Morgunblaðið - 19.06.2004, Side 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 43
Kársnesbraut 98 • Kópavogi • 564 4566 • www.solsteinar.is
SÓLSTEINAR erum fluttir á KÁRSNESBRAUT 98
Hsfði 4ys: 589www.osi.is
IK
Veljið fallegan legstein
Vönduð vinna og frágangur
Sendum myndalista
Legsteinar
Kristbjörg Halldóra
Halldórsdóttir, hús-
freyja á Stóru-Reykj-
um í Reykjahverfi í
Suður-Þingeyjarsýslu,
fæddist á Kálfaströnd
við Mývatn 19. júní
1884. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Halldór
Sigurðsson (1843–
1898) og Hólmfríður
Þorsteinsdóttir (1853–
1915). Af 8 börnum
þeirra hjóna náðu 4
fullorðinsaldri, og
Halldóra var næstelzt
þeirra. Árið 1904 gift-
ist Halldóra Sigfúsi Bjarnarsyni frá
Reykjahlíð, og þau hófu búskap á
Stóru-Reykjum í Reykjahverfi. Síð-
ar bjuggu þau á Kraunastöðum í
Aðaldal, í Geitafelli suður af
Reykjahverfi og síðast í Múla í Að-
aldal. Rúmlega þrítug missti Hall-
dóra heilsuna, og mörg síðustu ár
ævinnar var hún á Kleppsspítalan-
um í Laugarnesi, og þar lézt hún 20.
apríl 1955.
Sigfús og Halldóra eignuðust 5
börn, sem öll komust til fullorðins-
ára. Þau voru: 1) Björn háskóla-
bókavörður (1905–1991), kvæntur
Droplaugu Sveinbjarnardóttur
(1912–1945); börn þeirra eru: a)
Hólmfríður skrifstofumaður, f. 1934,
gift Ólafi Eysteini Þorsteinssyni
verkstjóra (1933–1997), 3 börn, 6
barnabörn, 1 barnabarnabarn; b)
Sveinbjörn eðlisfræðingur, fyrrv.
háskólarektor, f. 1936, kvæntur
Guðlaugu Einarsdóttur bókara, f.
1936) 3 börn, 1 barnabarn; c) Sigfús
prófessor, f. 1938, kvæntur Eddu
Benjamínsson kennara, f. 1939,
(skildu), 1 barn; sbk. Margrét Her-
manns-Auðardóttir fornleifafræð-
ingur; f. 1949, d) Helgi vísindamað-
ur, f. 1942, kvæntur Hrefnu
Kristmannsdóttur prófessor, f.
1944, (skildu), 3 börn; kvæntur Þóru
Ellen Þórhallsdóttur prófessor, f.
1954, 2 börn; e) Ólafur Grímur
læknir, f. 1944. Seinni kona Björns
var Kristín Jónsdóttir (1913–1998);
sonur þeirra er f) Hörður, f. 1948,
sérbýli fatlaðra. 2) Arnþóra hús-
móðir, saumakona (1906–1993), gift
Runólfi Jónssyni starfsmanni
Landssíma Íslands (1913–1999),
(skildu); börn þeirra eru: a) Ragn-
heiður Björg húsmóðir, f. 1944, gift
Snorra Björnssyni bónda, f. 1944,
Kálfafelli, 2 börn, 5 barnabörn, 3
barnabarnabörn; b) Jón Skúli skrif-
stofumaður, f. 1947; c) Bjarney Þur-
íður skrifstofumaður, f. 1951, gift
Braga Agnarssyni matreiðslumeist-
ara, f. 1955, 3 börn, 2 barnabörn, 1
