Morgunblaðið - 19.06.2004, Síða 42

Morgunblaðið - 19.06.2004, Síða 42
MINNINGAR 42 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ BjarnheiðurRafnsdóttir fæddist í Snjóholti í Eiðaþinghá hinn 5. janúar 1924. Hún andaðist á sjúkra- húsinu á Seyðisfirði hinn 10. júní síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Rafn Guðmundsson, f. 8. júní 1889, d. 2. desember 1971, og Guðrún Björg Ein- arsdóttir, f. 18. nóv- ember 1893, d. 14. janúar 1974. Bjarn- heiður átti fjórar alsystur: 1) Ragnhildur, f. 28. apríl 1921, d. 24. apríl 1983. 2) Þórdís, f. 30. janúar 1927. 3) Ingibjörg, f. 2. apríl 1931. 4) Dagný, f. 7. ágúst 1933. Auk þess átti Bjarnheiður eina hálfsystur, Ingunni Péturs- dóttur, f. 14. september 1914, d. 3. júlí 2000. Eftirlifandi eiginmaður Bjarn- heiðar er Otti Vilbergur Svein- björnsson, f. 20. júlí 1920. For- eldrar hans voru Oddfríður Ottadóttir, f. 27. júlí 1882, d. 30. september 1961, og Sveinbjörn Árni Ingimundarson, f. 26. des- ember 1879 , d. 4. maí 1956. Vil- bergur og Bjarnheiður eignuð- ust eina dóttur, Guðrúnu Hrefnu, f. 5. apríl 1952, gift Jó- hanni Pétri Hans- syni, f. 9. janúar 1950. Börn þeirra eru: 1) Eygló Björg, f. 17. janúar 1974, unnusti Dánjal Sal- berg Adlersson, f. 30. desember 1975, dóttir þeirra Guð- rún Adela, f. 14. júní 2003, og eru þau búsett í Fær- eyjum. 2) Eydís Bára, f. 15. mars 1976. 3) Örvar, f. 12. apríl 1984. Einnig á Vilbergur synina Símon Hrafn, f. 7. maí 1957, og Tómas Lárus, f. 26. maí 1958. Bjarnheiður bjó ásamt for- eldrum sínum í Gröf í Eiða- þinghá þar til hún fluttist á Seyðisfjörð 1968 þar sem hún bjó til æviloka. Bjarnheiður starfaði við Al- þýðuskólann á Eiðum og síðar sem matráðskona við barnaskól- ann á Eiðum frá stofnun hans og allt þar til hún flutti á Seyð- isfjörð. Hún og eiginmaður hennar ráku kaffiteríu og síðar Verslunina Ölduna allt til ársins 2000. Bjarnheiður verður jarðsung- in frá Seyðisfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Badda amma. Nú er stríð- inu lokið og þú komin á betri stað. Við minnumst þess hvað var alltaf gott að koma til þín og Villa afa í Norðurgötuna. Æði oft hafðirðu áhyggjur af því að við færum svöng frá ykkur og bauðst okkur eitthvað að narta í áður en við færum, þrátt fyrir að við höfum aldrei litið út fyr- ir að þjást af næringarskorti. Þegar við komum í jólaboð, afmælisboð eða bara venjulegt kaffiboð, var alltaf nóg af kræsingum á borðum hjá þér og alveg öruggt að enginn fór svangur út frá ykkur. Í jólaboðinu var fastur liður að spila og var þá yfirleitt spiluð fé- lagsvist. Einnig kíktum við syst- urnar stundum til ykkar á kvöldin og tókum í spil með ykkur og varð þá oftar en ekki fyrir valinu vist eða kani. Oft gistum við systurnar hjá ykk- ur og svo seinna litli bróðir. Kemur þá fyrst í hugann minningin um kvöldkaffið sem við fengum hjá ykkur fyrir svefninn. Aldrei fengum við svoleiðis hressingu hjá mömmu og pabba og áttum við það til að kvarta yfir því við þau, en það var nú lítið hlustað á þær kvartanir. Þið afi rákuð Verslunina Ölduna í mörg ár og við vitum til þess að margir sakna þeirrar verslunar. Ekki vorum við systkinin gömul þegar við fórum að sniglast í