Morgunblaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Næring ekki refsing 10.000 VINNINGAR VINNUR ÞÚ? Skafmiði fylgir sérmerktum Skólaosti – fjórði hver miði vinnur! ÚTFLUTNINGSTEKJUR þjóðarinnar af ál- iðnaði voru um 33 milljarðar króna á síðasta ári. Miðað við heimsmarkaðsverð í dag upp á nærri 1.800 dollara fyrir tonnið, og núverandi gengi dollars, reikna álfyrirtækin með sex milljörðum króna meiri tekjum inn í þjóð- arbúið af sölu áls, eða fyrir um 39 milljarða króna. Álverð á heimsmarkaði hefur ekki verið hærra í mörg ár og fagna talsmenn Alcan í Straumsvík og Norðuráls á Grundartanga þessari þróun. Tekjur fyrirtækjanna aukist en um leið hafi ýmis rekstarkostnaður aukist, t.d. vegna kaupa á raforku, rafskautum og súráli. Raforkuverð til álveranna er tengt heims- markaðsverði áls, fari það upp fær Lands- virkjun fleiri krónur í kassann. Landsvirkjun gefur tekjurnar af orkusölu til álvera hins vegar ekki upp og segir þær vera viðskipta- leyndarmál. Aukin sala raforku til stóriðju Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni hefur sala á raforku til stóriðju aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Salan árið 2001 nam nærri fimm milljörðum króna, var 6,5 milljarðar árið 2002 en upplýsingar um verðmæti síðasta árs liggja ekki fyrir. Raforkusala til álvera í krón- um talið var síðast gefin upp í hagtölum árið 1997 og þá komu um 70% orkusölunnar frá Ísal, nú Alcan. Hlutfall álvera er nú, með tilkomu Norður- áls, um 80% af orkusölu til stóriðju. Hækkandi álverð hefur margskonar áhrif hér á landi Tekjur þjóðarbúsins aukast um sex milljarða  Mismikill/8 EINS hreyfils flugvél af gerðinni Cessna 152 hlekktist á í flugtaki á Akureyrarflugvelli í gærmorgun. Vélin fór yfir öryggissvæði norð- an flugbrautarinnar og hafnaði niðri í fjöru. Einn maður var um borð í flugvélinni og komst hann út úr henni af sjálfsdáðum, þrátt fyrir að vera mikið slasaður á hægra fæti. Flugmaðurinn, Svanbjörn Sigurðsson, var fluttur á slysadeild FSA þar sem hann gekkst undir bráðaskurðaðgerð, vegna fótbrots og vöðvablæðinga. Hann var lagður inn á gjör- gæsludeild að lokinni aðgerð. Svanbjörn sagði í samtali við Morgunblaðið að hreyfill vélarinnar hefði stöðvast í um 300 feta hæð með fyrrgreindum afleiðingum. Hann sagði að vélin hefði komið niður á flug- brautina, sem hefði ekki verið nógu löng og runnið áfram yfir öryggissvæðið og út í sjó. Svanbjörn sagðist hafa fengið mikið högg á fótinn þegar vélin fór ofan í fjöru. „Það var vissulega erfitt að ganga frá borði en þegar ég var kominn upp á grasið fór verkurinn í fætinum að aukast og þá var eins og fóturinn á mér væri að springa. Það er mildi að ekki fór verr en biðin eftir sjúkrabílnum virtist þó ansi löng.“ Svanbjörn, sem orðinn er 67 ára gamall, er enginn nýgræðingur í fluginu en hann hefur stundað vélflug og svifflug í áratugi, auk þess sem hann er formaður stjórnar Flugsafnsins á Akureyri. Hann hefur tvívegis áður lent í óhappi á vélflugvélum og einu sinni á svif- flugvél en sloppið að mestu með skrekkinn. Hann sagðist vonast til að þetta hefði ekki verið sitt síðasta flug en vélin sem er í hans eigu skemmdist mikið. Samkvæmt upplýsingum frá Flug- málastjórn hóf flugvélin flugtak til norðurs kl. 10.54 og ætlaði flugmaðurinn að fljúga í ná- grenni Akureyrar í hálfa klukkustund. Skömmu eftir flugtakið lækkaði flugvélin flugið og kom niður á norðurenda flugbraut- arinnar og rann út af brautinni. Slökkvilið og lögregla voru þegar kölluð á staðinn og um miðjan daginn komu fulltrúi Rannsókn- arnefndar flugslysa norður en nefndin fer með rannsókn málsins. Þorkell Ágústsson hjá nefndinni skoðaði að- stæður á vettvangi í gærdag en gat lítið sagt um málið að öðru leyti en því að vélin væri mikið skemmd. Páll Stefánsson var á heilsubótargöngu á Leiruvegi þegar óhappið varð. Hann sagðist hafa heyrt mikla skruðninga þegar flugvélin fór yfir öryggissvæðið og niður í fjöru. Páll sagði að flugmaðurinn hefði komist strax út úr vélinni en haltrað upp á öryggissvæðið. Eins hreyfils flugvél hlekktist á á Akureyrarflugvelli Eins og fóturinn væri að springa Morgunblaðið/Kristján Flæða tók að vélinni þegar leið á daginn en hún var hífð á þurrt seinni partinn í gær. Svanbjörn Sigurðsson á gjörgæsludeild FSA með Svandísi Þorláksdóttur hjúkrunarfræðingi. lagsins til að flytja inn ólögleg og lífshættuleg