Morgunblaðið - 29.07.2004, Side 30

Morgunblaðið - 29.07.2004, Side 30
MINNINGAR 30 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigrún E. Óla-dóttir fæddist á Sveinsstöðum í Grímsey 13. ágúst 1928. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt 22. júlí síðastlið- ins. Foreldrar henn- ar voru Elín Þóra Sigurbjörnsdóttir, f. 1.1. 1909, d. 16.2. 2003 og Óli Bjarna- son, f. 29.8. 1902, d. 8.9. 1989. Systkini Sigrúnar eru Óli Hjálmar, Inga Bjarn- ey, Willard Fiske, Birna, Garðar og Þorleifur sem lést af slysför- um 27 ára að aldri. Sigrún giftist 22. september ár- ið 1948 Páli Kristinssyni frá Stóru-Hámundarstöðum í Hrísey, f. 22. september 1927. Foreldrar Páls voru hjónin Þorvaldína Baldvina Vilhelmína Baldvins- dóttir, f. 3.11. 1899, d. 4.6. 1979 og Kristinn Pálsson, f. 26.6. 1897, d. 11.2. 1979. Börn Sigrúnar og Páls eru 1) Kristinn, f. 8.6. 1949, kvæntur Björgu Valtýsdóttur, f. 2.8. 1950. Þau eiga þrjú börn, þau eru a) Sigrún Eva, gift Martin Hernandez og eiga þau tvær dætur, b) Ásdís Björk, gift Jó- hanni Axel Thor- arensen og c) Páll, kvæntur Pálínu Gunnarsdóttur og eiga þau einn son. 2) Elín Margrét, f. 12.9. 1951, gift Sig- urði Sören Guð- brandssyni, f. 16.12. 1956. Þau eiga dótt- ur, Ingu Birnu, gift Víði Ingimarssyni og eiga þau tvö börn. 3) Vilhelmína, f. 12.11. 1958, gift Ingólfi Ólafs- syni, f. 29.12. 1954. Þau eiga fimm börn, þau eru a) Ólafur, í sambúð með Lilju Dögg Bjarna- dóttur og eiga þau dóttur, b) Hildur, c) Sigurður, d) Valur og e) Arnar. Sigrún bjó með Páli í Túni í Innri-Njarðvík allan þeirra bú- skap. Sigrún var ávallt mjög virk í kirkjustarfi og var ein af stofn- endum Systrafélags Innri-Njarð- víkurkirkju. Sigrún verður jarðsungin frá Innri-Njarðvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku hjartans mamma, tengda- mamma og okkar besta vinkona. Erfitt finnst okkur á þessari stundu að setjast niður og skrifa hugsanir okkar á blað. Það ríkir svo mikil sorg og söknuður í hug- um okkar. Þú varst okkur allt í öllu og hafðu þökk fyrir það elsku mamma. Yndislega móðir mín minning þín mun ætíð lifa. Unaðsblíðu brosin þín bjarta hlýja móðir mín. Aldrei gleymist ástin þín og gleðin meðan hjörtun lifa. Blessuð kæra móðir mín minning þín mun fögur lifa. Hjartans elsku móðir mín mig þú leiddir lífs á vegi. Hlý var ætíð höndin þín hennar nutu börnin mín. Heyrðist fagra röddin þín á hreinum tærum sólardegi. Undur fagra móðir mín verndaðu oss á lífsins vegi. (Guðmundur Kr. Sigurðsson.) Þú veist að við höldum utan um pabba þar sem þú ert ekki lengur til staðar. Við biðjum góðan guð að passa þig og gefa pabba og okkur börnunum þínum styrk til að halda áfram. Kristinn, Björg, Elín og Sigurður. Elsku amma. Ég trúði ekki að þetta myndi bera svo snöggt að. Allt leit svo vel út og þegar við kvöddumst uppi í sumarbústað óraði mig ekki fyrir því að þetta yrði okkar síð- asta faðmlag, okkar síðasti koss. Ó hvað ég sakna þín sárt. Um huga minn streyma minn- ingar um allar okkar stundir sam- an. Þú varst mér sem mín önnur móðir. Mikið hafði ég það gott hjá ykkur afa þegar mamma var að vinna, alltaf með ykkur hvert sem þið fóruð. Margar eru minning- arnar sem ég er heppin að eiga. Við erum heppin fjölskylda að geta búið í svona nálægð og alltaf í