Morgunblaðið - 22.09.2004, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 31
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Ásavegur 28 (01 01), þingl. eig. Árni Magnússon og Erna Fannbergs-
dóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 29. septem-
ber 2004 kl. 14:00.
Áshamar 59, 218-2497, þingl. eig. Halla Vilborg Jónsdóttir og Elías
Sigurðsson, gerðarbeiðendur Og fjarskipti hf., Sparisjóður Hafnar-
fjarðar og Sparisjóður Rvíkur og nágr., miðvikudaginn 29. september
2004 kl. 14:30.
Hásteinsvegur 43, efri hæð og ris, þingl. eig. Hallgrímur S. Rögn-
valdsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Íslands hf., Akureyri og
Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 29. september 2004 kl. 15:00.
Strembugata 28, efri hæð, þingl. eig. Rebekka Benediktsdóttir, gerð-
arbeiðandi Ríkisútvarpið, innheimtudeild, miðvikudaginn 29. septem-
ber 2004 kl. 13:30.
Suðurgarður (jörð, ræktað land, íbúð og bílskúr) fastanr. 218-2344,
218-2345, 218-2346 og 218-2347, þingl. eig. Árni Óli Ólafsson, gerðar-
beiðandi Sparisjóður Rvíkur og nágr., miðvikudaginn 29. september
2004 kl. 16:00.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
21. september 2004
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Málþing í tilefni Evrópska
tungumáladagsins 2004
Á að hefja kennslu erlendra tungumála
fyrr í skólakerfinu?
Menntamálaráðuneytið og Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur í erlendum tungumálum bjóða
til málþings föstudaginn 24. septem, nýju nátt-
úrufræðahúsi Háskóla Íslands kl. 15-17.
Dagskrá
15:00 Ávarp menntamálaráðherra Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur.
15:10 Auður Torfadóttir, dósent í ensku við
Kennaraháskóla Íslands. Hvenær er
heppilegast að hefja tungumálanám?
15:30 Lilja Margrét Möller, kennari við Vestur-
bæjarskóla. Tungumálakennsla í fyrstu
bekkjum grunnskólans: grunnskólakenn-
ari segir frá reynslu sinni.
15:50 Auður Hauksdóttir, dósent í dönsku við
Háskóla Íslands og forstöðumaður Stofn-
unar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum. Lærum af reynslunni með
dönskukennsluna.
16:10 Guðrún Þorkelsdóttir, kennari við Lækjar-
skóla. Hvernig er best að kenna ungum
börnum tungumál?
16:30 María Kristín Gylfadóttir, formaður Heim-
ilis og skóla. Tungumál skipta máli - það
vita foreldrar.
16:50 Guðrún Jónsdóttir, skólastjóri leikskól-
ans Hjalla í Hafnarfirði. Enskukennsla
fimm, sex og sjö ára barna í skólum
Hjalla stefnunnar.
Ljóðalestur á táknmáli milli dagskráratriða
Upplýsingaefni um afrakstur fyrstu ramma-
áætlunar Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz
2000-2003 verður til sýnis að málþingi loknu.
Fæðuofnæmi hjá íslenskum börnum
Astma- og
ofnæmisskólinn
heldur rabbfund á vegum Astma- og ofnæmis-
félagsins fimmtudaginn 23. september nk. kl.
20 í Síðumúla 6 í húsakynnum SÍBS.
Michael V. Clausen, barnalæknir og sérfræð-
ingur í ofnæmissjúkdómum barna, fjallar um
fæðuofnæmi hjá íslenskum börnum og svarar
spurningum fundarmanna.
Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga
hafa á astma og ofnæmi.
Stjórnin.
Efling-stéttarfélag
Ársfundur
Starfsgreinasambandsins
allsherjaratkvæðagreiðsla
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við
kjör fulltrúa Eflingar-stéttarfélags á ársfund
Starfsgreinasambands Íslands, sem haldinn
verður á Hótel Loftleiðum í Reykjavík 14.-15.
október 2004. Tillögum með nöfnum 42 aðal-
fulltrúa og 42 varafulltrúa, ásamt meðmælum
120 fullgildra félagsmanna, ber að skila á skrif-
stofu Eflingar-stéttarfélags í Sætúni 1 eigi síðar
en miðvikudaginn 29. september fyrir kl.
16.00.
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags.
Í kvöld kl. 20.00 Hjálparflokkur
hjá Pálínu, Safamýri 50.
Allar konur velkomnar.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Alfanámskeið hefst í kvöld kl.
19.00 með léttum kvöldverði.
Enn er hægt að skrá sig á nám-
skeiðið. Allir velkomnir. Nánari
upplýsingar í síma 564 2355 eða
á www.vegurinn.is
Nýr söfnuður í Reykjavík!
Við bjóðum þér að vera með á
skemmtilegum samkomum sem
marka upphaf nýs safnaðar í
Reykjavík!
