Morgunblaðið - 19.06.2004, Síða 4

Morgunblaðið - 19.06.2004, Síða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 24 84 3 05 /2 00 4 NETSMELLUR – alltaf ódýrast á netinu Allt að 18 ferðir á dag Sumaráætlun Icelandair Bókaðu á www.icelandair.is Engin þjónustugjöld þegar bókað er á netinu. Innifalið: Flug og flugvallarskattar. Breytingagjald 5.000 kr. Icelandair ódýrari í 54,5% tilfella í júní og júlí í sumar til Kaupmannahafnar og London Úttektin var framkvæmd af IMG Deloitte fyrir Icelandair á tímabilinu 6. - 14. maí. Miðað er við algengustu tegund sumarleyfisferða sem er yfir helgi. Til að gæta fyllsta hlutleysis var íslenskur samkeppnisaðili Icelandair á þessum flugleiðum látinn vita að verðkönnun yrði gerð á fyrrgreindu tímabili. Ódýrastir til Evrópu Verð á mann frá 14.490 kr.* Þá tók hann myndir af kynfærum eldri stúlkunnar og fór með hana í bíltúr út úr bænum þar sem hann gerðist brotlegur gagnvart henni. Notfærði sér ungan aldur stúlknanna Brot ákærða gegn stúlkunum voru talin alvarleg og talin beinast að mikilvægum hagsmunum. Not- færði hann sér ungan aldur þeirra til þess að misnota þær kynferð- islega að mati dómenda. Ákærði neitaði sök fyrir dómi en vitnisburður stúlknanna þótti bæði skilmerkilegur og trúverðugur. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Markús Sigurbjörnsson, Garð- ar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf- stein. Verjandi ákærða var Brynjar Níelsson hrl. og sækjandi Sigríður Jósefsdóttir, saksóknari hjá ríkis- saksóknara. HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karlmann í 10 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlk- um annars vegar árið 2000 og hins- vegar 2002. Stúlkurnar voru 5 og 7 ára þegar ákærði braut gegn þeim og var hann jafnframt dæmdur til að greiða hvorri þeirra 300 þúsund krónur í miskabætur. Með dómi sín- um staðfesti Hæstiréttur dóm Hér- aðsdóms Reykjavíkur frá 29. janúar 2004. Annað brotið átti sér stað í bíl- skúr skammt frá heimili yngri stúlkunnar. Strætisvagnabiðstöð var fyrir framan bílskúrinn sem notaður var af ákærða sem vinnuað- staða. Mikið var af börnum í kring- um hann og gaf hann þeim sælgæti og peninga, að því er fram kemur í dómi héraðsdóms. Kynferðisbrot ákærða gagnvart yngri stúlkunni voru þríþætt og fólu meðal annars í sér káf innanklæða. 10 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot JAAP De Hoop Scheffer, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbandalags- ins (NATO) ræddi sérstaklega um framlag Íslendinga í Afganistan á fundi með blaðamönnum í gær og sagði það vera afar mikilvægt, stjórn Íslendinga á flugvellinum í Kabúl væri nauðsynleg svo uppfylla mætti friðargæslumarkmið NATO í Afgan- istan. Þá sagði hann Íslendinga hafa gefið öðrum smáríkjum gott fordæmi með hlutverki sínu í Pristina og sýnt fram á að litlar þjóðir geti gegnt mik- ilvægu hlutverki í NATO. Forsætisráðherra, Davíð Oddsson, sagði að farið hefði verið yfir stöðu viðræðnanna við Bandaríkjamenn á fundi hans og utanríkisráðherra með De Hoop Scheffer. Davíð sagðist al- veg taka undir þau orð framkvæmda- stjórans að málið væri milli Íslend- inga og Bandaríkjamanna í samræmi við varnarsamninginn frá 1951. „Við munum halda þessum samningi skýr- um og ljósum. Ef hann brysti af ein- hverjum ástæðum þá er komin upp ný staða. En fyrr en hún kemur upp er ekki ástæða til að fjalla um það,“ sagði Davíð. Scheffer sagði nauðsynlegt fyrir al- þjóðasamfélagið að verjast hryðju- verkum fjarri heimahögunum. „Við vorum vön að gera það við landamæri okkar en ef við gerum það ekki fjarri heimahögunum, ef við gerum það ekki í Afganistan, þá munum við rek- ast á afleiðingar þess heima á eigin bæjardyrum. „NATO eru samtök sem byggjast á gildum og þessir hryðjuverkamenn eru að ráðast ein- mitt á þau gildi sem bandalagið hefur alltaf varið. Þetta er það nýja hlut- verk sem NATO er að laga sig að, að algerlega breyttri heimsmynd í ör- yggismálum.