Morgunblaðið - 29.07.2004, Page 36

Morgunblaðið - 29.07.2004, Page 36
Grettir Grettir Smáfólk ÉG BJÓ TIL LISTA YFIR HLUTI SEM ÉG VIL EKKI AÐ ÞÚ TÆTIR MEÐ KLÓNUM ÉG HEFÐI KANNSKI ÁTT AÐ SETJA LISTANN Á LISTANN ÞAÐ VEIT ENGINN HVAÐ DULARFULLI KÖTTURINN ER AÐ HUGSA EKKI EINU SINNI DULARFULLI KÖTTURINN LEIKVÖLL Í KÓPAVOGI VANTAR BLENDING FJÖGUR ÞÚSUND SANKTI BERNARDSHUNDA? ÉG TRÚI ÞESSU EKKI! HVER SENDI ALLA ÞESSA FJÁRHUNDA TIL AKUREYRAR? HVAÐ MEÐ ALLA KETTINA? FIMMTÁN FJÁRHUNDA TIL EGILSSTAÐA... HVAR ER ÞESSI LEIKVÖLLUR? HVAR ER KORTIÐ? HVER BAÐ UM STÓRA DANA? SÍÐASTI YRIRHUNDUR SKILDI HLUTINA EFTIR Í ALGJÖRI ÓREIÐU! © DARGAUD Bubbi og Billi PABBI, ÞAÐ ER AÐ KOMA SKATTHEIMTUMAÐUR FRÁ DÝRAHALDINU ANSANS! ÉG GLEYMDI AÐ TILKYNNA BILLA Í ÁR FLJÓTUR BILLI! FELDU ÞIG! KOMDU MEÐ MÉR! FLJÓTUR! GÓÐAN DAGINN HERRA. GAMAN AÐ SJÁ ÞIG VIÐ SKULUM SJÁ HVAR? HVAR? HÉRNA, INN Í SKÁP! FLJÓTUR! STÖKKTU! !? TAKK KÆRLEGA FYRIR AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞESSUM LEIK HERRA. VIÐ SÁUM EINGAN ANNAN MÖGULEIKA TIL ÞESS AÐ KOMA HONUM Í BAÐ ÉG VAR PLATAÐUR VIÐ VERÐUM AÐ FINNA EITTHVAÐ ANNAÐ NÆST HVAÐ? Dagbók Í dag er fimmtudagur 29. júlí, 211. dagur ársins 2004 Víkverji er umhverf-isvænn og gerir sitt allra besta til að lifa í sátt við náttúr- una. Hluti af því er að fara allra erinda sinna, í það minnsta innan- bæjar, á hjóli. Víkverji fjárfesti í góðu hjóli í fyrra eftir að gamla hjólið hafði verið tekið í geymslu blokkarinnar. Nýja hjólið hefur reynst ákaflega vel og ekki spillir hvað Víkverji er smart með hjálminn sinn, sem að sjálf- sögðu er í sömu litum og hjólið. Það var því ákveðið áfall fyrir Vík- verja þegar hann í daglegum útrétt- ingum fann að hjólið var farið að hökta. Víkverji þóttist viss um að gír- arnir væru vanstilltir en nánari at- hugun leiddi í ljós að það var ekki ástæðan. Það vildi svo til að Víkverji átti leið framhjá Markinu og brá sér inn á verkstæðið. Þar var honum vel tekið þrátt fyrir miklar annir starfs- manna. Hjólinu var kippt inn og á ör- skotsstundu skipti starfsmaðurinn um ónýtan hlekk í keðjunni, yfirfór gírana og smurði allt saman vel að lokum. Þjónustuna fékk Víkverji fyr- ir spottprís og fór him- inlifandi út og hjólaði hratt til vinnu. x x x Víkverji er mikilltannburstamaður og burstar tennurnar ekki aðeins kvölds og morgna heldur oft á dag. Vegna þessa gerir Víkverji miklar kröfur til tannburstans og tannkremsins og er heldur íhaldssamur í þeim málum. Víkverji keypti alltaf tannkrem sem kallast Macs og er framleitt í Danmörku. Tannkrem þetta skilur tunguna eftir logandi og munninn því ótrúlega ferskan. Víkverji gat alltaf gengið að því vísu að tannkremið fengist í Nóa- túni og lagði því leið sína þangað þegar tannkremstúpan var orðin óhóflega krumpuð. En nú er svo komið að Víkverji finnur hvergi tannkremið sitt góða og hefur því neyðst til að kaupa aðr- ar tegundir. Enn hefur hann ekki dottið niður á tegund sem uppfyllir kröfurnar og finnst honum því við hæfi að koma á framfæri kvörtun yf- ir að eitt vörumerki eigi nánast allan tannkremsmarkaðinn hér á landi. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is         Eistland | Leikfélagið Hugleikur í Reykjavík er á leið til Viljandi í Eistlandi þar sem félagið sýnir leikritið Undir hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur á norður-evrópskri áhugaleiklistarhátíð 3.–8. ágúst. Undir hamrinum, eða Country Matters, eins og sýningin verður kölluð í Eistlandi, er ólíkindalegur baðstofuleikur þar sem snúið er upp á ýmis ís- lensk bókmennta- og þjóðsagnaminni eins og Hugleik er einum lagið. Leik- stjóri er Ágústa Skúladóttir og tónlist er eftir Björn Thorarensen og Þorgeir Tryggvason. Hugleikur til Viljandi MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Hann veitti sálum vorum lífið og lét oss eigi verða valta á fótum. (Sl. 66, 9.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.