barnabarnabarn. 3) Halldór skatt-
stjóri í Reykjavík (1907–1991); dótt-
ir Sigrún húsmóðir, f. 1941, gift Sig-
urjóni Magnússyni framkvæmda-
stjóra, (1925–1979), 4 börn, 9
barnabörn, 2 barnabarnabörn; móð-
ir Sigrúnar var Steinunn Pálsdóttir
(1904–1989). 4) Hólmfríður húsmóð-
ir, f. 1911, gift Bjartmari Guð-
mundssyni bónda á Sandi og alþing-
ismanni (1900–1982); börn þeirra: a)
Guðrún þjóðsagnafræðingur (1939–
1988), gift Þorkeli Steinari Ellerts-
syni skólastjóra, f. 1939, 4 börn, 5
barnabörn; b) Hjördís kennari
(1941–2002), gift Þórði Jónassyni
vélfræðingi, f. 1944, 4 börn, 4 barna-
börn; c) Bryndís Halldóra skóla-
stjóri, f. 1944, gift Erni Guðmars-
syni tæknifræðingi, f. 1943, (skildu),
2 börn, 2 barnabörn; sbm. Guðlaug-
ur Rúnar Guðmundsson, f. 1955
(skildu), 1 barn; sbm. Hringur Jó-
hannesson listmálari (1932–1996); d)
KRISTBJÖRG
HALLDÓRA
HALLDÓRSDÓTTIR
Hólmfríður kennari, f.
1947, gift Sigurði
Herði Sigurðssyni tölv-
unarfræðingi (1945–
1986), (skildu), 2 börn,
3 barnabörn; gift Sig-
urði Ólafssyni málara-
meistara, f. 1949, 1
barn; e) Guðmundur
þjóðfélagsfræðingur,
kvikmyndagerðarmað-
ur, f. 1948; f) Hlað-
gerður kennari, f.
1951, gift Agli Þóri
Einarssyni efnaverk-
fræðingi, f. 1948, 3
börn; og g) Sigfús rit-
höfundur, f. 1955, sbk. Friðrika Sig-
ríður Benónýsdóttir rithöfundur, f.
1956, (skildu), 1 barn; sbk. Lóa Al-
dísardóttir ritstjóri, f. 1970. 5) Pétur
verkamaður í Reykjavík (1913–
1965).
Þegar Kristbjörg Halldóra dó,
var ekki minnzt á andlátið í blöð-
unum. Minningargreinar voru ekki
birtar, tilkynningu um andlát eða
jarðarför er hvergi að finna. Ekki er
hennar heldur getið í öðrum ritum
frá þessum tíma svo vitað sé. Nú er
orðið óljóst, hverjir voru viðstaddir
jarðarförina, en börn hennar hér
fyrir sunnan voru þar og starfsfólk
af Kleppi. Útförin var gerð frá
Fossvogskapellu 28. apríl 1955. Séra
Gunnar Árnason jarðsöng. Jarðsett
var í Fossvogskirkjugarði. Áratug
síðar var sonur Halldóru, Pétur,
grafinn við hlið hennar. Einn kross
er yfir leiðum þeirra beggja. Á öðr-
um armi krossins er spjald með
nafni hennar og fæðingardegi, sem
sagður er 20. maí 1884, og dán-
ardegi, 20. apríl 1955. Á hinum armi
krossins er nafn Péturs, fæddur 12.
ágúst 1913, dáinn 4. júlí 1965. Hver
var þessi kona, sem yfirgaf lífið,
svona án þess að fólk væri almennt
látið vita? Jörðin Kálfaströnd er
austanvert við Mývatn sunnarlega.
