Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 41
✝ Þórður Pálssonfæddist í Sauða-
nesi í Austur-Húna-
vatnssýslu hinn 25.
desember 1918.
Hann lést á heimili
sínu 9. júní síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Sesselja Þórð-
ardóttir frá Stein-
dyrum í Svarfaðar-
dal og Páll Jónsson
bóndi í Sauðanesi.
Þórður átti ellefu
systkini. Þau eru:
Jón Helgi, f. 1914, d.
1985, Páll Sigþór, f.
1916, d. 1983, Sigrún Stefanía, f.
1917, d. 1998, Gísli, f. 1920, Her-
mann, f. 1921, d. 2002, Helga
Guðrún, f. 1922, Þórunn, f. 1924,
Ólafur Hólmgeir, f. 1926, d. 2002
Aðalbjörg Anna, f. 1928, d. 1955,
Haukur, f. 1929, og Páll Rík-
harður, f. 1932.
Þórður kvæntist hinn 27. maí
1944 Sveinbjörgu Jóhannesdótt-
ur, f. 26. des. 1919, frá Gauks-
stöðum í Garði. Börn þeirra eru:
1) Jóhannes, f. 2. maí 1945,
kvæntur Herdísi Einarsdóttur
og eiga þau þrjú börn, þau
Nökkva, Ara Knörr og Svein-
björgu Snekkju. Jóhannes og
Herdís eiga fimm barnabörn. 2)
Sturla, f. 14. nóv 1946. Eigin-
kona hans er Unnur Geirþrúður
Kristjánsdóttir. Sturla á tvö
börn með fyrri eiginkonu sinni
Hildi B. Sigurgeirsdóttur, þau
Snorra og Auði. Unnur á tvær
dætur, þær Maríu og Guðmundu
S. Arnardætur. Sturla og Unnur
eiga fjögur barnabörn. 3) Sess-
elja, f. 26. nóv. 1947, gift Ívari
Þorsteinssyni, þau eignuðust
þrjú börn: Þórð, Þorstein (lést
1988) og Eyþór. Sesselja og Ívar
eiga eitt barnabarn.
4) Páll, f. 9. apríl
1949, kvæntur Ingi-
björgu Guðmunds-
dóttur og eiga þau
fjögur börn, þau
Sólborgu Unu,
Þórð, Egil og Berg-
þór. Páll og Ingi-
björg eiga tvö
barnabörn. 5)
Helga, f. 7. apríl
1950. Hennar mað-
ur er Margeir
Björnsson. Helga á
fimm börn, þar af
tvö með fyrri manni
sínum Heiðmari Jónssyni, þau
Starra og Rakel, en með Mar-
geiri á hún Svein, Björn og Ólaf.
Margeir á tvö börn frá fyrra
hjónabandi, þau Hrafn og Þor-
björgu. Helga og Margeir eiga
tíu barnabörn.
Þórður tók gagnfræðapróf frá
Menntaskólanum á Akureyri.
Lengstan tíma ævi sinnar bjó
hann í Sauðanesi. Hann vann í
nokkur ár hjá Kaupfélagi Hún-
vetninga og starfaði sem grunn-
skólakennari til margra ára,
meðal annars í Hrísey, á Húna-
völlum og á Blönduósi. Eftir að
Þórður hætti búskap í Sauðanesi
tók Páll sonur hans við búinu.
Þórður og Sveinbjörg hafa búið
á Melabraut 9 á Blönduósi frá
árinu 1975. Þórður gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum í gegnum
tíðina. Meðal annars var hann
tvisvar í hreppsnefnd (í Torfa-
lækjarhreppi og á Blönduósi),
sat sem formaður skólanefndar
til fjögurra ára, var í varasátta-
nefnd o.fl.
Útför Þórðar fer fram frá
Blönduóskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Þórður Pálsson tengdafaðir
minn var hress og kvikur maður.
Ég minnist hans fyrir hreinskiln-
ina og kímnigáfuna, silungsveiðina
og bókbandið, stjórnmálaáhugann
og sögur af mönnum og málefnum.
Þórði hefði ekki fundist mikið til
um lof um sjálfan sig, en af því að
hann mun víst ekki lesa þessi orð
mín er óhætt að mæra hann svolít-
ið því ég held að ég hafi gleymt að
þakka honum almennilega fyrir
mig og mína. Hann hjálpaði mér
svo oft þegar ég var að stússast í
pólitíkinni, hann kenndi mér og
Maríu og Mundu að veiða í net og
stýra báti, hann aðstoðaði mig í
iðnráðgjafarstarfinu og hjálpaði
mér að kenna unglingum á Blöndu-
ósi um stríðsárin þar. Hann batt
inn uppáhaldsbækurnar mínar, gaf
sér tíma til að vera með fólkinu
mínu þegar það kom í heimsókn og
gaf mömmu silung sem henni þótti
sérstakt lostæti. Hið glaða og
skemmtilega viðmót Þórðar sem
gerði manni svo gott. Þórður Páls-
son var maður sem ég hlakkaði
alltaf til að hitta.
Elsku Sveinbjörg og kæra
tengdafólk, minningin um góðan
mann lifir.
Unnur G. Kristjánsdóttir.
Það er komið að kveðjustund,
elsku afi. Og þá langar mig að
staldra við og líta til baka. Mikið
hefur þú unnið á langri ævi. Og
mörgum hefur þú tengst, bæði fjöl-
skyldu- og vinaböndum. Eftir þig
liggur mikið og gott lífsstarf,
ásamt fjölda afkomenda, vina og
kunningja.
