Morgunblaðið - 24.09.2004, Side 1

Morgunblaðið - 24.09.2004, Side 1
Fá›u koss frá afmælisbarninu ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S N A T 24 84 1 0 9/ 20 04 . Nýir bílar í París Rússland samtímans Leikritið Svört mjólk frumsýnt á Smíðaverkstæðinu Menning Íþróttir í dag Valur stórveldi eða pappírstígur?  Serena Williams á fleygiferð  Gullstúlkan á ferðinni í Aþenu 474 gerðir bíla eru sýndar á bílasýningunni í París 26 FYRIRTÆKI og verktakar, sem vinna fyrir norsku vegagerðina, verða frá og með nóvember næst- komandi að greiða öllu verkafólki sömu laun og er þá miðað við um- samin laun í Noregi. Er tilgangurinn sá að koma í veg fyrir undirboð á vinnumarkaði. Eftir að 10 ný ríki fengu aðild að Evrópusambandinu 1. maí í vor hef- ur ódýrt vinnuafl, einkum frá Pól- landi og Litháen, streymt til Noregs. Hafa mörg fyrirtæki nýtt sér það og greitt útlendingunum laun, sem eru aðeins brot af því, sem tíðkast ann- ars í Noregi. Kom þetta fram í Aft- enposten í gær. Norska vegagerðina og þá í raun norska ríkið ætlar að koma í veg fyr- ir þetta með því að ákveða sjálf í út- boðum sínum hver lágmarkslaunin skuli vera á hinum ýmsu sviðum. Segist Kjell Bjørvig aðstoðarvega- málastjóri búast við, að þessi háttur verði tekinn upp annars staðar og þá ekki síst hjá hinu opinbera. Talsmenn verkalýðshreyfing- arinnar hafa fagnað þessari ákvörð- un en talsmaður Skanska, stærsta byggingarfyrirtækis á Norð- urlöndum, sagði, að afleiðingin yrði óhjákvæmilega sú, að tilboð í verk myndu hækka þar sem gera yrði ráð fyrir meiri launakostnaði. Lágmarkslaun nefnd í útboði Norska vegagerðin vill koma í veg fyrir und- irboð á vinnumarkaði MÓÐIR breska verkfræðingsins Kenneth Bigleys, sem mannræningjar í Írak hóta að drepa, kom í gær fram í sjónvarpi og bað þá að þyrma lífi sonar síns. „Sýnið Ken miskunn og leyfið honum að koma heim til mín á lífi,“ sagði Elizabeth Bigley, 86 ára gömul móðir Bigleys, áður en tilfinningarnar yf- irbuguðu hana. Eiginkona Bigleys bað einnig mannræningjana að sleppa manni sínum heilum á húfi en þeir hafa nú þegar tekið af lífi tvo Banda- ríkjamenn, sem þeir rændu með Bigley. Ítalir bíða enn á milli vonar og ótta um örlög tveggja ítalskra kvenna, sem verið hafa gíslar mannræningja í Írak. Draga stjórnvöld í efa tvær yfirlýsingar á Netinu um að konurnar hafi verið líf- látnar og segja þær ótrúverðugar. Iyad Allawi, forseti írösku bráðabirgðastjórnar- innar, ítrekaði í gær, að ekki yrði samið við mann- ræningja. Kom þetta fram í ræðu, sem hann flutti á Bandaríkjaþingi. Sagði hann ennfremur, að „vel“ gengi í Írak og „frelsi og lýðræði“ farin að skjóta rótum, svo væri Bandaríkjastjórn fyrir að þakka. AP Elizabeth Bigley, móðir Kenneths, með tveimur sona sinna, Stanley og Philip. Móðir Bigl- eys biður honum griða London. AP, AFP.  Bað/16 DAGSKRÁ ríkissjónvarps Túrkmenistans var rof- in í gær til að forseti landsins, Saparmurat Niya- zov, gæti lesið ljóð sín í beinni útsendingu. Forsetinn las 40 ljóð sem birt eru í nýrri bók hans. Líkt og þrjár fyrri ljóðabækur höfundar verður sú fjórða skyldulesning í framhaldsskólum. Hið sama á við þekktasta ritverk hans „Ruk- hnama“, sem fjallar um rétta breytni. Forsetinn er jafnan nefndur „Túrkmenbashi“, sem þýðir „Faðir allra Túrkmena“. Í júní var efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu í höfuðborginni, Ashgabat, sem bar yf- irskriftina: „Eilífur mikilfengleiki Saparmurat Túrkmenbashi – Forseti gullaldar Túrkmena.