Morgunblaðið - 24.09.2004, Side 25

Morgunblaðið - 24.09.2004, Side 25
tyrkneskum vini frá Suður-Tyrk- landi sem fékk súpuna oft hjá ömmu sinni. „Tyrkir leggja áherslu á að súpur séu ferskar,“ segir Guðmund- ur. „Sellerírótin og sítrónanþjóna vel þeim tilgangi.“ Brauð með gúllassúpu (tvö stór brauð) 600 g hveiti 50 g smjör 7 g þurrger 1½ tsk salt ½ tsk sykur 400 ml mjólk oreganó 1 egg og aðeins mjólk til að pensla brauðið Hveitið sett í skál, smjör mulið út í í höndunum þar til það er kornótt. Salti, sykri og geri blandað saman við og volgri mjólk hellt út í í lokin. Deigið hnoðað vel í um 10 mín. Breitt yfir skálina með rökum klút og deigið látið hefast í um 40 mín. Deigið hnoðað aftur saman og mótað í tvö brauð, sem sett eru á ofnplötu og látin hefast á ný í um 20 mín. Brauðin pensluð með eggja/mjólkurblöndu og stráð yfir oreganó eða basil ásamt nýmöluðum pipar. Bakað við 180ºc í 20 mín. Mjólkurblöndu aftur penslað yfir brauðin. Bakað á ný í um 15 mín. eða þar til brauðin eru fal- lega brún. Í þessi brauð má t.d. setja sólþurrkaða tómata, ólífur eða þurrkaðar apríkósur. Brauðið er látið standa í 20 mín. áður en það er skorið. Á matseðli Cultura er taílensk súpa og segir Guðmundur að hún sé mjög vinsæl og verði áfram á mat- seðli vetrarins og hér er kemur upp- skriftin: Taílensk Tom Ka-súpa með kjúklingi og fiski dagsins 4 hvítlauksrif (söxuð) 3 cm biti ferskt engifer (saxað) 1 laukur skorinn í bita 1–2 sellerístangir í bitum 2 gulrætur, skornar í strimla fiskkraftur kjötkraftur 200 g kjúklingur skorinn í strimla 200 g smálúða skorin í bita 2 msk rifin sítrónumelissa salt og pipar 2 dósir kókósmjólk 1 l vatn Sellerí og laukur léttsteikt í potti, ekki brúna. Hvítlauk og engifer bætt út í, þá gulrótunum og loks vatni. Látið sjóða í um 20 mín. Fisk- kraftur, kjötkraftur og sítrónumel- issa sett út í meðan á suðu stendur og súpan smökkuð til með salti og pipar. Kókosmjólk bætt út í í lokin og súpan látin sjóða í um 10 mín. Kjúklingurinn og fiskurinn brúnuð í olíu á pönnu. Krydduð með salti og pipar og sett út í súpuna rétt áður en hún er borin fram. Á Þremur frökkum er boðið upp á rjómalagaða humarsúpu, sem Úlfar Eysteinsson matreiðslumaður gefur uppskrift að: Humarsúpa 12 humrar ½ msk tómatpuré ½ laukur 2 sveppir 1 tsk paprikuduft ½ tsk karrí 5 hvítlauksgeirar 2 dl hvítvín 1,5 l vatn 1 tsk fiskikraftur 1 tsk kjötkraftur 2 dl rjómi Smjörbolla til þykkingar „Við byrjum á að hátta humarinn úr skelinni,“ segir Úlfar, og það ger- ist þannig: Humarinn er klofinn eftir endilöngu, görnin hreinsuð úr og fiskurinn tekinn úr skelinni. Hum- arskelin er sett í pott og svissuð í smjöri í 3 mín. Lauk, svepp- um, tómatpuré, papriku- dufti, karríi og hvítlauk bætt út í og steikt áfram í 1–2 mín. Hvít- víni, vatni og krafti er hellt út í og soðið áfram í 30–45 mínútur. Soðið er sigtað og þykkt með snjörboll- unni. Rjómanum bætt út í í lokin. Áður en súpan er borin fram eru humr- arnir (þrír á hvern disk) klofnir í tvennt svo þeir verða á þykkt við lít- inn kvenmannsfingur. Þeir eru lagð- ir á diskana áður en súpunni er hellt yfir. Humarinn nær að hlaupa á leið- inni frá pottinum og fram á borð. Verði ykkur að góðu! krgu@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2004 25 DAGLEGT LÍF 60 litir + 9 efnasamsetningar = frábært samstarf Næstum eins og þín eigin húð. Þinn litur, þín formúla, klæðskerasniðin að þörfum þínum með aðstoð sérfræðinga Clinique. Allt að eigin vali: áferðin, þekjan, sólarverndin. Möguleikarnir eru svo margir að þú hlýtur að finna einmitt farðann sem þér hentar. Gjöf fylgir keyptum Clinique vörum fyrir 3.500 kr. og meira.