Morgunblaðið - 29.07.2004, Side 48

Morgunblaðið - 29.07.2004, Side 48
BYGGING nýs kerskála við álver Norðuráls á Grundartanga er nú hafin af fullum krafti, en fyrsta skóflustunga fram- kvæmdanna var tekin í maí síðastliðnum. Að sögn Birgis Karlssonar, verkefnisstjóra hjá HRV-engineering, sem sér um fram- kvæmdir við stækkunina fyrir hönd Norð- uráls, verða tilboð opnuð í dag fyrir ker, rafleiðara og kerskálabyggingarnar sjálf- ar, en nú er unnið að jarðvegsfram- kvæmdum. Áætlað er að framleiðslugeta ál- versins tvöfaldist eftir framkvæmdirnar, og fari þar með úr 90 þúsund í 180 þúsund tonn. Gert er ráð fyrir að stækkað álver Norðuráls taki til starfa árið 2006, en áætluð fjárfesting í stækkun álversins er rösklega 23 milljarðar króna. Samið var um orkukaup vegna stækkunarinnar við Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur. Álverið við Grundartanga var upphaflega sett af stað árið 1998, og var framleiðslugetan þá um 60 þúsund tonn. Öðrum áfanga í stækkun þess lauk árið 2001 og komst framleiðslugetan þá í 90 þúsund tonn. Stækkun álvers Norð- uráls í fullum gangi Morgunblaðið/ÞÖK Stórvirkar vinnuvélar eru notaðar við jarðvegsframkvæmdir vegna stækkunar Norðuráls. Tilboð í ker, rafskaut og byggingar opnuð í dag Trausti Gylfason, öryggisfulltrúi Norðuráls, og Karl Ingi Sveinsson tæknifræðingur athuga gang mála. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga VILHELM Þorsteinsson EA hefur á nokkrum vikum veitt um 7.000 tonn af síld við Svalbarða. Síldin er flökuð um borð og er verðmæti hennar orðið um 220 milljónir króna frá því skipið fór að Svalbarða um miðjan júní. Síldinni er skipað um borð í flutningaskip á miðunum og fyrir vikið verða frátafir frá veiðum minni en ef landa þyrfti hverjum farmi á Íslandi. Ekki er hægt að landa síldinni í Noregi, þar sem ekki hefur náðst sam- komulag við Norðmenn um skiptingu hennar milli þjóðanna. Einnig er deilt um veiðirétt Ís- lendinga á svæðinu og hve mikið af síld megi veiða, en norska landhelgisgæzlan hefur ekki amazt við íslenzku skipunum á þessum slóðum enn sem komið er. „Við erum að vinna um 120 tonn af flökum á sólarhring og það hefur verið nánast stöðug vinnsla um borð allan tímann. Við erum því fjóra til fimm daga að fylla skipið,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri.  Hafa veitt/E1 Með síld fyrir 220 milljónir REGLUR um útbúnað skemmtibáta eru svo strangar og kostnaður við að uppfylla kröfur ríkisins svo mikill að margir eigendur hafa brugðið á það ráð að flagga bátunum út, þ.e. skrá þá í öðrum ríkjum. Sumir hugleiða að selja bátana og hætta siglingum. „Þetta er einhver undarleg sál- sýki í íslenskum stjórnvöldum,“ seg- ir Finnur Torfi Stefánsson, tónskáld og félagi í Snarfara í Reykjavík. Hann segir að hvorki í Norður-Evr- ópu né í Bandaríkjunum séu reglur nálægt því jafn strangar og á Ís- landi. Íslenskir skemmtibátar þurfi að uppfylla sömu kröfur og bátar og skip sem notuð eru í atvinnuskyni. Verra sé að eigendur bátanna verði að borga gríðarhá lögbundin gjöld til að bátarnir teljist löglegir. Hann nefnir sem dæmi að þeir þurfi að láta skoða björgunarbáta sína á hverju ári. Erlendis sé á hinn bóginn algengt að bátar séu skoðaðir á 3–4 ára fresti. Einokun ríki á markaði fyrir björgunarbáta og hið sama eigi við um skoðun á þeim. Afleiðingin sé sú að skoðunin kosti yfirleitt 60– 80.000 krónur. „Á íslensku heitir þetta fjárplógsstarfsemi,“ segir hann. Hafþór L. Sigurðsson, formaður Snarfara, bendir á að í Svíþjóð, þar sem fjöldi skemmtibáta sé um ein milljón, séu afskipti ríkisvaldsins í lágmarki og eigendum bátanna treyst fyrir sínu eigin öryggi. Skemmtibátum flaggað út til að forðast lögbundinn kostnað samkvæmt reglum um útbúnað Sumir hugleiða að selja bátana Morgunblaðið/Þorkell Þau eru misjafnlega vegleg, fleyin í smábátahöfn Snarfara.  