Morgunblaðið - 13.09.2004, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.09.2004, Qupperneq 21
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 21 á huga minn. Þó að við Jónas vær- um ekki alltaf að hittast var svo notalegt að vita af honum þarna úti, einhvers staðar og hann var einn af okkur í fjölskyldunni. En nú hefur Jónas, minn kæri frændi, vitjað á ný mið. Það væri nú að bera í bakkafullan lækinn fyrir mig að kenna einhverjum eitthvað um sorg og missi og fullyrðingin um tímann sem alltaf læknar öll sár hljómar fjarlæg. Þegar einhver okkar hverf- ur af vettvangi er komið skarð sem ekki verður fyllt og enginn kemur í stað Jónasar. Þó verður ekki tekin frá okkur návist hans hvar sem við erum stödd, nú sem þá. Þegar húmar að kveldi og hauströkkrið kemur yfir okkur er lítið sem ég get gert annað en að reyna að vera hjá ástvinum hans í huganum þó að lítil sé það huggun harmi gegn. Upp í hugann á þessari sorgar- stundu kemur ljóð Snorra Hjart- arsonar um söknuðinn, sem vitjar okkur á ný á hverjum morgni. Lygnt geymir vatnið leið mína yfir fjallið, felur hana rökkri og ró í nótt. Vær geymir svefninn söknuð minn lautu með degi rís hann aftur úr djúpsins ró. Finnur frændi. Þegar þú komst inn í tilveru okk- ar félaganna hávaxinn, dökkur yf- irlitum, skáeygður, frekar feiminn peyi úr höfuðborginni og settist á skólabekk með okkur breyttist til- veran. Sjóndeildarhringurinn víkk- aði, því þú komst úr höfuðborginni, sem var í mikilli fjarlægð frá Vest- mannaeyjum, peyi sem hafði átt heima heilt sumar í sumarbústað í Grímsnesinu. Þrátt fyrir hógværð- ina tók það Jónas ekki langan tíma að kynnast aðaltöffurum bæjarins og komast í flottustu miðbæjarklík- una, Bleiku beljuna. Þetta voru góð ár og ætluðum við félagarnir í Bleiku beljunni allir að verða ríkir og frægir og þóttum nokkuð uppá- tektarsamir. En fyrst var að upp- götva lífið sjálft og öllu sem því fylgir, skólapartý þar sem við vor- um að kela við sætustu stelpurnar eða næstsætustu, smíða flugvéla- módel sem var eitt af aðaláhuga- málum Jónasar, æfa box í kjall- aranum í Víkinni, renna okkur á risavöxnum sleða á ótrúlegum hraða niður Helgafellið, fara í ferðalag í Landmannalaugar á Cad- illac og Ford ’59 sem endaði sem ævintýri og vorum við fluttir til byggða af Landmælingum Íslands. Ferð á hestamannamót á Skógar- hólum þar sem við kynntumst frægðinni í fyrsta skipti þegar við kynntum fyrsta ferðasegulband Ís- lands og stelpurnar kolféllu fyrir þessum töffurum. Ekki má gleyma öllum þjóðhátíðunum okkar sem við undirbjuggum af mikilli kostgæfni og vorum í okkar sérstöku tjöldum þar sem alltaf var mesta fjörið og flottasta fólkið. En við vinirnir fundum fljótlega að það var ekki til þess ætlast að unglingar ættu sér samastað þar sem þau gætu sest niður og gert það sem þau langaði til þess vegna var gerð uppreisn og logaði bærinn bókstaflega í illdeil- um og látum þar til skólayfirvöld féllust á með semingi að opna skól- ann í einhver skipti fyrir ung- lingana, en við félagarnir í Bleiku beljunni fengum leyfi hjá Palla Helga til þess að taka í gegn og innrétta gamla bóndabýlið Hábæ og gera hann að félagsheimili Bleiku beljunnar. Þetta vakti mikla athygli og ekki síst fyrir hvað allt var vel gert og flott og þar kom listamaðurinn Jónas við sögu því hann var ákaflega listfengur og góður smiður á járn og tré, en þarna áttum við vinirnir frábærar stundir í flottu félagsheimili fyrir utan aðaltraffík bæjarins. Kæri vinur, ég mun alltaf minn- ast þess er við áttum saman helgi í ættaróðalinu Hvammi með þeim tveim er við ætluðum að gera að ævifélögum okkar, sem