búð- inni hjá ykkur og aðstoða við vöru- talningu, afgreiðslu, innkaup og fleira. Þú varst alltaf með eitthvað á prjónunum og þær eru ófáar flík- urnar sem við eigum með þínu handbragði. Ef við sáum fallega flík í blaði þá var hún tilbúin innan skamms. Þú varst líka alltaf að prjóna peysur, vettlinga og fleira sem þú seldir í búðinni ykkar og víðar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Elsku Villi afi og mamma, megi góður Guð styrkja ykkur og okkur öll í sorginni. Eygló Björg, Eydís Bára og Örvar. BJARNHEIÐUR RAFNSDÓTTIR ✝ Haflína MarínBjörnsdóttir fæddist í Saurbæ í Kolbeinsdal 24. nóv- ember 1905. Hún lést á dvalarheimili aldraðra á Sauðár- króki hinn 10. júní síðasltiðinn. For- eldrar hennar voru Ragnheiður Sigríð- ur Þorláksdóttir, f. 5.6. 1874, d. 15.2. 1957, og Björn Haf- liðason, f. 13.9. 1869, d. 24.8. 1937. Þau bjuggu í Saurbæ í Kolbeinsdal í Skaga- firði og síðar í Kolkuósi. Syst- kini Haflínu Marínar voru Jó- hannes, f. 1901 og lést barn að aldri, og Kristín Björnsdóttir Lüders, f. 29.12. 1909, d. 28.1. 2004. Haflína Marín giftist Sigur- moni Hartmannssyni, f. 17.11. 1905, d. 9.2. 1991, í Viðvík hinn 20. júní 1932 og hófu þau bú- skap í Kolkuósi og bjó hún þar til 1985 að hún fór á dvalar- heimili aldraðra á Sauðárkróki, Dætur þeirra eru Kristín Heið- ur, f. 2.8. 1933, gift Gísla Magn- ússyni, bændur að Vöglum í Skagafirði og eiga þau átta börn og tíu barnabörn, Rut hús- móðir, f. 9.4. 1935, gift Hreini Elías- syni listmálara, bú- sett á Akranesi og eiga þau sex börn og 13 barnabörn og tvö barnabarna- börn. Margrét Sig- urlaug, f. 29.1. 1948, ljósmóðir, gift Magnúsi Guð- mundssyni, búsett í Mosfellsbæ og eiga þau þrjár dætur og eitt barnabarn. Af- komendur Haflínu Marínar og Sigur- mons eru orðnir 46. Haflína Marín ólst upp í Saurbæ og stundaði síðan nám við Húsmæðraskólann á Blöndu- ósi. Hún bjó síðan í Kolkuósi ásamt Sigurmoni manni sínum með blandaðan búskap en síðari árin var hrossarækt þeirra að- albúgrein. Hún þótti búkona í betra lagi og einlægur dýravin- ur. Hún var skírð við kistu föð- urafa síns Hafliða og fékk þess vegna hið fágæta nafn Haflína en Marín er eftir föðurömmu hennar. Útför Haflínu Marínar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku amma. Flestar mínar æskuminningar eru tengdar veru minni hjá ykkur afa í Kolkuósi, eins sögurnar sem ég sagði börn- unum mínum og þó að einkenni- legt megi virðast eru flestar mínar draumfarir í dag tengdar þeim stað Ég var svo lánsamur að fá að vera langdvölum hjá ykkur afa frá því ég var smástubbur og fram til tvítugsaldurs og þar var margt brallað. Þú kenndir mér að lesa og skrifa áður en ég settist á skóla- bekk á Akranesi og er það mér svo minnisstætt hve mikla áherslu þú lagðir á gott málfar, vandaða skrift og rétta stafsetningu enda varst þú skarpgreind kona, hlý og blíð og máttir ekkert aumt sjá, hvorki menn né málleysingja. Ég gleymi aldrei sögustundun- um á vetrarkvöldum þegar þú varst að mjólka og ég lítill kútur sat á kolli í fjósinu. Þá voru sög- urnar um Gilitrutt og Búkollu sveipaðar ævintýraljóma. Þannig sé ég þær fyrir mér enn þann dag í dag og ef ég varð hræddur var það þitt hlýja