“ Ný bók frá Túrkmenbashi Ashgabat. AP. GENGIÐ var frá samningum um kaup Burðaráss hf. á 76,77% hlutafjár í Kaldbaki hf. Seljend- ur eru Samherji hf. sem selur 25% hlut, Baugur Group hf. sem selur 24,76% hlut og Samson Global Holdings Ltd. sem selur 27,01% hlut. Sameinað er félagið um 80 milljarða króna virði og er því eitt stærsta félag landsins. Seljendur bréfanna munu eignast hlut í hinu sameinaða fé- lagi, sem mun heita Burðarás hf. Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, sagði í samtali við Morgunblaðið megintilganginn með samrunanum þann að búa til öflugra fjárfestingarfélag sem hafi getu til að takast á við allstór verkefni erlendis. Aðaláherslan á Evrópu Friðrik segir ekki óhugsandi að breytt eignarhald geti haft áhrif á fjárfestingarstefnu Burð- aráss, en samkvæmt stefnu fé- lagsins, sem nýlega var kynnt, sé megináherslan á fjármálastarf- semi, fjarskipti og tækni. Segir Friðrik að samkvæmt þeirri fjárfestingarstefnu sem kynnt hafi verið muni Burðarás leggja aðaláhersluna á Evrópu og Evrópusambandslönd en jafn- framt skoða tækifæri eins og t.d. í Austur-Evrópu þar sem gert sé ráð fyrir vexti á komandi árum. Hlutur í Samherja minnkar Kaldbakur var áður stærsti hluthafinn í Samherja, átti 17,38% hlut. Í viðskiptunum í gær seldi Kaupfélag Eyfirðinga Kaldbaki öll hlutabréf sín í félag- inu og fékk að hluta greitt með hlutabréfum í Samherja. Eftir gærdaginn á KEA því 10% hlut í Samherja, en átti ekkert áður, en hlutur Kaldbaks fór niður í 7,38%. Lokað var fyrir viðskipti með bréf Samherja, Kaldbaks og Burðaráss stóran hluta gær- dagsins við opnun markaða í gær. Um hálftvö kom í ljós að viðræður um sameiningu Burð- aráss og Kaldbaks lægju að baki lokuninni. Um hálftíma fyrir lok- un markaða ákvað Kauphöllin að setja hlutabréf Samherja, Kald- baks og Burðaráss á athugunar- lista, en opna fyrir viðskipti með þau. Um sexleytið var síðan til- kynnt að samningar um samein- ingu Burðaráss og Kaldbaks hefðu náðst. Geta til umsvifa erlendis aukist með samrunanum  Burðarás/12 Burðarás hf. kaupir rúmlega 76% hlutafjár í Kaldbaki hf. TINNU Gunnlaugsdóttur, sem mennta- málaráðherra skipaði í gær í embætti þjóð- leikhússtjóra frá áramótum, var vel fagnað af Jóhanni Sigurðarsyni, meðleikara sínum í verkinu Svört mjólk, er hún mætti á loka- æfingu þess í gærkvöldi. Hún segir nýja starfið mikla áskorun. „Leiklist er mín ástríða og hefur verið frá blautu barnsbeini og ég hef komið að því starfi með margvíslegum hætti, auðvitað fyrst og fremst sem leikkona en núna fæ ég tækifæri til að sitja hinum megin við borðið og mér finnst það gífurlega spennandi.“ Í kvöld verður Svört mjólk eftir Vasílij Sígarjov frumsýnt á Smíðaverkstæðinu og þar fer Tinna með hlutverk. „Ég kem til með að njóta þess sérstaklega þar sem þetta verður mitt síðasta hlutverk í þann tíma sem ég gegni starfi þjóðleikhússtjóra.“ „Leiklist er mín ástríða“ Morgunblaðið/Kristinn  Fyrst og fremst/Miðopna STOFNAÐ 1913 260. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.