ekki gekk nú alveg eftir. En árin liðu og vin- skapur okkar Jónasar þróaðist í einlæga og fölskvalausa vináttu og vorum við alltaf í sambandi hvor við annan, þó svo að Jónas flytti upp á Ísland og það var ekki síst fyrir hans tilstilli að Bleika beljan lifir og við vinirnir hittumst reglu- lega og er ógleymanlegt er við hitt- umst öll, Beljan og börn, á ætt- aróðalinu og skemmtum okkur við leiki og fjör þar sem þú hafðir smíðað gjallarhorn og flytjanlegt ræðupúlt sem eiga engan sinn líka. Jónas hringdi í mig á sínum tíma og eftir langt spjall kom hann loks að aðalfréttinni, hann var búinn að ná sér í stelpu og vildi endilega að ég kynntist henni, en það leið nokk- uð langur tími þar til við Dagga hittumst og það voru gleðidagar því mér fannst hún algjörlega falla í hópinn og fannst hún vera sú rétta fyrir Jónas. Jónas þessi rólegi og hægláti maður og Dagga dálítið hraðari, þau bættu hvort annað fullkomlega upp. En þú áttir líka þínar dimmu stundir og var fráfall Tedda sonar ykkar algjört reiðarslag fyrir ykkur Döggu sem horfðuð á eftir frábær- um dreng í blóma lífsins, það voru mörg erfið símtöl og samræður sem við áttum saman um tilgang lífsins og Guðs vilja, en nú eruð þið feðg- arnir saman á veiðilendum Drottins og veit ég að ykkur líður vel saman og í félagsskap Steina og Jenna, hinna félaganna úr Bleiku beljunni, sem kvöddu allt of snemma eins og þú. Elsku Dagga og Margrét, við Villa og börnin sendum ykkur okk- ar innilegustu samúðarkveðjur og megi sá sem öllu stýrir gefa ykkur styrk á þessum erfiðu stundum. Kæri Jónas, ég kveð þig frábær- an vin og félaga allt of snemma en vil þakka fyrir allar góðu stund- irnar og vináttuna og það veit sá sem allt veit að ég á eftir að sakna þín. Far vel, kæri vinur. Bergur M. Sigmundsson. Þegar ég fékk fréttirnar af and- láti Jónasar var ég nýfluttur til Danmerkur. Erfitt er að lýsa þeim tilfinningum sem bærast í brjósti manns við slíkar fréttir. Ég er harmi sleginn og þykir erfitt að vera fjarri vinum mínum heima og geta ekki sýnt þeim þann stuðning sem ég hefði viljað. Ég kynntist Jónasi í gegnum vini mína Pétur og Margréti. Á þessum tíma vorum ég og Pétur að taka okkar fyrstu skref í veiðiskap og tókum við þau skref samferða Jón- asi og Tedda. Strax í byrjun náðum við allir mjög vel saman og brátt varð úr þessu lítill hópur sem bæði stundaði skotveiði og fiskveiði sam- an. Með þessum hóp hef ég átt ótrúlega góðar stundir sem ég mun geyma með mér alla mína ævi. Það er skrítið að hugsa til þess nú að aðeins fyrir nokkrum vikum var ég með Jónasi í ævintýralegum veiðitúr á Arnarvatnsheiðinni. Þótt lítið hafi veiðst í þeim túr skilur hann, eins og allir aðrir, eftir sig ljúfar minningar um góðar sam- verustundir. Jónas var sérlega góð- ur ferðafélagi, bæði rólegur, indæll og skemmtilegur. Iðulega var hann með videoupptökuvélina á lofti og á partíbílnum sínum sem alltaf var gaman að ferðast í. Í gegnum árin hef ég náð að kynnast Jónasi nokkuð vel og milli okkar hafa myndast bönd sem eru mér mikils virði. Einnig hef ég kynnst fjölskyldu Jónasar sem allt- af hefur tekið mér opnum örmum og þykir mér orðið mjög vænt um þau í dag. Jónas var vinur minn og mér þótti vænt um hann. Þín verður sárt saknað. Elsku Margrét, Pétur, Dagbjört og fjölskylda ég sendi ykkur inni- legar samúðarkveðjur frá mér og mínum. Emil. Fallinn er frá góður maður langt fyrir aldur fram. Þrátt fyrir sorgina er efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Jónasi. Kynni okkar hófust ekki fyrir al- vöru fyrr en fyrir aðeins tæpum þremur árum í kringum andlát Tedda, sonar hans og Dagbjartar frænku