faðmlag sem róaði lítinn gutta Þú gafst mér fyrsta lambið og fyrsta hestinn og leiðbeiningar með hvernig koma ætti fram við dýrin af væntumþykju og virðingu og eitt bentir þú mér á, að láta sér aldrei þykja eins vænt um dýr og menn því dýrin hefðu styttri ævi og sorgin við missinn gæti orðið svo erfið. Þú uppfræddir mig ásamt afa hvað iðjusemi væri nauðsynlegur kostur og öll menntun. „Vertu heiðarlegur og hreinlyndur, Elli minn,“ sagðir þú, „og þá mun þér farnast vel í lífinu.“ Eitt heilræði situr fast í mínu hugskoti og það var: „Gerðu aldrei neinum það á móti, hvorki í orði eða verki, sem þú vildir ekki láta þér gera.“ Það er mér ógleymanlegt hve vel þú fóðraðir skepnurnar. Þegar búið var að skilja mjólkina þá fengu allir sitt, meira að segja mýsnar og þótt það væri köttur á heimilinu áttu hinir smæstu mál- leysingjar athvarf hjá þér. Þú sást til þess að farið var með bænirnar á kvöldin enda trúrækin kona og viss um tilvist æðri mátt- ar. Síðustu árin voru heyrnin og sjónin farin að hrjá þig og varst þú hvíldinni fegin þegar kallið kom enda orðin 98 og hálfs. Þegar ég heimsótti þig fyrir mánuði sá ég að hverju stefndi og er ég þakklátur fyrir þá stund sem við áttum saman og kvöddumst og bæði viss um að þetta yrði okkar síðasta stund saman í þessu lífi. Þú varst svo þakklát fyrir hve góðan aðbúnað þú fékkst á dval- arheimilinu á Sauðárkróki og áttir þar mjög góðan tíma, saumaðir út púða og myndir eins og í akkorði væri meðan þú gast séð til verka. Eins varst þú svo þakklát fyrir hve gott starfsfólk væri í kringum þig og allir svo hjálpsamir og lið- legir. Guð blessi minningu ömmu minnar. Elías Hartmann Hreinsson. Elsku besta amma Haflína Ég veit ekki hvort þú getir lesið þetta en ég ætla að láta á það reyna. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér og þá sér- staklega mína yndislegu móður. Marga góða kosti ber hún frá þér sem hún síðan hefur skilað til sinna afkomenda. Báðar eruð þið handavinnukonur af guðs náð. Takk fyrir samveruna. Í sveitina var gott að koma, því fylgdi ávallt mikil tilhlökkun og margt að upplifa. Fimm ára að mjólka með þér; veiða og verka silung í soðið með afa; reiðtúr í Hóla og berjamó á haustin. Draumur lítillar stúlku rættist er hún fékk að sofa í hundakassa með hvolpunum. Eftirminnilegar eru hænurnar í kjallaranum og draugagangurinn á loftinu. Hænunum var stundum strítt og mannýga bola líka. Eflaust var lít- ið um varp þessa daga og steikin seig að hausti. Þú varst mikill dýravinur og gladdist mjög er komið var með gæludýr til þín á dvalarheimilið. Þennan kost erfði dóttir mín frá þér og ljómar hún upp eins og þú við nærveru þeirra. Elsku amma, nú ertu farin í þína hinstu ferð og óska ég þér góðrar ferðar. Nú hittir þú afa á ný. Hlotnist mér þitt langlífi sjáumst við á ný eftir 62 ár. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Hinsta kveðja. Þín Kolbrún Sandra. HAFLÍNA MARÍN BJÖRNSDÓTTIR Jæja, er hann dáinn blessaður? varð mér að orði, þegar tilkynnt var andlát föðurbróður míns, Indriða Friðbjarnarsonar. Eftir að hafa áttað mig á þessari frétt var ekki laust við að ég fyndi til samviskubits vegna þess hversu lítið samband ég hafði haft við hann síð- ustu árin. Þegar háöldruð mann- eskja kveður og fer yfir móðuna miklu er það ekki sorg sem grípur mann, heldur er það frekar hugur- inn sem kallar fram minningar frá liðnum atburðum og samverustund- um. Það var mikið áfall fyrir Friðbjörn afa þegar hann missti eiginkonu sína, Ragnheiði Veturliðadóttur, við fæðingu fimmta barns þeirra hjóna, Margrétar. Koma þurfti börnunum í fóstur og fjölskyldan því tvístruð. Síðar kvæntist afi aftur góðri og elskulegri konu, Sólveigu Pálsdótt- ur, og eignaðist með henni tíu stráka, en þau bjuggu lengst af í Sútarabúðum í Grunnavík. Þrátt fyrir að systkinin fimm æl- ust ekki upp á sama heimili urðu þau og voru mjög náin og er mér minn- isstætt hversu miklir kærleikar voru með þeim systkinunum fimm sem og við bræðurna tíu, enda tók Sólveig þeim öllum sem sínum börnum og var vinátta mikil á milli þeirra. Indriði frændi var einstaklega fríður og glæsilegur maður, teinrétt- ur í baki og geislaði af honum góð- INDRIÐI FRIÐBJARNARSON ✝ Indriði SalómonFriðbjarnarson fæddist á Steinólfs- stöðum í Veiðileysu- firði í Norður-Ísa- fjarðarsýslu á jóladag árið 1909. Hann lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 5. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hafnarfjarðar- kirkju 14. júní. mennskan og hlýjan, og ekki síður glettnin í hans blágráu augum. Síðast þegar ég hitti hann í fjölmennu 90 ára afmæli hans, umfaðm- aði hann mig og sagði: Ertu kominn, elsku frændi, mikið er gaman að sjá þig. Handtakið var hlýtt og faðmlagið innilegt að venju. Hann vildi strax fá fram fjör og söng og heillaði alla með sér. Þannig var Indriði frændi, ávallt mikill fjörkálfur, vildi öllum vel, var mjög frændrækinn og duglegur að heimsækja ættingja og vini. Þeir voru miklir vinir Kristján faðir minn og hann. Sterk er minn- ingin frá æskuárum mínum þegar Indriði kom á heimili okkar á Ísa- firði og farið var til Grunnavíkur að heimsækja ættingjana þar. Báðir voru þeir miklir æringjar og hreifst maður með í gleði þeirra og gáska. Ég man að þeir urðu eins og fermingarstrákar, stríðnir og prakk- aralegir í hvert sinn sem þeir hittust. Það var hátíð í bæ og sveit þegar Indriði birtist. Indriði kastaði aldrei illu orði til eins eða neins manns, hann var mað- ur sátta og samlyndis og vildi öllum vel. Hann var mikill hófsmaður, fór ekki mikinn, mat fjölskyldu sína öðru fremur og fórnaði henni, syst- kinum og vinum miklum tíma. Þann- ig var hann til fyrirmyndar fyrir okkur sem þekktum hans góða inn- ræti og góðvild. Ég færi honum látnum virðingu mína og þakkir fyrir samverustund- irnar, sem hefðu mátt vera fleiri, miklu fleiri, og óska honum bless- unar á nýjum stað. Bros hans og hlýju geymi ég í minningum mínum. Góður drengur hefur lokið langri og farsælli göngu. Eftirlifandi eig- inkonu hans, Sigríði, Arnbjörgu afa- barni hans og öllum öðrum nánustu ættingjum sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Indriða Frið- bjarnarsonar. Hvíl þú í friði. Ólafur Kristjánsson. MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangs- stræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á föstu- degi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.