Morgunblaðið - 29.07.2004, Side 16
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
Ný heilsuræktarstöð? | Áformað er að
opna í haust fullkomna heilsuræktarstöð á
Sauðárkróki, í fyrrverandi húsnæði prent-
smiðjunnar Myndprents, en þar hafa síðan
verið til húsa Hreyfing og Geymslan. Fljót-
lega verður hafist handa við að breyta hús-
inu, en þar er gert ráð fyrir að verði starf-
andi bæði íþróttaþjálfarar og sjúkraþjálfari.
Nýr vefur þar semLystigarðurinn áAkureyri er í að-
alhlutverki hefur verið
opnaður. Þar má finna
allt um sögu garðsins,
fróðleiksmola um ræktun
og hirðingu garðplantna,
eitt og annað um starf-
semi garðsins og þar eru
tenglar á aðra vefi um
garðyrkju. Á vefnum er
veglegur gagnagrunnur
um flestar þær tegundir
sem vert er að rækta sem
garðplöntur hér á landi
og er þar að finna fróð-
leik um yfir 2000 teg-
undir, tegundarafbrigði
og yrkjum. Fleiri teg-
undum verður bætt við á
næstu árum sem og fleiri
myndum. Slóðin að vefn-
um er www. lystigarðu-
r.akureyri.is.
Lystigarðurinn
Leikskólinn Óskaland hefur flutt starfsemi sína íFinnmörk og verður starfsemin komin í fullangang eftir sumarleyfi. Til að byrja með verður
gert ráð fyrir 42 börnum í skólanum, og verður biðlist-
um eftir leikskólaplássi í bænum eytt fyrir börn eldri
en tveggja ára.
Á myndinni tekur Herdís Þórðardóttir, formaður
bæjarráðs, við lyklum úr hendi Kristjáns Arinbjarn-
arsonar frá ÍAV.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Óskalandið flytur
Kolbeinn Kjart-ansson á Hraun-koti í Aðaldal brá
sér frá og fékk mág sinn,
Kristján Kristjánsson
blaðamann á Morg-
unblaðinu, til að sinna
búinu á meðan. Þegar
Kolbeinn kom aftur
fannst Kristjáni miður að
þurfa frá að hverfa. Orti
þá Kjartan Björnsson,
faðir Kolbeins:
Klökkur mjög er Kristján
minn,
kann víst best við svaðið,
mjólkar nú í síðasta sinn,
svo fer hann á blaðið.
Í leikhúsinu á Akureyri er
gaman að skoða búninga-
geymsluna, sem er full af
flíkum og skótaui. Á einni
hillunni stendur:
Hagræðing í huga bjó,
henni má ei spilla,
til að geyma gamla skó
gagnast þessi hilla.
Klökkur Kristján
pebl@mbl.is
Strandir | Æskustöðvarnar á
Gjögri á Ströndum heilla Garðar
Jónsson til sín úr borg-
arglaumnum snemma á vorin.
Héðan rær hann til fiskjar á báti
sínum Höfrungi og að hætti
góðra útvegsbænda verkar hann
sjálfur aflann. Hér er hann að
sólþurrka saltfisk og ærir með
því bragðlauka ferðamanna sem
komnir eru til að dást að þessari
litlu en vinalegu verstöð.
Sólþurrkaður saltfiskur er
mikið sælgæti. Það þarf að snúa
fiskinum í sólinni á klukkustund-
ar fresti, segir Garðar, sem
þekkir alla leyndardóma góðrar
saltfiskverkunar. Einu sinni var
sagt að lífið væri saltfiskur. Það
sýnist ekki fjarri hvað varðar
Garðar, sem nýtur þessa lífs í
botn. Þegar haustar að á Gjögri
heldur hann suður og kveður
æskustöðvarnar með trega.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Lífið er ennþá saltfiskur
Verstöð
UMFERÐARMÁL voru til umræðu á
síðasta fundi Tækni- og umhverfisnefnd-
ar Siglufjarðar, m.a. var fjallað um til-
lögu um hámarkshraða innanbæjar á
Siglufirði, þar sem gert er ráð fyrir að
hann verði 40 kílómetrar á klukkustund,
en í dag er hann 35 km/klst.
Menn eru ekki á eitt sáttir um svo
lágan hámarkshraða, enda einhver
brögð að því að ökumenn séu sektaðir
sem aka á tæplega 50 km/klst hraða. Í
greinargerð bæjarstjórnar segir að á
síðastliðnum árum hafi götur í bænum
mikið verið lagfærðar og farartæki orðið
öruggari auk þess sem aukin tækni geri
að verkum að auðveldara sé að fylgjast
með því að hámarkshraði sé virtur. „Auk
þess er víðast hvar 50 km/klst hámarks-
hraði í þéttbýli sem virðist valda mis-
skilningi hjá mörgum, sérstaklega gest-
um og ferðafólki sem hingað koma,“
segir í greinargerðinni.
