Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 30
FERÐALÖG 30 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgr. gjöld á ugvöllum). Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna og minibus 9 manna og rútur með/án bílstjóra. Sendum sumarhúsaverðlista; Dancenter sumarhús Lalandia orlofshver , Danskfolkeferie orlofshver Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk GSM símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is www.fylkir.is sími 456-3745 Bílaleigubílar Sumarhús DANMÖRKU Holiday- apartments in Mallorca: www.apartamentos-mallorca.es finningunni að við værum ein á vellinum.“ Skoðum okkur líka um Sigurður segir hjónahópinn hafa fundið Marco Simone golfvöllinn á Netinu, en hann er í úthverfi Rómaborgar. „Við slógum til þó svo að á suður Ítalíu sé ekki mikil hefð fyrir golfi eða ferðaþjónustu tengdri þeirri íþrótt. En golf- gjaldið þar er svip- að og í löndunum í kring og vellirnir jafnvel betri og mun grónari en á suður Spáni.“ Sigurður segir hópinn hingað til hafa farið á eigin vegum í golfferðirnar, þau panti sjálf flug, gistingu og bíla- leigubíla á Netinu. „Við flugum með lág- fargjaldaflugfélaginu Iceland Express til London og náðum tengiflugi sama dag með Easyjet til Rómar, sem er mjög hag- kvæmt. Þar sem okkur leist ekki á að vera algjörlega á eigin vegum í slíkri stórborg sem Róm er, þá settum við okkur í gegnum netið í samband við ferðaskrifstofuna Mastergolf, sem er í eigu Milenu Felicci og sérhæfir hún sig í að taka á móti og aðstoða golfspilara, ekki aðeins í Róm heldur á nokkr- um öðrum stöðum á Ítalíu. Hún skipulagði fyrir okkur gistinguna, keyrslu til og frá flugvellinum sem og akstur að og frá öðrum golf- velli sem við spiluðum á, og alla rástíma. Hún mælti með öðrum velli sem gaman gæti verið að spila á, sá heitir Arco di Constant- ino. Það eru 12 golfvellir í næsta nágrenni og í úthverfum Rómar. Við spiluðum golf í samtals sjö daga en tókum okkur frí frá golfi í tvo daga til að skoða Rómaborg. Við spiluðum í fimm daga á Marco Simone golfvellinum, en tvo hringi á Arco vellinum. Fyrir þennan pakka allan, að meðtöldum golf- S igurður Einarsson segir það eiga við sig eins og aðra í hópnum að ferðin til Ítalíu hafi verið ein- staklega ánægjuleg og vel heppnuð. „Við vorum þarna í lok apríl og gistum á golfhóteli í einu úthverfi borgarinnar. Um- hverfið og landslagið var mjög fallegt og allur gróður í fullum skrúða. Hótelið stendur við hliðina á Marco Simone golf- vellinum og ber sama nafn, en hann er í eigu Lauru Biagiotti sem er heims- frægur tískuhönn- uður og formaður golfklúbbsins. Völl- urinn er hannaður í kringum gamla Marco Simone kastalann sem er heimili hennar. Á hluta af vellinum er útsýn til Pét- urskirkjunnar.“ Sigurður segir golfvöll- inn vera 18 holu völl og rúmlega sex þúsund metra langan af klúbbteigum. „Hann var erfiður á köflum, einkum vegna lengdar, en á móti kom að á þessum tíma eru fáir í golfi þarna og því gátum við gefið okkur góðan tíma við spilamennskuna. Á sumum golf- völlum bæði hér og erlendis, er fylgst vel með að golfarar haldi uppi hraða í leiknum og ljúki hringnum innan tilskilins tíma, en þarna höfðum við stundum á til- vallargjöldum, greiddum við að- eins 920 evrur á mann, en við gist- um í tíu nætur á golfhótelinu.“ Spilum saman í hverri viku Milena skipulagði svo sér- staklega fyrir þau ferðir inn í Rómaborg frídagana tvo. „Borgin sú er sannarlega yndisleg. Fyrri daginn fórum við með leiðsögu- manni og sáum alla helstu staðina, en seinni daginn vorum við keyrð snemma morguns að Péturskirkj- unni, skilin þar eftir á eigin veg- um og sótt aftur á öðrum stað um kvöldið.