Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Smáauglýsingar á Leitið og þér munið finna! NEFND sem sjávarútvegsráðherra skipaði árið 2001 til að meta árangur í nýtingu nytjastofna leggur til að aflareglu verði breytt þannig að veidd verði 22% af veiðistofni þorsks en ekki 25% eins og núgildandi aflaregla gerir ráð fyrir. Nefndin kynnti lokaskýrslu sína á blaðamanna- fundi í gær og er í henni að mestu fjallað um afla- reglu fyrir þorskveiðar. Í niðurstöðum nefndarinn- ar kemur fram að á undanförnum tveimur áratugum hafi verið tilhneiging til ofmats á stærð þorskstofnsins sem ekki hafi verið skýrt til fulls. Ofmatið hafi leitt til þess að afli hafi að jafnaði ver- ið 27,5% af veiðistofni en ekki 25% eins og stefnt var að. Auk þess hafi afli umfram leyfðan heildarafla farið vaxandi á síðustu árum og því hafi raunveru- leg veiði orðið um 30% af veiðistofni eða 20% meiri en stefnt var að með aflareglunni sem sett var á fiskveiðiári 1995/1996. Segir nefndin brýnt að leið- rétta ofmat og umframafla, þannig að raunveru- legur afli verði í samræmi við nýtingarstefnu. Nefndin leggur til að núverandi aflareglu verði breytt þannig að veidd verði 22% af veiðistofni þorsks en ekki 25% eins og nú er gert. Segir nefndin að við samanburð og ítarlegar prófanir á ýmsum aflareglum hafi aflaregla sem miðar við 22% góða eiginleika hvað varðar hagnað, stöð- ugleika og vöxt og viðkomu þorskstofnsins. 22% aflaregla þýði hins vegar töluverða skerðingu afla frá því sem nú er. Myndi þýða 20 þúsund tonna skerðingu á næsta ári Fram kom á fundinum í gær að skerðingin gæti numið um 10% eða um 20 þúsund tonnum miðað við leyfilegan þorskafla á næsta fiskveiði- ári. Telur nefndin að hugsanlegt sé að innleiða slíka reglu þannig að fyrri regla með leiðrétt- ingum vegna ofmats og umframafla verði látin gilda þar til 22% reglan þýði enga eða litla minnkun frá fyrra ári. Á blaðamannafundinum í gær benti Friðrik Már Baldursson, sem stýrði starfi nefndarinnar, á að miðað við góða nýliðun í þorskstofninum, vegna uppbyggingar hrygningarstofns og eða betri umhverfisskilyrða, myndi 22% aflaregla leyfa veiðar á 310–320 þúsund tonnum af 1.400 þúsund tonna stofni. Hreinn hagnaður slíkra veiða, svokölluð auðlindarenta, gæti þá numið 190 milljörðum króna. Eftir því sem hlutfall afla- reglunnar hins vegar hækkaði myndi afli aukast en stofninn og hagnaðurinn minnka. 22% afla- reglan er hins vegar óháð breytingum á umhverf- isskilyrðum. Friðrik lagði áherslu á að það tæki tíma fyrir regluna að virka. Liðið gætu u.þ.b. 5 ár uns afli færi upp fyrir 250 þúsund tonn og 10 ár þangað til aflinn yrði meira en 300 þúsund tonn. Þessu fylgdi þó veruleg óvissa. Þannig gæti afli orðið 175–350 þúsund tonn eftir 5 ár. Þá segir nefndin að sveiflur í þorskafla verði verulegar vegna náttúrulegra sveiflna í stofnin- um og óvissu í stofnmati. Því þurfi að beita jöfnun af einhverju tagi samhliða hlutfallsreglunni. Þeg- ar veiðihlutfallið sé lækkað og stofninn stækki sé minni áhætta af slíkri jöfnun en ella. Skýrsla nefndarinnar er nú til skoðunar í sjáv- arútvegsráðuneytinu og vildi Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra ekki segja neitt til um hvort hann færi að tillögum hennar. Nefnd um langtímanýtingu fiskstofna vill breyta aflareglunni Leggur til 22% reglu FALLBYSSA af olíuskipinu El Grillo var dregin á land í gær, en hún lá í 60 ár á um 50 metra dýpi und- an ströndum Seyðisfjarðar. Að sögn Tryggva Harð- arsonar, bæjarstjóra Seyðisfjarðar, gekk vel að ná fallbyssunni upp en Árni Kópsson kafari vann að því í sjálfboðavinnu. Hann notaði til þess loftbelgi sem lyftu byssunni upp á yfirborð sjávar. Tryggvi segir að byssan líti vel út en nú sé unnið að því að þrífa hana og að hún verði eins og ný þeg- ar búið sé að fjarlægja hrúðurkarlana af henni. Fallbyssan er þriðja byssan sem náð hefur verið í af El Grillo, og sú langstærsta. Fyrir hafði verið náð í loftvarnabyssu og minni fallbyssu. „Það er nú með sumar þessar byssur að þær eru mjög fágætar í heiminum og jafnvel ófáanlegar. Þannig að þetta vekur athygli.“ Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Tryggvi Harðarson bæjarstjóri og Árni Kópsson kafari takast í hendur við afhendingu fallbyssunnar. Fallbyssa af El Grillo dregin á land eftir 60 ár í sjónum HVALFJARÐARGÖNG voru lokuð í um tvær klukkustundir í gærmorgun þegar hollensk hjón á bíl með hjólhýsi í eft- irdragi lentu í óhappi í göngunum. Við slysið lagðist hjólhýsið á hliðina. Ekki urðu meiðsl á fólki. Bíllinn er ónýtur og hjólhýsið illa farið. Um er að ræða alvar- legasta slys sem orðið hefur í göngunum frá því að þau voru opnuð. Stórir flutn- ingabílar voru á leið niður í göngin þegar óhappið varð. Tildrög slyssins eru í rannsókn lögregl- unnar. Hjónin voru á suðurleið í göng- unum, á hringferð um landið. Versta slysið í Hvalfjarð- argöngum PÉTUR Kr. Hafstein hæstaréttardómari hyggst hætta störfum við Hæstarétt Íslands og mun hann segja af sér embætti hæstaréttar- dómara 1. október nk., en þá eru 13 ár síðan hann tók til starfa við réttinn. Í samtali við Morgun- blaðið segir Pétur að hann og kona hans séu að byggja íbúðarhús á Rangárvöllum í Rangárvallasýslu og muni þau þegar fram líði stundir flytjast þangað búferlum. Þangað til mun hann nema sagn- fræði til BA-prófs við Háskóla Íslands, og hefur hann nám við sagnfræðideildina í haust. Hann segir sagnfræði lengi hafa verið sitt áhugamál, og segist hlakka til að sinna henni í framtíðinni. Hættir sem hæstaréttar- dómari Pétur Kr. Hafstein FIMM ára börn í leikskólum Reykjavíkur fá þriggja tíma leik- skólavist frítt, samkvæmt tillög- um starfshóps um samþættingu leikskóla og grunnskóla, sem kynntar voru í gær. Tillögurnar verða lagðar fram í borgarráði á þriðjudag en þegar hefur fengist fjárveiting fyrir breytingunni, sem kostar um 100 milljónir á ársgrundvelli. Mánaðargjöld fyrir leikskólavistun fimm ára barna lækka því talsvert við breyt- inguna, úr 27.900 í 19.500 krónur á mánuði fyrir hjón og sambúð- arfólk. Í tillögum starfshópsins er einnig lagt til að tekin verði upp sérstök námskrá fyrir leik- skólana sem hver og einn skóli vinnur sjálfstætt. Þannig á að brúa bilið milli grunnskóla og leikskóla og festa leikskólann í sessi sem fyrsta skólastigið. Námið á að vera fjölbreytt og verður m.a. lögð áhersla á félags- og samskiptahæfni, hreyfingu, myndsköpun og tónlist. Fimm ára börn fá fría skólavist hluta úr degi  Gjaldfrí/6 NORSKA Stórþingið sam- þykkti í gær að leggja til við sjávarútvegsráðherra landsins, Svein Ludvigsen, að reynt yrði enn á ný að hífa fjölveiðiskipið Guðrúnu Gísladóttur upp af hafsbotni. Norsk stjórnvöld lýstu því yfir nýlega að þau hefðu ákveðið að stöðva aðgerð- irnar eftir að í ljós kom 35 metra löng og 2–3 metra breið rifa á síðu skipsins. Ekkert varð úr því að Ludvigsen fengi sérstök fyr- irmæli um það frá þinginu að láta hífa Guðrúnu Gísladóttur upp vegna brotthlaups Fram- faraflokksins frá stuðningi við sérstaka tillögu þar að lútandi. Í staðinn var lagt til við sjávarút- vegsráðherrann að hann tæki ákvörðun sína um að láta skipið liggja áfram á hafsbotni til end- urskoðunar í sumar í ljósi nýrra upplýsinga, eins og það heitir. Niðurstaðan er túlkuð á þann veg í norskum fjölmiðlum að Guðrún muni liggja um ókomin ár í sinni votu gröf við Lófót. Haft var eftir Ludvigsen sjáv- arútvegsráðherra að beðið yrði með aðgerðir á meðan allri olíu yrði náð úr skipinu. Guðrún Gísladóttir sökk und- an strönd Noregs sumarið 2002 og liggur á um 40 metra dýpi. Talið er að fjórðungur af olíu skipsins hafi farið út í hafið en áætlað er að um borð séu 10 m³ af smurolíu og 275 m³ af elds- neyti. Þrír flokkar í Noregi leggja fram tillögu á Stórþinginu Óvíst hvort Guð- rún verður hífð upp HANNES Smárason, aðstoðarforstjóri Ís- lenskrar erfðagreining- ar, ÍE, dótturfyrirtækis deCODE, er að láta af störfum hjá fyrirtækinu til að einbeita sér að starfi stjórnarformanns Flugleiða. Hann mun áfram verða ráðgjafi hjá fyrirtækinu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu þess. Hannes er ásamt Jóni Helga Guðmunds- syni, eiganda Byko, eigandi félagsins Odda- flugs, sem á tæplega þriðjung í Flugleiðum. Í tilkynningu ÍE er haft eftir Kára Stef- ánssyni, forstjóra ÍE, að Hannes hafi hafið störf hjá fyrirtækinu skömmu eftir stofnun þess og hafi í sjö ár verið lykilmaður í vexti þess og þróun. Haft er eftir Kára að starf- semi ÍE hafi sjaldan verið meira spennandi því fyrirtækið sé byrjað að prófa lyf sem erfðafræðirannsóknir hafi skilað því. Hannes Smárason hættir hjá ÍE Hannes Smárason ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.