Margir/10 LEIKKONAN Julia Stiles hefur bæst í hóp leik- aranna í Ferða- lagi til himna (A Little Trip to Heaven), kvik- mynd sem fyr- irtæki Sigurjóns Sighvatssonar, Palomar Pict- ures, framleiðir og Baltasar Kor- mákur leikstýrir og skrifar hand- ritið að, en þetta er fyrsta verkefni hans sem framleitt er á ensku. Tökur á myndinni hefjast hér- lendis og í Minnesota um miðjan ágúst. Stiles leikur m.a. í myndinni The Bourne Supremacy, sem var vin- sælasta mynd síðustu helgar í Bandaríkjunum. Julia Stiles í nýjustu mynd Baltasars Julia Stiles  Julia/44 ÚTLENDINGAR hafa keypt fyrir hærri upp- hæð hér á landi með kreditkortum fyrstu sex mánuði ársins en sömu mánuði í fyrra. Sam- kvæmt upplýsingum frá Visa Ísland og Master- card-Kreditkortum er kreditkortavelta útlend- inga hér á landi í ár rúmir 5,5 milljarðar króna og hefur aukist um tæp 13%. Aukningin hefur verið um 11% hjá Mastercard og tæp 14% hjá Visa Ísland. Sömu sögu er að segja ef skoðuð er velta á kreditkortum Íslendinga erlendis. Hafa Íslend- ingar keypt fyrir rétt rúma 8 milljarða króna er- lendis hjá Visa fyrstu sex mánuði ársins eða fyr- ir tæplega 23% hærri fjárhæð en sömu mánuði í fyrra. Hjá Mastercard hefur veltan aukist um tæp 43% á milli ára og Íslendingar keypt fyrir 3,2 milljarða erlendis hálft árið 2004. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Ís- lands hefur kreditkortanotkun Íslendinga er- lendis aukist um tæpt 31% sé litið til fyrstu sex mánaðanna 2003 og 2004. Veltan í ár nam um 11,4 milljörðum króna. Færslufjöldi erlendis er 1,2 milljónir skipta í ár. Miðað við það nemur hver færsla að meðaltali 9 þúsund krónum. Er það eilítið lægri meðalupphæð en fyrstu sex mánuðina 2003. Alls voru um 222 þúsund kred- itkort í notkun í lok júní 2004. Veltan hefur aukist um 13% Útlendingar hafa eytt 5,5 milljörðum króna á Íslandi það sem af er árinu Tófan stal golfkúlunni UNGUR kylf- ingur, Alex Freyr Gunn- arsson, 11 ára, frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, sem þátt tekur í Íslandsmóti unglinga á Hólmsvelli í Leiru, varð fyrir því að tófa tók kúluna og fór með hana úr sandglompu við Bergvík- ina á þriðju braut. Eftir ágætis högg stakk tófan sér út úr brim- varnargarði sem er við flötina, fór ofan í glompuna og tók golf- kúluna í kjaftinn – líklega haldið að um egg væri að ræða. „Ég sá ekki sjálfur hvar golf- kúlan hafnaði, en þeir sem til sáu sögðu mér, að um leið og kúlan lenti hefði tófan skotist af stað og elt hana þangað til hún stöðv- aðist, og tekið hana þá í kjaft- inn,“ sagði Alex í samtali við Morgunblaðið. Ungi kylfingurinn sá ekki golf- kúluna sína aftur, en fékk að leika nýrri kúlu frá sama stað án þess að taka vítishögg. Móðir Alex, Ylfa Pétursdóttir, segir hann hafa verið heppinn að hollið á undan var þarna hjá og sá hver afdrif kúlunnar urðu. „Þetta hef- ur gengið mjög vel og gaman fyr- ir krakkana að taka þátt í svona móti,“ segir Ylfa. FRÁ og með þriðja ágúst nk. verður á ný hægt að kaupa safa sem framleiddur er undir merki Sólar. Nokkrir fyrrverandi starfsmenn Sólar hf. hafa stofnað fyrirtækið Sól ehf. og munu hefja fram- leiðslu á ferskum ávaxtasafa í næstu viku. Að sögn markaðsstjóra fyrirtækisins, Leifs Grímssonar, er markmið þess að auka safamarkaðinn í heild sinni en leggja síður áherslu á að vinna viðskiptavini af keppinautum. „Eins og sakir standa nemur mark- aðurinn um ellefu milljónum lítra á ári og stefnum við á að hann muni aukast um eina milljón lítra á þessu ári og að aukningin verði okkar.“ Leifur segir umræðuna um sykurskatt á gos- drykki ekki vera á réttri braut. „Ef ég sel heila appelsínu út úr búð greiði ég af henni 14% virð- isaukaskatt. Ef ég kreisti hins vegar safann úr henni og tappa á flöskur greiði ég vörugjald og 24,5% virðisaukaskatt. Hreinn, ferskur ávaxtasafi er því settur í sama skattþrep og sykraðir gos- drykkir og það finnst mér ekki eðlilegt.“ Sólarsafi aftur á boðstólum  Sólarupprisa/D1 ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.