Hvernig karl var hann Þórður
afi? Aldrei sá ég hann reiðan, jafn-
vel þótt ég byggi hjá þeim ömmu í
tvö sumur á unglingsárunum og
heimsækti þau oft þess utan.
Háttalag afa einkenndist öðru
fremur af yfirvegun og rósemi og
það var ósköp þægilegt að vera í
návist hans. Hann átti þó til að
spretta úr spori, einkum ef verið
var að fara eitthvað. Þá var hann
ævinlega fyrstur út í bíl og jafnvel
búinn að setja bílinn í gang áður
en farþegarnir voru svo mikið sem
komnir út úr húsi.
Afi fylgdist vel með þjóðmálun-
um og hafði gaman af að ræða þau.
Oftast hlustaði hann á fjóra til sjö
fréttatíma yfir daginn í útvarpi og
sjónvarpi. Einnig fylgdist hann vel
með hvað afkomendurnir og aðrir
ættingjar sýsluðu og var ætíð boð-
inn og búinn að aðstoða þá á alla
vegu. Í afa var ekki til óheiðarleiki,
sýndarmennska eða hroki. Hann
meinti það sem hann sagði og átti
til að spyrja æði opinskátt ef hann
vildi vita eitthvað. Hann bjó yfir
góðri kímnigáfu enda tókst honum
ævinlega að framkalla bros eða
hlátur hjá gestum sínum. Á efri ár-
um hóf afi að binda inn bækur og
rit og það gerði hann (eins og ann-
að) af mikilli samviskusemi og
dugnaði. Hann naut þess jafnan að
glugga í ritin í leiðinni, enda mikill
fræðimaður í sér.
Elsku afi, ég kveð þig með sökn-
uði um leið og ég þakka þér inni-
lega fyrir samveruna.
Rakel Heiðmarsdóttir.
Mig langar að minnast þín,
Þórður afi, í nokkrum orðum. Þeg-
ar ég hugsa til baka koma mörg
minningabrot upp í hugann en þú
hefur verið áhrifavaldur í lífi mínu
frá því ég man eftir mér. Alltaf var
kærkomið að heimsækja ykkur
ömmu hvort sem var til Hríseyjar,
meðan þú kenndir þar, eða á
Blönduós. Minni mitt hrekkur tæp-
ast til að muna eftir heimsóknum
til ykkar að Sauðanesi þó vissulega
hafi ég smápatti dvalið þar hjá
ykkur.
Ég minnist fjölmargra ferða
með þér að vitja um silungsnetin á
Laxárvatni og alltaf var meðferð
aflans til fyrirmyndar, silungurinn
blóðgaður og ísaður um leið og
hann var greiddur úr netinu.
Reynslan af að loppinn greiða sil-
ung úr neti í rigningarsudda á
miðju Laxárvatni kenndi mér að
meta svala veðurfarsins og varð
mér oft hugsað heim til þín og
Laxárvatns þegar sænska sumarið
varð fullheitt á námsárum mínum
ytra.
Nú er leið þinni lokið, afi, en
minningarnar á ég og er þakklátur
fyrir þær. Einnig vona ég mér tak-
ist með breytni minni að sýna að
lífskoðanir þínar og fyrirmynd hafi
haft áhrif á mig.
Elsku amma, ég færi þér sam-
úðarkveðjur okkar í Sólheimum 9.
Starri.
ÞÓRÐUR
PÁLSSON
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 4. júní sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Leifur Sörensen, Jóna Björg Vilbergsdóttir,
Gréta Sörensen,
Birgir Sörensen
og barnabörn.
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓHANNES KRISTBERG ÁRNASON,
Gullsmára 11,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 21. júní kl. 13.30.
Áróra Helgadóttir,
Árni Jóhannesson, Laufey Valdimarsdóttir,
Sólveig Jóhannesdóttir, Gunnar Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
EINARS ÁRNASONAR
skipstjóra,
frá Sóleyjartungu,
síðast til heimilis
á Höfðagrund 19, Akranesi,
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra Gunnarsdóttir,
Árni Einarsson, Guðbjörg Halldórsdóttir,
Gunnar Einarsson, Ragnheiður Pétursdóttir,
Marteinn Einarsson, Guðrún Sigurbjörnsdóttir,
Einar H. Einarsson,
Guðmundur Einarsson, Sóley Sævarsdóttir
og fjölskyldur.
Mágkona mín og frænka okkar,
ÁSTA G. ÍSLEIFSDÓTTIR,
lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 17. júní.
Unnur Arnórsdóttir,
Leifur Bárðarson, Vilborg Ingólfsdóttir,
Finnur Bárðarson, Iréne Jensen,
Margrét María Leifsdóttir,
Inga María Leifsdóttir.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
FRIÐRIK LINDBERG MÁRUSSON,
lést í Reykjavík fimmtudaginn 17. júní.
Útför auglýst síðar.
Steinþóra Ingimarsdóttir,
Bjarni Friðriksson, Eva Ásrún Albertsdóttir,
Inga María Friðriksdóttir, Sigurður Hallvarðsson,
Guðrún Linda Friðriksdóttir, Einar Pálsson,
Ingimar Þór Friðriksson, Vilhelmína Thorarensen,
Petrea Kristín Friðriksdóttir, Gunnlaugur Sævar Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐRÚN SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
(Dúra),
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, föstu-
daginn 18. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jón A. Valdimarsson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR
fyrrv. kennara,
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ,
áður til heimilis
á Sléttuvegi 13.
Jón Atli Kristjánsson, María Þorgeirsdóttir,
Snæbjörn Kristjánsson, Guðrún Garðarsdóttir,
Dagný Kristjánsdóttir, Kristján Jóhann Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.