Oslo Kristne Senter er þekkt fyrir
að miðla fagnaðarerindinu í
frelsi og gleði í Noregi og ætlar
nú að stofna nýjan söfnuð í
Reykjavík.
Þú ert velkomin/n á allar sam-
komur sem haldnar verða í Ými
tónlistarhúsi Karlakórs Reykja-
víkur í Skógarhlíð 20 dagana
21.—24. september kl. 20:00 og
einnig helgina 25.—26. septem-
ber kl. 14:00.
HELGAFELL 6004092219 IV/V
Fjhst.
GLITNIR 6004092219 I Fjhst.
I.O.O.F. 9 1852298½ I.O.O.F. 7 18509227½ ÁS.
I.O.O.F. 18 1859227½
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
MARGAR kynslóðir Íslendinga
hafa verið svo heppnar að hafa alist
upp við að hafa skákborð á heimilinu
og flestir kunna mannganginn. Þessi
hefð stafaði ekki síst af því að fram-
boð af afþreyingu var af skornum
skammti lengst af tuttugustu öld-
inni. Hinir hörðu vetur buðu upp á
lítið annað en að stunduð væri iðja
inni og varð þá skák oftar en ekki
fyrir valinu. Á síðustu fimmtán árum
hefur framboð ýmiss konar tóm-
stundaiðju aukist til mikilla muna.
Oftar en ekki er þar boðið upp á mik-
inn hraða og að manneskjan sé ein-
göngu mótttakandi upplýsinga en
ekki virkur gerandi. Fyrir ungviðið
getur þetta haft ýmsa ókosti í för
með sér þar sem þörfin minnkar til
að þjálfa sig í að veita hlutum athygli
og skapa eitthvað. Skák er heppileg
iðkun fyrir krakka enda reynir þar á
marga andlega hæfileika, ekki síst á
einbeitingu og ímyndunarafl. Í stað
þess að foreldrar láti krakka horfa á
sjónvarp eða spila tölvuleiki ættu
þeir að dusta rykið af gamla taflsett-
inu og taka eina bröndótta við krakk-
ana sína! Einnig er það möguleiki að
senda þau á æfingar til þeirra fjöl-
mörgu aðila sem bjóða upp á æfingar
og kennslu fyrir krakka í skák.
Flestir þessara aðila hefja einmitt
vetrarstarf sitt um þessar mundir og
þess vegna tilvalið að gera grein fyr-
ir starfi þeirra.
Skákskóli Íslands og
grunnskólar landsins
Í rúman áratug hefur verið starf-
ræktur Skákskóli Íslands og hefur
hann aðsetur í Faxafeni 12. Helgi
Ólafsson stórmeistari er nú skóla-
stjóri hans og býður skólinn upp á
námskeið fyrir krakka á öllum getu-
stigum fyrir drengi og stúlkur. Aðal-
kennari í byrjenda- og framhalds-
flokkum er Davíð Ólafsson og er þar
farið yfir öll helstu grunnatriði skák-
listarinnar. Hóflegt gjald er tekið af
þátttakendum þessara námskeiða en
verði miklar framfarir hjá þeim er
mögulegt að komast í úrvalsflokk en
þar fer kennsla fram án endurgjalds.
Nánari upplýsingar um Skákskólann
veitir framkvæmdastjóri hans, Ásdís
Bragadóttir, en hún er við á virkum
dögum kl. 10–13 í síma 568-9141.
Í mörgum grunnskólum landsins
er boðið upp á skáknámskeið.
Íþrótta– og tómstundaráð Reykja-
víkur hefur til að mynda staðið fyrir
slíku í nokkra áratugi. Stundum fer
fram einhver kennsla en venjulega
er þar teflt af miklu kappi. Misjafnt
er hverjir sjá um námskeiðin. Áður
fyrr var algengt að kennarar við
skólann sæju um þau en nú er al-
gengara að umsjónin sé á herðum
skákmanns sem stendur fyrir utan
skólann. Í gegnum tíðina hafa Torfi
Leósson og Harpa Ingólfsdóttir ver-
ið dugleg við að sjá um starf sem
þetta en Smári Teitsson sér um
nokkra skóla í Kópavogi. Hinn ótrú-
lega iðni Vigfús Óðinn Vigfússon
hafði umsjón með þessu starfi í
Rimaskóla í nokkur misseri og það
ásamt miklum áhuga skólastjórans
Helga Árnasonar hefur gert það að
verkum að skólinn er orðinn að
miklu skákstórveldi. Sveit skólans
varð Íslandsmeistari barnaskóla-
sveita og mun á næstunni taka þátt í
Norðurlandamóti fyrir slíkar ásamt
því að tefla á Norðurlandamóti
sveita fyrir krakka 16 ára og yngri.
Helgi hefur tekið virkan þátt í starfi
Skákfélagsins Hróksins og er nú
einn af forsprökkum skákdeildar
Fjölnis.
