Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 20
Eldaskálinn
Brautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
www.invita.com
Opið hús: laugardag kl. 10 - 16sunnudag kl. 11 - 15
50–55% AFSLÁTTUR AF
SÝNINGARINNRÉTTINGUM
Rýmum fyrir
nýjum eldhús-
og baðinn-
réttingum
Laugardag kl. 10 - 16
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Þegar Hafrannsóknastofnun lagði til
fyrir ári að skelveiðar í Breiðafirði yrðu
stöðvaðar dimmdi yfir bæjarbúum, þar sem
skelveiðar og vinnsla spiluðu svo stórt hlut-
verk í atvinnulífi bæjarins. Ákvörðunin kom
ekki á óvart, því hún hafði sinn aðdraganda.
Rætt var um náttúruhamfarir. Fyrir ári var
spurt: „Hvaða afleiðingar hefði stöðvun skel-
veiða á atvinnulífið í bænum? Boðaði það at-
vinnuleysi og fólksflótta?“
Nú ári síðar er bjartara hljóð í Hólmurum.
Þótt skellurinn hafi vissulega verið mikill
hafa ýmsir aðrir þættir haft jákvæð áhrif á
atvinnulífið. Keypt var nýtt fiskiskip til bæj-
arins, þá hefur fiskvinnsla aukist og á eftir að
vaxa. Heyrst hefur að Þórsnes ehf. ætli að
stórauka saltfiskvinnslu á næsta fiskveiðiári.
Þá eru að hefjast veiðar og vinnsla á beitu-
kóngi og eins veiðar og vinnsla á ígulkerjum.
Hjá Skipavík hf. er mikil vinna bæði í drátt-
arbraut og trésmíðadeildinni. Sú deild hefur
næg verkefni út næsta ár og er ekki hægt að
ætlast til meira. Sem sagt næg atvinna í
Hólminum og vantar vinnandi hendur.
Stykkishólmur er að verða æ meiri ferða-
mannabær. Það sést vel á vorin þegar ferða-
þjónustan tekur til starfa eftir hvíld. Veit-
ingastaðir opna og skemmtisiglingar um
Breiðafjörð byrja á ný. Sundlaugargestum
fjölgar og fleiri mæta á golfvöllinn.
Áfáum árum hefur veitingastöðum fjölgað
og er nú svo í Hólminum að á fjórum stöðum
innan 100 m radíus er hægt að fá keyptar
veitingar. Sjávarpakkhúsið við höfnina,
Narfeyrarstofa, Fimm fiskar og nýlega opn-
aði Hótel Breiðafjörður og þar er líka hægt
að setjast niður og fá sér að borða. Hólm-
urinn er að taka á sig mynd erlendra ferða-
mannastaða þar sem veitingastaðir eru
nærri á hverju horni.
Fyrst rætt er um sumarleyfistímann kem-
ur upp í hugann að mikill áhugi er meðal höf-
uðborgarbúa að eiga sér athvarf úti á landi.
Mikil eftirspurn er eftir jörðum til kaups.
Þessi áhugi hefur náð til Snæfellsness. Í
Helgafellssveit og ekki síður á Skógarströnd
fer hver jörðin á fætur annarri í hendur
borgarbúa.
Fyrrnefndur áhugi nær líka til Breiða-
fjarðareyja. Nýlega var eyjan Hrappsey
seld. Kaupandinn er borgarbúi. Hrappsey er
með stærri eyjum á Breiðafirði og er 7 kíló-
metra norðaustur frá Stykkishólmi. Hrapps-
ey á sér merka sögu.
Úr
bæjarlífinu
STYKKISHÓLMUR
EFTIR GUNNLAUG ÁRNASON
Húsfreyjurnar áVatnsnesi haldasitt árlega Fjöru-
hlaðborð í Hamarsbúð á
Vatnsnesi í kvöld. Þema
hlaðborðsins er byggt á
heimafengnu hráefni í
sveitinni, sjávarfangi og
landbúnaðarafurðum.
Húsfreyjurnar leggja
áherslu á að hlaðborðið sé
sem glæsilegast og þar
geti flestir fengið að
smakka eitthvað við sitt
hæfi. Í stórtjaldinu verður
bögglauppboð og fjölda-
söngur.
Tvær gönguferðir með
leiðsögn verða farnar
þennan sama dag og eru
þær inni í dagsskrá
Bjartra nátta. Önnur er
gömul fjárrekstrarleið.
Hlaðborðið
á Vatnsnesi
Akranes | Fyrsti árs-
fundur Sjúkrahússins og
heilsugæslustöðvarinnar
á Akranesi var haldinn í
Bíóhöllinni á Akranesi á
52 ára afmælisdegi
sjúkrahússins.
Á fundinum var
fjallað um framtíðarsýn
SHA 2004–2008. Magnús
Pétursson forstjóri
Landspítala ræddi um
stöðu og hlutverk SHA
við endurskoðun heil-
brigðislaga og í ljósi
stefnumótunar fyrir
LSH. Kom fram í máli
hans mikill áhugi á nán-
ari samvinnu þessara
stofnana.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Pallborðsumræður í lok ársfundar SHA.
