Morgunblaðið - 24.09.2004, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í spásímanum 908 6116 er spá-
konan Sirrý. Ástir, fjármál, heilsa.
Tímapantanir fyrir einkatíma í
símum 908 6116 og 823 6393.
Swarovski kristalhjörtu í háls-
ólar hunda.
DÝRABÆR, Hlíðasmára 9, Kóp.,
sími 553 3062. Opið kl. 13-18
mán.-fös., kl. 11-15 lau.
SOLID GOLD náttúrulegur hunda-
matur. Engin aukefni.
DÝRABÆR, Hlíðasmára 9, Kóp.,
sími 553 3062. Opið kl. 13-18
mán.-fös., kl. 11-15 lau.
Hausttilboð - 30%! Full búð af
nýjum vörum fyrir hunda, ketti og
önnur gæludýr. 30% afsláttur af
öllum vörum. Opið mán.-fös.
kl.10-18, lau. 10-16, sun. 12-16.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði, sími 565 8444.
Hann Tómas er týndur. Hans er
sárt saknað. Hann býr á Herjólfs-
götu 22. Vinsamlega hringið í síma
565 3422/555 2883/691 1422.
Nú aðeins 8.000 kr. allir leðurjakk-
ar og frakkar. Vesti á 1.500 kr.
Drengjajakkar 4.500 kr. Opið 14-18.
Markaðsþjónn, Rangárseli 4,
neðri hæð, 109 R., s. 534 2288.
Fjölskyldudagar í Quiznos!
Næstu daga fá börn sem borða
hjá okkur að gjöf kökukrukkur
sem gefa frá sér hljóð dýra þegar
stolist er í köku. Glóðaðar sam-
lokur Quiznos, Slbr 32, 577 5775.
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 35 kg, ég
um 25 kg, Dóra um 15.
www.diet.is-www.diet.is
Hringdu! Margrét s. 699 1060.
Njóttu þess að léttast!
kata.grennri.is. Breyttur lífsstíll
og frábær líðan! Ég missti 5 kg!
Ása 7 kg! Anna 10 kg! Magga 2
5kg! Hvað viltu missa mörg kg?
Fríar Prufur. Frí Prótínmæling
Louise s: 661 8921.
Kynning í Blómavali í dag frá
14-18, á metsölubók dr. Gillian
McKeith, YOU ARE WHAT YOU
EAT og Living Food Energy súper-
fæðu. Kíktu við og fáðu góðar
upplýsingar.
Blómaval, Sigrúni.
DÁLEIÐSLA,
losun frá streitu og kvíða með
sjálfsdáleiðslu og nýrri nálgun,
Emotional Freedom Techniques.
Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu-
fræðingur. s: 694 5494
mbl.is
FÉLAG íslenskra húðlækna býður
blettaskoðun mánudaginn 27. sept-
ember. Fólk sem hefur áhyggjur af
blettum á húð getur látið húðsjúk-
dómalækna skoða blettina og meta
hvort ástæða sé til nánari rann-
sókna. Nauðsynlegt er að panta tíma
í þessa skoðun, sem er sjúklingum að
kostnaðarlausu.
Krabbameinsfélagið hefur tekið
að sér að sjá um bókanir í dag, föstu-
daginn 24. september kl. 8.30–10.30 í
síma 540 1916. Takmarkaður fjöldi
kemst að í þessari skoðun, sem fyrst
og fremst er til að vekja athygli á
húðkrabbameini en ekki til að leysa
vanda allra. Mikilvægt er að fara til
læknis ef fram koma breytingar á
húð, svo sem blettir sem stækka eða
eru mislitir og sár sem ekki gróa,
segir í fréttatilkynningu.
Á flestum heilsugæslustöðvum og
í mörgum apótekum er hægt að fá
fræðslurit um húðkrabbamein. Ný-
lega hefur Krabbameinsfélagið opn-
að sérstaka vefsíðu um húðkrabba-
mein
(krabbameinsfelagid.is/190.htm).
Einnig eru ýmsar gagnlegar upplýs-
ingar á vef Landlæknisembættisins
(landlaeknir.is), hjá Geislavörnum
ríkisins (gr.is) og á vef Cutis ehf.
(cutis.is).
