Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ VIÐ hátíðlega athöfn á Bessastöðum á þjóðhátíðardaginn 17. júní sæmdi forseti Íslands þrettán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálka- orðu. Þeir eru: 1. Aðalgeir Kristjánsson, sagnfræð- ingur, Reykjavík, riddarakross, fyrir fræðistörf 2. Aðalsteina Magnúsdóttir, hús- móðir, Grund í Eyjafirði, ridd- arakross, fyrir varðveislu menn- ingarverðmæta og landbúnaðarstörf 3. Ari Teitsson, fv. formaður Bændasamtaka Íslands, Hrísum S.-Þingeyjarsýslu, riddarakross, fyrir störf að félagsmálum bænda 4. Arnaldur Indriðason, rithöf- undur, Reykjavík, riddarakross, fyrir ritstörf 5. Edda Bergmann Guðmunds- dóttir, fv. formaður Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík, ridd- arakross, fyrir störf að íþrótta- málum fatlaðra 6. Jóhann Axelsson, prófessor, Reykjavík, riddarakross, fyrir vísindastörf 7. Magnús Kr. Guðmundsson, út- gerðarmaður, Tálknafirði, ridd- arakross, fyrir störf að sjáv- arútvegsmálum 8. Margrét Pálmadóttir, tónlist- armaður, Reykjavík, ridd- arakross, fyrir frumkvæði í tón- list 9. Marteinn H. Friðriksson, dóm- organisti, Kópavogi, ridd- arakross, fyrir tónlistarstörf 10. Sigurbjörn Bárðarson, íþrótta- og tamningamaður, Kópavogi, riddarakross, fyrir framlag til hestaíþrótta 11. Steinunn Friðriksdóttir, formað- ur Styrks, Seltjarnarnesi, ridd- arakross, fyrir störf í þágu krabbameinssjúkra 12. Tómas Grétar Ólason, verkstjóri, Kópavogi, riddarakross, fyrir störf að líknar- og félagsmálum 13. Þorvaldur Kristinsson, formaður Samtakanna 7́8, Reykjavík, ridd- arakross, fyrir störf að réttinda- málum samkynhneigðra Þrettán sæmdir fálka- orðu Ljósmynd/Gunnar Vigfússon Forseti Íslands sæmdi 13 Íslendinga fálkaorðu á Bessastöðum. ÁSTÞÓR Magnússon forsetaframbjóðandi og kona hans, Natalia Wium, mættu á Vík- ingahátíðina í Hafnarfirði til að hitta kjós- endur. Á myndinni má sjá Ástþór skera væna sneið af eldsteiktu lambi, sem boðið er upp á á hátíðinni, fyrir þau hjónin. Ástþór ræddi við hátíðargesti og kynnti málefni sín. Hann seg- ist sækja hátíðina árlega og hafa oft komið með útlenska gesti enda sé Víkingahátíðin kjörið tækifæri til að sýna þeim andstæður í íslensku samfélagi. „Það er gaman að sýna þeim hvernig þró- unin til friðar hefur verið frá því að víkingar með alvæpni gengu um þar til við urðum frið- uð þjóð. Þetta er einmitt sá boðskapur sem við verðum að færa þjóðum heimsins,“ segir Ást- þór. Morgunblaðið/Jim Smart Ástþór og Natalia skáru sneið af eldsteiktu lambakjöti á Víkingahátíð. Ástþór á Víkingahátíð BALDUR Ágústsson forsetaframbjóðandi heimsótti Reykjanesbæ á miðvikudagskvöldið og spjallaði við gesti á Ránni í Keflavík. Um 20 manns mættu á fundinn og spurðu Baldur ým- issa spurninga. Að umræðunum loknum var gestum svo boðið upp á snöggsteikta snigla, sem er uppáhaldsmatur frambjóðandans. Á fimmtudag var opið hús á kosningaskrif- stofu Baldurs í Þverholti þar sem hann ásamt konu sinni, Jean Plummer, tók á móti gestum en að lokinni móttökunni hélt hópurinn í bæ- inn. Að sögn Hrafnhildar Hafberg, kosn- ingastjóra Baldurs, komu alls um 200 manns á kosningaskrifstofuna og hátt í 1000 pönnukök- ur voru bakaðar. Um helgina verður Baldur á ferðalagi um Norðurland og mun koma við á nokkrum stöðum á leiðinni til fundarhalda. Boðið var