Morgunblaðið - 24.09.2004, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÓTT Jeremy Zorek sé aðeins
tveggja ára hefur hann þegar hitt
fleiri heimsfræga menn en flestir
geta búist við á langri ævi. Faðir
Jeremys er heimavinnandi húsfaðir
og á gönguferðum um New York-
borg, þar sem fjölskyldan býr, hafa
þeir feðgar hitt frægt fólk og látið
taka af sér myndir með því. Hefur
þessi myndasöfnun nú komist í
heimsfréttirnar.
Micael Zorek, faðir Jeremys, seg-
ir söguna á heimasíðunni www.who-
isthatwithjeremy.com. Hún hófst í
júlí árið 2002 þegar Jeremy var fjög-
urra mánaða en Michael, sem hafði
starfað sem leikari og umboðsmað-
ur, ákvað að vera heima hjá syni sín-
um á meðan kona hans ynni fyrir
heimilinu.
Zorek kom á fjáröflunarfund fyrir
góðgerðarstarfsemi þar sem ruðn-
ingsstjörnurnar og tvíburarnir Tiki
og Ronde Barber voru viðstaddir.
Zorek keypti hjálm merktan New
York Giants og bað Tiki að árita
hann. Zorek var með myndavél á sér
og tók mynd af Tiki og Jeremy.
Tveimur mánuðum síðar komu
Zorek-feðgarnir í bókabúð þar sem
leikkonan Jamie Lee Curtis var að
árita bók. Einhver í búðinni kallaði:
Takið mynd af henni með þessum
strák! Nokkrum dögum síðar birtist
svipuð mynd í blaðinu New York
Post undir fyrirsögninni: Hver er á
myndinni með Jeremy?
Í kjölfarið kviknaði sú hugmynd
að Zorek byggi til vefsvæði með
myndum af Jeremy með frægu fólki,
og þar má nú m.a. sjá myndir af
stráknum með leikurunum Hugh
Jackman, Halle Berry, Sarah Jess-
ica Parker, tónlistarmanninum Billy
Joel, glaumgosanum Hugh Hefner,
G. Gordon Liddy sem varð frægur í
Watergatemálinu, leikstjóranum
Spike Lee og Bill Clinton, fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta.
Margir kannast nú orðið við Jer-
emy, m.a. vegna þess að mynd af
honum með söngkonunni Madonnu
birtist víða. Michael Zorek segir að
Jeremy hafi ekki hugmynd um hvað
frægt fólk sé og segir: „Í hans huga
er ekkert öðruvísi að sitja fyrir á
mynd með Puff Daddy en Mark
frænda. En um leið og Jeremy mun
segja við einhvern: Ég þekki þig, ég
sá þig í sjónvarpinu, þá verður þessu
hætt.“
Fólk í fréttum | Hinn ungi Jeremy Zorek
Tveggja ára
vinur stjarnanna
Leikarinn Robin Williams
heldur á Jeremy litla og
með þeim fékk að vera á
myndinni David Duchovny.
AP
Bill Clinton á einni af 80 myndum
sem faðir Jeremy hefur tekið af
honum og einhverjum heims-
þekktum einstaklingi.
Söngkonan Madonna og Zorek hittust er hann
var 18 mánaða. Það var þegar hún var að árita
barnabók sína Ensku rósina og hún var auðvitað
meira en til í að láta mynda sig með barninu.
KVIKMYNDIR
Myndbönd
Hefndarþorsti (Boksuneun naui geot/
Sympathy for Mr. Vengeance)
Leikstjórn Park Chan-Wook. Aðalhlut-
verk Song K shin, H Bae O, Lim J. Mynd-
form VHS. S-Kórea 2002. (129 mín.)
Bönnuð innan 16 ára.
EIN allra besta mynd sem ég hef
séð á árinu er Old Boy eftir s-
kóreska leikstjórann Park Chan-
Wook. Ég sá hana á Cannes-hátíð-
inni og viðurkenni að hafa þá lítið
þekkt til verka Parks. En þeim mun
slegnari varð ég yfir snilldinni sem
þessi mynd – sem síðar átti eftir að
fá Grand Prix-verðlaunin – var og
átta ég mig nú á hvers vegna
Quentin Tarantino talar um Park
sem einhvern
áhugaverðasta
kvikmyndagerðar-
mann samtímans.
Það var því með
verulegri eftir-
væntingu sem ég
horfði á þessa
næstnýjustu mynd
Parks, frá 2002,
Hefndarþorsta.
Hún fékk blendnari dóma en Old
Boy og eðlilega, því hún er ekki
nándar nærri eins sterk. Fjallar á
óþarflega ruglingslegan hátt um
daufblindan ungan mann og fár-
sjúka systur hans. Hana vantar
nýra og eina leiðin til að fá það er
að kaupa það okurverði á svörtum
markaði. Í örvæntingu rænir bróð-
irinn dóttur auðkýfings í þeirri von
að geta kúgað út lausnargjald og
þar með náð að nurla saman fyrir
nýranu. En allt fer úr böndunum og
auðkýfingurinn, faðir hinnar rændu
stúlku, leitar hefnda. Eins og fyrr
segir er söguþráðurinn í þessari
annars kröftugu mynd ruglingsleg-
ur fram úr hófi, sem dregur veru-
lega úr áhrifamættinum. En snilli-
gáfa Parks, næmt auga hans fyrir
mögnuðum senum, stílfærðum út í
þaula, gefur annars ljótri og ofbeld-
isfullri mynd gildi fyrir unnendur
frumlegrar kvikmyndagerðar.
Skarphéðinn Guðmundsson
Kóreskir
víkingar