Húðlæknar bjóða blettaskoðun
FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ telur
að hugmyndir um ávísanakerfi,
þar sem kennarar og aðrir sér-
fræðingar hafa meira frelsi til að
eiga og reka skóla, geti bætt
skólastarf. „Í slíku kerfi lætur hið
opinbera hvern nemanda fá ávísun
sem hann má nota til að kaupa sér
menntun í mismunandi skólum,
sem geta t.d. verið einkaskólar.
Við slíkt fyrirkomulag eru meiri
líkur á framförum en við núver-
andi opinberan rekstur. Bæði
verða framfarirnar í menntun
barnanna og kjörum kennaranna.
Það er ömurlegt hlutskipti að
standa reglulega í verkfalls-
aðgerðum gagnvart hinu opinbera
til að fá kjarabætur,“ segir í frétt
frá félaginu.
Styðja ávísana-
kerfi í skólum
BÓNUS í Spöng í Grafarvogi verð-
ur opnaður í dag kl. 10, eftir breyt-
ingar. Verslunin er nú um 1.400 fer-
metrar og með 9 afgreiðslukassa.
Gamla verslunina var um 680 fer-
metrar og með 5 afgreiðslukassa.
Einnig býður verslunin í fyrsta
skipti upp á sérvörur í Spönginni.
Bónus í Spöng
opnaður eftir
breytingar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Elínu
Hansdóttur:
„Vegna umfjöllunar um styrk-
veitingu sem ég varð aðnjótandi
fyrr í sumar og fjallað var um í DV
fimmtudaginn 16. september síð-
astliðinn, vil ég taka eftirfarandi
fram: Blaðamaðurinn, Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir, sem hafði sam-
band við mig frá DV, gerði mér
engan veginn ljóst að því, sem okk-
ur fór á milli í óformlegu samtali í
síma, yrði slegið upp sem viðtali við
mig með þeim hætti sem raun ber
vitni á síðum blaðsins. Mér skildist
á henni að hún væri að leita sér
upplýsinga meðal fleiri aðila, LÍN,
Listasafni Íslands, hjá þeim sem
fékk styrkinn með mér, auk mín.
Blaðamaðurinn lagði hart að mér
um að fá að segja frá málinu í heild
sinni, og lofaði um leið að hafa
EKKERT eftir mér án þess að leyfa
mér að lesa það yfir. Sjálf gerði ég
blaðamanninum ljóst að ég væri
mjög treg til að láta hafa nokkuð
eftir mér um þetta mál í DV og því
hefði átt að vera þeim mun meiri
ástæða fyrir hann að virða ósk
mína um yfirlestur og sýna þar með
fagleg vinnubrögð. Í stuttu máli
lýsi ég því yfir að greinin í DV var
birt án míns samþykkis og ég á
engra annarra kosta völ en biðja þá
hlutaðeigandi aðila sem minnst er á
í ummælum höfðum eftir mér í
greininni afsökunar á því að það
sem einungis átti að vera tveggja
manna tal skuli hafa birst á prenti.“
Athugasemd
SAMTÖK iðnaðarins efndu til Mat-
artímans, kynningar á framleiðslu
félagsmanna sinna í matvælaiðnaði,
á Grand hóteli, Reykjavík. Á kaup-
stefnunni, sem haldin hefur verið
árlega frá 1995, kynntu 25 fyr-
irtæki í matvælaframleiðslu nýj-
ungar og hefðbundnar lausnir í
vöru og þjónustu fyrir stórnot-
endur, mötuneyti, eldhús og veit-
ingahús.
Meðal nýjunga á kaupstefnunni
var ný lína Sláturfélags Suðurlands
fyrir skólamötuneyti en SS rekur
mötuneyti í fjórum skólum í Hafn-
arfirði. Einnig grænmetisréttir frá
Móður náttúru; skyrdrykkir og íste
frá Mjólkursamsölunni og pasta-
réttir frá ARK. Þá má nefna nám-
skeið og ráðgjafarþjónustu frá
Rannsóknarþjónustunni Sýni sem
ráðleggur starfsfólki mötuneyta og
fyrirtækja um rétta samsetningu
matseðils o.fl.