Fyrsti ársfundur SHA
ÁNetinu kennir ým-issa grasa þegarleitað er að fer-
skeytlum. Þar er m.a.
Bragfræðivefur Halls
Reynissonar og eftirfar-
andi dæmi nefnt um fer-
skeytlu:
Leti fylgja lítil rök,
læra er það rétta,
skárra er að bæta bök
en byrðarnar að létta.
Það er forvitnilegt að
skoða Hvalavefinn, en þar
eru lesendur hvattir til að
senda inn ljóð um hvali.
Nefnd eru nokkur brag-
form og dæmi um þau,
m.a. aldagamlar öf-
ugmælavísur Bjarna Jóns-
sonar Borgfirðingaskálds:
Séð hef ég hvalinn sitja á stól,
selinn strokka og renna,
skötuna ganga á grænum kjól,
gráan hest með penna.
Séð hef ég köttinn renna og róa,
rikling smíða fley,
á stalli álinn, kríu og kjóa,
og hvalinn eta hey.
Hvalavísur
pebl@mbl.is
Fljót | Margvíslegar fram-
kvæmdir standa nú yfir hjá
sveitarfélaginu Skagafirði um
þessar mundir enda stendur
mikið til í héraðinu, tvö lands-
mót á vegum UMFÍ í sumar.
Fréttamaður rakst á þessa
starfsmenn Skagafjarð-
arveitna þar sem þeir voru að
vinna við endurbætur á vatns-
veitu í Fljótum. Myndin var
tekin kl. 23.00. Þá er ekki
hefðbundinn vinnutími en eins
og strákarnir sögðu, það er
ekkert á móti því að vinna á
kvöldin þegar sólin skín og
nóttin framundan ung og
björt.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Starfsmenn Skagafjarðarveitna unnu af kappi þó að komið væri undir miðnætti. Rúnar Símonarson,
(l.t.v.) Gústaf Bentsson, Kolbeinn Gíslason, Ingvar Sigurðsson og Gunnar Björn Rögnvaldsson.
Þegar nóttin er ung
Landsmót UMFÍ
Grundarfjörður | Fyrsta skemmtiferða-
skipið af 13 sem koma á þessu sumri lagðist
að bryggju í Grundarfirði í morgun. Þetta
fyrsta skip sumarsins heitir Funchal og
kemur hing-
að á vegum
Samskipa og
eru farþegar
um 450 tals-
ins. Stærstur
hluti farþeg-
anna, sem
eru breskir,
fór í skoðunarferð með rútum um Snæfells-
nes en um 150 manns urðu um kyrrt og létu
sér nægja að ganga um, kíkja í búðir og
skoða staðinn þann tíma sem skipið stoppaði
en það lét úr höfn aftur kl. 14. 00. Af hálfu
hafnarnefndar er sérstök nefnd sem skipu-
leggur móttöku ferðamanna, er skipulögð
sérstök dagskrá fyrir farþega meðan skipin
dvelja hér. Verslanir í Grundarfirði hafa
lengur opið og almennt reynt að taka vel á
móti ferðamönnum, að sögn Sealagh Smith í
undirbúningsnefndinni. Það hefur skilað sér
því í fyrra voru skemmtiferðaskipin 8 en
verða 13 í ár að sögn Sealagh.
Fyrsta
skemmti-
ferðaskip
sumarsins
LÖGREGLULIÐIN á Vesturlandi munu á
næstunni fylgjast sérstaklega með notkun
öryggisbelta og viðeigandi öryggisbúnaðar
fyrir börn í bílum. Þá mun lögreglan einnig
hafa afskipti af börnum sem ekki nota ör-
yggishjálma á reiðhjólum. Gera má ráð fyr-
ir því að kært verði vegna brota er varða ör-
yggisbúnað í bifreiðum samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar í Borgarnesi.
Haft verður samband við forráðamenn
barna sem ekki nota hjálma á reiðhjóli. Þá
mega vegfarendur búast við að vera stöðv-
aðir hvort sem þeir eru akandi eða á reið-
hjólum.
Lögreglan í Borgarnesi er komin með
skoðunarmiða fyrir reiðhjól og því geta þeir
sem vilja komið með reiðhjólin sín í skoðun
á lögreglustöðina og fengið skoðunarmiða
eða ábendingar um hvað megi lagfæra.
Gert er ráð fyrir því að öryggisátakið
standi yfir fram í næstu viku. Auk lögregl-
unnar á Akranesi og í Borgarnesi taka lög-
regluliðin á Snæfellsnesi og í Dölum þátt í
verkefninu og að samstarfinu standa einnig
lögreglan í Reykjavík og umferðardeild rík-
islögreglustjóra.
Fylgst með
öryggisbúnaði
á Vesturlandi
♦♦♦
ATVINNA mbl.is