Sjálfur stendur bærinn á vatns-
bakkanum. Í landi Kálfastrandar er
Höfði (Hafurshöfði), og Klasar í
Kálfastrandarvogum eru suður og
vestur af Höfðanum. Á sumrin, þeg-
ar sólin skín, þykir mörgum þar feg-
urst við Mývatn, við silungakvak og
fuglasöng. Kálfaströnd var mikil
hlunnindajörð, um aldamótin 1900
fór bóndinn með 16.000 andaregg í
kaupstaðinn, og 600 silungar feng-
ust úr vatninu í tveimur fyrirdrátt-
um. Á Kálfaströnd fæddist Halldóra
Halldórsdóttir, og þar ólst hún upp
með foreldrum sínum, en föður sinn
missti hún 11 ára. Þarna hafði Sig-
urður, afi hennar, búið, og Tómas,
faðir hans, og Jón, faðir Tómasar,
en Jón keypti jörðina árið 1784 fyrir
132 spesíudali; í föðurætt var Hall-
dóra komin af bændum í Mývatns-
sveit langt fram í ættir. Í móðurætt
var hún af ríkum jarðeigendum á
Langanesströnd. Á Kálfaströnd
stóð búskapur traustum fótum, og
þar var margt hjúa. Kálfastrand-
armenn sóttust ekki eftir félagsleg-
um frama, en bjuggu vel að sínu,
áttu jarðir, áttu Reyki í Reykja-
hverfi, eina hlunnindamestu jörð í
sýslunni, ef jarðhiti hefði verið tal-
inn með, en hann var ekki metinn til
fjár á þessum tíma.
Halldóra ólst upp í glaðværum
systkinahópi, systurnar voru þrjár,
og yngstur var bróðir. Systur áttu
harmóníku og spiluðu, sungu og
dönsuðu og kenndu strákunum að
dansa, svo að þær hefðu danskaval-
era. Þær kunnu ósköpin öll af ljóð-
um og söngvum. Móðir þeirra var
þá orðin ekkja og stjórnaði búi úti
sem inni. Hún var glögg á fjármál
og reikningsskil öll, sat hreppskila-
þing og sveitafundi ásamt búand-
körlum. Hólmfríður á Kálfaströnd
þurfti ekki ráðsmann. Halldóra
fermdist yngst fermingarsystkina
sinna, en stóð sig samt bezt hjá
prestinum ásamt frænku sinni,
Halldóru Stefánsdóttur frá Ytri-
Neslöndum. Hólmfríður tók heim-
iliskennara til að kenna börnunum,
og einn þeirra var Sigfús Bjarn-
arson, dóttursonur Péturs Jónsson-
ar í Reykjahlíð. Sigfús varð hús-
maður á Kálfaströnd, og með
honum kom móðir hans frá Reykja-
hlíð, Hólmfríður Matthildur Péturs-
dóttir. Þann vetur, 1902–1903, fór
Halldóra á Kvennaskólann á
Blönduósi. Tekið var til þess, hve
vel hún stóð sig í skólanum, bæði til
munns og handa. Hún bjó hjá lækn-
ishjónunum á staðnum, Júlíusi Hall-
dórssyni, héraðslækni, og konu
hans, Ingibjörgu Magnúsdóttur frá
Grenjaðarstað. Heim fór Halldóra
eftir vetrardvölina. Þau Sigfús
Bjarnarson voru þá heitbundin. Þá
var myndin tekin, sem hér birtist.
Sigfús tók nú til ábúðar hluta af
Stóru-Reykjum og fluttist þangað
með móður sinni og systur (og
tveimur börnum hennar, hún var
nýlega fráskilin). Þann 11. júní 1904
voru Sigfús og Halldóra gefin sam-
an í Skútustaðakirkju, og Halldóra
fluttist þá fyrst til þeirra Sigfúsar
og móður hans, á eignarjörð sinni í
Reykjahverfi. Sjálf voru Sigfús og
Hólmfríður ekki eignafólk; Hólm-
fríður hafði orðið ekkja 35 ára með 5
börn og hafði verið fardagamann-
eskja lengst af síðan, en nú var hún
57 ára. Sigfús var 31 árs, en Hall-
dóra tvítug. Með Halldóru kom
fljótlega til Reykja fóstra hennar,
Guja, og hún varð vinnukona hjá
þeim eftir það. Fimm börn fæddust
þeim Sigfúsi og Halldóru næstu 8
árin, og öll komust þau á legg. En
innan fárra ára hafði öll sú stóra
jörð Reykir verið seld, og þau voru
komin á kirkjuhjáleigu, Kraunastaði
í Aðaldal. Síðar var flutt í Geitafell,
jörð í heiðardal suður af Reykja-
hverfi. Þar missti Halldóra heilsuna
rúmlega þrítug. Hún lagðist fyrir í
máttleysi, sinnuleysi og með höf-
uðverk. Líkamsmáttinn fékk hún
aftur, en nú var móðir húsbóndans
tekin við stjórn heimilisins og upp-
eldi barnanna (ef hún var ekki tekin
við því fyrr), og smákompa var af-
þiljuð í öðrum enda baðstofunnar
fyrir Halldóru. Þar átti hún að vera,
sérstaklega ef gesti bar að garði.
