Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 57

Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 57
sig breiðan, þessi stóri útblásni fisk- ur í litla búrinu. „Ég var sjálfur með svona kennara í menntaskóla. Ég trúi því að Dorr sé menntamaður af guðs náð. En hann stendur bara ekki alveg undir því. Þannig ákvað ég að túlka hann og má vel vera að útkoman sé svolítið trúðs- leg, en það er bara vegna þess að í mínum augum eru slíkir náunga í raun og veru hálfgerðir trúðar. “ Tom Hanks segist hafa samþykkt um leið að leika í myndinni, fyrst og fremst vegna Coen-bræðra, sem hann segist lengi hafa langað til að vinna með. „Ég hafði ekki séð myndina, má vera að ég hafi séð hana sem barn, man það bara ekki svo glöggt. Það var því fyrst og síðast vegna bræðr- anna sem ég tók að mér verkið. Ég er mikill unnandi Fargo, sem ég tel hreint út sagt vera eina af bestu myndum sem gerð hefur verið síð- ustu 30 árin. Ég get og hef horft á hana aftur og aftur. Þá féll ég um leið fyrir Raising Arizona þegar ég sá hana á sínum tíma. Í henni var líka svo margt sem ég hafði ekki séð áður í bíómynd, einhver alveg ný tegund af klikkuðum húmor sem hitti mig beint í hláturtaugarnar. En allar myndir þeirra í gegnum tíðina hafa verið þess virði að borga sig inn á þær. Stundum hafa þeir ruglað mig laglega í ríminu og á vissum tíma- punkti í Barton Finkt t.d. hafði ég ekki hugmynd um hvað var að ger- ast. En það er bara skemmtilegra, þessi alltof sjaldgæfi óútreiknanleiki í bandarískum bíómyndum. Þeir kunna þá list að koma manni í opna skjöldu en eru samt alltaf mjög skyn- samir kvikmyndagerðarmenn með skýra hugsun. Og annað sem mér lík- ar við þá sem kvikmyndagerðarmenn er að þeir hafa sloppið við það að þurfa að gera málamiðlanir. Þeir geta búið til bíómyndir eftir sínu höfði, sem viti borið fólk sækist eftir að sjá. Ég vil að sjálfsögðu vinna með þannig kvikmyndagerðarmönnum.“ Sælir eru skrumskælarar Hanks segir vinnulagið á tökustað hjá Coen-bræðrum með eindæmum afslappað og óhefðbundið. Þeir bræð- ur sé alls engir harðstjórar og hafi einstakt lag á að gera öllum kleift að njóta sín. Það skili sér alltaf marg- falt. „En um leið mæta þeir gríð- arlega vel undirbúnir í tökur, vita ná- kvæmlega hvað þeir vilja frá hverjum og einum. Og maður veit einhvern veginn fyrir víst að þeir munu sjá til þess að maður eigi eftir gera eins vel og maður mögulega hef- ur hæfileika til. En samt senda þeir mann heim klukkan þrjú um daginn og þakka fyrir vel unnið dagsverk. Og maður stendur bara eftir og spyr gáttaður: Bara búinn í dag?“ En voru þeir Coen-bræður ekkert smeykir við að kássast uppá svona sí- gilda kvikmynd? „Smeykir? Nei. Við höfum mikið dálæti á myndinni. Sagan er mjög sniðug og höfðar til okkar,“ svarar Joel varfærnislega. „En við litum aldrei svo á að við værum að end- urgera mynd, heldur miklu fremur að fá að láni hugmynd og gera hana að okkar.“ Reyndar eiga þær bræður að hafa sagt eitt sinn við blaðamann að það höfði á einhvern pervertískan hátt mjög sterkt til þeirra að skrumskæla viðurkennt listaverk, en þegar Morg- unblaðsmaðurinn minnir Joel á þessi orð, eignar hann þau Ethan, sem var þá fjarverandi, staddur heima hjá sér í Bandaríkjunum, að ná sér eftir lungnabólgu. Það er Hanks sem bjargar Joel úr klípunni, eins og sannur prófessor Dorr. „Ég hef aldrei séð það þannig að menn séu að spilla gömlum listaverk- um með því að taka þau upp á sína arma og endurskapa þau. Fremur finnst mér það vera virðingarvottur, rétt eins og þegar menn eru að setja aftur og aftur upp nýjar uppfærslur af sígildum leikritum. Við Kanar er- um alltaf að spreyta okkur t.a.m. á Shakesperare, gera nýjar og nýjar útgáfur af Hamlet og Ríkharði þriðja. Hér er verið að færa dásam- lega svarthvíta Ealing-gamanmynd í nýjan og breyttan búning, sem er ekkert annað en óður til gömlu frum- gerðarinnar. Ekki sammála?