Margar nýjungar kynntar
í matvælaiðnaði
Morgunblaðið/Þorkell
Matartíminn – kaupstefna íslensks matvælaiðnaðar
KRABBAMEINSFÉLAG Íslands
og KB banki halda áfram sam-
starfi um söfnun velunnara fyrir
Krabbameinsfélagið, en söfnunin
hófst í apríl undir heitinu „Þitt
framlag skiptir máli“. Viðskipta-
vinum KB banka og öðrum býðst
að bætast í hóp þeirra sem nú þeg-
ar styrkja félagið með reglulegu
framlagi og hefur KB banki heitið
því að leggja fram 500 krónur fyrir
hvern sem bætist við.
Frá því í vor hefur verið hægt
að fylla út eyðublað á afgreiðslu-
stöðum bankans en nú verður
einnig hægt að hringja í Krabba-
meinsfélagið í síma 540-1900 og
skrá sig sem velunnara félagsins.
Auk þess munu fulltrúar Krabba-
meinsfélagsins hafa samband við
fólk og bjóða því að leggja félaginu
lið. Stefnt er að því að safna 3.000
nýjum velunnurum, segir í frétta-
tilkynningu.
Söfnun velunnara Krabbameins-
félagsins heldur áfram
NÚ í september eru liðin tíu ár frá
stofnun Félags áfengisráðgjafa,
FÁR. Frá upphafi hefur það verið
eitt af markmiðum félagsins að
auka þekkingu og færni áfeng-
isráðgjafa, efla fagmennsku og
hafa samskipti við fagfélög áfeng-
isráðgjafa í öðrum löndum.
Einnig er FÁR sameiginlegur
vettvangur félagsmanna til að
vinna að minnkun fordóma og
aukins skilnings í íslensku þjóð-
félagi gagnvart fíknisjúkdómum. Í
félaginu eru áfengis/vímuefnaráð-
gjafar og fjölskylduráðgjafar.
Næsta verkefni félagsins er að
vinna að skilgreiningu á starfi
áfengisráðgjafa og að það verði
viðurkennd starfsstétt með vel
skilgreind réttindi og skyldur.
Formaður félagsins er Hjalti
Björnsson. Hægt er að nálgast fé-
lagið á heimasíðu þess www.far.is
og á far@far.is
Tíu ár frá
stofnun FÁR
Í SAMEIGINLEGRI yfirlýsingu frá
framkvæmdastjóra Alþjóðahúss og
bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar
segir að þessir aðilar hafi áhuga á
að auka samstarf og samvinnu,
m.a. með bættri kynningu á þjón-
ustunni gagnvart íbúum og starfs-
mönnum.
„Undanfarið hafa verið umræð-
ur í fjölmiðlum um niðurstöðu
skýrslu sem lýðræðis- og jafnrétt-
isnefnd Hafnarfjarðarbæjar lét
vinna um þjónustu bæjarins við
íbúa af erlendum uppruna.
Af þessu tilefni skal það tekið
fram að bæði Hafnarfjarðarbær og
Alþjóðahús eru áfram um að auka
sitt samstarf og samvinnu, m.a.
með bættri kynningu á þjónustunni
gagnvart íbúum og starfsmönnum
Hafnarfjarðarbæjar, aukinni þjón-
ustu Alþjóðahúss innan bæj-
armarkanna, aukinni fræðslu til
bæjarbúa á öllum aldri og auknu
samstarfi um verkefni sem tengja
saman fólk af ólíkum uppruna.“
Áfram áhugi
á samstarfi
STJÓRN Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi telur það brýnt vegna
aukinnar þungaumferðar og um-
ferðaröryggis að þegar verði hugað
að uppbyggingu þjóðvegar 1 frá
Kjalarnesi að Holtavörðuheiði. Enn
fremur fagnar stjórn SSV um-
ræðum um framkvæmdir við Sunda-
braut upp á Kjalarnes sem eru
byggðum á norðvesturhluta lands-
ins mjög mikilvægar. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu frá stjórninni.
Stjórn Samtaka sveitarfélaga vill
með þessu leggja áherslu á mik-
ilvægi tvöföldunar þjóðvegar alla
leið upp á Holtavörðuheiði sem og
lýsa yfir stuðningi sínum við Sunda-
braut alla leið upp á Kjalarnes.
Tvöföldun þjóð-
vega mikilvæg