Íslendingaþættir Tímans - 31.03.1971, Qupperneq 29
SJÖTUGUR:
EYÞÓR
TJpphaf sjöunda kapitula Land-
námu er á þessa leið: „Eiríkur hét
maður ágætur. Hann fór af Noregi
til íslands. Eiríkur nam land frá
Gilá um Goðdali alla og ofan til
Norðurár".
Annar landnámsmaður, Kráku-
Hreiðar, kom í Skagafjörð og
sigldi upp á Borgarsand til brots,
þar sem Þór hafði vísað honum
til landa. Hreiðar vildi berjast við
Sæmund suðureyska, en Hávarður
Hegri vísaði honum á fund Eiríks
í Goðdölum með þeim ummælum,
að hann væri „vitrasti maður í hér-
aði þessu“. „En er hann fann Ei-
rík, latti hann þessa ófriðar og
kvað það óheyrt, að menn deildu,
meðan svo væri mannfátt á landi,
kveðst heldur vilja gefa honum
tunguna alla niður frá Skálamýri“.
Þetta boð þáði Hreiðar og bjó á
Steinsstöðum.
Ekki þarf lengi að leita til þess
að sjá hvers vegna Eiríkur í Goð-
dölum var sagður maður ágætur
og vitrastur í héraðinu. Þó heið-
inn væri, vildi hann að farið væri
með friði og sýndi það í verki,
með því að gefa af því landi, sem
hann hafði numið, bæði Kráku-
Heiðari og Hrosskeli á írafelli.
Þá sendi hann þræl sinn Rönguð
suður á fjöll í landaleit og gaf
honum frelsi fyrir.
Guðrún Bjarnadóttir bónda í
Teigaseli og Blöndugerði Stefáns-
sonar bónda á Egilsstöðum í Vopna
firði faéddri í Dölum í Hjaltastaða-
þinghá 1763, Þorsteinssonar. Læt
ég hér staðar numið ættartölum
Þó af nógu sé að taka í því efni.
En þetta eru alkunnar bænda ætt-
ir. komnar út af hákarla-Bjarna,
sem ættir Austfirðinga hefjast á.
STEFÁNSSON,
TÓNSKÁLD
Sagan tengir menn saman þó
aldir renni, og nú vil ég leyfa mér
að draga línu milli þeirra Eiríks
í Goðdölum og Eyþórs Stefánsson-
ar og tel þar jafnræði nokkurt.
Fyrst er það, að skapadómur
leiddi þá til sætis í sama héraði
og báðir eru þeir ágætir menn og
vitrir. Eyþór er ágætur fyrir
marga hluti, svo sem tónlist, leik-
list og einnig er hann listaskrifari.
Eyþór Stefánsson „kom út til
Skagafjarðar“ í dögun þessarar
aldar, 23. janúar 1901. Ekki lenti
hann í brotsjóum, eins og Hreiðar
forðum, sem silgdi til brots á Borg
arsandi. Það var mjúk lending í
Króknum norðan við Sauðá. Það
var vel tekið á móti honum og þar
ólst hann upp í lágum bæ fyrir
ofan kirkjuna. Alla tíð síðan hefur
Eyþór verið lukkunnar pamfíll og
gæfuriddari Skagfirðinga.
Ekki vissi ég fyrr en nú nýlega,
að Eyþór heitir tveimur nöfnum
eða Kristján Eyþór. Til þess er sú
saga, að Guðrúnu móður hans lang
aði til að láta hann heita Eyþór
eftir Þóreyju móður sinni, en bar
ugg í brjósti út af nafninu, vegna
þess að þau hjón höfðu áður átt
tvo drengi, sem dóu á barnsaldri
og hétu báðir Eyþór. En þá gerðist
það, að Guðrúnu dreymdi mann
nokkurn, sem hún þekkti ekki, og
Afkomendur Árna og Guðnýj-
ar eru nú orðnir æðimargir. Sem
dæmi um það eru afkomendur
Guðríður elzta dóttur þeirra, fædd
1894 nú 71 á lífi.
Guð blessi minningu ísaks Árna
sonar og ættmenna bans með þökk
fyrir allt.
Hrólfur Kristbjörnsson.
sagði hann, að óhætt væri að láta
drenginn heita Eyþór, það mundi
vel lánast, en það spillti ekki, þó
hún léti hann heita Kristján líka.
Þennan draum dreymdi Guðrúnu
oftar en einu sinni.
Foreldrar Eyþórs voru Guðrún
Jónasdóttir og Stefán Sigurðsson.
Stefán var í beinan karllegg kom-
inn af Sigurði Þorsteinssyni á
Daufá, sem úti varð á Kili með
Staðarbræðrum, en kona Sigurðar
á Daufá var Guðfinna, dóttir
Iljálms lögréttumanns á Keldu-
landi. Móðir Stefáns og amma Ey-
þórs var María, dóttir Bjarna Jóns
sonar á Sjávarborg (Borgar-
Bjarna), sem var kunnur fyrir
sönglist og skytta góð eins og fað-
ir hans, Jón Bjarnason í Álftagerði.
Bróðir Borgar-Bjarna var Jónas
hreppstjóri á Syðsta-Vatni í Lýt-
ingsstaðahreppi, sem talið var að
vissi lengra en nef hans náði og
gæti sýnt þjófa i vatni. Þeir bræð-
ur voru komnir af Sigurði sýslu-
manni á Víðimýri í beinan karl-
legg, en Sigurður var sonur Hrólfs
sterka á Álfgeirsvöllum. Kona
Borgar-Bjarna var Guðrún Þor-
steinsdóttir hreppstjóra á Reykja-
völlum, sem var bróðir Sveins
læknis Pálssonar, en þeir bræður
voru komnir af Goðdalaprestum á
18. öld. Ekki er það ólíklegt að
ættir Goðdalapresta og Hrólfs
sterka, sem koma víða sama, séu
frá Eiríki í Goðdölum þó ekki
verði rakið, en Eiríkur átti fjóra
syni og tvær dætur.
Þau Stefán og Guðrún, foreldr-
ar Eyþórs, voru systkinabörn, því
Jónas, faðir hennar, var sonur
Borgar-Bjarna en móðir Guðrúnar
var Þórey Sigurðardóttir bónda á
Geirmundarhóli í Sléttuhlíð.
Margir afkomendur Borgar-
Bjarna hafa verið söngfólk gott,
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
29