“ Og blaðamaður getur ekki annað en jánkað eftir að hafa hlýtt á svo sann- færandi málflutning. Hanks hafði enda unnið blaðamann gjörsamlega á sitt band, heillað hann upp úr skón- um með hæverskri framkomu sinni, sterkri nærveru og skemmtilegum tilsvörum. Hanks segist líka hafa forðast það eftir fremsta megni að horfa á gömlu útgáfuna á meðan tökum stóð: „Ég vogaði mér ekki að lenda í þeim hjólförum að reyna að apa upp eftir snillingnum Sir Alec Guinness. Það hefði verið fífldirfska sem meira að segja prófessor Dorr hefði haft vit á að forðast.“ Besta og öruggasta leiðin til að komast loksins á kvikmyndahátíðina í Cannes er að leika í mynd eftir Coen-bræður. Það veit Tom Hanks. FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 57  Joel verður fimmtugur í ár. Ethan vantar þrjú ár uppá.  Joel og Frances McDorm- and hafa verið gift í 20 ár. Hún hefur leikið í 4 af myndum hans, m.a. aðal- hlutverkin í Blood Simple og Fargo.  Ethan er með háskólagráðu frá Princeton-háskólanum.  Joel brá fyrir í hlutverki ör- yggisvarðar í gamanmynd- inni Spies Like Us frá 1985.  The Ladykillers er fyrsta myndin þar þeir bræður eru báðir skrifaðir fyrir leik- stjórninni. Ethan hefur hingað til verið skráður handritshöfundur og fram- leiðandi, þótt það sé alkunna að þeir leikstýri, skrifi og framleiði allar sínar myndir í náinni samvinnu.  Bræðurnir eru stundum kallaðir „Tvíhöfði“ í Holly- wood.  Bræðurnir hafa haft fullt yf- irráð yfir lokaútgáfu mynda sinna allt frá fyrstu mynd- inni Blood Simple.  Þegar bræðurnir klippa myndir sína sjálfir nota þeir gjarnan dulnefnið sameig- inlega „Roderick Jaynes“.  Bræðurnir nota gjarnan sömu nöfnin yfir persónur í myndum sínum; Marva Munson, sú gamla í The Ladykillers, kom einnig við sögu í Intolerable Cruelty, en þá var það dómari sem bar nafnið.  Fáum kvikmyndgerð- armönnum hefur verið boðið eins oft á Cannes-kvik- myndahátíðina enda þeir bræður í miklu uppáhaldi hjá Frökkum. Sex af mynd- um þeirra ellefu hafa verið sýndar þar í opinberri dag- skrá. Þegar Roman Pol- anski dómnefndarformaður tók þá umdeildu ákvörðun að hlaða þá Gullpálmum fyr- ir Barton Fink árið 1991, var reglum breytt og upp frá því hefur sama myndin ekki getað unnið í fleiri en einum flokki.  Barry Sonnenfeld kvik- myndatökumaður og leik- stjóri mynda á borð við Adams Family og Men in Black er einn af framleið- endum The Ladykillers.  Tónlistin spilar sem endra nær stóra rullu í nýju myndinni. Enn og aftur er hún í höndum Carter Burn- well og T. Bone Burnett (Oh Brother Where Art Thou?) sem samið hefur og útsett dásamlega gospeltóna sem harmónera fullkomlega við suðurríkjastemmninguna í The Ladykillers.  Stjarna The Ladykiller er án tvímæla hin sjötuga Irma P. Hall, sem leikur ekkjuna Mörvu Munson. Henni voru veitt sérstök dómnefnd- arverðlaun í Cannes og er nú þegar farið að orða hana sterklega við Óskarinn.  Bræðurnir framleiddu myndina Bad Santa með Billy Bob Thornton, sem sló óvænt í gegn í Bandaríkj- unum fyrir skömmu. Næst framleiða þeir mynd eftir leikarann John Turturro.  Næsta verk bræðranna er að leikstýra einni af alls tuttugu 5 mínútna myndum sem gefnar verða út á næsta ári undir nafninu Paris, je t’aime. Eins og nafnið gefur til kynna munu allar fjalla á einn eða annan hátt um Par- ís, sem borg ástarinnar.  Til stóð á tímabili að þeir bræður myndu gera nýja kvikmynd um hina forn- frægu bandarísku Bakka- bræður The Three Stooges. Nú lítur þó út fyrir að aðrir bræður vinni verkið, Far- elly-bræður. Coen-molar Morgunblaðið/Halldór Kolbeins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.