Hún var geðbiluð, og ýmislegt hraut
út úr henni. Þannig gekk það á
þriðja áratug. Gömlu konurnar,
Hólmfríður og Guja, eltust, en eng-
inn fékk að þjóna á heimilinu nema
„þær systur,“ dætur Sigfúsar, son-
ardætur Hólmfríðar Matthildar
Pétursdóttur. Hólmfríður naut þess
fram á níræðisaldur að stildra upp
og niður stigana á heimili sonar
síns, njóta þeirrar fyllingar að veita
heimili hans forstöðu. Komin í kör
um nírætt gaf hún enn fyrirskipanir
um húshaldið, og sonurinn hlýddi
eða læddist bara út. Á nítugasta og
öðru aldursári dó hún, og heimilið
leystist upp. Halldóra hafði þá verið
flutt suður, á Kleppsspítalann í
Reykjavík, en þangað hafði Sigfús
áður komið yngsta syni sínum til
vistar, 17 ára gömlum. Á Kleppi
hafði Halldóra of háan blóðþrýsting,
lamaðist og fékk legusár og and-
aðist úr lungnabólgu um sjötugt.
Ólafur Grímur Björnsson.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Við kveðjustund er
margs að minnast.
Oddný var elst okkar
sjö systkina. Ævi okk-
ar er svo stutt, það er
eins og dagurinn í gær þegar hann
er liðinn. Já, eins og næturvaka.
Allt hefur sinn tíma og tíminn er
naumt skammtaður, við þurfum að
hafa það hugfast alla daga. Við
biðjum eftirlifendur að hugleiða
það. Hinn æðsti og dýpsti tilgang-
ur lífsins hlýtur að vera hafinn yfir
takmarkaðan skilning mannsins og
stundum er hann okkur ofvaxinn.
En okkur ber skylda að horfa á
mannlegt líf með visku og samúð.
Erfiðu stundirnar þegar margt
blæs í mót og gleðistundirnar sem
koma í kjölfarið, þannig þroskumst
við og leitum alltaf hins liðna til að
geta haldið áfram. Það eru þessar
eilífu spurningar um tilgang lífsins
sem leita á alla hugsandi menn.
Hver er hann? Við getum sagt að
tilgangur lífsins felist í að lifa líf-
inu og taka þátt í undrinu sem á
sér stað. En dýpsta uppspretta
lífsins er kærleikur og ást sem
þroskast á Guðs ríkis braut. Því er
nauðsynlegt að taka þátt í lífinu og
njóta hverrar stundar sem gefst. Í
aldagamalli bók á sanskrít er að
finna stef sem vert er að gefa
gaum:
„Gæt þessa dags því að hann er
lífið, lífið sjálft og í honum býr all-
ur veruleikinn og sannleikur til-
verunnar, unaður vaxtar og
gróskudýrð hinna skapandi verka,
ljómi máttarins. Því að gærdag-
urinn er draumur og morgundag-
urinn hugboð en þessi dagur í dag,
sé honum vel varið, umbreytir
hverjum gærdegi í verðmæta
minningu og hverjum morgundegi
í vonarbjarma. Gæt þú því vel
þessa dags.“
Oddný ræktaði garðinn sinn, því
það gaf henni hugljómun um feg-
urð og tilgang. Að þroskast með
huga og höndum er leiðin til að
geta gefið af sér til annarra. Það
leiðir af sér enn meiri þroska sem
dafnar vel. Þannig byggjum við
upp ferli vináttu og væntumþykju
þeirra sem við umgöngumst núna.
