Íslendingaþættir Tímans - 31.03.1971, Blaðsíða 13

Íslendingaþættir Tímans - 31.03.1971, Blaðsíða 13
menn koma, fylla skörðin, sækja fram eða sækja ekki. Örðugleikax dreifbýlis ýta istundum undir væru girnl og kyrrstöðuhmeigð. t>eir sem haldnir eru þeirri áráttu, að ala sífellt á umbótum og breytingum, mega löngum sæta því hlutslkipti, að orð þeirra fjúkl út í veður og vind. En frumkvæðin fá sinn dóm, þegar framtíðinni þóknast að nýta þau — en þakkarskuTdir falia. Halldóra Gunnlaugsdóttir fædd- ist að Hafursstöðum í Öxarfirði 11. okt. 1893. Móðir hennar var Jakob- ína Rakel Sigurjónsdóttir Magnús- sonar á Ærlæk og móðuramma Halldóra Jónsdóttir Nikulásson- ar Bucks hins norska. Faðir Hall- dóru, Gunnlaugur, var sonur Flóvents Þórðarsonar, svarfdælsk- ur að ætt. Bjó Flóvent á Hafurs- stöðum en áður á Svínadal og víð- ar. Kona Flóvents var Helga Guð- mundsdóttir frá Vatnshlíð í Húna- vatnssýslu. Gunnlaugur bjó á Haf- ursstöðum eftir föður sinn og þang að fluttist Jakobína til bús með honum. Hafði Flóvent skjól hjá þeim til æviloka. Jakobína hafði lifað stormasama bernsku og æsku, en yfirunnið allar raunir. Gunnlaugur var einnig vel undir lífið búinn og allvel efnaður. Haf- ursstaðir voru heiðarbýli um 11 km. frá byggð. Afskekkt og ein- angrað mundi það vera kallað nú á dögum, enda nú komið í eyði, eftir að upp höfðu verið byggð þar tvö reisuleg býli og miklar fram- kvæmdir unnair. Á uppvaxtarárum Halldóru og bræðra hennar var þetta býli fjöl- skrúðugur, auðugur og unaðsríkur staður skoðað niður í kjölinn. For- eldrarnir voru atorkusöm. Þau höfðu komið ár sinni þannig fyrir borð, að ekki þekktist vöntun eða skortur á neinu sviði. í samskipt- um við harðbýla en gjöfula nátt- úru, höfðu þau skapað sér alls- nægtir á þeirra tíma mælikvarða, stofnað lítið farsælt ríki í dáfögru umhverfi landslags, (furður Jökuls árgljúfra) gróðurs og dýralífs. í þessu fjölbreytta, fagra umhverfi uxu úr grasi Hafursstaðasystkinin fimm, fjórir bræður og ein systir í skjóli vökulla foreldra. Harla ó- lík uppeldisskilyrði sefjandi vól- gengi nútíma þéttbýlis. Systkinin á Hafursstöðum voru vanin á vinnusemi. Þeim voru inn- prentuð lífssannindi um jákvæð viðskipti við Iifandi náttúru til gagnkvæmrar hamingj-u. En það var vel að þeim búið og öll urðu þau hraust og tápmikil. Með móður mjólkinni námu þau þá lífsspeki, að hver er sinnar gæfu smiður. Heimilið var fast mótað, tengt um- hverfinu órjúfandi böndum, fjöl- skyldan atorkusöm, hrifnæm og listelsk. Það orð komst á, að þar væri margt að sjá, sem kóngs væri ekki I ranni. Og fjölskyldan á Haf- ursstöðum færði brátt út kvíarnar á hinu verklega sviði. Eldri systkin- in þrjú Guðmundur, Helgi og Hall- dóra settu saman sérstakt bú, þeg- ar unglingsskeiði lauk. Landrými var nóg og landgæði. Búskapurinn blómgaðist og fjárhagur efldist. SamhTiða þeim vexti var stofnað ti menntunar og andlegs þroska. Frá þessu afskekkta býTi sótti æskan til náms og menningar