fíkniefni. Ásgeir Karlsson, yfir- maður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, vildi ekki gefa frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu. Um 1.200 fíkniefnabrot Samkvæmt upplýsing- um frá ríkislögreglu- stjóra hafa 1.185 fíkni- efnamál komið til kasta lögreglu á þessu ári. Í fyrra var heildarfjöldinn 1.385 en þau voru 994 árið 2002. Þeim hefur því fjölg- að umtalsvert og á þessu ári stefn- ir í metfjölda. HIÐ umfangsmikla fíkniefnamál sem nú er til rannsóknar hjá lög- reglunni í Reykjavík snýst um inn- flutning á um 11 kílóum af amfeta- míni auk annarra fíkniefna og er þetta umfangsmesta amfetamín- smygl sem lögregla og tollgæsla hafa komið upp um hér á landi. Alls hafa náðst 15,3 kíló af amfeta- míni hér á landi það sem af er þessu ári. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær eru sex manns í haldi vegna rannsóknar málsins, fjórir hér á landi en tveir í Rotter- dam. Fíkniefnin voru flutt í vöru- sendingum sem komu með Detti- fossi frá Hollandi. Í tilkynningu sem Eimskipafélag Íslands sendi frá sér í gær er það harmað að fíkniefnasmyglarar misnoti skip fé- Guðmundur Guð- jónsson, yfirlögreglu- þjónn hjá ríkislög- reglustjóra, sagði í samtali við Morgun- blaðið að í ársbyrjun 2003 hefði verið gripið til aukinna aðgerða gegn fíkniefnum. Starfsmaður fíkniefna- stofu ríkislögreglu- stjóra hefði m.a. rætt við yfirmenn lögreglu- embætta vítt og breitt um landið um markmið og leiðir. Hann telur að breyting á áherslum varðandi fíkniefnalöggæslu hafi skilað sér í fjölgun mála. Mest hefur fjölgunin verið í mál- um sem varða vörslu fíkniefna, eða úr um 630 árið 2001 í tæplega 1.000 í fyrra. Það sem af er þessu ári hafa um 840 slík mál komið upp. Aðspurður hvort fjölgun fíkni- efnamála hafi valdið því að minna sé af fíkniefnum í umferð sagði Guðmundur að alltaf væri erfitt að leggja mat á slíkt enda engar áreiðanlegar upplýsingar til um það magn sem væri í umferð hverju sinni. Það væri hins vegar ljóst að lögregla og tollgæsla hefðu náð verulegum árangri í að koma í veg fyrir fíkniefnaneyslu, tölur um fjölda fíkniefnamála og magn fíkni- efna sem lagt hefur verið hald á, töluðu sínu máli.  Mesta smygl/4                   !  ! "  Lagt hald á ellefu kíló af amfetamíni í vörusendingum EKKERT miðaði á sáttafundi í kjaradeilu kennara og viðsemjenda þeirra í gær og hefur næsti fundur í deilunni verið boðaður að viku lið- inni. Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir að fulltrúar sveitarfélaganna hafi ekki lagt fram neitt nýtt á fundinum í gær og Birgir Björn Sigurjónsson, for- maður launanefndar sveitarfélaga segir að staðan sé mjög þung og al- varleg. Einni undanþágubeiðni frá verk- falli kennara var hafnað í gær. Beiðnin var ekki vegna kennslu fatl- aðra barna. Ellefu undanþágubeiðn- ir til viðbótar bíða enn afgreiðslu og er gert ráð fyrir að þær verði af- greiddar á fundi undanþágunefndar fyrir hádegi í dag. Flestar þær beiðnir snúast um kennslu fyrir fötl- uð börn. Ásmundur Stefánsson, rík- issáttasemjari, stakk upp á því að deilendur mættust á „hugarflugs- fundi“ á mánudag til þess að leita allra mögulegra lausna á deilunni. Lýstu fulltrúar sveitarfélaganna sig fúsa til að mæta á slíkan fund, en grunnskólakennarar höfnuðu því og tjáðu sig ekki reiðubúna til að fara á slíkan fund nema eitthvað lægi á borðinu af hálfu viðsemjenda þeirra. Formaður Félags grunnskólakenn- ara segir að sá fjárhagsrammi sem sveitarfélögin séu aftur og aftur að bjóða kennurum komi ekki til greina. Árangurslaus sáttafundur  Staðan þung/6 SKARPHÉÐINN Berg Steinarsson var í gær kjörinn stjórnarformaður Og Vodafone hf. á aðalfundi félags- ins, sem haldinn var á Hótel Sögu. Skarphéðinn er einnig stjórnarfor- maður Norðurljósa hf., sem keyptu fyrir skömmu um 35% hlut í Og Vodafone, og er nú stærsti hluthaf- inn í fyrirtækinu. Þá voru kjörnir ný- ir í stjórn þeir Pálmi Haraldsson, Árni Hauksson og Einar Hálfdánar- son. Vilhjálmur Þorsteinsson situr áfram í stjórninni. Á fundinum var samþykkt heimild til handa stjórn til að auka hlutafé þess um sem nemur 150 milljónum króna að nafnvirði vegna samruna og yfirtöku félaga. Um 50 milljónir af upphæðinni verða notaðar til að greiða fyrir kaupin á fyrirtækinu Margmiðlun hf. Stjórnar- skipti hjá Og Vodafone  Skipt um/13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.