Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 34

Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 34
LISTIR 34 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ V ið verðum að vera á varðbergi. Nýlega var ég svo glöggur að sjá að stórhættu- legur maður hafði smyglað sér inn á ættarmót, sat eins og ekkert væri sjálfsagðara innan um friðsæla Íslendinga. Hann var svarthærður, dökkur eins og arabi og talaði eins og hann væri með hrottalegt kvef og slæma hálsbólgu. Meira þurfti ég ekki. Svona tala arabar, ekki síst ef þeir reyna að tala ís- lensku. Það leyndi sér ekki að þarna var hann, sjálfur ammoníak- arabinn. Fyrir þá sem ekki fylgj- ast nógu vel með skal þess getið að fyrir nokkru voru sagðar æsi- legar fréttir af afskaplega grun- samlegum manni. Hann var sagður vera arabi sem hefði farið í bygginga- vöruverslun í Reykjavík og beðið um nokkra dunka af ammoníaki sem voru víst ekki til. Þetta er eitrað efni sem auk þess er hægt að nota í sprengjur. Ég bankaði í öxlina á þrjót- inum og var að því kominn að segja: Í nafni laganna! eða hvað maður nú segir við svona að- stæður. En þá kyngdi hrapp- urinn síðasta bitanum af ólseig- um tertubitanum sem hafði valdið þessum undarlega hreim. Hann er einn af þeim sem aldrei tala meira en þegar þeir eru með munninn fullan af mat. Og nú brá mér og ég harmaði að Skap- arinn skyldi gera mig svona ómannglöggan. „Sæll og blessaður, mér fannst ég kannast við þig, frændi,“ sagði hann, alveg óhræddur og hló hrossalega. Þá sá ég að þetta var hann Dóri Blakkur, eini maðurinn í ættinni sem er með kolsvart hár. Hann er moldríkur og fer til sólarlanda á hverju sumri. Hann kemur síðan heim ýmist á litinn eins og brennd kjötbolla, þegar hann hefur gleymt sér á ströndinni, eða súkkulaðibrúnn Miðjarðar- hafsbúi. Nú var hann vel haldinn og það skein í tannburstabrosið, skreytt marengstertubitum. Dóri er gallagripur en enginn hryðjuverkamaður frekar en langflestir arabar. Nokkrir arab- ar búa víst hér á landi og vafa- laust er þetta flest sómafólk sem hefur engan áhuga á ammoníaki. En við vitum öll hvað hefur gerst víða á Vesturlöndum og þess vegna erum við dálítið smeyk við allt sem minnir á sprengjur og araba. Fréttir úr heimi þeirra fjalla líka mest um ofbeldi en lítið um líf venjulegs fólks sem vill, eins og við, bara frið. Ammoníak-arabinn ógurlegi vakti mikla athygli þennan dag sem hann var í sjónvarpsfrétt- unum en síðan hefur hvergi ver- ið á hann minnst. Kannski er hann ekki til í holdinu frekar en draugarnir, bara ímyndun. En einhver kom þarna kannski, muldraði um ammoníak eða sagðist bara vera frá Amman. Hafi hann verið raunverulegt fól getum við treyst því að við hefð- um heyrt meira um manninn, lögreglan hlyti að góma mann sem var búið að lýsa svona vel. Arabar eru fáir hér. En er ég eini maðurinn sem er nógu for- vitinn til að vilja frétta svolítið meira af málinu? Hafi þetta allt verið tómur misskilningur hlýtur að vera kominn tími til að leiðrétta hann. Alvarlegar fréttir af einhverju sem getur snert okkur öll, sé fót- ur fyrir þeim, eiga ekki að vera eins og hégómi sem gleymist jafnóðum. Við viljum ekki hafa alla íslenska araba fyrir rangri sök, þeir eiga víst nóg með sig og þurfa ekki á svona trakter- ingum að halda. Hafi þetta allt verið rakið bull eiga þeir líka inni afsökun þeirra sem efndu til þessa gönuhlaups og fengu mig (næstum því) til að særa Dóra. Verst er að á bak við