Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 55
Námskeið í bogfimi verður haldið við Íþróttahús
ÍFR, Hátúni 14 og hefst fyrsta námskeiðið
mánudaginn 21. júní. Kennd verða undirstöðuatriði
í bogfimi. Hvert námskeið stendur yfir í fimm daga
frá kl. 10.00 til 14.00. Þátttakendur á námskeiðinu
þurfa að vera orðnir 12 ára.
Skráning fer fram í síma 561 8226.
Námskeiðstímabil:
1. námskeið 21. júní til 25. júní
2. námskeið 28. júní til 2. júlí
3. námskeið 5. júlí til 9. júlí
4. námskeið 12. júlí til 16. júlí
Íþróttafélag fatlaðra Reykjavík.
Bogfiminámskeið
SIGURPÁLL Geir Sveinsson lék á
71 höggi, einu yfir pari, á fyrsta
hringnum á atvinnumannamóti í
Jönköping í Svíþjóð í gær. Sigurpáll
lék fyrstu níu holurnar á aðeins 31
höggi en síðari níu á 40 höggum.
Hann heldur áfram keppni í dag.
HEIÐAR Davíð Bragason stóð sig
best af sex Íslendingum á opna
velska höggleiksmótinu sem hófst á
suðurströnd Wales í gær. Hann lék á
pari vallarins, 72 höggum. Guð-
mundur I. Einarsson lék á 77 högg-
um, Birgir Már Vigfússon og Stefán
Orri Ólafsson á 79 höggum, Björn
Þór Hilmarsson á 80 höggum og
Stefán Már Stefánsson á 84 höggum.
ÍTALIR verða án tveggja sterkra
leikmanna þegar þeir mæta Búlgör-
um í lokaumferð C-riðilsins á EM í
knattspyrnu á þriðjudaginn. Fabio
Cannavaro og Gennaro Gattuso
fengu báðir sitt annað gula spjald í
keppninni gegn Svíum í gærkvöld og
þurfa því að taka út leikbann.
BÚLGARIR verða með þrjá leik-
menn í banni í þeim leik. Stilian Pet-
rov fékk rauða spjaldið gegn Dönum
í gær og varnarmennirnir Rosen
Kirilov og Ivaylo Petkov fengu báðir
sitt annað gula spjald í keppninni.
TOBIAS Linderoth verður í banni
hjá Svíum vegna tveggja gulra
spjalda en Danir hafa ekki misst
neinn leikmann í bann.
THOMAS Brdaric, sóknarmaður
þýska landsliðsins í knattspyrnu,
samdi í gær við Wolfsburg til þriggja
ára. Hann lék með Hannover sem
lánsmaður frá Leverkusen í vetur og
skoraði 12 mörk, sem áttu drjúgan
þátt í að halda liðinu í deildinni.
FÓLK
Ítalir eru hins vegar ekki öruggirþótt þeir vinni Búlgari. Ef leikur
Dana og Svía endar 2:2, falla þeir úr
keppni, en endi hann 1:1 sleppa þeir
með því að vinna Búlgari. Að öðru
leyti verður um hreinan úrslitaleik
hjá Dönum og Svíum að ræða, liðið
sem tapar er úr leik ef Ítalir sigra
Búlgari.
Ítalir voru mun sterkari aðilinn í
fyrri hálfleik og það var allt annað
að sjá til þeirra en í markalausa
jafnteflinu gegn Dönum í fyrsta
leiknum. Leikstjórnandinn snjalli
Francesco Totti sat í áhorfendastúk-
unni, enda í þriggja leikja banni, en
Ítalir virtust ekki sakna hans. Þeir
náðu forystunni verðskuldað á 37.
mínútu þegar hinn 21 árs gamli Ant-
onio Cassano skoraði með skalla eft-
ir fyrirgjöf frá Christian Panucci.
Markið lá í loftinu því Ítalirnir sóttu
af krafti frá byrjun og fengu mörg
góð færi en Andreas Isaksson, ung-
ur markvörður Svía, varði nokkrum
sinnum mjög vel frá þeim.
En í síðari hálfleik voru það Svíar
sem náðu yfirhöndinni, enda drógu
Ítalir sig til baka í sína frægu varn-
arskel og ætluðu sér að halda fengn-
um hlut. Flest benti til þess að það
myndi takast þar til Zlatan Ibra-
himovic jafnaði fimm mínútum fyrir
leikslok með mjög sérstæðu marki.
Eftir mikinn hasar fyrir framan
ítalska markið stökk Zlatan upp og
sendi boltann með hælspyrnu í
háum boga yfir Christian Vieri sem
stóð á marklínunni og efst í mark-
hornið, 1:1.
Búlgarar verða ekki
auðveldir andstæðingar
„Mínir menn gáfu allt sitt í leik-
inn, spiluðu vel og sköpuðu sér mörg
marktækifæri, en markvörðurinn
þeirra lék frábærlega. Við þreytt-
umst í síðari hálfleiknum og þá fóru
Svíar að sækja upp kantana. Mér
fannst að brotið hefði verið á Zam-
brotta áður en þeir skoruðu jöfn-
unarmarkið. Ef við spilum svona
gegn Búlgörum, eigum við alla
möguleika í þeim leik, en þeir verða
þó alls ekki auðveldir andstæðing-
ar,“ sagði Giovanni Trapattoni,
þjálfari Ítala. Hann var sérlega
ánægður með markaskorarann sinn,
Antonio Cassano. „Hann skoraði
glæsilegt mark og hefði verðskuldað
annað. Hann er ungur og á enn eftir
að bæta sig mikið,“ sagði Trapatt-
oni.
