Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 38

Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 38
UMRÆÐAN 38 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ PÁLMI í Hagkaup og Jóhannes í Bónus eru meðal merkustu kaup- manna 20. aldar; frumkvöðlar sem bættu kjör íslenskrar alþýðu. Þeir eiga heiður skilinn. Jón Ásgeir í Baugi hefur verið frumkvöðull í við- skiptum og útrás ís- lenskra fyrirtækja. Fyrir það á hann heið- ur skilinn. Jónína Benediktsdóttir heldur því fram að ég sé sjálf- stæðismaður í liði gegn Baugi í grein sinni; Hallur, bókin, Baugur og lýðræðið í Morg- unblaðinu 15. júní síð- astliðinn. Þar grípur hún til ofnotaðra frasa. Ég er ekki í liði gegn einum eða neinum á vettvangi þjóðmála; að- eins í Víkingi og stoltur af því. Ég hef hins vegar gagnrýnt Jón Ásgeir fyrir ósvífið inngrip í stjórn- mál. Fyrir að bera út fundargerðir úr Baugi í Fréttablaðið sem enginn vissi hver átti – en vitum nú að hann á. Markmiðið var að skipta um forsætisráðherra í Stjórnarráði Íslands. Þetta var stórfrétt. Ein stærsta frétt í sögu lýðveldisins; frétt sem íslenskir blaðamenn hafa af einhverjum ástæðum ekki beint kastljósi sínu að. Baugur var ger- andi í aðgerð gegn forsætisráð- herra kortéri fyrir kosningar 2003. Kaupsýslumenn ætluðu að skipta um karlinn í brúnni! Þetta var læ- víslegt „coup d’etat“. Enginn blaðamaður rannsakar málið Enginn blaðamaður hefur rann- sakað málið; enginn spurt Jón Ás- geir hvað Baugi hafi gengið til; eng- inn greint málið. Enginn skrifað um það. Í þess stað hafa íslenskir blaðamenn grafið skotgrafir í átökum auðhrings gegn lýðræðislega kjörnu stjórnvaldi. Rannsóknarblaða- mennska á ekki skjól í íslenskum fjölmiðlum í upphafi 21. aldar. Þetta er dapurlegur vitnisburður um ástandið í íslenskum fjölmiðlum þar sem eitt fyrirtæki, Baugur hefur eignast þrjá af fjórum einkareknum fjöl- miðlum landsins á sama tíma og fé- lagið sætir lögreglu- og skattrann- sókn. Flest á haus og rest á röngunni Sá glöggi maður Össur Skarphéð- insson sagði í umræðum á Alþingi í ársbyrjun 2002 að Baugur væri Svarti Pétur á íslenskum mat- vörumarkaði og hefði þar hreðja- tak. Össur krafðist þess að rík- isvaldið gripi í taumana og leysti auðhringinn upp til þess að vernda neytendur. Ef Baugur hafði hreðja- tak á matvörumarkaði, er þá ekki rétt að grípa til sömu samlíkingar um fjölmiðla? Losa um hreðjatak Baugs á fjölmiðlum? Samt hefur Össur barist af hörku gegn lögum sem taka á samþjöppun eignarhalds á fjölmiðlum og Ólafur Ragnar synjaði þeim staðfestingar. Þannig stendur forseti Íslands vörð um þá sem ætluðu að skipta um karlinn í brúnni! Sjálfur forsetinn sem hafði haft uppi sterk varnaðar- orð um að auðhringar hreiðruðu um sig í fjölmiðlum. Þarna er flest á haus og rest á röngunni. Forvitnilegt rannsókn- arefni fyrir sagnfræðinga framtíð- arinnar. Þetta er kjarni málsins. Bókin sem þú boðaðir á síðastliðnu ári er aukaatriði. En Jónína, mín kæra Jónína. Bókin – hvar er bókin? Þú sem varst búin að semja um prent- un og panta auglýsingar. Þú bara fórst til Austurlanda fjær. Hvað gerðist? Hreðjatak, mín kæra Jónína Hallur Hallsson svarar Jónínu Benediktsdóttur ’Ef Baugur hafðihreðjatak á matvöru- markaði, er þá ekki rétt að grípa til sömu sam- líkingar um fjölmiðla?