Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 26

Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 26
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 26 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ SAUTJÁNDI júní var haldinn hátíðlegur á Selfossi í björtu og fallegu veðri. Á Sigtúnsplaninu var hátíð- ardagskrá þar sem margt var í boði fyrir börnin. Þessir krakkar tóku brosandi á móti þjóðhátíðardeg- inum, enda ekki annað hægt í góða veðrinu. Áður en dagskráin hófst var skrúðganga um bæinn. Morgunblaðið/Sig. Jóns Sautjándi júní á Selfossi Selfoss | Jón Ingi Sigurmundsson sýnir verk sín í Hafsteinsstofu, nýj- um og glæsilegum veitingasal Þrastarlundar við Sog. Á sýning- unni eru 30 olíu- og vatns- litamyndir. Myndefnið er sótt í Þrastarskóg og nágrenni. Auk þess eru myndir víðar að af landinu s.s. frá Snæfellsnesi, Skaftafelli, Land- mannalaugum og af ströndinni. „Ég hef málað mjög mikið við Sogið og Álftavatn. Hér og við Hvítá eru endalaus tilbrigði sem unun er að fást við með vatnslitum. Svo líður manni bara svo vel í skóg- inum,“ sagði Jón Ingi Sigurmunds- son listmálari frá Selfossi. Morgunblaðið/Sig. Jóns Jón Ingi með eitt verka sinna í kjarrinu við Þrastarlund. Jón Ingi sýnir í Þrastarlundi Eyrarbakki | Kvenfélag Eyrarbakka annaðist undirbúning og alla framkvæmd hátíðahalds á sextugasta þjóðhátíðardeginum. Dagskráin var með nokkuð hefðbundnu sniði. Fjallkonan flutti ljóð í upphafi dag- skrár, flutt var þjóðhátíðarræða, en síðan var ýmislegt gert fyrir yngri kynslóðina. Í lokin bauð kvenfélagið öllum viðstöddum í afmæliskaffi. Fjallkonan skartaði að þessu sinni nýjum skautbúningi sem kvenfélagið hefur látið gera og hannaður var og saumað- ur af þeim Oddnýju Kristjánsdóttur og Guð- rúnu Hildi Rosenkjær hjá Þjóðbúningastof- unni í Reykjavík. Morgunblaðið/Óskar Magnússon Fjallkona ársins og fylgdarmeyjar: f. v.: Jessica Linnéa Dahlgren , Katrín Ósk Þráins- dóttir (fjallk.) og Svanhildur Valgarðsdóttir. Þjóðhátíð á Eyrarbakka Selfoss | „Ég ætlaði að kasta langt út en það mistókst og kastið lenti hérna rétt við landið og viti menn þar lá stór fiskur sem tók síðan strikið beint út í strauminn og ég hef ekki reynt önnur eins átök og við að ná honum að landi og auðvitað endaði það með því að hann sleit sig lausan, en þvílíkur fiskur,“ segir Ágúst Morthens, verslunar- og stanga- veiðimaður á Selfossi, þar sem hann er stadd- ur í Klettsvíkinni, þekktum veiðistað á Selfossi sem reyndar er oft nefndur Smugan. Laxveiði hefst á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár núna um helgina. Stangaveiðimenn eru fullir eftirvæntingar um veiðitímabilið og mik- ið er rætt um vatnafar og hvernig endurkoma og árangur af seiðasleppingum verður. Þetta eru sportveiðimennirnir að tala um og velta fyrir sér möguleikunum. Á bökkum má einnig sjá undirbúning annars veiðiskapar sem stundaður er í Ölfusá en það eru netaveið- arnar sem enn eru stundaðar en í litlum mæli þó. Netaveiðimenn undirbúa sig með því að gera klára kláfa sem halda netunum úti og forma veiðistaðina. Stangaveiðin og laxinn hafa ótrúlegt aðdráttarafl og þar má segja að sé fólgin mikil auðlind fyrir vatnasvæðið í heild. Veiðivonin og útivistin dregur menn og konur að veiðistöðunum sem eru fjölmargir á svæðinu. „Mér finnst Tungufljótið og umhverfi þess vera mjög spennandi svæði. Þar er fiskur um allt og aðstæður breyttust við fljótið þegar vel. Sama er að segja um Langholt sem er á hinum bakkanum þar eru góðir veiðistaðir líka. Svo má nefna Iðu en fyrir þá sem komast að á því svæði eru möguleikar á ævintýrum því þetta er stórfiskastaður frá fornu fari. Það þarf að þekkja veiðistaðina vel og líka duttl- unga árinnar sem getur breytt sér og myndað nýja veiðistaði. Svo eru það perlurnar Stóra- Laxá og Sogið sem eru rómaðar veiðiár. Stóra Laxá er spennandi fyrir veiðimenn því þar sjá menn fiskana og þar er mikil náttúrufegurð. Hún er löng og það þarf að hafa fyrir því að veiða þarna en sá sem fer einu sinni þangað að veiða vill fara aftur,“ segir Ágúst Morthens. Hann sagði það sitt mat núna að það væri góð veiðivon á komandi sumri um allt svæðið það væri búið að rækta mikið og sleppa seiðum á vatnasvæðinu sem yki vonina. „Það bíða allir spenntir eftir að veiðitíminn hefjist. Ölfusá er falleg og vatnsstaðan á svæðinu er góð. Það eru því allar aðstæður fyrir hendi og svo er sjóbirtingurinn farinn að skila sér neðst á svæðinu og lax hefur sést stökkva á veiðisvæð- inu í Víkinni við Selfoss.“ „Ég er verulega bjartsýnn og ég heyri á mönnum að þeir eru sammála mér um að von sé til að veiði verði góð í ár og á næstu árum. Það gera niðurgönguseiðin sem sleppt hefur verið á svæðinu en þau gefa okkur von um aukna veiði á næstu árum,“ segir Ágúst Mort- hens, stangaveiði- og verslunarmaður í Veiði- sporti á Selfossi. jökullinn hvarf úr því. Fiskurinn hefur fært sig á nýja staði og það er mikið af spennandi veiðistöðum þar,“ segir Ágúst Morthens í Veiðisporti þegar hann er spurður um vatna- svæðið í heild. „Svo má nefna Snæfoksstaði en þar var mikill stórfiskastaður á árum áður og þar er nú verið að hvetja menn til að veiða þar meira með því að gefa uppbót á leyfi sem keypt eru til að sýna að þarna er hægt að veiða Bjartsýni á góða stangaveiði á vatnasvæði Hvítár og Ölfusár Morgunblaðið/Sig. Jónsson Sá stóri tók hérna rétt við landið. Ágúst Mort- hens í Klettsvíkinni á Selfossi, fallegum og rómuðum veiðistað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.