sátt og samlyndi. Stórt skarð er rofið í okkar fjölskyldu. Alltaf varðst þú að fylgjast með öllu og vita allt. Það verður skrýtið að sjá þig ekki í glugganum, engin amma sem hringir og býður góðan daginn þegar ég dreg frá á morgnana, og að skjótast yfir götuna til ykkar afa í kaffisopa og skrafa við ykkur. Elsku amma, þín er sárt saknað. Víðir, Siggi, Elín og ég eigum um þig yndislegar minningar. En er það ekki skrýtið amma mín að andlát þitt skuli bera upp á brúð- kaupsdag okkar Víðis, að fyrir að- eins fjórum árum áttum við saman yndislega fallegan og ljúfan dag? En svo í dag er þetta stærsta sorg sem ég hef upplifað. Ég reyni að vera sterk en það er bara svo erf- itt. Við Víðir eigum eftir að hugsa vel um afa, þeir ná svo vel saman og er hann eins og ykkar þriðji tengdasonur. Ég veit að nú mun þér líða betur og þú ert komin þangað sem vel er hugsað um þig. Þú átt skilið það besta. Þú ert minn engill. Hjartans þakkir fyrir allt, elsku amma mín. Inga Birna. Elsku besta amma. Mikið er þín nú sárt saknað. Við trúum því í rauninni ekki ennþá að þú sért far- in, þetta er allt svo óraunverulegt. Þú ert besta amma sem nokkur getur hugsað sér að eiga, alveg einstök kona. Það er mikið búið að gráta síðustu daga en líka mikið búið að hlæja því við eigum svo margar góðar minningar um þig. Sumarbústaðurinn var sælureit- urinn ykkar afa og reyndar okkar líka því alltaf tókuð þið eitthvert okkar með á Þingvelli og svo seinna þegar barnabarnabörnin fóru að koma þá voru þau tekin með. Það var ósjaldan slegist um það hver fengi að gista heima hjá ykk- ur því þar var alltaf svo yndislegt að vera. Það er heldur ekki hægt að hugsa sér það betra en að hafa ömmu og afa í næsta húsi. Þegar við komum heim úr skólanum varstu oft með eitthvað nýbakað handa okkur krökkunum. Þú varst svo ánægð að geta séð okkur á hverjum degi, jafnvel oft á dag, og við nutum þess ekki síður að vera í návist ykkar afa. Þú fylgdist alltaf svo vel með okkur og veifaðir okk- ur á hverjum morgni þegar við fórum í skólann, og svo seinna í vinnu. Þú veifaðir svo aftur þegar við komum heim á daginn og hringdir alltaf yfir til að athuga hvernig dagurinn hefði verið. Það hefur verið erfitt síðustu daga að sjá þig ekki lengur brosandi og veifandi í glugganum. En þú fylgd- ist ekki síður með okkur þegar við bjuggum öll erlendis og mikið varstu nú ánægð í sumar að hafa stelpurnar þínar þrjár frá Amer- íku í heilan mánuð. Aldrei komum við heim frá Ameríku öðruvísi en að þú biðir eftir okkur með nýbak- aðar pönnukökur, með sultu og rjóma, þá fyrst fundum við að við værum komin heim. Við getum endalaust talið upp allt sem þú hefur gert fyrir okkur í gegnum tíðina en ósérhlífnari og sterkari einstaklingi höfum við aldrei kynnst. Þú ert fyrirmynd okkar. Þú settir fjölskylduna og alla aðra í fyrsta sæti, á undan sjálfri þér, en þannig hefur þú alla tíð verið, þú vildir alltaf hugsa vel um alla. Alltaf varstu í góðu skapi og þolinmóð. Við verðum ævinlega þakklát fyrir alla hlýjuna, um- hyggjuna og ástina sem þú sýndir okkur alla tíð. Svo lengi sem ég man eftir mér varstu til staðar. Kenndir mér að elska aðra og að elska sjálfa mig. Þú varst alltaf tilbúin að hlusta, halda í höndina á mér og faðma mig. Lífsgleði þín og umhyggja höfðu