‘ Hallur Hallsson Höfundur er fyrrv. fréttamaður. MIKILL uppgangur er í ferða- mennsku sem tengis hvalaskoðun og því sem er tengt hvölum á ein- hvern hátt og full- yrða þeir sem þessari atvinnugrein tengjast að í þessari iðju séu framtíðarvaxt- armöguleikar okkar fólgnir. En skoðum nú nokkrar tölulegar staðreyndir: Samkvæmt skýrslu voru tekjur okkar vegna ferðamanna sem komu til lands- ins vegna hvalaskoð- unar einn milljarður og sjö hundruð millj- ónir króna á árinu 2003. Af þessu tilefni lét Ásbjörn Björg- vinsson hafa eftir sér að ferðamenn sem fóru í hvalaskoðun hafi verið 70.000. Ekki ætla ég nú að rengja þá tölu en þar sem heildar ferða- mannafjöldinn var 320.000 allt árið (en sá tími sem hvala- skoðun er í gangi er hámark átta mán- uðir) þykir mér það ansi mikið að rétt um 22% allra erlendra ferða- manna sem komu til landsins hafi farið að skoða hvali. Í framhaldi af þessu getur maður líka spurt sig hvort kemur á undan, hænan eða eggið? Komu þessi 70.000 gagn- gert til þess að fara í hvalaskoð- unarferð eða fóru þeir í hvalaskoð- unarferðina vegna þess að þeir voru hvort eð var komnir til Ís- lands? En til baka að tölunum. Það að fara í hvalaskoðunarferð kostar 3.500 kr. fyrir fullorðinn og að sjálfsögðu er ódýrara fyrir börn að fara, en í þessu dæmi reikna ég með að allir hafi greitt fullorðinsgjald (sem er alls ekki raunhæft, það má reikna með að u.þ.b 60% hafi greitt fullorð- insgjald, en að því gefnu liti dæm- ið mun verr út fyrir hvalaskoð- unarfyrirtækin). Þetta þýðir að velta allra fyrirtækjanna, sem eru í þessu (hvalaskoðun) hafi verið 245.000.000 kr. Samkvæmt mínum heimildum eru fyrirtækin í þess- um rekstri átta og að því gefnu að öll fyrirtækin hafi jafna markaðs- hlutdeild, er ársvelta hvers þeirra 30.625.000 kr., þannig að ef við gefum okkur það að „vertíðin“ standi yfir í átta mánuði á ári þýð- ir þetta að fyrirtækið velti ein- ungis 3.828.125 kr. á mánuði þessa átta mánuði af árinu. Heldur þykir mér þetta vera lág velta og ekki get ég ímyndað mér að framlegðin af þessum rekstri sé glæsileg. En við skulum halda okkur við tölurnar. Ef við höldum okkur við að tekjurnar vegna hvalaskoðunar hafi verið 1.700.000.000 kr. þá hef- ur hver af þessum 70.000 skilið eftir tekjur í landinu að upphæð 24.286 kr. Og þegar þessi ferða- maður hefur greitt fyrir hvalaskoðunina eru eftir 20.786 krón- ur sem fara í allar aðrar þarfir ferða- mannsins, eins og gistingu, mat og aðrar ferðir. Ekki eru þetta ferðamennirnir sem við ætlum að byggja afkomu ferðamennsk- unnar á? Allavega er ég ekki á því að þessir ferðamenn séu mjög eftirsóknarverðir, né að landsmenn ættu að vera mjög upprifnir af uppgangi hvalaskoð- unar. Því með þessu áframhaldi getur ekki stefnt í annað en að þeir sem í þessari at- vinnugrein starfa verði láglaunamenn og verði meira og minna að leita til Hjálp- arstofnunar kirkj- unnar eða Mæðra- styrksnefndar til þess að geta haldið jólin hátíðleg. Greenpeace-menn komu með til- boð til stjórnvalda, þess efnis að þeir buðust til að „útvega“ 50.000 ferðamenn til hvalaskoðunar ef Ís- lendingar hættu hvalveiðum. Þetta myndi þýða, miðað við að við höld- um sömu forsendum og áður, að viðbótartekjurnar yrðu 1.214.285.714 (einn milljarður tvö hundruð og fjórtán