Tækni- og umhverfisnefnd bendir hins
vegar á að víða í þéttbýli sé hámarks-
hraði 30 kílómetrar í íbúðarhverfum en
50 á stofnbrautum. Bendir nefndin á að
flestallar götur á Siglufirði flokkist sem
götur í íbúðarhverfi og leggst því alfarið
gegn því að hámarkshraði verði hækk-
aður.
Runólfur Birgisson, bæjarstjóri Siglu-
fjarðar, segir að tekin verði endanleg
ákvörðun um hámarkshraðann í næstu
viku, en telur líklegt að hann haldist
áfram óbreyttur, 35 km/klst.
Deilt um
hámarks-
hraða
GÁMAÞJÓNUSTA Vestfjarða mun ann-
ast sorphirðu frá heimilum og gámasvæð-
um í Vesturbyggð og Tálknafjarðar-
hreppi, en samningar þar að lútandi voru
undirritaðir á dögunum. Gámaþjónustan
mun einnig sjá um sorpeyðingu.
Allt brennanlegt sorp verður flutt til
Ísafjarðar þar sem það verður brennt í
sorporkustöðinni Funa. Orkan sem verð-
ur til er svo notuð til að framleiða heitt
vatn til húshitunar. Það sorp sem ekki er
hægt að brenna verður urðað í Vatneyr-
arhlíðum.
Þegar þetta fyrirkomulag verður komið
í gagnið verða sveitarfélögin meðal þeirra
fremstu á landinu þegar kemur að end-
urnýtingarhlutfalli sorps, og munu þau
uppfylla ströngustu fyrirsjáanlegar kröf-
ur um endurnýtingu.
Samningar
um sorphirðu
♦♦♦
Hraðahindrun á sumrin | Tækni- og um-
hverfisnefnd Siglufjarðarbæjar hefur sam-
þykkt að fela tæknideild bæjarins að gera
tilraun með gerð hraðahindrana á Hóla-
vegi. Hraðahindranirnar eiga að verða með
þrengingum á götunni sem hægt verði að
fjarlægja á einfaldan hátt á vetrum, segir í
bókun frá fundi nefndarinnar.
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Ánægja með Vegagerðina | Hlutfall
vegfarenda sem eru jákvæðir gagnvart
Vegagerðinni hefur hækkað talsvert á
milli árana 2002 og 2003, en þeim fer
fjölgandi sem telja merkingar ófullnægj-
andi. Þetta kemur fram í ársskýrslu Vega-
gerðarinnar í árangursstjórnun 2003. Þeg-
ar bornar eru saman kannanir á
viðhorfum gagnvart Vegagerðinni sést að
hlutfall þeirra sem eru jákvæðir gagnvart
henni voru 67% aðspurðra árið 2002, en
72% ári síðar.
Árið 2002 töldu 32% aðspurðra að
merkingar á vegunum væru ófullnægj-
andi, en það hlutfall hafði hækkað í 34%
árið 2003. Heldur færri töldu vegi á Ís-
landi slæma, árið 2002 töldu 24% þá
slæma, en 22% árið 2003.
Setja heitan pott | Unnið er að því um
þessar mundir að koma fyrir heitum potti
við íþróttahúsið í Bíldudal, og jafnvel talið
að við bætist vaðlaug fyrir yngri krakka.
Áætlað var að koma upp tveimur pottum en
verið getur að vaðlaug verði sett í stað þess
síðari.
Þetta kemur fram á vef Arnfirðinga-
félagsins. Einnig verður komið upp leik-
tækjum fyrir börnin, og er reiknað með að
þau verði á milli íþróttahússins og körfu-
boltavallarins.
Lokið er vinnu við að steypasökkul og kjallara í fyrstuleiguíbúðablokkunum af
fjórum á Reyðarfirði. Reiknað er
með að fyrsta blokkin verði tilbúin
eftir tæplega ár, en alls verða íbúð-
irnar fjórar talsins. Verkið er nokk-
urn veginn á áætlun, segir Björn
Snædal, hjá Leiguíbúðum í Fjarða-
byggð ehf, en verkið hófst seinna en
menn gerðu ráð fyrir í byrjun. Mikill
fjöldi íbúða er í smíðum á Reyðar-
firði um þessar mundir, blokkir, par-
hús og einbýlishús.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Hitaverk: Það er ekki létt verk að vinna í byggingavinnu, en hlýindi, sól og
gott veður spillir ekki fyrir og ekki verra að verða smá sólbrúnn.
Fyrsta blokkin í byggingu
Laga vatnssíu | Unnið hefur verið í því
undanfarnar vikur að laga síubúnað við
vatnsbólið fyrir Ólafsvík, sem staðsett er
uppi á Jökulhálsi. Undanfarin ár hefur
myndast stífla í leysingum og þar með
orðið vatnsskortur, en vonast er til að
þessar framkvæmdir komi í veg fyrir að
það gerist.