Morgunblaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vatnajökulsþjóðgarður
Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra, Albert Eymundsson, bæj-
arstjóri Sveitarfélagsins Horna-
fjarðar, og Árni Jón Elíasson,
oddviti Skaftárhrepps, undirrituðu í
Skaftafelli í gær viljayfirlýsingu um
að fyrsti áfangi að stofnun Vatnajök-
ulsþjóðgarðs yrði stækkun þjóð-
garðsins í Skaftafelli. Með þessari
stækkun verður þjóðgarðurinn í
Skaftafelli 4.807 ferkílómetrar. Nær
hann til svæðis sem nemur um 57%
af Vatnajökli auk Lakagígasvæð-
isins.
Tekjur af fasteignasköttum
Tekjur sveitarfélaganna af fast-
eignasköttum hafa aukist um tæpan
þriðjung á tveimur árum frá 2001 til
2003 og er útlit fyrir að tekjurnar
aukist enn frekar í ár. Sigurður
Helgi Guðjónsson, formaður Hús-
eigendafélagsins, segir að félagið
hafa barist fyrir lækkun skatta á
fasteignir. Enn frekari hækkana í
þessum efnum sé að vænta í nóv-
ember nk. þegar nýtt fasteignamat
verði kynnt.
Lítið miðar í kennaradeilu
Félag grunnskólakennara og
launanefnd sveitarfélaganna fund-
uðu hjá ríkissáttasemjara í gær og
fyrradag án árangurs. Að sögn Ás-
mundar Stefánssonar ríkissátta-
semjara eru menn að skoða ákveðin
atriði, bæði saman og hverjir í sínu
lagi, með opnum huga og ljóst að
þeirri vinnu verður fram haldið
næstu daga.
Mannskæður fellibylur
Fellibylurinn Ívan stefndi í gær-
kvöldi á Kúbu og var þegar byrjað
að flytja hundruð þúsunda manna á
öruggari staði á eynni. Alls hafa nú
minnst 60 manns týnt lífi á Kar-
íbahafi af völdum Ívans sem er
óvenjuöflugur. Gert var ráð fyrir að
hann skylli á Flórída í dag.
Átök í Bagdad
Blóðug átök urðu í Bagdad í gær
og er talið að yfir 40 manns hafi fall-
ið. Hópur undir forystu Abu Musab
al-Zarqawis sagðist í gær hafa skot-
ið á stöðvar stjórnarinnar og Banda-
ríkjamenn í Bagdad en þannig hóf-
ust átökin.
Danir frá Írak?
Leiðtogar dönsku stjórnarand-
stöðunnar íhuga nú að greiða at-
kvæði gegn því að danskt herlið
verði áfram í Írak. Hingað til hefur
verið breið samstaða á þinginu um
að liðið skuli gegna störfum sínum
þrátt fyrir ástandið í Írak.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 28
Viðskipti 12 Bréf 17
Erlent 13 Dagbók 26/28
Listir 129 Leikhús 29
Umræðan 15/16 Fólk 30/33
Forystugrein 18 Bíó 30/33
Skoðun 18 Ljósvakar 34
Minningar 20/24 Veður 35
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
NÝTT safnaðarheimili Neskirkju var
tekið í notkun í gær. Að lokinni fjöl-
mennri messu þar sem biskup Ís-
lands, Karl Sigurbjörnsson, prédikaði
gekk söfnuðurinn syngjandi með
börn í fararbroddi fram í nýja safn-
aðarheimilið, en það er tengt kirkj-
unni með glergangi og brú. Þar bless-
aði biskupinn nýja húsið og var það
síðan opnað með formlegri athöfn þar
sem Guðmundur K. Magnússon, for-
maður sóknarnefndar, Örn Bárður
Jónsson, sóknarprestur Neskirkju,
Sigurður Árni Þórðarson, prestur
Neskirkju, og Hanna Johannessen
fluttu ávörp.