Barna- og unglingastarf
Reykjavíkurrisanna, Hróksins,
Hellis og TR
Skákfélagið Hrókurinn hefur að-
setur í Skúlatúni 4 og eru þar æfing-
ar fyrir krakka á þriðjudögum og
fimmtudögum milli kl. 17 og 19. Fé-
lagið hefur undanfarin ár í samstarfi
við Eddu útgáfu gefið þriðju bekk-
ingum í grunnskólum landsins bók-
ina „Skák og mát“ eftir Anatoly
Karpov í þýðingu Helga Ólafssonar
stórmeistara. Heimsóknir Hróks-
manna hafa vakið mikla athygli fjöl-
miðla og krakkanna sjálfra en átak-
inu hefur verið fylgt eftir með
fjölteflum Hróksmanna í skólunum.
Svo stórhuga eru menn Hróksins að
þeir kenna einnig grænlenskum
krökkum að tefla. Fyrrnefndur
Helgi Árnason sendi umsjónarmanni
skákþáttarins pistil um ferð sem far-
in var til Grænlands í byrjun ágúst
sl. en Hrókurinn bauð nokkrum af
efnilegustu meðlimum sínum með í
för. Þarna voru á ferðinni þær Júlía
Guðmundsdóttir, Júlía Rós Hafþórs-
dóttir og Sigríður Björg Helgadóttir
úr Fjölni Grafarvogi, auk Mikaels
Luis Gunnlaugssonar og Sigurðar
Þráins Geirssonar. Krakkarnir létu
ekki sitja við orðin tóm heldur smöl-
uðu saman grænlenskum krökkum
og unglingum að taflborðunum. Það
ríkti sannarlega mikil gleði meðal
æskunnar í Tasiilaq þegar setið var
tímunum saman að tafli við íslensku
krakkana. Á sólríkum sunnudegi var
svo haldið barna- og unglingaskák-
mót undir berum himni og fór þátt-
takan fram úr björtustu vonum. Alls
tóku 24 krakkar og unglingar þátt í
mótinu, sem var fimm umferða skák-
mót samkvæmt Monrad-kerfi.
Grænlenskir félagar þeirra sýndu
skemmtileg tilþrif og mikið keppn-
isskap. Fróðlegt verður að sjá hvaða
ávöxt starf Hróksins mun bera bæði
hér á landi og á Grænlandi.
Í marga áratugi var Taflfélag
Reykjavík eina virka taflfélagið í
höfuðborginni. Sterkustu skákmenn
landsins hafa verið aldir upp í félag-
inu en félaginu hefur gengið misjafn-
lega að halda þeim innan sinna vé-
banda. Á hverjum laugardegi á
slaginu tvö heldur félagið ókeypis
æfingar fyrir krakka fimmtán ára og
yngri. Unglingamót eru haldin sam-
hliða stórmótum félagsins sem eru
annars vegar Haustmótið og hins
vegar Skákþing Reykjavíkur. Flest-
ar sveitakeppnir eru haldnar í húsa-
kynnum félagsins í Faxafeni 12.
Taflfélagið Hellir var stofnað 1991
og hefur byggt upp öflugt barnastarf
undir styrkri stjórn Vigfúsar Óðins
Vigfússonar. Efnilegustu krakkar
landsins á aldrinum 10–14 ára koma
frá félaginu og hafa þeir alist upp við
æfingar á mánudögum hjá félaginu
en þær hefjast að jafnaði kortér yfir
fimm. Á síðasta ári hélt félagið sitt
fyrsta alþjóðlega barnaskákmót og
hyggst það endurtaka leikinn nú í ár.
Einnig hefur félagið verið í góðu
samstarfi við Skákfélag Akureyrar
og hafa yngstu meðlimir félaganna
heimsótt hverjir aðra með reglulegu
millibili og att kappi saman.
Krakkastarf annarra taflfélaga
Þó að félögin utan Reykjavíkur
séu minni bjóða þau einnig upp á öfl-
ugt barna- og unglingastarf. Hin
unga skákdeild Hauka hefur aðsetur
á Ásvöllum og sér Steinar Stephens-
son um reglulegar æfingar fyrir
krakka. Taflfélag Garðabæjar hefur
einnig reglulegar æfingar fyrir börn
og unglinga sem og Taflfélag Vest-
mannaeyja. Skákfélag Akureyrar
hefur aðstöðu í Íþróttahöllinni og
eru þar ókeypis vikulegar æfingar
haldnar fyrir krakka á laugardögum
frá kl. 13:30. Nánari upplýsingar um
starfsemi þessara taflfélaga og fleiri
er að finna á heimasíðum þeirra en
þær er hægt nálgast á www.skak.is.
Skák og krakkar – holl og góð blanda!
SKÁK
Ísland
BARNASTARF SKÁKHREYFINGARINNAR
September 2004
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson