Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Því dæmist rétt vera að þú átt að segja þetta fallega, pjakkurinn þinn. Kvenréttindadagurinn 19. júní Baráttuhugur sem fer vaxandi KvenréttindafélagÍslands stendurfyrir ýmsum uppákomum í tilefni dags- ins í dag, kvenréttinda- dagsins 19. júní, í sam- vinnu við Femínistafélag Íslands, Kvenfélagasam- band Íslands og Kvenna- kirkjuna. Einnig kemur ársrit Kvenréttindafélags Íslands, 19. júní, út í dag, en ritstjóri þess er Gunnar Hersveinn. „Klukkan hálfellefu eru allir hvattir til að mæta við Ráðhúsið í Reykjavík,“ segir Ragnhildur G. Guð- mundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Kvenrétt- indafélags Íslands. „Þaðan verður gengið um elsta hluta bæjarins undir leið- sögn Kristínar Ástgeirsdóttur, sagnfræðings. Að göngu lokinni verður farið að Hallveigarstöðum við Túngötu 14, þar sem boðið er upp á léttan hádegisverð. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra flytur stutt ávarp, Ragnheiður Jónsdóttir kynnir 19. júní blaðið sem kemur út þennan dag og Anna Pálína Árnadóttir syngur nokkur lög. Ráðgert er að dag- skránni ljúki kl 13 og þá fara auð- vitað allir í Kvennahlaup ÍSÍ! Um kvöldið verður svo kvennamessa við Þvottalaugarnar í Laugardal kl. 20, þar sem Auður Eir Vil- hjálmsdóttir predikar.“ – Hvaða þýðingu hefur dagur- inn í dag fyrir íslenskar konur? „19. júní er mikill hátíðisdagur og jafnast í raun á við 17. júní fyrir konur, því þegar konur fengu kosningarétt var það eins og að losna úr fangelsi. En rétti til ákvarðanatöku fylgir líka mikil ábyrgð og ég hvet allar konur að gleyma aldrei hve mikils virði kosningarétturinn er og hvað það skiptir miklu máli að mæta á kjör- stað, því í kjörklefanum tekur hver og einn sjálfstæða ákvörðun. Nútímakonan stendur í þakkar- skuld við þær konur sem með þrotlausri baráttu og sterkum vilja byggðu þennan grunn sem við stöndum nú á og við skulum allar halda honum vel við svo hann fúni ekki. Með í þessari baráttu voru karlmenn sem áttu dætur og ef til vill hefur þeim verið hugsað til framtíðar og hvernig líf biði dætranna í því karlaveldi sem þá var ríkjandi. En öllum réttindum fylgir ábyrgð og konur hafa sýnt það og sannað að þær eru fullfær- ar um takast á við þá ábyrgð sem fylgir þeim.“ – Hver er staðan hérlendis í kvenréttindamálum um þessar mundir að þínu mati? „Stjórnvöld eru nokkuð brokk- geng í jafnréttismálum, svo ekki sé meira sagt, og þeim gengur oft á tíðum erfiðlega að standa við eigin gjörðir. Þar á ég við sjálf jafnréttislögin. Þegar rætt er um stöðuveitingar er ýmis- legt tínt til, oft er til dæmis sagt að konur vanti reynslu. En oft gleymist að geta þess að þeim er ekki gefinn kostur á að öðlast reynslu og sá grunur læðist að manni að það sé ekki tilviljun ein saman. Með auk- inni menntun fer staða kvenna batnandi og ég dáist mjög að ungu konunum sem sækja ótrauðar á brattann og yfirstíga hverja tor- færuna á fætur annarri á æðri stöðum. Þær koma til með að af- sanna það að konur verði reynslu- lausar fram á grafarbakkann. En mér finnst vanta andlit kvenna í forystu verkalýðshreyfingarinn- ar.“ – Er jafnmikill baráttuhugur í konum og áður fyrr? „Baráttuhugur kvenna er mikill og fer vaxandi. Torfærurnar eru margar hverjar mjög erfiðar, en verst er þegar reynt er að brjóta sjálfstraustið niður. Það er gömul saga og ný. Markaðurinn og pen- ingavaldið er viðsjárvert og að ganga þeim á vald veldur blindu sem skyggir á manngildið og auð- gildið verður alls ráðandi. Mikil samstaða er meðal hinna ýmsu kvennasamtaka og sú samstaða fer vaxandi og lofar góðu. Kven- réttindafélag Íslands er þverpóli- tískt félag og allir stjórnmála- flokkar eiga fulltrúa í stjórn félagsins, en auk þess starfar Kvenréttindafélagið með Stíga- mótum, Kvennaathvarfinu, Fem- ínistafélaginu, Kvenfélagasam- bandi Íslands, Félagi kvenna af erlendum uppruna og Kvenna- kirkjunni. Kvenréttindi eru mannréttindi, því má ekki gleyma, og mínu mati þarf að koma þeim skilaboðum inn í skólana. Eins er nauðsynlegt að kynna mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að, svo sem Genf- arsáttmálann, en þar er til dæmis að finna ákvæði um stöðu kvenna, að hvergi megi mismuna konum né bera réttindi þeirra fyrir borð.“ – Nú ritstýrir karl- maður ársriti félagsins, 19. júní, í fyrsta sinn. Ber ritið þess einhver merki? „Gunnar er mjög hæfur blaða- maður og hefur margt gott til mál- anna að leggja. Orð eru til alls fyrst og við lærum öll hvert af öðru. Ég sé ekki að það skipti nokkru máli hvort að það sé karl- maður eða kona sem ritstýrir blaðinu. Aðalmálið er að blaðið sé vandað og mér finnst blaðið í ár vera sérlega efnismikið og glæsi- legt.“ Ragnhildur G. Guðmundsdóttir  Ragnhildur G. Guðmunds- dóttir er fædd í Reykjavík 21. des 1933. Hún tók landspróf frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, vann hjá Pósti og síma á Ísafirði og í Reykjavík á árunum 1965 til 2000. Formaður Félags íslenskra símamanna 1984 til 1996, vara- formaður BSRB, fyrst kvenna, frá 1988 og framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands frá 2001. Maki Ragnhildar var Ólafur Þórðarson, sem lést árið 1990. Þau eiga fjóra syni og tengda- dætur, fjórtán barnabörn og tvö barnabarnabörn. Með aukinni menntun batnar staðan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.