milljónir tvö hundruð áttatíu og fimm þúsund sjö hundruð og fjórtán) kr. og samanlagðar tekjur þjóðarbúsins vegna hvalaskoðunar yrðu 2.914.285.714 (tveir milljarðar níu hundruð og fjórtán milljónir tvö hundruð áttatíu og fimm þúsund sjö hundruð og fjórtán) kr. og aukningin til hvalaskoðunarfyr- irtækjanna yrði 175.000.000 kr. en samtals yrði þá velta fyrirtækj- anna 420.000.000 kr. Átta fyr- irtæki ættu að geta komist af með 420.000.000 kr. í ársveltu en ég er ansi hræddur um að fyrirtækjum í þessari grein myndi fjölga þannig að öll yrðu rekin með tapi. Mín niðurstaða, eftir þessa skoðun, er sú að við ættum að leyfa hvalveiðar og ef einhver vill endilega halda áfram að tapa pen- ingum á því að sýna hvali þá sé honum það alveg frjálst en hann á ekki að láta almenning halda að hann sé að gera góða hluti og halda því fram að þessi atvinnu- grein hans sé lausnin á fjárhags- legum vanda þjóðarinnar. Arður af hvalaskoðun? Jóhann Elíasson skrifar um ferðamennsku Jóhann Elíasson ’Við ættum aðleyfa hvalveiðar og ef einhver vill endilega halda áfram að tapa peningum á því að sýna hvali þá sé honum það alveg frjálst. ‘ Höfundur er fyrrverandi stýrimaður. Í SEXTÍU ár hafa Íslendingar lif- að í þeirri trú að forseti þeirra væri sameiningartákn sem kæmi fram fyr- ir þeirra hönd bæði innanlands og ut- an. Þeir hafa talið embættið hafið yfir pólitískan ágreining og að þau völd sem embætti forseta hefði yrðu aldrei notuð nema í algerum neyð- artilvikum. Forseta- frambjóðendur hafa jafnan talið að forseti hlyti að fara afar spar- lega með völd sín og er núverandi forseti, Ólaf- ur Ragnar Grímsson, engin undantekning þar á. Hann lýsti því jafnvel í fræðiriti fyrir allmörgum árum að stjórnarskrárákvæðið um synjunarvald for- seta væri dauður bókstafur. Engar líkur voru taldar á því að núverandi forseti, forverar hans eða eftirmenn nýttu sér þetta ákvæði nema í ein- hverjum neyðartilvikum sem menn töldu sig ekki geta séð fyrir. Svo gerðist eitthvað. Og þegar þetta eitthvað gerðist – enginn hefur enn útskýrt hvað það var – skipti nú- verandi forseti skyndilega um skoðun á nefndu stjórnarskrárákvæði, taldi það sprelllifandi og beitti því fyr- irvaralaust á lög sem falla hreinlega í skugga synjunar forseta á þeim. En það sem meira er og það er hið alvar- legasta við óútskýrð sinnaskipti Ólafs Ragnars er að þau lög sem hann hef- ur nú synjað staðfestingar verða í framtíðinni ákveðinn stuðull gagn- vart þeim lagafrumvörpum sem verða til umræðu og meðferðar hjá Alþingi. Þeir forsetar sem þá sitja, hvort sem þeir heita Ólafur Ragnar, Össur Skarphéðinsson eða eitthvað allt annað munu líta á þennan „dauða bókstaf“ allt öðr- um augum en hingað til hefur verið gert. Þeir munu í hvert sinn sem lög verða lögð fyrir þá til staðfestingar þurfa að velta því fyrir sér hvort lögin séu þess eðlis að þeir eigi að undirrita þau eða ekki. Óhjákvæmilega munu þeir komast af og til að þeirri niðurstöðu að lögin séu þannig að þeim beri að synja, for- dæmi fyrir því hefur verið sett. Þeir þurfa ekki annað en að máta lög inn í veikan rökstuðning Ólafs Ragnars fyrir synjuninni til að á vegi þeirra verði alloft lög sem þeir geta talið rétt að synja staðfestingar. Afleiðingin er þó ekki sú að þjóðin verði oft á ári að þramma