upp á snöggsteikta snigla á Ránni í Keflavík. Baldur í Reykjanesbæ ALLS telja 93% erlendra ferða- manna reynslu sína af Reykjavík vera frábæra eða góða, að því er fram kemur í nýrri könnun sem framkvæmd var fyrir Höfuðborgar- stofu og er hluti af ferðamálastefnu Reykjavíkur til ársins 2010, sem kynnt var á fundi í gærdag. M.a. nið- urstaðna má nefna að svarendur gáfu Reykjavík einkunnina 4,4 af 5 mögulegum þegar spurt var hve örugg þeim þætti borgin vera. Nýtt slagorð Reykjavíkur sem áfangastaðar ferðamanna, „Reykja- vík – Pure energy“ var sömuleiðis kynnt með útgáfu ferðamálastefn- unnar. Leiðarljós stefnunnar er að Reykjavík eflist sem höfuðborg Ís- lands í alþjóðlegri samkeppni á sviði ferðamála, og sérstaða hennar sem hreinnar og nútímalegrar menning- arborgar í nábýli við einstæða nátt- úru verði þekkt og virt. Sömuleiðis er stefnt að því, að Reykjavík verði eftirsóttur áfangastaður fyrir ferða- menn árið um kring, og með þeim hætti sé rennt styrkari stoðum undir fjölbreytt atvinnulíf og menningu í tengslum við ferðaþjónustuna. Í máli borgarstjóra, Þórólfs Árna- sonar, kom fram að með nýju slag- orði ferðaþjónustu borgarinnar væri vísað til orkunnar sem finna mætti meðal íbúa Reykjavíkur til viðbótar við þá náttúruorku sem nýtt væri. Svanhildur Konráðsdóttir, forstöðu- maður Höfuðborgarstofu, útskýrði að slagorðið hefði orðið til með víð- tæku samstarfi, og þá sérstaklega við aðila erlendis sem selja ferðir til Íslands og þekkja vel þann markað sem reynt er að höfða til. Bæði sé hugsað um ferðalanga sem fari oft í stuttar ferðir, og þá sérstaklega borgarferðir, en einnig reynt að höfða til ungra eldhuga, sem heillast af framandleika borgarinnar. Nefnd 40 möguleg verkefni Svanhildur segir ferðamálastefn- una sprottna úr mjög víðtæku sam- ráði við ýmsa aðila í ferðaþjónustu, atvinnulífi og menningarstarfi. „Það eru alls um 200 aðilar sem hafa verið í samráði við mótun stefnunnar. Vinna hefur staðið yfir á annað ár, og störfum skipt eftir viðfangsefnum,“ sagði Svanhildur. Stefnan hvílir á þremur megin- stoðum, sem eru náttúra, ráðstefnur og menning. Nefnd eru um 40 verk- efni sem stefnt er að á næstu 6 árum. Stærsta einstaka verkefnið sem haf- in er vinna við er tónlistar- og ráð- stefnuhúsið í Reykjavíkurhöfn. Með- al annarra hugmynda sem stefnt er að í náinni framtíð er uppsetning Parísarhjóls í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinn og betri merkingar í borginni fyrir ferðamenn. Aðrar hugmyndir eru ekki á dagskrá fyrr en við lok gildistíma stefnunnar, og má þar nefna uppbyggingu heilsu- lóns á Hellisheiði í tengslum við Hellisheiðarvirkjun og byggingu samgöngumiðstöðvar fyrir almenn- ingsvagna og langferðabíla. Í máli Dags B. Eggertssonar, for- manns stjórnar Höfuðborgarstofu, eru þessi verkefni sett fram til við- bótar við heildarstefnumótun til að benda á möguleika í ferðaþjónustu og sýna hvaða verkefni Höfuðborg- arstofa telji vænleg. Borgaryfirvöld kynna ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar til ársins 2010 Orkuborgin Reykjavík fyrir eldhuga og borgarfara Morgunblaðið/Árni Torfason Dagur B. Eggertsson, Þórólfur Árnason og Svanhildur Konráðsdóttir kynntu ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar til ársins 2010.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.