minnar, sem varð bráð- kvaddur aðeins þrítugur að aldri. Oft er það þannig að jafnvel nán- ustu ættingjar sjást aðeins við jarð- arfarir og þrátt fyrir vilja til annars verður oft lítið úr verki. Við rædd- um þetta í kjölfar andláts Tedda, ákváðum að fara að hittast oftar og sem betur fer létum við ekki standa við orðin tóm. Jónas var hæglátur maður, stór á velli og einnig í lund. Hann hafði góða nærveru, var einlægur, ljúfur og greiðvikinn. Hann gat talað af einlægni um sorg sína yfir sonar- missinum og skrefin sín til bata. Fæðing Freyju litlu veitti öllum mikla gleði og það er ekki ofmælt að segja að hún og Tinna Dagbjört, dóttir Tedda, hafi verið sólargeisl- arnir í lífi afa og ömmu. Litlu snúll- urnar sóttu fast í að vera hjá afa sem naut þess út í ystu æsar að vera með þeim og gætti þeirra oft. Við Jónas hittumst í síðasta sinn í eins árs afmælisveislu Freyju í ágúst. Það var mikill gleðidagur, Jónas alsæll með barnabörnunum í hópi ástvina sinna og yndislegt er að minnast hans þannig. Einnig er ógleymanleg Akranesferðin með honum og Dagbjörtu í vor, heim- ferðin sem tók svo óvænta og skemmtilega stefnu og varði í marga klukkutíma. Betri dauðdaga er varla hægt að hugsa sér en að fá að deyja í svefni en þetta var allt of snemmt og áfallið mikið fyrir fjölskylduna og aðra ástvini sem eru enn í sárum eftir fráfall Tedda. Það er þó hugg- un harmi gegn að nú er Jónas kom- inn til Tedda síns og þeir vaka án efa saman yfir velferð þeirra sem eftir lifa. Elsku Dagbjört, Margrét, Pétur, Anna Guðný, Gyða og aðrir ástvin- ir. Megi minningin um góðan mann veita ykkur og okkur öllum hugg- un, gleði og yl um ókomin ár. Gurrí. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandend- ur senda inn. Þar koma fram upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Undirskrift Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is www.englasteinar.is Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegr- ar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, HELGU SIGURÐARDÓTTUR, Sólvallagötu 5a, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks L-1 Landakots- spítala. Lárus B. Björnsson, Þórhildur Lárusdóttir, Vilmundur Jósefsson, Ólafur Björn Lárusson, Ásgerður Hallgrímsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, DÓRA GUÐBJARTSDÓTTIR, Aragötu 13, Reykjavík, sem andaðist föstudaginn 3. september, verð- ur jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 14. september kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar er bent á Thorvaldsensfélagið. Kristrún Ólafsdóttir, Einar G. Pétursson, Dóra Ólafsdóttir, Ólafur Jóhannes Einarsson, Laurence van Wymeersch, Guðbjartur Jón Einarsson. Ástkær faðir okkar, bróðir og fyrrverandi eigin- maður, ÍVAR HAUKUR ANTONSSON Laugarásvegi 1, Reykjavík, sem lést mánudaginn 6. september, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 15. september kl. 13.30. Anton Ívarsson, Benedikt Ívarsson, Anna Birna Ívarsdóttir, Sigríður Eygló Antonsdóttir, Kolbrún Lilja Antonsdóttir, Guðmundur Antonsson, Þorsteinn Antonsson, Grétar Örn Antonsson, Kristbjörg Steingrímsdóttir og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, GUÐNI FRÍMANN INGIMUNDARSON Hólmgarði 64, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 10. september. Jarðarför auglýst síðar. Kristín Sigurðardóttir, Sigrún María Guðnadóttir, Sesselja Inga Guðnadóttir, Markús Ragnar Þorvaldsson, Sigurður Guðnason, María Lilja Ialfante, Sverrir Ómar Guðnason, Steinunn Jensdóttir, Örn Eðvaldsson, Lena Andersen, afabörn, langafabörn og langalangafabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.