eða spíg- spora á kjörstað til að taka afstöðu til umdeildra laga. Nei, það er ólíklegt að sú verði niðurstaðan. Afleiðingin verður sú að í hvert sinn sem leggja á frumvarp fyrir Alþingi verður fyrst að leita samþykkis forseta enda geta hvorki almennir þingmenn né rík- isstjórn átt sífellt yfir höfði sér synj- un forsetans og þjóðaratkvæða- greiðslu. Og hvað þýðir þetta? Jú, þetta þýðir einfaldlega að þingmenn munu þurfa að fara í reglulegar bænaferðir á Bessastaði til að fá leyfi hjá forseta til að leggja fram frum- vörp. Forseti verður þannig orðinn miklum mun valdameiri en honum var nokkurn tímann ætlað að verða og hefur í raun síðasta orðið um flest mál. Um leið er staða hans sem sam- einingartákns að engu orðin og hann er orðinn miðdepill allra pólitískra átaka. Bænaferðir til Bessastaða Svava Björk Hákonardóttir fjallar um forsetann ’Þingmenn munu þurfaað fara í reglulegar bænaferðir á Bessastaði til að fá leyfi hjá forseta til að leggja fram frum- vörp.‘ Svava Björk Hákonardóttir Höfundur er háskólanemi og pistla- höfundur á deiglan.com FORSETI íslenska lýðveldisins hefur nýtt sér þann rétt sinn að skrifa ekki undir lög frá Alþingi og þar með skotið því máli til ákvörð- unar þjóðarinnar. Löggjöf vantar Á þennan synjunarrétt hefur aldrei reynt og vantar því lög um hvernig skuli að málum staðið. Átök milli þings og þjóðar Alþingi samþykkir margskonar lög- gjöf. Að henni standa þingmenn sem hafa umboð frá meiri hluta þjóð- arinnar. Eigi að hnekkja ákvörðunum Alþingis hlýtur það að verða að gerast með meiri- hlutavaldi, það er að 50% atkvæðisbærra manna að minnsta kosti þurfi til að fella úr gildi löggjöf sem Alþingi hef- ur samþykkt. Í svona alvarlegum málum milli þings og þjóðar er ekki hægt að mínu mati að vera með einhvern reiknaðan meirihluta heldur hljóti að gilda beinn tölulegur óumdeilanlegur meirihluti einstaklinga. Kjósendur hafa jafngild atkvæði. Það er ekki hægt í svona átökum á milli þings og þjóðar að mismuna þeim rétti né færa hann til auðhringa eða fé- lagasamtaka. Sjálfstæðar kosningar Kosningar sem varða sjálft lýðræðið eru allt of þýðingarmiklar til að hafa þær með öðrum kosningum sem ef til vill gætu truflað þá rólegu yfirvegun sem fólk þarf á að halda þegar tekist er á um lýðræðið sjálft. Í ölduróti Ástandið í dag er þannig að menn eru tæpast tilbúnir til að ræðast við um málið efnislega. Það er eins og löggjöf um atkvæðagreiðslu eigi að vera sérsniðin við þetta eina mál og hún eigi að vera þannig að hægt sé að fella lögin með sem minnstu at- kvæðamagni. Ég held að slík vinnu- brögð borgi sig ekki og verði svo ólýðræðisleg að þau standist ekki réttlætisvitund fólks. Lög um það mikilvæga atkvæðagreiðslu er hér um ræðir verða að tryggja bein og skýr áhrif einstaklingsins. Meiri- hluti kjósenda á kjörskrá er eina afl- ið sem getur breytt með lýðræð- islegum hætti löglegri ákvörðun Alþingis. Því verðum við að una. Hið virka lýðræði – Átök þings og þjóðar Páll V. Daníelsson fjallar um átök þings og þjóðar ’Kosningar sem varðasjálft lýðræðið eru allt of þýðingarmiklar til að hafa þær með öðrum kosningum.‘ Páll V. Daníelsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Moggabúðin Reiknivél, aðeins 950 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.