innan lands og utan. Tvö systkioanna Guð- mundur og Halldóra öfluðu sér kennaramenntunar, Theodór fór gegnum Samvinnuskólann, Helgi fórnaði listagyðjunni sínum tóm- stundum en Sigurjón lagði metnað slnn í búskapinn. Á Hafursstöðum hafði jafnan verið risna góð. Nutu menn þess einkum haust og vor í sambandi við fjárleitir. Fleiri erindi áttu menn og þangað suður. Við upp- komu nýrrar kynslóðar, óx umferð þar að mun. Hafurstaðir urðu eins konar óskaland Öxfirðinga og Keld 'iverfinga. Þótti sá varTa maður méð mönnum, sem ekki hafði þangað komið. Mikið orð fór af móttök- um þar, rausnarlegum veitingum og alúðlegu viðmóti. öll var fjöl- skyldan samvalin í þessu sem öðru, en ekki var minnstur hlutur heima sætunnar, enda hafði hún víða far- ið og imangt séð. Og það voru fleiri tíbúar nágrannasveita, sem áttu ] : um JTafiuj§taði á þessum to* , FerðalaKgú| ýmíssa erlnaa | þgr og dvoMu yfir sumartím-1 atin, ox umferð sá með ári hverju. j %un fyrlrgreiðsla á Hafursstöðum [ ímfa ýtt undir þá þróun svo um munaði, HaTldóra var á þessum árum heima sumar hvert. Á vetrum oft- ast að heiman, ýmist við nám, störf eða kennslu. Hún var fyrst einn vetur á unglingaskóla Benedikts Björnssonar á Húsavík. Næstu vet- ur starfaði hún á hóteli á Afcur- eyri. Úr því fór hún í kenuara- skólann og lauk kennaraprófi. Næstu vetur kenndi hún börnum og unglingum 1 sinni sveit, ná- grannasveitum og víðar. Varð bún brátt eftiirsótt sem kennari og fé- lagl nemenda. Að félagsmálum vann hún mikið á þessum árum. Einn vetur dvaldi hún í Kaup- mannahöfn við hússtjórnarnám og fleira. Þannig var Halldóra á far- alsfæti um alllangt árabil, lét sér ekki brátt með að hasla sér völl. Þótti sumu ráðsettu fólki nóg um þann drátt. En þetta varð hemni dýrmætur tími til þroska og und- irbúnings fyrir lífsstarfið. Árið 1925 giftist Halldóra Gunn- laugsdóttir Jóni Sigfússyni bónda á Ærlæk í Öxarfirði og fluttist þang að. Á Ærlæk bjó ekkjan Oddný Jóhannesdóttir ágætu búi með son um sínum tveim, Einari og Jóni vel fulTorðnum. Ærlækur var vildis- jörð, miðsveitis, heimilið þjóðlegt og fastmótað í gömlum og góðum stíl. Fljótlega skiptu þeir bræður búi. Oddný var með Einari syni sínum, en Halldóra og Jón fengu sérstaka íbúð. Stórt verksvið beið þeirra, mikið starf var hafið og unnið. Breytimgar og umbætur ráku hver aðra, þó með allri for- sjá og gát. Hjónin reyndust sam- valin. Jón var atorkusamur bóndi og veT viti borinn, þéttur á velli og þéttur í lund, sjálfmenntaður og menntur vel. Hann var áhugasam- ur uim almenn mál, enda einn af forystumömnum sinnar sveitar og héraðs um lífstíð. Var á því sviði einnig líkt á komið með þeim hjónum. Ég hef veður af því, að minnst verði félagsmálastarfsemi Halldóru á öðrum vettvangi. Læt ég þvl hjá líða að víkja að þeim merka þætti í lífsstarfi hennar. Það lætur að líkum, að hjón þessi þurftu á vinnuhjálp að halda ÍSLENDINGAÞÆTTIR 13

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.