„Síðan afhenti frú Sigríður Sigurð-
ardóttir, fyrir hönd kvenfélagsins,
kirkjunni eina milljón króna í lista-
verkasjóð til kaupa á listaverkum í
nýja safnaðarheimilið og hjónin Lína
G. Atladóttir og Guðmundur Bene-
diktsson færðu okkur forláta kaffi-
vél,“ segir Örn Bárður Jónsson, en
kaffihús safnaðarheimilisins var opn-
að síðdegis í gær og var þar m.a. boð-
ið upp á nýbökuð croissant með ýms-
um fyllingum, tertur og fleira.
Kaffihúsið verður opið milli kl. 11 og
18 alla daga, nema sunnudaga en þá
verður opið milli kl. 10 og 14.
Hugsað sem menningarmiðstöð
Aðspurður segir Örn Bárður nýja
safnaðarheimilið vera hið fyrsta sinn-
ar gerðar hér á landi, en það er hugs-
að sem torg eða menningarmiðstöð
þar sem trú og þjóðfélag tengjast.
„Hugsunin er að hingað geti fólk
komið sem á leið um og fengið sér
kaffi og litið í blöðin eða bækur, en
hér verður lítil bókabúð og netkaffi.
Neskirkja var fyrsta nútímakirkjan í
Reykjavík, þ.e. fyrsta kirkjan sem
teiknuð er eftir nútímaarkitektúr en
það var Ágúst Pálsson arkitekt sem
teiknaði kirkjuna. Þannig að við lögð-
um áherslu á að safnaðarheimilið
væri hannað og hugsað sem nútíma-
safnaðarheimili. Hugmyndin að
byggingunni sem nú er risin á sér fyr-
irmynd í þorpum, bæjum og borgum í
Evrópu. Þar stendur kirkjan við torg-
ið og úti eru kaffihús, verslanir og
mannlífið. Kirkjan stendur opin og
fólk gengur út og inn auk þess sem
það heyrast ómar frá orgelinu og svo
bænamál fólks í gleði og sorg í helgi-
haldi á krossgötum ævinnar. Prestar
eiga leið um torgið, eru ýmist á leið
inn í kirkju til helgihalds eða út til að
vitja fólks. Og kirkjan minnir á sig
með hljóðri nærveru. Torgið hjá okk-
ur er yfirbyggt og frammi má finna
skrifstofur starfsfólksins líkt og við
göngugötu út frá torginu. Þannig að
þetta er mjög skemmtilega hannað
og falleg bygging, björt og stílhrein,“
segir Örn Bárður, en þess má geta að
safnaðarheimilið var hannað af VA
arkitektum og reist undir verkstjórn
Richard Briem. Örn Bárður segir að
áhersla verði lögð á fjölbreytilegt
starf, m.a. námskeið og fyrirlestra.
Netkaffi og bókabúð meðal þess sem finna má í nýju safnaðarheimili Neskirkju
Vilja tengja trú og þjóðfélag
Morgunblaðið/Árni Torfason
Örn Bárður Arnarson afgreiðir Guðmund K. Magnússon, formann sóknarnefndar, og Örn Bárð Jónsson, sóknar-
prest Neskirkju, við opnun nýs safnaðarheimilis Neskirkju í gær. Á milli þeirra Guðmundar og Arnar sést í Hönnu
Johannessen sem setið hefur um árabil í sóknarnefnd Nessóknar.
NÝTT félag, Flugtaxi ehf., hefur
keypt innanlandsdeild Íslandsflugs
og tekur við öllu innanlandsflugi
frá og með 1. október nk. „Við mun-
um fljúga á sömu staði og Íslands-
flug hefur gert hingað til, þ.e. Vest-
mannaeyjar, Hornafjörð, Bíldudal
og Gjögur. Hins vegar er óvíst með
flug á Sauðárkrók, en það hafa ein-
faldlega ekki verið nægilega marg-
ir farþegar á þeirri leið til þess að
hún beri sig fjárhagslega. Það er
reyndar verið að skoða ýmsar leiðir
til þess að fjölga farþegum, en með-
an þeir eru ekki fleiri en raun ber
vitni sjáum við okkur ekki annað
fært en að leggja leiðina niður,“
segir Össur Brynjólfsson, flug-
rekstrarstjóri Flugtaxa ehf., en
þess má geta að félagið mun fá nýtt
nafn frá og með næstu mánaðamót-
um.