Zlatan verðskuldaði markið
Henrik Larsson, sem aldrei náði
sér á strik í sænsku framlínunni,
sagði að Svíar væru mjög ánægðir
með jafnteflið. „Zlatan skoraði
snilldarlegt mark, og verðskuldaði
það fyllilega. Ítalska liðið er mjög
hæfileikaríkt en okkur tókst að setja
það undir pressu í síðari hálfleiknum
og náðum að knýja fram jafntefli,“
sagði Larsson.
„Það var eins og ég væri kominn í
annan heim þegar ég sá boltann í
markinu. Eftir slakan fyrri hálfleik
náðum við okkur á strik í þeim síð-
ari, vorum yfirvegaðri í leik okkar.
Við fengum mörg færi til að jafna og
náðum loks að nýta eitt þeirra,“
sagði Zlatan Ibrahimovic.
Ótrúlegt mark en hann
hafði heppnina með sér
„Það er sárt að fá á sig mark
svona seint í leiknum, þegar of
skammur tími er eftir til að svara
fyrir sig. Þetta minnti á síðustu
heimsmeistarakeppni þegar við urð-
um fyrir því sama. Markið var ótrú-
legt, glæsilega gert, en um leið hafði
hann heppnina með sér. Við hefðum
átt að vera búnir að gera út um leik-
inn áður en að þessu kom, en við
eyddum mikilli orku gegn mjög
sterku sænsku liði og vorum orðnir
þreyttir undir lok leiksins,“ sagði Gi-
anluigi Buffon sem varði mark Ítala
oft frábærlega í síðari hálfleiknum.
Reuters
Zlatan Ibrahimovic stekkur upp og sendir boltann í mark Ítala með hælnum. Magnað mark hjá
sænska sóknarmanninum og Svíar fengu dýrmætt stig.
Ótrúlegt mark Zlatans
og staða Svía góð
SVÍUM nægir jafntefli gegn Dönum í lokaumferð C-riðils Evr-
ópumótsins í knattspyrnu, eftir jafntefli gegn Ítölum, 1:1, í Porto í
gærkvöld – til að komast í 8 liða úrslit keppninnar. Þar sem inn-
byrðis viðureignir ráða úrslitum ef lið eru jöfn að stigum, eru Svíar,
Danir og Ítalir með áþekka stöðu eftir tvær umferðir. Endi liðin þrjú
öll með fimm stig, eins og niðurstaðan verður ef Norðurlandaliðin
skilja jöfn og Ítalir sigra Búlgari, eru Svíar öruggir áfram því þeir
verða alltaf fyrir ofan annaðhvort Dani eða Ítali á skoruðum mörk-
um. Danir þola ekki 0:0 eða 1:1 jafntefli ef Ítalir vinna sinn leik.
GIOVANNI Trapattoni, þjálf-
ari Ítala, treystir því að Svíar
og Danir leiki heiðarlega á
þriðjudag og sættist ekki á
2:2 jafntefli, komi sú staða
upp í leiknum. Þau úrslit
myndu senda ítalska liðið
heim frá EM í Portúgal, sama
hvernig leikur þess gegn
Búlgaríu færi sama kvöld.
„Ég velti ekki vöngum yfir
öðru en fótboltanum sjálfum.
Við þurfum að vinna okkar
leik, einbeita okkur að því,
og treysta því að aðrir mæti
til leiks með sama hug-
arfari,“ sagði Trapattoni eftir
leikinn gegn Svíum í gær-
kvöld.
Treystir á
heiðar-
leika Dana
og Svía
FYLKISMENN fóru til Belgíu í gær
en þeir mæta þar Gent í fyrstu um-
ferð Intertoto-keppninnar í knatt-
spyrnu á morgun. Árbæingarnir
fóru með sitt sterkasta lið utan, að
því undanskildu að Þorbjörn Atli
Sveinsson varð eftir heima en hann
er meiddur í nára. Þeir komu til
Gent seint í gærkvöld en sex tíma
seinkun varð á flugi, sem leiddi til
þess að þeir gátu ekki æft í gær.
„Það er spurning hvort Björg-
ólfur Takefusa getur verið með, en
vonandi getur hann tekið einhvern
þátt í leiknum. Annars förum við í
þennan leik til þess að bæta spila-
mennsku okkar. Við ætlum að spila
eins og við höfum gert heima, taka
á móti Belgunum nokkuð fram-
arlega á vellinum, og höfum ekki
velt okkur mikið upp úr því hvernig
þeir leika,“ sagði Þorlákur Árna-
son, þjálfari Fylkis, við Morg-
unblaðið í gærkvöld.
Gent hafnaði í níunda sæti belg-
ísku 1. deildarinnar á nýliðnu tíma-
bili. Leikmenn liðsins komu saman
eftir sumarfrí á miðvikudag og
hafa því aðeins æft undir stjórn nýs
þjálfara, Georges Leekens, í fjóra
daga fyrir leikinn gegn Fylki.
Í 18 manna hópi sem Leekens
hefur tilkynnt fyrir leikinn eru að-
eins þrír leikmenn sem léku meira
en helming leikja Gent á síðasta
tímabili.
Fylkir nánast með sterk-
asta liðið gegn Gent