu í gærkvöld fyrstu stjórn-
arskrá sambandsins, en frestað var
kjöri nýs forseta framkvæmda-
stjórnar sambandsins. Hvert og eitt
aðildarríki þarf síðan að samþykkja
stjórnarskrána formlega á næstu
tveim árum áður en hún tekur gildi.
Gísl myrtur
Al-Qaeda-hópur í Sádi-Arabíu af-
höfðaði í gær Bandaríkjamanninn
Paul Johnson, sem hópurinn rændi
um síðustu helgi.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Listir 34/35
Viðskipti 11 Umræðan 36/37
Erlent 16/17 Kirkjustarf 38
Heima 20 Minningar 39/43
Höfuðborgin 22 Myndasögur 48
Akureyri 24 Bréf 48
Suðurnes 25 Dagbók 50/51
Árborg 26 Staksteinar 50
Landið 27 Sport 52/55
Listir 34/35 Leikhús 56
Daglegt líf 28/29 Fólk 56/61
Ferðalög 30/31 Bíó 58/61
Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62
Viðhorf 34 Veður 63
* * *
Kynningar – Tímarit um mat og vín
fylgir Morgunblaðinu í dag til áskrif-
enda.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
LITHÁI, sem sakfelldur var fyrir kynferðisbrot
og morð í heimalandi sínu árið 1995 og leitaði
hingað til lands árið 1999, fékk ekki fullnægjandi
málsmeðferð hjá íslenskum yfirvöldum þegar
hann var rekinn úr landi árið 2002 og var því úr-
skurður dómsmálaráðuneytisins þar að lútandi
ógiltur í Hæstarétti í gær.
Litháinn var talinn ósakhæfur í heimalandi
sínu og var vistaður á geðsjúkrahúsi en útskrif-
aður þaðan 1999. Kom hann hingað til lands
sama ár og fékk tímabundið dvalar- og atvinnu-
leyfi.
Í dómi Hæstaréttar kemur m.a. fram að Út-
lendingaeftirlitinu hafi verið heimilt að vísa út-
lendingi úr landi ef áframhaldandi dvöl hans
teldist hættuleg hagsmunum ríkisins eða al-
mennings eða vist hans teldist óæskileg af öðr-
um ástæðum. Litháinn hafði dvalið hérlendis í
nærfellt tvö ár þegar hann var rekinn úr landi en
að mati Hæstaréttar virðist ekki hafa legið ann-
að fyrir en að hann hafi stundað vinnu á því
tímabili og hvorki leitað læknismeðferðar né tek-
ið lyf vegna geðsjúkdóms síns. Þá væri ekkert
fram komið um framferði hans hérlendis sem
bent gæti til geðrænna sjúkdóma hans eða að
hætta stafaði af honum.
Bar að rannsaka öll
atriði sem máli gátu skipt
Við töku íþyngjandi ákvörðunar um brottvísun
mannsins á grundvelli almennt orðaðrar heim-
ildar skv. útlendingalögum frá 1965 bar Útlend-
ingaeftirlitinu að rannsaka svo sem kostur var
öll atriði sem máli gátu skipt. sbr. stjórnsýslu-
lög. Í því skyni stóð m.a. heimild til þess að leita
atbeina lögreglu til rannsóknar sbr. útlendinga-
lög. Segir Hæstiréttur að úr því að stjórnvöld
kusu í málinu að sækja stoð fyrir ákvörðun sinni
um brottvísun mannsins í lagaheimild sem háð
var því að dvöl hans yrði talin hættuleg hags-
munum almennings, bar að rannsaka sérstak-
lega hvort geðheilsu hans var svo komið að
þessu skilyrði væri fullnægt. Gátu stjórnvöld
ekki látið þetta hjá líða vegna hugsanlegs kostn-
aðar eða tafa, sem af þessu myndi leiða, og þess í
stað stuðst við ályktanir um heilsufar mannsins,
sem dregnar voru af læknisfræðilegum gögnum
frá 1995, án þess að gæta um leið að því að hann
hafi fengið lausn undan öryggisgæslu í heima-
landi sínu fjórum árum síðar. Voru þannig slíkir
annmarkar á málsmeðferð Útlendingaeftirlitsins
og síðar dómsmálaráðuneytisins að Hæstarétti
þótti óhjákvæmilegt að taka kröfu mannsins um
ógildingu úrskurðar ráðuneytisins til greina.
Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Markús
Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason og Guðrún Er-
lendsdóttir. Garðar skilaði sératkvæði og vildi
sýkna ríkið af kröfu Litháans. Hilmar Magn-
ússon hrl. flutti málið fyrir hann og til varnar
ríkinu var Óskar Thorarensen hrl.
Ríkinu ekki heimilt að reka
erlendan sakamann úr landi
ÞESSIR vösku og alvopnuðu vík-
ingar stilltu sér upp fyrir ljósmynd-
ara Morgunblaðsins á Víkingahátíð
sem nú stendur yfir í Hafnarfirði.
Þrátt fyrir alvæpni og illilegan svip
víkinganna fer hátíðin fram í mesta
bróðerni og hafa nú þegar fjöl-
margir lagt leið sína að Fjöru-
kránni í Hafnarfirði þar sem hátíð-
in fer fram.