þetta allt er sú staðreynd að auðvitað þurfum við, eins og aðrar þjóðir, að reyna að koma í veg fyrir að ofstækismenn vinni saklausu fólki mein með sprengjum. Stundum er óhjákvæmilegt að lögreglan geri mistök í þeirri viðleitni og ekkert við því að segja. Fréttamenn eru heldur ekki heilagar kýr og það á að gagnrýna það sem miður fer hjá okkur. Séum við fóðruð á rugli eða misskilningi eigum við að segja heiðarlega frá því, við- urkenna mistökin. Nýlega hneykslaðist ég ásamt öðrum mikið á því að Þjóðdansa- félag Reykjavíkur skyldi hafa neitað að lána auglýsingablaði ís- lenskan hátíðarbúning sem nota átti við myndatöku af þeldökkri konu. Voru grimmileg orð höfð eftir starfsmanni félagsins. Eins og aðrir var ég sannfærður um að þarna væri gott dæmi um að rasistar leyndust hér víða, nú hefðu þeir bært á sér með væg- ast sagt ógeðugum hætti. En síð- an hefur komið í ljós að um er að ræða orð gegn orði og senni- lega eintóman misskilning. Von- andi er skýringin svo saklaus. Félagið hefur margsinnis lán- að búninga sína íslensku og er- lendu fólki af öðrum kynþætti en bleikum en hefur viljað fá trygg- ingu fyrir því að búningunum sé sýnd full virðing, eins og það er orðað í yfirlýsingu þess. Það hef- ur í meira en hálfa öld lagt sig fram um að sýna fólki af erlend- um uppruna sömu virðingu og öðrum landsmönnum og stuðlað að gagnkvæmum skilningi. Harkalegir kynþáttafordómar eru til hér og allt of mikið um þá. En varla er hægt að gera málstað þeirra sem berjast gegn þeim meiri óleik en að bregða saklausu fólki um þennan óþverra. Hafi það verið gert ættu þeir sem hlut eiga að máli að biðjast strax opinberlega af- sökunar. Allir eiga rétt á leið- réttingu orða sinna. Dóri frændi slapp, þrátt fyrir útlitið, af því að hann var með ættartöluna í lagi. En um göt- urnar gengur gott fólk sem er ekki í Íslendingabók, útlitið minnir okkur oft á hættulegt fólk úti í heimi. Við þurfum að vera á varðbergi en megum ekki hrópa: Úlfur, úlfur! að ástæðu- lausu. Þá hættir fólk að trúa okkur. Útlendur þjóðdans Ammoníak-arabinn ógurlegi vakti mikla athygli þennan dag sem hann var í sjónvarpsfréttunum en síðan hefur hvergi verið á hann minnst. VIÐHORF eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is TÓNLISTARHÁTÍÐIN Norrænir sumartónar verður nú haldin í þriðja sinn á vegum Norræna hússins og kammerhópsins Camerarctica. Sum- arsólstöðutónleikar verða haldnir í kvöld kl. 22 í Norræna húsinu. Flutt verða verk eftir finnann Einojuhani Rautavaara, tvö verk eftir Norð- manninn Sparre Olsen, annars vegar útsetningar á tveimur gömlum sálm- um frá Guðbrandsdal og hins vegar Noktúrna sem ber undirtitilinn Kyrrlát júnínótt til fjalla. Strengja- kvartettinn Hljóðir söngvar eftir Finnann Aulis Sallinen frá árinu 1971. Tresnitt eftir Kjell Marcussen, tríó fyrir flautu, fiðlu og selló. Eftir hlé verður fluttur Kvartett fyrir klarinettu og strengi eftir Bernhard Crusell. Crusell var fæddur í Finn- landi árið 1775 en dvaldi mestan hluta ævi sinnar í Svíþjóð. Tónlist hans telst til klassíska tímabilsins og þykir minna á tónlist Mozarts. Tón- leikunum lýkur svo á útsetningu Jóns Leifs á íslenskum rímnadans- lögum. Barnatónleikar Camerarctica laða svo að sér yngstu hlustendurna með lögum af norrænum toga á barnatónleikunum á sunnudag kl. 15. Þar fá börnin að hlusta á söng og hljóðfæraleik og syngja með og hreyfa sig. Sögumað- ur er Harpa Arnardóttir. Einnig koma ungir tónflytjendur fram, þau Ingvar Haukur Jóhannsson, 9 ára, sem leikur bæði á fiðlu og kornett og Gunnhildur Halla Ármannsdóttir, 7 ára, sem leikur á blokkflautu. Að- gangur er ókeypis að barnatónleik- unum. Camerarctica skipa Hallfríður Ólafsdóttir, Ármann Helgason, Hildigunnur Halldórsdótir, Sigur- laug Eðvaldsdóttir, Guðrún Þórar- insdóttir og Sigurður Halldórsson. Morgunblaðið/SverrirTónlistarhópurinn Camerarctica í Norðurmýrinni. Sumarsólstöðutónleikar ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri útnefndi í fyrradag Hallgrím Helgason borgarlistamann Reykja- víkur 2004 og veitti listamann- inum ágrafinn stein, heiðursskjal og ávísun að upphæð ein milljón króna. Útnefning borgarlistamanns er heiðursviðurkenning til handa reykvískum listamanni sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í ís- lensku listalífi. Útnefningin fór fram í Höfða og gerði Stefán Jón Hafstein, formaður menningar- málanefndar, grein fyrir vali nefndarinnar á borgarlistamanni Reykjavíkur 2004. Við sama tæki- færi var flutt nýtt Reykjavíkurlag við ljóð Hallgríms. Lagið samdi Ragnar Kristinn Kristjánsson og flytjendur voru Auður Gunn- arsdóttir sópran og Jónas Þórir píanóleikari. Morgunblaðið/Eggert Hallgrímur Helgason flytur þakkarávarp sitt. Þórólfi Árnasyni og Stefáni Jóni Hafstein er bersýnilega skemmt. Hallgrímur borgarlistamaður KLASSÍSKI Listdansskólinn í Mjódd býður upp sumarskóla, bæði í klassískum ballet og nú- tímadansi fyrir nemendur 11 ára og eldri sem hafa stundað nám í listdansi. Guðbjörg Astrid Skúla- dóttir, listdansari og jafnframt skipuleggjandi þessa námskeiðs, hefur fengið til liðs við sig bæði reynda og þekkta listdansara. Meðal þeirra má nefna Andreas Constantinou, Luce Francois, Lauren Hauser, Kötlu Þórarins- dóttur, Ólöfu Söebech og Guð- björgu Astrid Skúladóttur. Allt eru þetta þekktir dansarar og kennarar. Sumarskólanum er skipt upp í þrjú mismunandi námskeið sem verða haldin alla virka daga frá 21. júní til 3. júlí í húsnæði skól- ans í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Námskeið í listdansi DAGSKRÁ lista- og menningarhá-tíðarinnar Bjartir dagar í Hafn- arfirði í dag er eftirfarandi: Kl. 13 Drama og taktur. Regnbogabörn bjóða upp á fyr- irlestur um taktinn í tilverunni í umsjá Margrétar Ákadóttur. Kl. 14-20 Fjörukráin. Víkingahátíð. Kl. 14 og 16 Selið/þjónustu- hús. Fræðsluferð með Skógræktar- félagi Hafnarfjarðar undir leið- sögn Steinars Björgvinssonar garðyrkjufræðings og fuglaáhuga- manns. Kl. 15 Bæjarbíó. Þrjúbíó – Lína langsokkur með íslensku tali. Kl. 17–22 Íþróttahús við gamla Lækjarskóla. Graffítí. Mc Frikki og félagar spila tónlist úti. Kl. 19 Gamla bókasafnið. Hipphoppkvöld. Fram koma, Einfari, Diplomatics, Misskildi út- laginn, Prins X., Hinir dæma- lausu, Heimskir synir/Textavarp og Móri. Breikhópurinn Fifth Ele- ment, Íslandsmeistarar 2003 sýna. Kl. 20 Hafnarborg. Bjartir tónar. Geir Ólafsson og Furstarnir. Auk Geirs koma fram Árni Scheving á bassa, Carl Möll- er á píanó, Jón Páll Bjarnason á gítar, Papa-jazz (Guðmundur Steingrímsson) á trommur og Ólafur Jónsson á tenórsax. Kl. 21 Bæjarbíó. Sýning á nýrri íslenskri kvik- mynd eftir Gunnar B. Guðmunds- son, Konunglegt bros. Að auki verður sýnd stuttmyndin Kara- mellumyndin eftir sama höfund. Kl. 21-22 Víkingahátíð. Víkingaveisla og söngur við varðeld. Dansleikur kl. 23. Bjartir dagar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.