“ Hópurinn er samheldinn enda sumir innan hans búnir að þekkj- ast frá unglingsaldri. „Við erum orðin vel sjóuð í að ferðast og eig- um ekki í neinum vandræðum með að taka á vandamálum ef þau koma upp á ferðalögum. Reyndar er rétt að geta þess að allt sem við höfum pantað í gegnum netið hefur staðið sem stafur á bók. Við spilum saman einu sinni í viku hér heima og erum öll komin svipað langt í golfíþróttinni.“ Fyrir utan heimavöllinn, Urriðavatnsvöll, seg- ir Sigurður tvo velli hér heima standa upp úr. „Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er afskaplega skemmtilegur og eins finnst mér völlurinn á Akranesi góður.“  ÍTALÍA| Á golfvelli Lauru Biagiotti í Róm Kastali á miðjum golfvelli Marco Simone kastali : Þar býr Laura Biagiotti. Örlygur Geirsson: Í góðri sveiflu á Marco Simone golfvellinum. Hér er hann staddur rétt neðan við kastalann. Morgunblaðið/Ólafur Brynjólfsson Hópurinn: Við Spænsku tröppurnar í Róm. Frá vinstri: Hjónin Þorgeir Lúðvíksson og Valdís Geirarðsdóttir, Sig- urbjörg Jónsdóttir og Örlygur Geirsson, Sigurður Einarsson og Erla Haraldsdóttir og lengst til hægri stendur Hrefna Björnsdóttir kona Ólafs Brynjólfssonar sem tók myndina. Þau eru átta saman í hóp og fara árlega út fyrir landsteinana til að spila golf. Kristín Heiða Kristinsdóttir spjallaði við einn úr hópnum um ferð til Rómar frá því í vor. Adr: Via Marco Simone 84 00012 GUIDONIA Roma Italy. Tel: 0774–366469 Fax: 00774–366476. E–mail: golfclubmarcosim- one@ntt.it Ferðaskrifstofan: www.master- golf.it Hótelið: www.laurabiagiotti.it Af golfvell- inum sést Péturskirkjan í Róm. khk@mbl.is Í NÝRRI Vegahandbók má finna ýmsar viðbætur frá fyrri útgáfu. Í ár eru þrjátíu ár frá fyrstu útgáfu bók- arinnar og er hún í stöðugri þróun en Vegahandbókin kemur í end- urbættri útgáfu á tveggja ára fresti. Í henni má finna upplýsingar um flest sem lýtur að ferðalögum um Ís- land. Meðal nýjunga í Vegahandbókinni 2004 má nefna samstarf við UMFÍ um landsverkefnið Göngum um Ís- land. Upplýsingum um stuttar, að- gengilegar og öruggar gönguleiðir hefur verið safnað saman á einum stað í bókinni en ennfremur er vísað til þeirra jafnóðum í texta. Því er auðvelt að fletta upp gönguleiðum hvar sem fólk er statt á landinu. Sami háttur er hafður á við að auðkenna golfvelli á víð og dreif um landið en þeir eru einnig merktir inn á sérstaklega til þess gert Íslands- kort. Fyrir áhugafólk um fuglaskoðun hefur svo verið bætt við upplýs- ingum um helstu svæði sem vænleg eru til fuglaskoðunar. Auk þess teiknar Jón Baldur Hlíðberg myndir af fuglum og öðrum náttúrufyr- irbærum fyrir þá sem vilja spreyta sig á að þekkja til í náttúrunni. Ýmsar aðrar nýjungar Samkvæmt upplýsingum frá Hálf- dáni Örlygssyni, sem segir að bókin sé í raun „Þarfasti þjónn ferða- mannsins“, eru margvíslegar aðrar viðbætur í nýjustu útgáfu Vega- handbókarinnar. Þar má nefna upp- lýsingar um stöðvar Landsvirkjunar sem bjóða upp á leiðsögn og sýn- ingar á sumrin. Einnig má þar finna yfirlit um áætlaða opnun fjallvega. Afsláttur fyrir gamalt eintak Fyrir þá sem eiga eldri útgáfu af Vegahandbókinni og vilja eignast þá nýju er í boði 1000 kr. afsláttur af nýju bókinni ef þeirri gömlu er skil- að við kaupin. Þá kostar bókin 2.480 krónur.  FERÐALÖG|Vegahandbókin 30 ára Golfvellir og gönguleiðir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.