Þetta er í áttunda sinn sem Vík-
ingahátíðin er haldin. Hún var sett
á miðvikudaginn með því að opn-
aður var markaður á svæðinu auk
þess sem háðir voru víkingabardag-
ar og fornir leikir fóru fram. Fyrstu
þremur hátíðardögunum lauk með
því að Árni Johnsen og fleiri sungu
við varðeld. Hátíðinni verður slitið
á sunnudagskvöldið og lýkur með
dansleik um kvöldið.
Víkingahátíð
í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Jim Smart
VAXANDI virðingarleysi við reglur
um flutning á heyi milli öryggis-
hólfa getur sett í hættu baráttu
undanfarinna ára og áratuga við
riðu og aðra sauðfjársjúkdóma, að
mati Sigurðar Sigurðarsonar, dýra-
læknis hjá yfirdýralæknisembætt-
inu á Keldum.
Sigurður rakst á um 60 hesta í
girðingu á Hellisheiði í gær, og sá
að búið var að gefa hestunum hey
sem ekki er ljóst hvaðan er komið.
Hann segir hér um að ræða hugs-
anlega smithættu vegna sauðfjár á
svæðinu, en ekki er heimilt að flytja
hey milli öryggishólfa vegna hættu
á riðusmiti nema að fengnu leyfi frá
yfirdýralæknisembættinu. Alltaf sé
hætta á að kindur komist í hey þó
það sé eingöngu ætlað hestum.
„Við treystum því að menn sem
eru á ferðinni með hesta, hvort
heldur er núna eða vegna lands-
mótsins eða vegna þess að menn
eru að sleppa hestum sínum á sum-
arhaga, fari gætilega, flytji ekki
með sér hey án leyfis og loki hliðum
þar sem þeir eru á ferðinni. Með
því hjálpa þeir okkur að berjast
gegn þessum sjúkdómum sem er
nærri því búið að vinna bug á. Ann-
ars getur allt farið hér í óefni,“ seg-
ir Sigurður.
Vanþekking á reglum
Sigurður segir að í meirihluta til-
vika sé um vanþekkingu á reglum
og baráttunni við riðu að ræða hjá
hestamönnum, sem flytji gjarnan
með sér hey í tengslum við lands-
mót eða ferðalög á sumarbeitar-
svæði. Hann segir hestamenn þurfa
að gera annað af tvennu þegar þeir
ferðist milli öryggishólfa, kaupa hey
á áfangastað eða hafa samband við
yfirdýralæknisembættið símleiðis til
að fá leyfi fyrir heyflutningunum.
„Okkur hefur gengið mjög vel á
heildina litið að berjast við riðuna,
betur en annars staðar, og við meg-
um ekki missa þetta niður. Á með-
an þessi barátta stendur mega
hestamenn ekki bregðast frekar en
aðrir,“ segir Sigurður.
Barátta gegn riðu í hættu
vegna heyflutninga
Búið var að gefa þessum hestum hey á jörð þar sem þeir stóðu við Hús-
múlarétt á Hellisheiði, skammt neðan við Kolviðarhól.
JARÐSKJÁLFTAKIPPUR
af stærðinni 3 til 3,2 stig á
Richter varð í Kverkfjöllum í
norðanverðum Vatnajökli í
fyrrinótt, sá stærsti á þessum
slóðum í þrjú ár. Að sögn Sig-
urlaugar Hjaltadóttur á jarð-
eðlissviði Veðurstofunnar var
skjálftinn stakur og engin
sjáanleg virkni fylgdi í kjöl-
farið í gær.
Aðrir skjálftar sem orðið
hafa í Vatnajökli síðustu vik-
ur eru langflestir í vestan-
verðum jöklinum, alls á þriðja
tug skjálfta, frá Kistufelli og
suður að Þórðarhyrnu, auk
nokkurra ísskjálfta í Skeið-
arárjökli.
Sigurlaug segir jarðskjálfta
verða reglulega við Kverk-
fjöll. Flestir skjálftar á svæð-
inu undanfarin fjögur eða
fimm ár hafi verið á stærð-
arbilinu 1 til 2 stig á Richter.
Skjálftinn í fyrrinótt hafi því
verið í stærra lagi. Síðast
varð skjálfti af svipaðri stærð
síðla árs 2001.
Í vikulegu yfirliti jarðeðl-
issviðs kemur fram að vikuna
7. til 13. júní urðu 230 skjálft-
ar hér á landi. Stærsti skjálfti
þá vikuna var 2,8 stig við
Hamarinn í Vatnajökli. Þá
mældust nokkrir kippir um
25 km norðan við Öskju, sá
stærsti 2,2 stig.
Stærsti
skjálfti í
Kverkfjöll-
um í þrjú ár
UNGUR maður var fluttur með
sjúkraflugi frá Akureyri til
Reykjavíkur í nótt vegna höfuð-
meiðsla, sem hann hlaut eftir að
hafa fallið út úr bifreið á ferð
skammt norðan Akureyrar aðfara-
nótt föstudags. Lögreglunni á Ak-
ureyri var tilkynnt um slysið kl.
2.08 um nóttina. Var farið með
manninn á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús. Að sögn læknis á slysa-
deild er maðurinn með alvarlega
höfuðáverka og var hann í önd-
unarvél í gær. Ekki er að sögn lög-
reglu á Akureyri vitað um tildrög
þess að hann féll út úr bifreiðinni,
en endanleg skýrsla um atvikið
liggur ekki fyrir.
Slasaðist á höfði við
fall úr bifreið
!
"
#
$
%&' (
)***
+