* *Á meðan birgðir endast. w w w .c lin iq ue .c om Laugavegi 63, sími 551 4422 NÆSTA sunnudag, hinn 26. sept- ember, verður alþjóðlegur hjarta- dagur haldinn víða um heim eða í yfir 100 löndum. Þema dagsins í ár er börn, unglingar og hjarta- sjúkdómar. Ástrós Sverrisdóttir, fræðslufulltrúi hjá Hjartavernd, segir að með heilbrigðum lífs- háttum allt frá barnæsku megi koma í veg fyrir mörg tilfelli hjartasjúkdóma síðar á ævinni. „Þótt verulega hafi unnist á í fækkun kransæðastíflutilfella þá fá meira en þúsund Íslendingar krans- æðastíflu árlega ef allir eru taldir og eru karlmenn þar í miklum meirihluta. Gera má ráð fyrir að fjöldi þeirra sem deyja árlega skyndidauða á Íslandi vegna krans- æðastíflu sé um tvö hundruð manns. Nokkur lykilatriði geta stuðlað að heilbrigðu hjarta alla ævi; að forðast offitu og reykingar, hreyfa sig og neyta hollrar fæðu. Offita meðal barna fer stöðugt vaxandi víða um heim. Gera má ráð fyrir að 22 milljón börn undir fimm ára aldri séu of feit og enn fleiri yf- ir kjörþyngd.“ Ástrós bendir á að því yngri sem viðkomandi byrji að reykja því meiri hætta sé á að fá sjúkdóma síðar sem rekja megi til þeirra. „Helmingur ungs fólks sem byrj- ar að reykja snemma (á unglings- árum) og heldur því áfram á full- orðinsárum er líklegri til að deyja af sjúkdómum sem rekja má til reykinga. Næstum helmingur allra barna á heimsvísu býr inni á heimili þar sem er reykt. Þó hefur um- hverfið breyst í þessum efnum, a.m.k. hérlendis og víðar. Fólk reykir síður í návist barna og reyk- laus svæði eru víðar en áður.“ Ástrós segir að aðalmálið sé þó að unglingurinn byrji ekki að reykja. Unglingur með sterka sjálfsímynd, skýr markmið í lífinu og heilbrigða hugsun er besta leið- in fyrir reykleysi Þrátt fyrir að það sé börnum eðlislægt að hreyfa sig og vera virk segir Ástrós að stór hluti barna hreyfi sig alltof lítið daglega. „Kyrrseta hjá börnum eykur líkurnar á hjarta- og æða- sjúkdómum og ýmsum öðrum lang- vinnum sjúkdómum síðar á æv- inni.“ Auk þessara þátta segir hún að mataræði skipti miklu máli fyrir heilbrigt hjarta. „Börn þurfa að borða hollan mat, takmarka saltneyslu, sykraða gos- drykki, sælgæti og snakk.“  HEILSA | Árlega fá yfir þúsund Íslendingar kransæðastíflu Heilbrigt líferni í æsku er fyrirbyggjandi Morgunblaðið/RAX Lykilatriði: Hreyfing er eitt af lykilatriðum til þess að hafa heilbrigt hjarta. TENGLAR .............................................. www.hjarta.is www.lhs.is www.worldheartday.com Í tilefni af alþjóðlega hjartadegi hafa Hjartavernd og Hjartaheill (Landsamtök hjartasjúklinga) skipulagt sérstaka dagskrá m.a. hjartagöngu og línuskautahlaup (ef veður leyfir) frá Þróttaraheim- ilinu í Laugardalnum kl.13 á sunnu- dag . Þá verða heilsufarsmælingar einnig í boði frá kl.13-16 á sama stað. Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.