Þannig lifum við í huga þeirra sem
sakna. En við eigum ekki að bíða
ODDNÝ S.
AÐALSTEINSDÓTTIR
✝ Oddný SigríðurAðalsteinsdóttir
fæddist í Reykjavík
15. september 1942.
Hún lést á krabba-
meinsdeild Landspít-
alans við Hringbraut
29. apríl síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Grafarvogs-
kirkju 7. maí.
með það sem okkur
langar til að gera.
Tíminn er í raun svo
naumur. Oddný var
alltaf samviskusöm
við það sem hún tók
sér fyrir hendur og
var iðin að vefa þessa
fínu þræði í mynstur
tilgangs og ábyrgðar.
Það kom vel fram í
myndlistinni sem hún
málaði. Við megum
ekki gleyma því að við
getum fundið tilgang í
lífinu þótt við séum í
vonlausri aðstöðu
gagnvart örlögum okkar sem
verða ekki umflúin. Þá er besta
leiðin að geta snúið persónulegum
harmleik upp í sigur. Oddný sagði
sjálf að Guð legði ekki meiri byrð-
ar á einn mann en hann gæti bor-
ið. Því má segja að þjáningin hætt-
ir að vera þjáning um leið og hún
hefur tilgang. Að fá að halda reisn
þar til allt þrýtur er sigur. Þannig
hefur þjáningin tilgang þrátt fyrir
allt. Jafnvel þegar öll sund virðast
lokuð og ekki verður aftur snúið –
því skaparinnn leggur misþungar
byrðar á okkur mannfólkið, en
hinn æðsti og dýpsti tilgangur lífs-
ins hlýtur að vera hafinn yfir tak-
markaðan skilning mannsins sem
er í raun honum ofvaxinn þegar
erfiðleikar leita á. Þá þroskumst
við inná við. Þetta er í raun sálmur
um mannsins ævi og um viðveru
okkar hér á jörðinni. Tíminn á
milli nætur og dags heitir dag-
renning. Það var á þeirri stundu
sem Oddný gaf sitt síðasta and-
varp og fékk að sofna þrautum sín-
um frá, 29. apríl síðastliðinn. Við
biðjum Guð að blessa móður okkar
og vera henni nálægur, svo og
Dóra, börnum, tengdabörnum og
börnum þeirra, sem sakna sárt.
Við systkini Oddnýjar sem eftir
lifum þökkum fyrir samfylgdina og
alla samstöðuna sem hefur fylgt
okkur. Það er mikil gæfa og bless-
un. Jesús sagði: „Eftir dimma nótt
kemur bjartur dagur.“ Mennirnir
fæðast, alast upp eins og eilífa
smáblómið sem þroskast, tilbiður
Guð sinn og deyr. Þegar lífið þrýt-
ur eftir þung veikindi þá er stund-
in velkomin. Tími til að kveðja
þetta jarðneska líf og finna ljósið
þar sem sólkerfi himnanna hnýta
sinn krans. Þar sem himinninn og
vötnin renna saman í eitt. Elsku-
lega systir, megir þú finna hið
mikla ljós í hásölum himnanna.
Þess óska þínir elskandi bræður.
Halldór S. Aðalsteinsson,
Guðmundur Kr. Aðalsteinsson,
Aðalsteinn R. Aðalsteinsson.