“ Forsætisráðherra sagði það sanna mikilvægi NATO að ný ríki hefðu sótt það mjög stíft að gerast aðilar að Atl- antshafsbandalaginu. Það sýni að NATO sé enn ákaflega þýðingarmik- ið bandalag. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra bætti við að það lægi ljóst fyrir NATO væri sú friðargæslustofnun sem nyti hvað mests trausts. Ef t.d. yrði farið fram á friðargæslu í Palest- ínu, án þess nokkuð liggi fyrir um slíkt, væri líklegast að leitað yrði til NATO. Framlag Íslands í Afgan- istan afar mikilvægt Morgunblaðið/Eggert Scheffer: „Þessir hryðjuverkamenn ráðast á einmitt þau gildi sem bandalagið hefur alltaf varið.“ LÍÐAN Helga Einars Harðar- sonar, sem fór í hjarta- og nýrnaígræðslu í Gautaborg í Svíþjóð 14. júní sl., er eftir at- vikum góð, en hann hefur nú verið útskrifaður af gjörgæslu og fluttur á hjartadeild á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu. Ármann Harðarson, bróðir Helga, segir Helga lausan úr öndunarvél. Hann segir alls ekki útséð með að líkami Helga hafi sætt sig við nýju líffærin, og segir að hugsanlegt sé að líkaminn hafni líffærunum í einhverjar vikur og jafnvel mánuði eftir ígræðsluna. Ekki er ljóst hversu lengi Helgi mun dveljast á sjúkra- húsinu ytra, en læknar hafa sagt að það verði að lágmarki þrír mánuðir, en sennilega ekki lengra en sex mánuðir. Líðan hjartaþega góð UM 200 manns gengu fylktu liði frá þinghúsi Manitoba í Winnipeg í Kanada að styttu Jóns Sigurðs- sonar í þinghússgarðinum 17. júní, þar sem hefðbundin athöfn fór fram í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga. Athöfnin í þinghússgarðinum fór nú fram í 22. sinn og á meðal þeirra sem fluttu ávarp voru Pet- er M. Liba fylkisstjóri, sem lætur af embætti um mánaðamótin, og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Venjulega er yfir 20 gráðu hiti á þessum árstíma í Winnipeg en meðan á hátíðarstundinni stóð kólnaði skyndilega niður í nokkr- ar gráður með snörpum vindi og þótti viðstöddum frekar kalt enda fæstir klæddir miðað við veðrið. Thelma Wilson, fjallkona Ís- lendingadagsnefndar í Gimli í ár, lagði sveig að styttu Jóns Sig- urðssonar. Thelma er píanóleik- ari og kennari og er gift Kerr Wilson en þau eiga fjögur börn. Eitt þeirra, Mark, býr á Íslandi, en eiginkona hans er Guðný Kristinsdóttir. Dóttir þeirra, Thelma Björk Wilson, verður ömmu sinni til aðstoðar á Íslend- ingadeginum í Gimli 2. ágúst í sumar. Hátíðleg stund í Winnipeg Morgunblaðið. Winnipeg. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Tim Arnason, fráfarandi forseti Íslendingadagsnefndar, og Thelma Wilson fjallkona á milli fánaberanna Brad Hirst og Kendra Jonasson við styttu Jóns Sigurðssonar í garðinum fyrir framan þinghús Manitoba í Winnipeg. KUNNUR sjónvarpskokkur frá Bretlandi, Mike Robinson, eldaði lambakjöt á Bessastöðum í gær með aðstoð og uppskrift frá Dorrit Mousaieff forsetafrú. Robinson er með þátt á sjónvarpsstöðinni UK Food og dagskrárgerðarmenn það- an komu til landsins í boði Iceland Express til að gera fjóra þætti um íslenska matargerð. Myndirnar frá Íslandi verða sýndar sem innslög í þætti matreiðslumeistarans breska, Good Food, sem er jafnan í beinni útsendingu. Morgunblaðið/Jim Smart Eldaði lambakjöt með Dorrit ELDUR kviknaði í bílskúr sem er sambyggður íbúðarhúsi við Kársnesbraut í Kópavogi rétt fyrir kl. 17 í gær. Slökkvilið höf- uðborgarsvæðisins var kallað á staðinn og steig mikill svartur reykur upp úr skúrnum. Að sögn slökkviliðsmanns eru eldsupptök ekki ljós, en svo virð- ist sem eldurinn hafi kviknað í dóti sem var inni í skúrnum og þurftu slökkviliðsmenn að færa eitthvað af dóti til að komast að eldinum. Vel gekk að ráða nið- urlögum eldsins og var ekki talin hætta á að hann breiddist í íbúð- arhúsið sjálft. Eignatjón er ekki verulegt. Kviknaði í bílskúr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.