Að sögn Össurar mun Flugtaxi
ehf. auka sætaframboðið til Vest-
mannaeyja um allt að 50–60%. „Við
munum þannig bjóða upp á tvö
morgunflug í stað eins og tvö kvöld-
flug í stað eins áður.“ Aðspurður
segir Össur Flugtaxa ehf. munu
taka yfir Dornier-vél Íslandsflugs.
„Að auki munum við bæta við ann-
arri Dornier-vél mjög fljótlega þar
sem ein vél annar ekki þeim flug-
leiðum sem við munum bjóðum upp
á. Nýverið keyptum við svo Piper
Chieftain-vél, sem er rétt ókomin
til landsins, en hún verður notuð í
sjúkraflugi á Vestfjörðum. Þetta er
sama týpa af flugvél og Mýflug hef-
ur haft í sjúkrafluginu, en Mýflug
vann sem undirverktaki hjá Ís-
landsflugi. Við ætlum hins vegar að
sjá um sjúkraflugið sjálfir og
keyptum því eins vél til verksins.“
Flugi á Sauðárkrók
hugsanlega hætt
TAFLFÉLAGIÐ Hellir tryggði sér sigur í Norð-
urlandamóti taflfélaga á laugardaginn í síðustu um-
ferð mótsins sem fór fram á Netinu. Mótið hefur
verið haldið fimm sinnum og alltaf á Netinu.
Úrslitin réðust á síðustu stundu þegar Hellis-
menn náðu fimm og hálfum af sex vinningum gegn
liði Finna í lokaumferðinni. Hellir lauk því keppni
með 20,5 vinninga eins og Norðmenn en innbyrðis
viðureign félaganna lauk hins vegar með sigri
Hellismanna, 4-2, og voru þeir því sigurvegarar
mótsins.
Mót í netskák fara þannig fram að sveitir hvers
lands hittast á ákveðnum stað og fylgist eftirlits-
dómari með því að engin samskipti eigi sér stað
milli liðsmanna. Að þessu sinni tefldi sveit Hellis í
húsakynnum hugbúnaðarfyrirtækisins Mens Ment-
is í Kópavogi en alls tóku sex taflfélög frá öllum
Norðurlöndunum auk Færeyja þátt í mótinu.
Meira um afleiki í netskák
Gunnar Björnsson, liðstjóri og formaður Hellis,
segir að mótið hafi verið sterkt og stórmeistarar
hafi verið í þremur af sex sveitum sem tóku þátt.
Hann segir að taflmennska á Netinu valdi því að
meira sé um slæma afleiki en venjulega.
Hannes Hlífar Stefánsson, sem var á fyrsta borði
í sveit Hellis, tekur í sama streng og Gunnar og seg-
ir að meira sé um afleiki í netskák enda öðruvísi að
rýna í tölvuskjá en að hafa taflborðið fyrir framan
sig. Auk þess detti hinn sálfræðilegi þáttur skáklist-
arinnar út þegar menn tefli á Netinu.
Hann segir að gaman hafi verið að vinna mótið en
Hellir sigraði síðast árið 2000, þegar mótið var hald-
ið í fyrsta sinn. „Það var kominn tími til að vinna
þetta aftur,“ segir Hannes.
Sex skákmenn voru í hverri skáksveit og auk
Hannesar skipuðu þeir Helgi Áss Grétarsson, Stef-
án Kristjánsson, Björn Þorfinnsson, Sigurbjörn J.
Björnsson og Ingvar Þór Jóhannesson sveit Hellis.
Taflfélagið Hellir Norðurlandameistari taflfélaga
Tryggðu sér sigur
í síðustu umferðinni
Morgunblaðið/Ómar
Hannes Hlífar Stefánsson tefldi á fyrsta borði í
skáksveit Hellis á Norðurlandamóti taflfélaga
og náði fjórum vinningum af fimm mögulegum.