mikil áhrif á líf mitt. Þakka þér fyrir að vera amma mín. (Frieda Mcreynolds.) Elsku amma, takk fyrir allt. Blessuð sé minning þín. Þín Sigrún Eva og Martin, Ásdís Björk og Jóhann Axel, Páll og Pálína. Sigrún frænka er dáin. Aðeins 75 ára en samt búin að reyna svo mikið. Þrátt fyrir erfið veikindi var ekki bilbug á henni að finna. Ég var svo heppinn að kynnast Sigrúnu frænku og Palla hennar vel þegar ég sem strákur fór oft í pössun í Njarðvíkurnar. Þar var mér tekið eins og einu af börnum þeirra og oft þurfti frænka að stympast við strákinn. Hún gaf ekkert eftir frekar en ég og þegar þolinmæðin þraut og hún sagði mér að nú skyldi ég fá að vita hvar Davíð keypti ölið þá svaraði ég: ,,Nei frænka, Óli skal kaupa ölið.“ Ferðirnar upp í sumarbústaðinn þeirra við Þingvallavatn eru einnig ógleymanlegar. Bústaðurinn er sælureitur fjölskyldunnar, sann- kölluð Paradís. Þar undi hún hag sínum vel og dvaldi hún þar þegar kallið kom svo snögglega. Hafðu þökk fyrir allt og allt, kæra frænka. Elsku Palli og fjöl- skylda. Guð veiti ykkur styrk í sorginni. Minning Sigrúnar mun lifa um ókomna tíð. Óli Björn Björgvinsson. Elskuleg systir okkar, sú elsta af systkinahópnum á Sveinsstöðum SIGRÚN E. ÓLADÓTTIR Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS SIGURÐUR ÁRNASON frá Gegnishólaparti í Gaulverjabæjarhreppi, dvalarheimilinu Kumbaravogi, lést á Landspítalanum laugardaginn 24. júlí. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju föstu- daginn 30. júlí kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Árni Sverrir Erlingsson. Elskulegur faðir okkar og bróðir, TÓMAS MÁR ÍSLEIFSSON stýrimaður, Vitastíg 20, Reykjavík, sem lést að morgni laugardagsins 24. júlí, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstu- daginn 30. júlí kl. 13.30. Sigríður Dröfn Tómasdóttir, Sunneva Tómasdóttir, Vilborg Auður Ísleifsdóttir. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT TRYGGVADÓTTIR, Stóru-Borg, Víðidal, Vestur-Húnavatnssýslu, lést mánudaginn 26. júlí. (Björn) Tryggvi Karlsson, Ólöf Hulda Karlsdóttir, Guðrún Karlsdóttir, Leo J. W. Ingason, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ARNBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR, Mýrarvegi 113, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Seli þriðjudaginn 27. júlí. Árni Árnason, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri, SMÁRI ÁRSÆLSSON, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn 27. júlí síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar, tengda- pabbi, tengdasonur, bróðir, mágur og svili, ÞRÖSTUR HELGASON kennari, Hófgerði 12, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðju- daginn 3. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Íslands eða heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Hulda Brynjúlfsdóttir, Drífa Kristín Þrastardóttir, Heiðar Þór Þrastarson, Úlfur Ingi Jónsson, Marta Rúnarsdóttir, Ingiríður Árnadóttir, Brynjúlfur Sigurðsson, Svala Helgadóttir, Erla Helgadóttir, Sverrir Guðmundsson, Valur Helgason, Ásta Gísladóttir, Haukur Helgason, Eyrún Kjartansdóttir, Örn Helgason, Elísabet Hannam, Ragnheiður Brynjúlfsdóttir, Jón Óskarsson, Sigurður Brynjúlfsson, Anna María Karlsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.